Morgunblaðið - 02.02.2021, Page 14

Morgunblaðið - 02.02.2021, Page 14
14 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 2021 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar anngjörnu verði og að ki förum við með bílinn n í endurskoðun, þér kostnaðarlausu. á s au þin að Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Félagsmálaráðherra Framsóknar hefur lagt fram á Alþingi frum- varp um málefni inn- flytjenda. Megin- tilgangur frumvarpsins er að samræma mót- töku flóttafólks. Í greinargerð með frum- varpinu er setning sem vekur athygli en þar segir: „Með samræmdu móttökukerfi er unnið að því að tryggja flóttafólki jafna þjónustu óháð því hvernig það kemur til lands- ins.“ Hér þarf að staldra við og skoða hvað þetta þýðir í reynd. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi á síðasta ári en hlaut ekki afgreiðslu. Ljóst er að ríkisstjórnin ætlar sér að koma mál- inu í gegnum þingið fyrir kosningar. Í umræðunni spurði ég ráðherra hvort með þessu frumvarpi væri eng- inn greinarmunur gerður á kvóta- flóttamönnum og hælisleitendum sem fá dvalarleyfi, þegar kemur að þjónustu. Svaraði ráðherra því að þeir myndu fá sömu þjónustu. Kvótaflóttamenn og hælisleit- endur ekki það sama Verði frumvarpið að lögum munu hælisleitendur með dvalarleyfi og kvótaflóttamenn fá sömu þjónustu. Hér er um grundvallarbreytingu að ræða sem mun hafa veruleg aukin fjárútlát í för með sér fyrir ríkissjóð. Á síðasta ári tók Ísland á móti 85 kvótaflóttamönnum en 631 hælisleit- andi fékk dvalarleyfi. Meðalkostn- aður vegna móttöku kvótaflóttafólks fyrir einhleypa er um 6 milljónir á ári. Það er sérkennilegt að yfirfæra réttindi kvótaflóttafólks yfir á hæl- isleitendur. Þetta er tvennt ólíkt. Fólk sem við samþykkjum að taka við og sjá um og síðan fólk sem kem- ur hingað á eigin vegum, sem ekki er ljóst hvort uppfyllir alþjóðleg skil- yrði þess að vera flóttamenn. Ísland þekkt fyrir bestu þjónustuna Hér eru nokkur dæmi um þjón- ustuna sem yrði þá í boði fyrir hæl- isleitendur: Greidd er framfærsla í eitt ár, desemberuppbót og barnabætur í eitt ár. Greitt er fyrir leikskóla, 100 þúsund á mánuði í 11 mánuði, skólamáltíðir í 9 mánuði, frístunda- heimili í 9 mánuði, styrk við skólabyrjun og ein- greiðslu fyrir íþróttir og tómstundir. Meðlag í tvo mánuði. Framhalds- skóli í tvær annir. Heil- brigðisþjónusta og lyf í sex mánuði. Tannlæknir 115 þúsund. Sálfræði- þjónusta fyrir 264 þúsund á ein- stakling og önnur sérfræðileg ráðgjöf í 12 mánuði. Stuðningur heim er greiddur, um 100 þúsund á fjölskyldu. Handleiðsla starfsmanna er greidd, 390 þúsund á fjölskyldu. Túlkaþjón- usta, 270 þúsund á fjölskyldu. Húsa- leiga í 2 mánuði og húsnæðisbætur sveitarfélags í 12 mánuði. Sími og net í 1 mánuð. Strætókort. Einnig gera stjórnvöld samning við Rauða kross- inn um þjónustu. Nemur kostnaður- inn um 600 þúsund á einstakling og er það viðbót við það sem að ofan greinir. Fjöldi umsókna um hæli á Íslandi myndi margfaldast Íslendingar hafa tekið vel á móti kvótaflóttamönnum en þeir koma iðulega frá stríðshrjáðum löndum. Við eigum áfram að sinna þessum hópi vel og aðstoða við aðlögun þeirra í íslensku samfélagi. Hafa ber þó í huga að fyrir hvern einn flótta- mann sem hingað kemur er hægt að aðstoða 12 á heimaslóðum. Með því að veita hælisleitendum og kvóta- flóttamönnum sömu þjónustu er gengið of langt. Kostnaðurinn fyrir ríkissjóð yrði verulegur. Skilaboðin berast hratt út í heim og viðbúið er að umsóknir um hæli á Íslandi muni margfaldast og skipta þúsundum á skömmum tíma. Enda Ísland þekkt fyrir að veita eina bestu þjónustuna í málaflokknum. Dómsmálaráðuneytið hefur gefið það út að fjöldi umsækj- enda um alþjóðlega vernd á Íslandi sé orðinn einn sá mesti í Evrópu og langmestur á Norðurlöndum miðað við höfðatölu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft málaflokkinn á sinni könnu um árabil og er greinilega ófær um að leysa vandann. Frum- varp félagsmálaráðherra er haldið verulegum ágöllum. Það getur ein- ungis til um kostnaðarauka við tvö stöðugildi hjá Fjölmenningarsetri