Morgunblaðið - 02.02.2021, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 2021
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is
Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga
VILTU LÆRA SILFURSMÍÐI,
TÁLGUN EÐA TRÉRENNSLI?
Fjölmör
stuttnáms
í handve
g
keið
rki.
Skráning og upplýsingar á
www.handverkshusid.is
síðunnar Reddit til sín taka á á
hlutabréfamarkaði vestanhafs.
Tóku þeir höndum saman gegn
fjárfestingarsjóðum sem tekið
höfðu stóra skortstöðu í Game-
Stop, sem er stór tölvuleikjaversl-
un í Bandaríkjunum. Í kjölfarið
hækkuðu bréf félagsins um mörg
hundruð prósent, sem jafnframt
olli því sjóðirnir voru komnir í mik-
il vandræði. Netverjar eru næst
taldir ætla að beina sjónum sínum
að silfri, en þeir segja virði málms-
ins haldið niðri af bönkum á borð
við JP Morgan.
Takmarkaðar heimildir sjóða
Aðspurður segist Magnús vera
hlynntur því að virkni markaðarins
sé til staðar. „Ég er ekki að hvetja
til kaupa eða skortsölu, en bara að
þessi virkni sé til staðar. Það er
líka skoðun þessara aðila sem taka
út gæði verðbréfamarkaða,“ segir
Magnús og bætir við að með virk-
ari verðbréfamarkaði verði auð-
veldara að skortselja. Segir hann
að umtalsvert erfiðara sé að fá
bréf lánuð hér á landi en erlendis.
„Þetta er miklu erfiðara og mín
skoðun er sú að það sé allt of erf-
itt. Það væri æskilegra ef það væri
auðveldara að fá bréf lánuð. En
það eru alveg ástæður fyrir því að
þetta er sjaldgæfara. Fjármálaeft-
irlitið hefur túlkað lögin þannig að
lífeyrissjóðum sé ekki heimilt að
lána verðbréf. Þá eru verðbréfa-
sjóðir sömuleiðis með takmarkaðar
heimildir.“
Spurður sérstaklega um miklar
sveiflur í verði GameStop segist
Magnús ekki hafa forsendur til að
tjá sig um það. Hins vegar sé mik-
ilvægt að einstaklingar sem taka
þátt í verðbréfaviðskiptum sæki
sér viðeigandi upplýsingar og
fræðslu. „Það er mikilvægt að ein-
staklingar sem eru á markaðnum
kynni sér fyrirtækið sem þeir eru
að fjárfesta í, mennti sig og fræði,“
segir Magnús og bætir við að
Kauphöllin sinni fræðslu í sam-
vinnu við bankana. Þá geti fólk
sótt sér menntun og upplýsingar á
fundum á vegum Kauphallarinnar.
Litlar líkur á stórum skortstöðum
Regluverkið veldur því að skortsölur eru mjög óalgengar hér á landi Æskilegt ef lán á bréfum yrðu
einfölduð Forstjóri Kauphallarinnar segir mikilvægt að einstaklingar sæki sér upplýsingar og fræðslu
Snjallvæðing
» Að sögn Magnúsar má gera
ráð fyrir að hægt verði að fjár-
festa í verðbréfum í gegnum
snjallforrit innan skamms.
» Hægt er að gera fjárfesting-
arkosti aðgengilegri með not-
endavænna viðmóti.
» Litlar sem engar líkur á því
að aðilar taki stórar skort-
stöður í fyrirtækjum hér á
landi.
AFP
GameStop Gengi hlutabréfa tölvuleikjaverslunarinnar hefur rokið upp það
sem af er ári. Fjölmargir notendur Reddit hafa keypt bréfin.
BAKSVIÐ
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Líkurnar á stórri skortstöðu á
markaðnum hér á landi eru mjög
litlar miðað við núverandi reglu-
verk,“ segir Magnús Harðarson,
forstjóri Nasdaq
Iceland eða
Kauphallar Ís-
lands. Segir
hann að erfitt sé
að fá lánuð bréf
auk þess sem
stíft regluverk
valdi því að
skortsölur séu
sjaldgæfar á inn-
lendum markaði.
Til útskýringar
felur skortsala í sér lán á eign, til
dæmis hlutabréfi, sem síðan er
seld. Til að endurgreiða lánið þarf
að kaupa eignina aftur síðar. Um-
ræddir fjárfestar græða því ef
verðið lækkar.
