Morgunblaðið - 02.02.2021, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 02.02.2021, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 2021 STOFNAÐ 1956 Glæsileg íslensk hönnun og smíði á skrifstofuna Bæjarlind 8–10 201 Kópavogur Sími 510 7300 www.ag.is ag@ag.is Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni. Kalt var um norðan- og austanvert landið í gær og á miðhálendinu. Í fyrrinótt var kaldast á láglendi á Mývatni, 22,5 stiga frost, á Torfum í Eyjafirði fór frostið í 21,6 stig og í Gæsafjöllum norður af Mývatni 21,1 stig. Á hálendinu varð öllu kaldara. Á Dyngjujökli, sem geng- ur norður úr Vatnajökli, mældist 26,5 stiga frost, við Hágöngur 25,4 stiga frost og við Kárahnjúka var frostið 24,8 stig. Talsvert kalt verður áfram í dag og á morgun víða í sveitum á Norð- urlandi, að sögn Birgis Arnar Haf- steinssonar veðurfræðings á Veð- urstofunni. Tölurnar geta orðið svipaðar og í gær. Vægt frost eða hiti nálægt frostmarki verður á Suður- og Vesturlandi. Hann segir að í hægum vindi á þessum árstíma geti frostið sveifl- ast mikið frá einni klukkustund til annarrar. Nú er hávetur og landið alveg fullfært um að búa til sinn eigin kulda þegar vindur er svo hægur. Veðrið hefur verið ótrúlega rólegt miðað við árstíma. Engar lægðir er að sjá í veðurspám fyrir næstu daga og þaðan af síður hlý- indi fyrir norðan. Ekki er útlit fyrir hláku svo langt sem spárnar ná. Það dregur úr líkum á því að Jök- ulsá á Fjöllum ryðji sig skyndilega eins og myndi gerast kæmi hláka. Einhver minni háttar éljagangur gæti orðið við suður- og vestur- ströndina næstu daga. Kuldi og hiti í Þingeyjarsýslu Mjög kalt var í Þingeyjarsýslu um síðustu helgi og fór frostið víða yfir tuttugu stig. Hestarnir létu frostið ekki á sig fá enda vel varðir fyrir kuldanum í þykkum vetrar- feldinum og í góðum holdum og vel aldir. Þótt lofthitinn lækki slær það ekki á jarðhitann sem kraumar og bullar í goshverunum í Reykja- hverfi. Ystihver er þeirra stærstur og hefur oft gosið hátt og tignar- lega. Orkuveita Húsavíkur nýtir hverina í Reykjahverfi og hitinn þaðan yljar Húsvíkingum í kulda- tíðinni. gudni@mbl.is Morgunblaðið/Atli Vigfússon Þingeyjarsýsla Hrossin undu sér vel í vetrarstillunni þótt frostið biti aðeins í kinnar mannfólksins fyrir norðan. Vetrarstillur og kulda- tíð á Norðurlandinu  Svipað veðurútlit áfram  Engar lægðir í kortunum Morgunblaðið/Atli Vigfússon Ystihver Orkuveita Húsavíkur hef- ur virkjað jarðhita í Reykjahverfi. Ragnhildur Þrastardóttir Sigurður Bogi Sævarsson Framleiðendur lyfja sem íslensk stjórnvöld hafa gert samninga við um kaup á bóluefnum gegn Co- vid-19 vilja að efni þeirra fari leynt. Heilbrigðisráðuneytið telur því að verði samningarnir gerðir opinberir geti slíkt spillt samskiptum við ís- lenska ríkið, enda sé ekki búið að af- henda bóluefnin. Þetta segir í svari ráðuneytisins við fyrirspurn mbl.is. Spurt var hvort fjölmiðlar fengju aðgang að umræddum samningum og hvort almenn stefna ráðuneyt- isins væri að halda samningum þessum leyndum. mbl.is var synjað um aðgang að þeim. Ekki fékkst heldur svar við spurningu um al- menna stefnu í þessum málum. Samningarnir, sem eru átta tals- ins, falla undir takmarkanir á upp- lýsingarétti vegna einkahagsmuna og almennra hagsmuna. Þeir falla undir takmarkanir á upplýsingarétti vegna einkahags- muna því í þeim eru upplýsingar um mikilvæga viðskiptalega hagsmuni þeirra sem samið er við. Skv. ákvæði um takmörk á upplýsinga- rétti er heimilt að takmarka aðgang að gögnum þegar mikilvægir al- mannahagsmunir krefjist, enda sé þar að finna upplýsingar um sam- skipti við önnur ríki eða fjölþjóða- stofnanir. Hvorki aðildarríki ESB né Nor- egur hafa afhent sambærilega samninga og Ísland hefur gert við lyfjaframleiðendur um kaup á bólu- efni, skv. því sem heilbrigðisráðu- neytið greinir frá. Hagsmuna vegna verði ekki veittur aðgangur að bólu- efnissamningnum enda geti slíkt „haft verulega neikvæð áhrif á þá almannahagsmuni sem felast í því að fá bóluefni við Covid-19 til Ís- lands sem fyrst og fyrir sem flesta“, segir í svari ráðuneytis. Upplýsingar geta spillt hagsmunum  Leynd ríki um bóluefnasamninga Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bóluefni Leynd er um samningana. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við erum farin að sjá þessa gler- ungseyðingu hjá æ yngra fólki,“ seg- ir Íris Þórsdóttir tannlæknir. Árleg tannverndarvika embættis landlæknis og Tannlæknafélags Ís- lands hófst í gær. Að þessu sinni er áhersla lögð á súra orkudrykki sem innihalda koffín. Bent er á skaðleg áhrif orkudrykkja, bæði á almenna heilsu og tannheilsu ungmenna. Íris er einn fyrirlesara af þessu tilefni og er hægt að nálgast erindi hennar og fleiri á heimasíðu landlæknis. Einn þeirra sem láta sig þetta málefni varða er Pálmar Ragn- arsson, fyrirlesari og körfubolta- þjálfari. Í pistli á facebooksíðu sinni segir hann m.a.: „Við verðum að átta okkur á því hvað normið hérna á Ís- landi er orðið brenglað. Þetta er ekki svona í öðrum löndum. Það er betra úrval af orkudrykkjum á litlum bensínstöðvum á Íslandi en í stórmörkuðum erlendis.“ Neysla orkudrykkja sem inni- halda koffín hefur aukist mikið hér á landi síðustu ár og er með því mesta sem þekkist í Evrópu. Yfirvöld hafa lýst áhyggjum af því að ungmenni í 8.-10. bekk neyti umræddra drykkja og jafnvel drykkja sem aðeins eru ætlaðir eldri en 18 ára. Hólmfríður Guðmundsdóttir, tannlæknir hjá embætti landlæknis og einn skipuleggjenda tannvernd- arvikunnar, segir að orkudrykkir séu markaðssettir sem heilsudrykk- ir fyrir fólk sem leggur stund á lík- amsrækt og virkan lífsstíl. „Ungt fólk virðist í auknum mæli velja þessa drykki í þeirri trú að þeir séu hollir og stuðli að hreysti og auðvelt er að draga þá ályktun þegar um sykurlausan vítamínbættan drykk er að ræða. Það er hins vegar stað- reynd að koffín í orkudrykkjum er bæði örvandi og ávanabindandi auk þess sem allir orkudrykkir eru „súr- ir“ sem þýðir að sýrustig þeirra er lágt (pH< 5,5) og því hafa þeir allir glerungseyðandi áhrif á tennur. Okkur finnst brýnt að opna augu ungs fólks og foreldra þess fyrir þessum áhrifum,“ segir hún. Íris segir það áhyggjuefni að mjög hefur fjölgað tilfellum þar sem gler- ungseyðing gerir vart við sig hjá ungu fólki. „Maður hefur áhyggjur af því hvernig framtíð þessa fólks lítur út,“ segir hún og bendir á að af- leiðingarnar séu meðal annars tann- kul og auknar líkur á tann- skemmdum enda verði varnar- hjúpurinn í kjölfarið þynnri. „Þá aukast líkur á að fólk fái gular tenn- ur sem ekki er hægt að hvítta og tannslit. Sem sagt; styttri fram- tennur og gular í ofanálag.“ Hún segir það slæmt að margir orkudrykkir séu markaðssettir sem heilsuvara. „Fólk heldur að þeir séu góðir fyrir líkamann enda markaðs- settir af áhrifavöldum og íþrótta- fólki. Dósirnar eru skrautlegar og fínar og höfða til ungs fólks og jafn- vel barna,“ segir Íris og bætir við að þeir sem á annað borð ætli að drekka orkudrykki ættu að tileinka sér ákveðna þætti til að stilla í hóf áhrifum á tennur. „Það er að drekka drykkinn hratt og skola munninn á eftir. Ekki skal bursta tennurnar næstu 30 mínútur á eftir meðan glerungurinn er enn viðkvæmur.“ Tennur slitna og verða gular  Áhyggjur af neyslu orkudrykkja Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Orkudrykkir Heilbrigðisyfirvöld hafa áhyggjur af neyslu hérlendis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.