Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2021, Page 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2021, Page 32
SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 2021 Suðurlandsbraut 24 108 Reykjavík Sími 554 6969 lur@lur.is • lur.is Verið velkomin í heimsókn Mikið úrval hvíldarstóla fyrir alla Hvíldin byrjar í LÚR LÁTTU ÞÉR LÍÐA VEL Hljóðfæraheildsalan Guitar Center afhjúpaði í vikunni glænýtt listaverk eftir Robert Vargas á útvegg verslunar sinnar á Sun- set Strip í Hollywood sem sýnir gítarleikarann Eddie Van Halen heitinn í ham með hljóðfæri sitt, hinn goðsagnakennda gítar Frankenstrat. Sitt sýnist hverjum og enda þótt flestir Van Halen-aðdáendur sem hafa viðrað skoðun sína séu jákvæðir í garð verksins hafa sumir fundið því flest til foráttu. „Ég ann Eddie en þetta líkist honum ekki neitt,“ tísti einn hneykslaður. Listamanninum barst á hinn bóginn liðstyrkur úr góðri átt en Wolfgang Van Halen, sonur Eddies, svaraði aðdáandanum full- um hálsi. „Þú ættir að fá þér gleraugu, lagsi. Þú sérð ekki baun. Veggurinn er geggjaður, bókstaflega gallalaus. Ég skil þegar mönnum líkar ekki listaverk en að segja að verkið líkist honum ekki dregur ekki upp gáfulega mynd af þér. Þetta er ekki spurn- ing um smekk, þú hefur beinlínis rangt fyrir þér.“ Listaverkið sem um ræðir. AFP Veggjaður Van Halen Feðgarnir Wolfgang og Eddie Van Halen saman á tónleikum. Eddie lést á liðnu ári, 65 ára gamall. AFP Glæný veggmynd af gítarleikaranum Eddie Van Halen heitnum umdeild. Hann var seinheppinn innbrots- þjófurinn sem braust inn í versl- un KRON á Vesturgötu 48 í Reykjavík í skjóli nætur seint í janúar fyrir sjötíu árum. Tveir rannsóknarlögreglumenn voru að störfum þessa nótt og veittu grunsamlegum manni athygli, að því er fram kom í Morgun- blaðinu. „Veittu þeir honum eftirför nokkuð lengi. Fór hann inn í portið bak við fyrrnefnda KRON-verslun. Þar var hann góða stund án þess að hafast nokkuð að, en svo braust hann inn í verslunina, í gegnum glugga á bakhlið hússins,“ sagði í frétt blaðsins. Er þjófurinn var kominn inn í verslunina, varð hann þess var að honum hafði verið veitt eft- irför. Lagði hann á flótta út um aðaldyr verslunarinnar. Götu- lögreglumenn komu rannsókn- arlögreglumönnunum til hjálpar og hófst leit að manninum og fannst hann skömmu síðar. „Hann var með 80 krónur í pen- ingum í fórum sínum. Þessari sömu upphæð hafði verið stolið úr peningakassa verslunarinnar. Mál mannsins er í rannsókn. Maðurinn var drukkinn. “ GAMLA FRÉTTIN Stóðu þjóf að verki KRON-verslanir settu lengi svip sinn á höfuðborgarsvæðið. Þessi var þó í Kópavogi en ekki á Vesturgötu 48, þar sem brotist var inn í janúarlok 1951. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Björn Borg tennisleikari Bjarki Már Elísson handboltamaður Mikkel Hansen handboltamaður

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.