Morgunblaðið - 02.02.2021, Page 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2. F E B R Ú A R 2 0 2 1
Stofnað 1913 27. tölublað 109. árgangur
JÓHANN SMÁRI
SYNGUR UM
ÁST OG VESEN KA/ÞÓR BYRJAR MEÐ LÁTUM
BERNIE SANDERS
BÆTIST Í
BRÚÐUSAFNIÐ
ÍÞRÓTTIR 27 HEILLAR Í HAFNARFIRÐI 2HÁDEGISTÓNLEIKAR 28
ávinningurinn af verðlækkunum skili
sér ekki til neytenda.
Innflutningur á kjöti dróst saman
á síðasta ári, mest á svínakjöti. Ingvi
segir að það sé eðlilegt í ljósi ótæpi-
legs innflutnings á árinu 2019 og
fækkunar ferðamanna vegna
kórónuveirufaraldursins. Hann
bendir jafnframt á að með innflutn-
ingi á unnum kjötvörum frá Evrópu
sé verið að flytja störf við kjötvinnslu
úr landi.
Þótt samdráttur hafi orðið í sölu á
kjöti frá innlendum framleiðendum
hefur innlenda framleiðslan haldið
stöðu sinni nokkuð á markaðnum.
Samdráttur í sölu hefur haft meiri
áhrif á innflutning en innlenda fram-
leiðslu. Eigi að síður safnast upp
birgðir af svínakjöti í frystigeymslum
kjötvinnsla, að sögn Ingva, og áður
hefur komið fram að offramleiðsla er
á nautgripakjöti og nokkrar umfram-
birgðir eru af kindakjöti.
Liðkað var fyrir innlendri kjöt-
framleiðslu með breytingum á útboði
tollkvóta en Ingvi telur að frekari að-
gerðir þurfi að koma til. »6
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ójafnvægi á markaði fyrir svínakjöt
varð til þess að verð til bænda lækk-
aði síðastliðið haust um tæp 11%.
Formaður svínabænda segir að verð-
ið út úr búð hafi þrátt fyrir það hækk-
að í takt við almennar verðlagsbreyt-
ingar. Verð á innfluttu svínakjöti hafi
heldur ekki lækkað á síðasta ári þeg-
ar verð á tollkvótum lækkaði.
Ingvi Stefánsson, formaður Félags
svínabænda, segir það dapurlegt að
Skilar sér ekki í verði
Bændur fá minna fyrir kjötið en neytendur greiða meira
Vatnshæð í Jökulsá á Fjöllum minnkaði skyndilega upp úr klukkan 14 í gær
um eina tólf sentimetra. Svo sveiflaðist vatnshæðin fram eftir degi.
Vegagerðin hefur verið með vakt við ána og hleypt umferð yfir brúna í
björtu, milli klukkan 9 og 18 á daginn. Brúin er lokuð á nóttunni. Vaktmaður
við ána hlustar eftir og fylgist með mögulegum breytingum á henni. Fyrir-
komulag umferðarstýringar við brúna verður endurskoðað á morgun.
Heimir Gunnarsson, tæknifræðingur hjá Vegagerðinni á Norðurlandi,
segir að tæpur metri sé frá yfirborði árinnar upp í brúargólfið við árbakk-
ana, en hærra í miðjunni. Vegurinn beggja vegna brúarinnar sé hannaður til
að taka við vatni ef áin flæðir yfir bakka sína, til að verja brúna. Þar ruddist
íshröngl og krapi yfir þegar krapaflóð varð 26. janúar.
Klakahrönglið er allt orðið gaddfrosið. Óttast er að losni önnur klakastífla
ofar í ánni geti hún lent á brúnni. Hún er ekki byggð til að þola mikið hliðar-
álag. Heimir segir að ákveðið hafi verið að kanna hversu mikill klaki og
krapi er ofan við brúna til að meta hvað geti gerst.