upp á 24 milljónir króna árlega. Þeg- ar kostnaðaraukinn verður í reynd milljarðar króna og við myndum missa málaflokkinn úr böndunum. Miðflokkurinn leggst gegn frum- varpinu í núverandi mynd. Vanhugsað inn- flytjendafrumvarp Eftir Birgi Þórarinsson » Íslendingar hafa tek- ið vel á móti kvóta- flóttamönnum en þeir koma iðulega frá stríðs- hrjáðum löndum. Við eigum áfram að sinna þessum hópi vel og að- stoða við aðlögun þeirra í íslensku samfélagi. Birgir Þórarinsson Höfundur er þingmaður Miðflokksins og situr í fjárlaganefnd Alþingis. birgirth@althingi.is Nú virðist stefna í að sýna eigi þeim hluta Víkurgarðs, sem enn er óhreyfður, þann sóma sem honum ber. Hervirkin sem þarna voru gerð verða ekki aftur tekin, en nú er mikil nauðsyn að vel takist til. Ekki ætla ég mér þá dul að líta svo á, að ég hafi þar meira eða merkilegra til mála að leggja en aðrir, en mig langar að reifa hér tvær hugmyndir, sem ég tel að gætu orðið til góðs. Stórt hótel var byggt alveg að mörkum þess svæðis sem borgin ætlar að hlífa. Því er mikil hætta á að reynt verði að nýta svæðið sem næst er húsinu sem aðkomuleið, einnig að góðviðri freisti veitinga- manna til að leggja á borð þarna úti. Þess vegna er mikil þörf á að af- marka garðinn vel og ekki síst að þarna rísi sterkt tákn, listaverk, sem taki af allan vafa um að þarna sé heilög jörð, hinsti hvílustaður Þormóðs goða, sem helgaði kristni- tökuþingið árið 1000, og fjölda kyn- slóða síðan. Staður sem hlýtur að kalla á virð- ingu við hið heilaga, „frátekna“ í lífinu. Ég hef alltaf undrast það að minnisvarða Skúla fógeta skyldi val- inn staður í kirkjugarð- inum. Hann hefur enga trúarlega tilvísun og þarf því að víkja, ætti enda miklu fremur heima yfir á Ingólfs- torgi t.d. Ég veit ekkert listaverk hæfa Víkur- garði betur en hina heimsþekktu mynd Thorvaldsens „Komið til mín“, og mætti gjarnan bæta við orðinu „allir“. Hvort tveggja er, að bent hefur verið á að þarna hafi sennilega verið heiðinn helgistaður í upphafi og svo munu ganga þarna framhjá menn af ýmsu þjóðerni, fjölbreyttum trúarbrögðum og tungum. Til þess að þeir skilji allir boðskap listaverksins þarf áletrunin einnig að vera á ensku og þá skilja skoðendur, að verkið talar til þeirra hvers og eins: „Komið til mín – all- ir.“ Þar er enginn undan skilinn. Ég tel mig vita, að við þetta muni margir stöðvast og íhuga stöðu sína á lífsveginum. Hin hugmyndin er, að marka mætti útlínur síðustu kirkjunnar sem stóð í garðinum og var dóm- kirkja í níu ár. Hægt er að gera þetta með nokkurri nákvæmni og styðjast þar bæði við úttektir, sem allar eru birtar í bók minni Dóm- kirkjan í Reykjavík, og rannsókn á grunninum. Útlínurnar mætti gera með steinaröðum eða með því að umlykja svæðið lágvöxnum runnum, og hygg ég það væri fallegra. Það byði jafnvel upp á litla jákvæða at- burði innan runnanna. Þessum hugmyndum kem ég hér með á framfæri við borgaryfirvöld og aðra aðila sem þau kunna að kalla á til þess að gera þennan forna helgistað að yndisreit borginni til sóma. Hugleiðingar um Víkurkirkjugarð Eftir Þóri Stephensen Þórir Stephensen »Ég veit ekkert lista- verk hæfa Víkur- garði betur en hina heimsþekktu mynd Thorvaldsens „Komið til mín“, og mætti gjarnan bæta við orðinu „allir“. Höfundur er fv. dómkirkjuprestur. Nú eru tæpir 11 mánuðir síðan Covid- smit greindist fyrst hér á landi en það var 28. febrúar í fyrra. Óhætt er að segja að fáa hafi órað fyrir þeim sam- félagslegu áhrifum sem veiran hefur haft í heiminum öllum. Sem betur fer hafa undan- farið borist ánægju- legar fréttir. Nýlega kom fyrsti dag- urinn síðan í september þar sem enginn greindist jákvæður og aðra daga hafa smittölur verið mjög lágar. Ekki síður hafa jákvæðar fréttir ver- ið fluttar af bóluefnum og bólusetn- ingum þannig að við erum farin að sjá til lands. Það er þó ljóst að bólu- setningum á þorra landsmanna lýk- ur í fyrsta lagi í vor og e.t.v. ekki fyrr en seint á árinu. Þangað til þurfum við að halda áfram sóttvarnaráðstöf- unum til að fá ekki nýja bylgju far- aldursins. Undanfarið hefur