Eins og greint var frá í síðustu
viku létu fjölmargir notendur vef-
Magnús
Harðarson
Engin hljóðbók hefur hlotið jafn-
mikla hlustun strax eftir útgáfu og
bók Jóns Ásgeirs Jóhannessonar,
Málsvörn. Þetta segir Egill Örn Jó-
hannsson, framkvæmdastjóri For-
lagsins. Mikið hefur verið fjallað um
bókina í aðdraganda útgáfu hennar,
en hún kom í verslanir á fimmtudag
í síðustu viku.
„Af bókum Forlagsins hefur eng-
in bók fengið eins mikla hlustun
strax eftir útkomu og Málsvörn.
Þetta eru fleiri þúsundir klukku-
stunda á Storytel fyrstu dagana.
Það er rosaleg hlustun,“ segir Egill
og bætir við að óljóst sé hversu
mörg prentuð eintök hafa selst. Það
muni skýrast síðar í vikunni. „Það
fóru á annað þúsund bækur í versl-
anir. Þetta eru einungis þrír virkir
dagar þannig að það er of snemmt
að segja til um söluna hvað það
varðar. Við merkjum samt alveg
gríðarlegan áhuga á bókinni og efni
hennar, sem er reyndar eins og við
var að búast.“
Málsvörn fjallar um Jón Ásgeir,
sem ásamt föður sínum stofnaði lág-
vöruverslunina Bónus. Eftir að hafa
haslað sér völl í íslensku viðskiptalífi
hóf Jón Ásgeir landvinninga. Var
hann sérstaklega atkvæðamikill í
Bretlandi, en þess utan var hann
með fjárfestingar víða erlendis. Í
kjölfar hrunsins árið 2008 stóð at-
hafnamaðurinn í stöðugum dóms-
málum í um áratug.
Rithöfundurinn Einar Kárason
skrifar bókina. Segir hann viðbrögð-
in eftir útgáfuna hafa verið sterk.
„Þetta hefur verið allur skalinn. Það
er alltaf gaman að gefa út bók og ég
er sáttur við útkomuna. Þetta var
mikil heimildarvinna þar sem rætt
var við fjölda manna.“
aronthordur@mbl.is
Engin bók notið
viðlíka vinsælda
Málsvörn Jóns Ásgeirs vinsæl á Storytel
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Bankasýsla ríkisins mun á næstu
vikum ráða ráðgjafa til að undirbúa
sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka.
Stefnt er að sölu hlutarins, sem verð-
ur 25-35% að
þessu sinni, í
sumarbyrjun.
Þetta kom
fram í máli
Bjarna Bene-
diktssonar, fjár-
mála- og efna-
hagsráðherra, á
netfundi í gær.
Hann hefði sl.
föstudag veitt
Bankasýslunni
heimild til að halda áfram með málið.
Nú taki við nokkurra mánaða ferli.
Vitnar um styrk kerfisins
Bjarni sagði niðursveifluna í fyrra
þá mestu í hundrað ár og dýpri en
hjá flestum þjóðum. Hins vegar efist
fáir um að bankakerfið ráði við þenn-
an skell, sem sé bein afleiðing þess
að hafa endurskoðað regluverk
bankakerfisins.
Nú væru hagfelldar aðstæður til
að selja hlut í Íslandsbanka. Til
dæmis hefði vísitala aðallista Kaup-
hallar Íslands hækkað um 60% frá
því í mars og Stoxx Europe, vísitala
bréfa í evrópskum bönkum, hækkað
um 30% á sama tíma. Þá sé gengi
bréfa í Arion banka í hæstu hæðum.
Bjarni setti söluna í samhengi við
hallarekstur hins opinbera. Áætlað
sé að afkoma ríkisins verði neikvæð
um 326 milljarða í ár og áformað að
skuldahlutfall hins opinbera, ríkis og
sveitarfélaga, sem hlutfall af lands-
framleiðslu, stöðvist í kringum 60%.
Í millitíðinni sé verkefnið að fjár-
magna hallareksturinn og þótt sala á
fjármálastofnun sé ekki nauðsynleg-
ur liður í trúverðugri áætlun um
ríkisfjármálin styðji salan hana. Þá
auki salan svigrúm ríkisins fyrir
samfélagslega arðbær verkefni.
Óttast ekki stefnubreytingu
Bjarni vék svo að áhyggjum af því
að tímasetningin væri óheppileg í
ljósi þess að bankarnir séu í sárum
vegna vanda ferðaþjónustunnar.
