Morgunblaðið - 02.02.2021, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 2021
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Gott við exemi
• Betri og sterkari
fætur
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Innflutningur á kjöti til landsins
minnkaði verulega á síðasta ári.
Breytingin er mest í svínakjöti en
innflutningur dróst saman um tugi
prósenta. Með því gengur til baka
sú mikla aukning sem varð á inn-
flutningi á árinu 2019. Eigi að síður
er enn mikið ójafnvægi á mark-
aðnum, að sögn
formanns svína-
bænda.
Innflutningur á
svínakjöti minnk-
aði um 558 tonn,
samkvæmt
bráðabirgðatöl-
um Hagstofu Ís-
lands, sem svarar
til 44% sam-
dráttar. 15%
minnkun varð á
innflutningi nautakjöts og 6% sam-
dráttur í innflutningi alifuglakjöts.
Ingvi Stefánsson, formaður Fé-
lags svínabænda, bendir á að svína-
afurðir séu uppistaðan í þeim unnu
kjötvörum sem fluttar eru til lands-
ins. Ef litið er til breytinga á þeim
liðum sést að innflutningur svína-
kjöts hefur minnkað mun minna en
tilgreindar tölur benda til, eða um
nálægt 20%. Segir Ingvi eðlilegt að
dregið hafi úr innflutningi vegna
ótæpilegs innflutnings svínakjöts á
árinu 2019 og fækkunar ferða-
manna. Hann bendir jafnframt á að
með innflutningi á unnum kjötvör-
um sé verið að flytja störf við kjöt-
vinnslu úr landi.
Hlutur erlends kjöts minni
Hlutdeild innflutnings í heildar-
sölu kjöts á markaðnum hér hefur
heldur minnkað, er nú innan við
20% að meðaltali.
Inni í innflutningstölum á með-
fylgjandi grafi er innflutningur sam-
kvæmt samningum við Evrópusam-
bandið en tollar voru lágir á þeim
viðskiptum á síðasta ári.
Ljóst er af þessum tölum að sam-
dráttur á kjötmarkaði hér vegna
fækkunar ferðafólks hefur orðið til
þess að dregið hefur úr innflutningi.
Áhrifin eru meiri á innflutt kjöt en
það kjöt sem hér er framleitt, ef
eitthvað er.
Birgðir hjá kjötvinnslum
Opinberar tölur um sölu á kjöti
sem framleitt er hér innanlands
sýna að samdráttur varð í sölu allra
tegunda nema svínakjöts. Þar varð
4,3% aukning. Ingvi telur að þessar
tölur gefi ekki rétta mynd af sölunni
á markaðnum. Tölurnar sýna sölu
frá afurðastöðvum. Ingvi segir að
safnast hafi upp birgðir af frosnu
svínakjöti hjá kjötvinnslum á und-
anförnum mánuðum. Það kjöt hafi
ekki farið út á markaðinn fyrr en
seinna. Þessar birgðir koma ekki
fram í opinberum tölum.
Hefur þessi sölutregða komið nið-
ur á verði til bænda. Verðið var 473
krónur á kíló í vor og fram á sumar
en lækkaði í haust og vetur niður í
422 kr. Verðlækkunin er því tæp
11%.
Segir Ingvi dapurlegt að sjá að
verð á svínakjöti út úr búð fylgi al-
mennum verðlagsbreytingum þótt
verðið til bænda hafi lækkað. Ávinn-
ingurinn skili sér ekki til neytenda.
Segir hann að það sama megi segja
um lækkun á verði tollkvóta vegna
innflutnings frá ESB á síðasta ári,
sá ávinningur innflytjenda hafi ekki
skilað sér til neytenda.
Þarf að stokka upp spilin
Verð fyrir tollkvóta vegna inn-
flutnings á kjöti samkvæmt samn-
ingum við Evrópusambandið hækk-
aði nokkuð í útboði atvinnuvega-
ráðuneytisins fyrr í þessum mánuði.
Gilda hærri tollarnir fyrstu fjóra
mánuði ársins en verð fyrir toll-
kvóta lækkaði talsvert á síðasta ári.
Báðar breytingarnar voru knúðar
áfram af breytingum á fyrir-
komulagi útboðanna. Ekki er vitað
um áhrif nýjustu breytingarinnar á
verð á svínakjöti eða öðrum afurð-
um út úr búð en á skilvirkum mark-
aði leiða slíkar breytingar til verð-
hækkunar.
„Ég vona að þessar breytingar á
útboðsfyrirkomulagi hjálpi innlendu
framleiðslunni að komast út úr þeim
ógöngum sem hún er í. Ójafnvægi í
framboði og eftirspurn veldur því að
birgðir hafa safnast í frystum. Því
tel ég að stjórnvöld þurfi að koma
með frekari aðgerðir og stokka upp
spilin,“ segir Ingvi.