farald- urinn verið vaxandi í mörgum nágrannalöndum okkar þannig að grannþjóðir eins og Danmörk, Nor- egur, Svíþjóð, Bretland og Frakk- land, svo einhverjar séu nefndar, hafa þurft að glíma við verulega hertar samfélagslegar aðgerðir til að stöðva útbreiðsluna. Sem betur fer höfum við sloppið við slíkt og það ber að þakka samstöðu og samkennd okkar Íslendinga. Snýst ekki bara um fjölda dauðsfalla og sjúkrahúsinnlagna Í umræðunni um Covid er mikil- vægt að hafa í huga að veiran veldur ekki bara ótímabærum andlátum og erfiðum veikindum hjá áhættuhóp- um. Veiran fer ekki í manngreinar- álit. Sumir þeirra sem sýkjast og fá jafnvel ekki mikil einkenni geta samt verið að glíma við eftirstöðvarnar í langan tíma eftir sýkingu. Það er því ekki í boði að leyfa veirunni að leika lausum hala. Enginn vill hafa það á samviskunni að smita aðra mann- eskju þannig að hún hljóti varanlega skaða af. Langvarandi einkenni Ekki er vitað hvað sá hópur er stór sem fær langvarandi einkenni eftir Covid-smit. Þótt nákvæmar rann- sóknir skorti hafa sérfræðingar er- lendis leitt að því líkum að það séu að minnsta kosti 10%. Þessi hópur er að glíma við eftirstöðvar mörgum vik- um eða mánuðum eftir sýkingu. Þetta lýsir sér í fjölbreytilegum ein- kennum svo sem síþreytu, þrekleysi, verkjum og öndunarfæraeinkennum svo dæmi séu nefnd. Merkja má við- horfsbreytingu hjá almenningi gagn- vart smiti síðan í vor. Hjá yngra og miðaldra fólki var hugsunin oft sú að viðkomandi vildi ekki smitast til að verða ekki valdur að því að smita aðra, til dæmis nána ættingja eða vini sem væru í áhættuhópum og gætu orðið alvarlega veikir eða jafn- vel dáið. Í dag er vitað að hluti þeirra sem sýkjast getur þurft að glíma við langvarandi einkenni sem leiða til skerðingar á starfsorku og lífs- gæðum, jafnvel í mjög langan tíma. Þar sjáum við að frískt fólk, t.d. í yngri kantinum og miðaldra, getur vel lent í þessum hópi. Í fjölmiðlum hér á landi hefur fjöldi fólks á öllum aldri stigið fram og lýst sögu sinni hvað þetta varðar, meðal annars af- reksfólk í íþróttum og háskóla- nemar. Endurhæfing á Reykjalundi 25 manns hafa lokið endurhæfing- armeðferð á Reykjalundi í kjölfar langvarandi einkenna vegna Covid og 30 manns eru nú í meðferð á Reykjalundi vegna langvarandi ein- kenna eftir Covid. Mjög erfitt er að áætla hversu margir munu þurfa á endurhæfingu að halda eftir að hafa sýkst af Covid. Þess ber að geta að aðeins hluti þeirra sem sýkst hafa af veirunni og glíma við langvarandi einkenni leitar eftir endurhæfingu á Reykjalundi en yfirleitt eru það veik- ustu einstaklingarnir sem Reykja- lundur sinnir. Ef notuð er einföld töl- fræði, sem verður þó að taka mjög varlega, gæti eftirfarandi komið út: Í september 2020 höfðu um 1.900 manns lokið einangrun vegna Covid- smits. Reykjalundur fékk til sín um 70 beiðnir fyrir einstaklinga sem veiktust í fyrstu bylgju, eða um 4%. Um síðustu áramót (2020/2021) höfðu 5.130 lokið einangrun (rúm- lega 3.000 bæst við í annarri og þriðju bylgju). 4% af þeim hópi væru um 115 einstaklingar til viðbótar sem ættu þá að óbreyttu eftir að koma á Reykjalund. Þegar þetta er skrifað eru um 30 manns á biðlista eftir að koma á Reykjalund og í þeim hópi eru einstaklingar sem sýktust í ann- arri og þriðju bylgju faraldursins. Stöndum saman á lokametrunum! Þótt tíðni smita hér á landi sé sem betur fer orðin mjög lág verðum við að halda vöku okkar þar til megin- þorri landsmanna hefur verið bólu- settur. Við verðum að halda áfram að fylgja sóttvörnum og gæta þess að gleyma okkur ekki. Sigurinn er ekki í höfn ennþá þótt það styttist sann- arlega í hann. Stöndum saman á lokametrunum og klárum þetta sam- an! Eftir Pétur Magnússon og Stefán Yngvason » 25 manns hafa lokið endurhæfingarmeð- ferð á Reykjalundi í kjölfar langvarandi ein- kenna vegna Covid og 30 manns eru nú í með- ferð á Reykjalundi. Pétur Magnússon Pétur er forstjóri Reykjalundar. Stef- án er framkvæmdastjóri lækninga á Reykjalundi. Stefán Yngvason Samstaða á lokasprettinum Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.