Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2021, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.1. 2021
LESBÓK
LEIKLIST Hin breska Emma Corrin, sem hlotið hefur mik-
ið lof fyrir túlkun sína á lafði Díönu heitinni í sjónvarps-
þáttunum Krúnunni, eða The Crown, segir mesta hólið
hafa komið frá vinum sínum sem gleymdu víst að þetta
væri hún meðan þeir horfðu á þættina. Um það snúist leik-
list í reynd; að verða persónan og gera sjálfa sig ósýni-
lega. Í samtali við The Guardian kveðst Corrin afar þakk-
lát fyrir tækifærið sem þó var ekki sjálfgefið að hún
myndi þiggja. Umboðsmaður hennar hafi til dæmis
ráðið henni frá því að leika Díönu. „Emma, ekki gera
þér þetta. Hugleiddu það ekki einu sinni,“ sagði hann
og átti þar við að hún gæti mögulega aldrei hrist lafð-
ina alveg af sér. Peter Morgan, höfundur þáttanna, er
á öðru máli; Corrin standi nú allar dyr opnar.
Gleymdu að þetta væri ég
Emma Corr-
in á framtíð-
ina fyrir sér.
AFP
BRÆÐUR Þýska gítargoðið Michael Schenker getur
ekki hugsað sér að vinna aftur með sínum gömlu fé-
lögum úr Scorpions, Klaus Meine og eldri bróður sín-
um Rudolf, fyrir þær sakir að sá síðastnefndi er svo
mikill yfirgengill (e. bully). Þetta kom fram í samtali
við spænska málmgagnið Metal Journal en Schenker
var spurður hvort hann hefði ekki íhugað að fá Meine
til að syngja nýja útgáfu af gamla Scorpions-laginu In
Search of the Peace of Mind sem verður á væntanlegri
breiðskífu Michael Schenker Group, Immortal. Nei,
var svarið. Vegna þess hversu nánir Meine og Rudolf
Schenker eru. „Það myndi bara opna ormagryfju,“
sagði Michael sem kveðst eftir sem áður unna Rudolf
sem bróður. Þeir geti bara ekki starfað saman.
Bróðir minn er yfirgengill
Michael Schenker er orðinn 66 ára.
AFP
Konur eru baklandið hjá DeHaan.
Betra að vinna
með konum
KONUR Bandaríski leikarinn
Dane DeHaan upplýsir í viðtali við
breska blaðið The Independent að
honum líki betur að vinna með kon-
um en körlum. „Ég er mömmu-
strákur og mér hefur alltaf samið
betur við konur; þær eru almennt
séð friðsælli, samvinnuþýðari, um-
hyggjusamari og hugsa meira frá
hjartanu, skilurðu? Þess vegna
nærist maður betur í því umhverfi.
Það hefur heilmikið að segja. Rétt
eins og tilfinningagreind, skilurðu?
Við leikarar erum alltaf að kafa of-
an í flækjurnar í mannlegri hegðun
og að leggja í þá vegferð með
manneskju sem býr yfir mikilli til-
finningagreind er alltaf meira gef-
andi,“ segir DeHaan.
Cat Hogan snýr heim til bæj-arins West Meath á Írlandieftir langa fjarveru til að
fylgja móður sinni til grafar. Móð-
irin hafði lengi glímt við erfið veik-
indi en banamein hennar var höfuð-
högg eftir fall, eða það er alltént
opinbera skýringin. Cat er á hinn
bóginn full grunsemda sem beinast
að föður hennar, en það andar aug-
ljóslega mjög köldu á milli þeirra
feðgina. Faðirinn, sem er læknir,
kveðst hafa verið í vinnunni þegar
móðirin lést en sú skýring er málum
blandin. Var hann mögulega heima,
hefur hann eitthvað að fela?
Vangaveltur Cat hljóta ekki
hljómgrunn, hvorki hjá systkinum
hennar tveimur né lögreglunni á
staðnum, þannig að hún hefur sína
eigin rannsókn á málinu, þrátt fyrir
mótspyrnu föður hennar og beinar
hótanir. Inn í málið fléttast svo and-
lát fjölskylduvinar mörgum árum
áður en Cat getur ekki útilokað að
faðir hennar hafi jafnframt komið
þar við sögu. Óljós minningabrot úr
æsku sækja á hana. Og okkar kona
gefur sig hvergi enda þótt faðir
hennar reyni leynt og ljóst að koma
henni úr bænum. Flytur meira að
segja gamlan frænda inn í herbergið
hennar á æskuheimilinu en hann er
ekki fyrr mættur á svæðið en hann
byrjar að gæla við jafnaldrann – og
lætur sér hvergi bregða þótt Cat
Að Íra
óstöðugan
Írskir þættir hafa verið áberandi í íslensku sjón-
varpi undanfarið, þar sem flókin fjölskyldumál og
enn flóknari ástamál hafa verið brotin til mergjar.
Þeir eru minna í smærri málunum frændur okkar.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Carolina Main og Adrian Dunbar fara með aðalhlutverkin í Blóði.
Channel 5
Paul Mescal og Daisy Edgar-Jones fá mikið lof fyrir leik sinn í Eðlilegu fólki.
ALLA sunnudaga
MILLI 12 OG 16