Morgunblaðið - 02.02.2021, Síða 11

Morgunblaðið - 02.02.2021, Síða 11
FRÉTTIR 11Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 2021 Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta 544 5151 tímapantanir Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992 Getum sótt og skilað bílum á höfuðborgarsvæðinu án endurgjalds Förum yfir bifreiðar fyrir aðalskoðun/endurskoðun og förum með bifreiðina í skoðun Kominn tími á aðalskoðun? Allar almennar BÍLAVIÐGERÐIR 25% afsláttur af vinnu út febrúar VERIÐ VELKOMIN Í SJÓNMÆLINGU Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14 Lönd um heim allan, með Bandaríkin í forystu, fordæmdu valdarán hersins í Mjanmar (áður Búrma) í gær og kröfðust endurreisnar lýðræðislegra stjórnarhátta þar í landi. Mótmæltu þau fangelsun Aung San Suu Kyi, leiðtoga ríkisstjórnarinnar, og nokk- urra stjórnmálamanna. „Við munum grípa til ráðstafana gegn þeim sem bera ábyrgð á valda- ráninu ef þeir láta það ekki ganga til baka,“ sagði Jen Psaki, talsmaður Hvíta hússins, í tilkynningu. Hún bætti við að bandarísk stjórnvöld myndu á engan hátt reyna að breyta úrslitum þingkosninga í nóvember sl., en þær færðu Aung San Suu Kyi yfir- gnæfandi meirihluta atkvæða. Þyrlur hersins sveimuðu yfir Byltingin var laus við blóðsúthell- ingar og lýsti herinn yfir neyðarlög- um til eins árs. Með því lauk áratugar völdum borgaralegra stjórnvalda í Mjanmar. Réttlætti herinn íhlutun sína með skírskotun til meintra „feikilegra kosningasvika“ í þing- kosningunum. Tilkynnt var í sjón- varpi hersins síðla í fyrrinótt að stjórnartaumar í landinu hefðu verið fengnir yfirmanni hersins, Min Aung Hlaing, í hendur. Suu Kyi og Win Myint forseti voru handtekin í höfuðborginni Naypyi- daw fyrir dögun í gærmorgun, sagði Myo Nyunt, talsmaður flokks Suu Kyi (NLD), við AFP-fréttastofuna. Átti það sér stað einungis nokkrum stundum áður en þingsetning átti að fara fram. Herinn lokaði götum í í borginni og nágrenninu með vopnuðum herverði á vörubílum og bryndrekum. Yfir sveimuðu þyrlur hersins. Er valda- ránið var afstaðið tilkynnti útvarps- stöð hersins að fyrrverandi hershöfð- ingi, Myint Swe, myndi gegna starfi forseta næsta árið. Síðar var því heit- ið af hernum, að nýjar kosningar færu fram í byrjun næsta árs er her- lögin rynnu út. „Við munum fram- kvæma raunverulegt fjölflokkalýð- ræði með fullu jafnræði og sanngirni,“ sagði herinn á síðu sinni á facebook. Í tilkynningu sem hún gaf út fyrir handtökuna hvatti Suu Kyi þjóðina til að „samþykkja ekki valdarán“, að því er fram kom á facebooksíðu flokks- formanns hennar. Undir kvöld í gær tilkynnti svo herinn að vegna kórónu- veirufaraldursins þyrfti að grípa til ráðstafana „jafnóðum“, sem AFP sagði benda til að gripið yrði til tak- markana og þvingana í nafni farald- ursins til að koma í veg fyrir mótmæli vegna valdaránsins. Herinn gekk hratt til verks við að bæla andóf með því að draga stórlega úr notkun netsins og farsíma í landinu öllu. Í Yangon stormaði sveit her- manna inn í ráðhús borgarinnar sem er höfuðstaður allra viðskipta í Mjan- mar. Blaðamaður AFP sá fjölda her- flutningabíla á götum með hátalara sem þjóðernistónlist buldi úr. Stuðn- ingsmönnum stjórnarinnar sem voru á ferli var sagt að hypja sig heim og halda sig þar. Herinn sendi ekki fjöl- mennar hersveitir inn í Yangon. Byltingar árin 1962 og 1988 Herinn réð völdum í Mjanmar tl ársins 2011 er breytingar í lýðræð- isátt undir forystu Aung San Suu Kyi leiddu til endaloka herstjórnar. Henni hafði verið haldið í stofufang- elsi í 15 ár, frá 1989 til 2010. Á al- þjóðavettvangi var hún hyllt sem „ljósberi“ lýðræðis og sæmd friðar- verðlaunum Nóbels árið 1991. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem landsmenn kynnast stjórnarbylting- um frá því landið hlaut sjálfstæði frá Bretum árið 1948. Hinar fyrri tvær áttu sér stað 1962 og 1988. Auk þess sem Bandaríkjastjórn mótmælti valdaráninu bættust skjótt í þann hóp Antonio Guterres, fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, leiðtogar ESB-landanna og stjórnir Norðurlandanna og Bretlands. Kín- verjar neituðu að taka afstöðu aðra en þá að hvetja alla deiluaðila til að „leysa ágreining“ sinn. agas@mbl.is Valdarán í Mjanmar (Búrma) NAYPYIDAW INDLAND BA N G LA D ESH KÍNA LAOS TAÍILAND Yangon Mandalay Sittwe 100 km Það sem vitað er: Auk Aung San Suu Kyi voru Win Myint, forseti, og aðrir forustumenn ríkisstjórnarinnar hnepptir í varðhald daginn sem þing átti að koma saman Herinn hefur lýst yfir neyðarástandi í eitt ár Hermenn tóku ráð- húsið á sitt vald skömmu áður en yfirlýsing var gefin Herinn hrifsar völdin Helstu leiðtogar ríkisstjórnar handteknir Myint Swe, fyrrum hershöfðingi og núverandi varaforseti, verður starfandi forseti Net- og farsímasamband er mjög stopult í öllu landinu Herinn heitir nýjum kosningum eftir ár Öllum bönkum í landinu lokað *Lýðræðisfylkingin Herinn tók völdin aðfaranótt mánudags eftir spennuþrungið andrúmsloft í kjölfar kosninga í nóvember sem stjórn hersins segir að hafi einkennst af kosningasvikum 2016 2020 Verður raunverulegur leiðtogi landsins Fer fyrir NLD sem vinnur yfirburðasigur í kosningum 1. febrúar 2021 Handtekin skömmu áður en nýtt þing átti að koma saman 2010 Sleppt úr stofufangelsi eftir að hafa setið í varðhaldi í 15 ár Aung San Suu Kyi 75 ára 2015 Fer fyrir NLD* sem vinnur stórsigur í fyrstu lýðræðislegu kosningunum í landinu Valdaráni í Mjanmar mótmælt  Herinn í Mjanmar steypti lýðræðislega kjörinni ríkisstjórn landsins í gær og boðaði herlög til eins árs Evrópusambandið viðurkenndi í gær að hafa gert mistök þegar það virkj- aði klásúlu í Brexit-samningunum til að hindra útflutning á bóluefni gegn kórónuveirunni til Bretlands. „Páfinn einn er óskeikull,“ sagði Eric Mamer, talsmaður formanns framkvæmda- stjórnar ESB, Ursulu von der Leyen. „Það mikilvægasta er að mistökin voru leiðrétt snimmendis,“ bætti Ma- mer við. Aflétti sambandið 16. grein samningsins eftir að breska stjórnin og sú írska svo og héraðsstjórnin á Norður-Írlandi höfðu fordæmt ESB fyrir að virkja ákvæðið. Í krafti þess hefði verið hægt að stofna til eftirlits á landamærum Írlands og Norður- Írlands til að koma í veg fyrir að bólu- efni bærist Bretlandi. Sættu þessar útflutningshömlur harðri gagnrýni. Virkjun ákvæðisins var liður í nýjum tilraunum ESB til að stuðla að því að ekki yrði skortur á bóluefni vegna samdráttar í fram- leiðslu. Kom