Menn óttist það helst að djúp lægð komi með bráðri hláku, sem geti valdið
öðru flóði. Spáð er stöðugu og köldu veðri fram á sunnudag. Þess vegna má
búast við að aðstæður í ánni verði svipaðar næstu daga. »4
Leyfa umferð einungis í dagsbirtu
Óvissustig vegna krapastíflu og flóðahættu í Jökulsá á Fjöllum
Ljósmynd/Gunnar Sverrisson
„Við erum að tala um að framkvæma
útboðið um mánaðamótin maí/júní.
Líklega þó í júní en þetta skýrist á
næstu vikum,“ segir Bjarni Bene-
diktsson fjármálaráðherra um sölu á
25-35% hlut ríkisins í Íslandsbanka.
„Við erum að leitast við að bankinn
fari í dreifða eign við söluna. Svo er
ég líka að vonast
til að með lækk-
andi vöxtum og
fleiri fjárfesting-
arkostum haldi sú
þróun áfram að
fleiri taki þátt á
hlutabréfamark-
aði og að hér sé
kominn fram
kostur sem geti
stutt þá þróun.“
Fram kom á
opnum netfundi með Bjarna að hann
telji æskilegt að hægt verði að kaupa
hlut fyrir nokkra tugi þúsunda, en
lágmarksverð í útboði Icelandair var
250 þúsund.
Hann segir aðspurður að Banka-
sýsla ríkisins muni skoða þessa hlið
málsins. Lægri þröskuldar muni
auka almenna þátttöku í útboðinu.
Fái 119 milljarða hið minnsta
Þá sagðist Bjarni hafa væntingar
um að fá að minnsta kosti jafn mikið
fyrir allan hlut ríkisins – sem á 100%
hlut í bankanum – og nemur 119
milljarða fjárfestingu til að örva efna-
hagslífið í kórónukreppunni.
„Ég held að það sé alveg óhætt að
segja að þar sem bankinn er með
tæplega 190 milljarða eigin fé í dag
hljótum við að hafa væntingar til
þess, þegar allur bankinn hefur verið
seldur, að við fáum að minnsta kosti
fjárhæð sem jafngildir þessu átaki.
Þá dregur það úr lánsfjárþörf sem
nemur slíkum fjárhæðum.“
baldura@mbl.is
Ríkið fái
yfir 100
milljarða
Stefna á sölu á hlut
í Íslandsbanka í júní
MSem flestir kaupi … »10
Bjarni
Benediktsson
Litlar líkur eru
á því að stór
skortstaða verði
tekin í inn-
lendum verð-
bréfum. Þetta
segir Magnús
Harðarson, for-
stjóri Kauphallar
Íslands.
Segir hann að
stíft regluverk
valdi því að erfitt sé að fá bréf lán-
uð. „Það væri æskilegra ef það væri
auðveldara að fá bréf lánuð. Það er
miklu erfiðara en erlendis og mín
skoðun er sú að það sé allt of erf-
itt.“ »10
Erfitt að taka skort-
stöðu í verðbréfum
Magnús
Harðarson
Stór hluti innflytjenda á vinnu-
markaðinum hér á landi er með
meiri menntun en krafist er í
starfi. Nýlegur samanburður
Eurostat, hagstofu Evrópusam-
bandsins, sem nær til 31 Evrópu-
lands, leiðir í ljós að yfir 40% inn-
flytjenda á vinnumarkaði hér á
landi sem eru með háskólanám að
baki eru ekki í starfi sem sam-
svarar menntun þeirra. Þeir hafa
því ekki sömu tök og aðrir á að
nýta sér sérþekkingu sína og
hæfni úr námi í vinnu sinni. Rúm-
lega einn af hverjum tíu háskóla-
menntuðum Íslendingum telst með
meiri menntun en krafist er af
honum í starfi. »12
Menntun margra
nýtist ekki í starfi