Hins vegar njóti þau fyrirtæki nú
bæði fyrirgreiðslu í bönkunum sem
ásamt beinum stuðningsaðgerðum
eigi að tryggja þeim framtíð.
„Ég hef ekki áhyggjur af því að
nýir eigendur myndu beita sér gegn
þeim sem hafa fyrirgreiðslu í bönk-
unum en sjálfsagt er að velta því upp
og ræða af fullri alvöru,“ sagði
Bjarni. Varðandi sölu á stærri hlut
ríkisins síðar meir sagði Bjarni ríkið
ekki mundu geta selt stærri hlut
fyrstu sex mánuðina eftir skráningu
á markað. Bíða verði í a.m.k. hálft ár
frá frumskráningu með frekari
vangaveltur um sölu.
Varðandi hugmynd um að þjóðin
fái afhentan 5% hlut í bankanum
sagði Bjarni ekki nógu breiða sam-
stöðu um þá aðferðafræði.
Þá taldi hann ekki rétt að greiða út
mikinn arð fyrir söluna, enda fáist
hærra verð fyrir vel fjármagnaðan
banka með sterka lausafjárstöðu.
Spurður hvort heppilegra væri að
selja hlutinn til kjölfestufjárfesta til
að fá hærra verð, sagði Bjarni að
huga þyrfti að fleiri þáttum. „Ég á
mér þá ósk að sjá sem mesta þátt-
töku frá íslenskum almenningi í
þessari umferð,“ sagði Bjarni.
Hann sagðist aðspurður, í samtali
við Morgunblaðið, ekki vilja spá um
ætlað söluverðmæti hlutarins í sum-
ar. Hins vegar hafi menn væntingar
um að fá á annað hundrað milljarða
fyrir 100% eignarhlut í bankanum.
Sem flestir
kaupi hluti í
Íslandsbanka
Fjármálaráðherra boðar tíðindi í vor
STUTT
● Úrvalsvísitalan (OMXI10) hækkaði um
3,5% í janúar og stendur nú í 2.644
stigum að því er fram kemur í viðskipta-
yfirliti Kauphallarinnar fyrir mánuðinn.
Heildarviðskipti með hlutabréf í janúar
námu 83,9 milljörðum eða 4.197 millj-
ónum á dag sem er 6,8% hækkun frá
fyrri mánuði, en í desember 2020 námu
viðskipti með hlutabréf 3.929 milljónum
á dag. Milli ára jukust viðskipti um
29,5% (viðskipti í janúar 2019 námu
3.240 milljónum á dag). Þess má geta
að síðastliðinn mánuður var sá næst-
veltumesti á hlutabréfamarkaði síðustu
12 ár, samkvæmt yfirlitinu.
Úrvalsvísitalan hækkaði
um 3,5% í janúar
● Embætti landlæknis, gjafabréfafyr-
irtækið YAY og rafskútuleigan Hopp
eru á meðal þeirra sem tilnefnd eru í
undirverðlaunaflokkum UT-verð-
launanna, sem afhent verða 5. febrúar
nk. Verðlaunaflokkarnir eru þrír; UT-
fyrirtækið, UT-sprotinn og UT-
stafræna þjónustan. Sem fyrr er ekki
gefið upp hverjir eru tilnefndir til að-
alverðlaunanna, Upplýsinga-
tækniverðlauna Ský; heiðursverðlauna
fyrir framúrskarandi framlag til upp-
lýsingatækni á Íslandi. Aðrir sem til-
nefndir eru í undirverðlaunaflokkunum
eru hugbúnaðarfyrirtækið Aranja, hug-
og vélbúnaðarfyrirtækið Controlant,
Íslensk erfðagreining, hugbúnaðarfyr-
irtækið Sidekick Health, verkefnið
Stafrænt ökuskírteini og þjónustu-
gáttin Stafrænt Ísland.
Landlæknir, YAY og
Hopp meðal tilnefndra
2. febrúar 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 128.64
Sterlingspund 176.63
Kanadadalur 100.6
Dönsk króna 20.99
Norsk króna 15.091
Sænsk króna 15.436
Svissn. franki 144.58
Japanskt jen 1.2287
SDR 185.46
Evra 156.1
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 188.4538
Hrávöruverð
Gull 1852.7 ($/únsa)
Ál 1987.0 ($/tonn) LME
Hráolía 55.52 ($/fatið) Brent
Bjarni
Benediktsson