það til eftir að breska lyfjafyrirtækið AstraZeneca sagði að afhending bóluefnis til landa ESB myndi dragast vegna vandamála í framleiðsluferlinu. Vaxandi áhyggjur eru af útbreiðslu hins suðurafríska afbrigðis kórónu- veirunnar en átta smit af þess völdum hafa fengist staðfest síðustu sex dag- ana í Bretlandi; þrjú í London, tvö í suðausturhluta Englands, eitt í Mið- löndunum, eitt í Austur-Englandi og eitt í norðvesturhluta landsins. Af þessum ástæðum verður gengið hús úr húsi í hverfunum sem veiran stakk sér niður í og íbúum boðið upp á ókeypis skimun fyrir veirunni, í þeirri von að hefta megi útbreiðslu hennar. Að samkomulagi hefur nú orðið að AstraZeneca láti ESB fá níu milljónir skammta bóluefnis fyrir marslok. Eru skammtarnir þá orðnir 40 millj- ónir sem sambandið fær frá lyfjaris- anum, sem er aðeins helmingur þarf- arinnar. Til að reyna að skera úr því hvaða hætta stafar af suðurafríska veiru- afbrigðinu (501.V2.) hófust rannsókn- ir á því í Englandi í gær, en þar hafa komið upp átta smit af völdum veir- unnar síðustu vikuna. Allar veirur stökkbreytast stöðugt í nýjar veirur eða afbrigði þeirra. Kom fram í BBC í gær, að nú þegar séu mörg þúsund afbrigði kórónuveirunnar á kreiki. Þýskaland og Austurríki undirbúa læknisaðstoð til handa Portúgölum sem hafa orðið illa fyrir barðinu á mikilli fjölgun nýsmits í þriðju bylgju kórónuveirunnar þar í landi. Verður flogið með sjúklinga á bráðadeild til Austurríkis til meðferðar til að létta álagi af portúgölskum sjúkrahúsum. Sebastian Kurz kanslari Austur- ríkis sagði það lið í evrópskri sam- stöðu að veita þessa hjálp. Þjóðverjar aftur á móti munu senda 27 lækna og aðra sérfræðinga á heilbrigðissviði, sjúkrarúm og lofthreinsibúnað. Verulegur skortur er á rúmum fyrir gjörgæsludeildir á portúgölskum spítölum og fóru Portúgalar fram á þessa aðstoð. Strangar aðgerðir gegn kórónuveirunni eru í gildi í landinu, m.a. eru ferðalög til útlanda bönnuð. Hin mikla uppsveifla í veiruvirkn- inni í Portúgal er skrifuð á slökun að- haldsreglna um jól og áramót svo og á hið bráðsmitandi breska afbrigði kórónuveirunnar. Evrópska lögreglan Europol var- aði ferðalanga í gær við glæpagengj- um sem stunduðu þá iðju að selja ferðalöngum svikin vottorð um að þeir væru lausir við kórónuveirusmit. Tækju þeir allt að 300 evrur fyrir vottorð sem væri einskisvert. Stóð lögregla sölumenn slíkra svikapapp- íra að verki á flugvöllum í Bretlandi og Frakklandi og á netinu á Spáni og í Hollandi. Mörg ríki ESB og önnur lönd gera nú kröfur um sönnun þess að farþegar séu lausir við smit af völdum veirunnar sem dregið hefur 2,2 milljónir manna til dauða á rúmu ári. Eigendur veitingastaða hafa þver- skallast við afgreiðslubanni og rekið staði sína á laun. Nokkur brögð munu hafa verið að þessu og sagði fjármála- ráðherrann Bruno Le Maire eigend- urna eiga á hættu að fjárstuðningi vegna lokana í veirustríðinu verði kippt til baka. agas@mbl.is Páfinn einn sé óskeikull  Vaxandi áhyggjur af útbreiðslu suðurafríska afbrigðisins  Ferðalangar varaðir við glæpagengjum með svikin vottorð AFP Veira Mörg ríki gera nú kröfur um sönnun þess að farþegar séu án smits.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.