Minna er nú flutt inn af kjöti
Þótt hlutur innlendrar framleiðslu hafi aukist eru erfiðleikar í kjötgreinum
vegna birgðasöfnunar Verðlækkun á svínakjöti skilar sér ekki til neytenda
Innfl utningur á kjöti 2020
1.500
1.000
500
0
Tonn
Heimild: Hagstofa Íslands, bráðabirgðatölur, Matvælastofnun2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020
Innfl utningur 2018-2020 Heildarsala og innfl utningur 2020
Innfl utt kjöt 2018 2019 2020
Umreiknað í
kjöt m/beini*
Sala á innl.
framleiðslu
Heildar-
sala
Hlutfall
innfl utnings
Alifuglakjöt 1.145 1.370 1.282 2.141 9.039 11.180 19%
Svínakjöt 905 1.281 723 1.207 6.819 8.026 15%
Nautakjöt 830 818 692 1.156 4.667 5.823 20%
Reykt, saltað og þurrkað kjöt 231 139 90 150 150
Kindakjöt 2 39 6 10 6.204 6.214
Hrossakjöt 0 0 0 0 684 684
Pylsur og unnar kjötvörur 622 713 905 1.586 1.586
Samtals 3.735 4.360 3.698 6.250 27.413 33.663
*Áætlað
Tonn 2019 2020 Breyting milli ára
Alifuglakjöt 1.370 1.282 -88 -6%
Svínakjöt 1281 723 -558 -44%
Nautakjöt 818 692 -126 -15%
Hlutfall innfl utnings 2020
Minni innfl utningur 2019 til 2020Innfl utningur 2013 til 2020, helstu tegundir
Einingar eru í tonnum
Alifuglakjöt
19%
Alifuglakjöt
15%
Svínakjöt
20%
Nautakjöt
Svínakjöt
NautakjötIngvi
Stefánsson
AFP
Kjötbúð Talsvert er flutt inn af unnum svínaafurðum frá Evrópu, m.a. pylsum
og beikoni. Offramleiðsla er á kjöti á Íslandi, eins og í öðrum Evrópulöndum,
vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins og verð til bænda hefur lækkað.
Boðað er til formlegs sáttafundar í
dag á Egilsstöðum undir stjórn rík-
issáttasemjara í kjaraviðræðum
AFLs starfsgreinafélags og Rafiðn-
aðarsambands Íslands við Alcoa
Fjarðaál á Reyðarfirði. Liðnar eru
tvær vikur frá því að seinasti form-
legi sáttafundurinn var haldinn í
kjaradeilunni.
Kristján Þórður Snæbjarnarson,
formaður Rafiðnaðarsambands Ís-
lands, segir að hægur gangur hafi
verið á viðræðunum að undan-
förnu. „Þetta hefur hökt verulega
mikið að undanförnu,“ segir hann.
Kjarasamningarnir í álverinu
runnu út 29. febrúar í fyrra. Var
deilunni vísað til ríkissáttasemjara
um miðjan desember síðastliðinn
eftir að slitnað hafði upp úr viðræð-
unum. omfr@mbl.is
Sáttafund-
ur í álvers-
deilu í dag
Viðræður í hæga-
gangi að undanförnu
Morgunblaðið/ÞÖK
Fjarðaál Fundað verður með rík-
issáttasemjara fyrir austan í dag.
Vinnslustöðin hf. hefur fest kaup á
útgerðarfélaginu Hugin ehf. í Vest-
mannaeyjum, en samningur þess
efnis var undirritaður á föstudag.
Kaupunum fylgir fjölveiðiskipið
Huginn VE-55 ásamt aflaheimildum
í síld, loðnu, kolmunna og makríl.
Í tilkynningu frá Vinnslustöðinni
segir að kaupverðið sé trúnaðarmál
kaupenda og seljenda. Fyrir átti
Vinnslustöðin 48% hlut í Hugin en
fer nú með alla hluti félagsins.
Samkvæmt tölum Fiskistofu fékk
Huginn á núverandi fiskveiðiári út-
hlutaðar 634 lestir eða 2,22% af afla-
marki í síld, 266 lestir eða 1,4% af
aflamarki í loðnu, 7.742 lestir eða
4,21% af aflamarki í kolmunna og
5.182 lestir eða 4,65% af aflamarki í
norsk-íslenskri síld.
Huginn VE-55 var smíðaður árið
2001 og er vinnslu- og fjölveiðiskip
sem veiðir uppsjávarfisk í nót eða
flottroll.
Vinnslustöðin
kaupir Hugin