Morgunblaðið - 02.02.2021, Side 20

Morgunblaðið - 02.02.2021, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 2021 sem ungbarn verið fluttur með hesti frá Guðnabakka yfir Haf- þórsstaðahálsinn og þaðan áfram í lífsbaráttuna í Dölunum. Undir frásögninni mundi ég eftir mynd sem hann hafði sýnt mér af föður sínum, þá miklu yngri manni en mörkuðum erfiðisvinnu. Þarna stóð hann sjálfur á þessum fyrsta vegi lífs síns þremur ald- arfjórðungum síðar, sagði sögur og hafði sterkar skoðanir sem fyrr. Vildi að á næsta fundi myndum við fara yfir og greina Jóhönnustjórnina. Fullur starfs- orku og lifandi áhuga á umhverfi sínu og öðru fólki, glaður og kát- ur. Mest þótti mér þó um vert að ríflega 70 árum eftir sína fyrstu ferð um Grjóthálsveginn og þrátt fyrir áratuga harðvítug átök stjórnmálanna var þarna enn á ferð góður drengur. Ég minnist Svavars Gestsson- ar með virðingu og hlýju. Fjöl- skyldu hans sendi ég mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Helgi Hjörvar. Svavars Gestssonar er minnst með hlýhug í mennta- og menn- ingarmálaráðuneytinu. Hann var aðsópsmikill og drífandi mennta- málaráðherra frá 1988 til 1991, hugsjónamaður sem markaði spor í söguna. Hann var hvata- maður að heildstæðri mennta- stefnu fyrir Ísland, sem gefin var út árið 1990 undir yfirskrift- inni Til nýrrar aldar og var í senn metnaðarfull og framsýn. Þar var stefnan sett á einsetinn grunnskóla, samfelldan skóladag og lögfestingu leikskólans sem fyrsta skólastigsins. Á menning- arsviðinu stóð Svavar fyrir löngu tímabærum endurbótum og breytingum á Þjóðleikhúsinu, sem voru umdeildar í fyrstu en samhugur ríkti um þegar fram- kvæmdum lauk árið 1991. Svavar Gestsson var einn af stóru leikurunum á hinu póli- tíska sviði. Hafði áberandi sterka nærveru, var mælskur og rökfastur og því flinkur í póli- tískum skylmingum. Hann var umdeildur en hafði skýra sýn og drifkraft, sem einkenndi hann alla tíð – ýmist sem þingmann, ráðherra og að lokum fulltrúa Ís- lands á erlendri grund. Sem barn og unglingur heyrði ég oft talað um Svavar, fyrst hjá langömmu enda voru þau Svavar miklir félagar á vettvangi verka- lýðshreyfingarinnar og Alþýðu- bandalagsins. Mikið rætt um pólitík á heimilinu, og var mikil virðing borin fyrir Svavari, sem líka þótti hafa gott pólitískt innsæi! Ein sagan af Svavari er skemmtileg í þessu samhengi. Þannig hélt hann því fram í tækifærisræðu í sextugsafmæli Steingríms Hermannssonar, þá- verandi utanríkisráðherra í sam- steypustjórn Sjálfstæðis-, Fram- sóknar- og Alþýðuflokks, að afmælisbarnið væri „á villigötum með íhaldi og krötum. Í tilefni dagsins legg ég á og mæli um, að áður en langt um líður verður mynduð vinstristjórn á Íslandi undir forystu Steingríms Her- mannssonar“. Í ævisögu Stein- gríms segir að ummælin hafi vakið almenna kátínu snemm- sumars 1988, þótt alvara hafi legið að baki. Skemmst er frá því að segja, að spádómur Svavars rættist síðar sama ár, öllum að óvörum, vinstristjórnin var stofnuð og Svavar tók við emb- ætti menntamálaráðherra. Þar átti Svavar farsælan feril og kom mörgum umbótamálum í verk. Samstarf minnar fjölskyldu við hans átti síðar eftir að verða meira. Guðrún Ágústsdóttir, eiginkona Svavars, varð sam- herji föður míns á vettvangi Reykjavíkurlistans og Svandís dóttir hans samherji minn við ríkisstjórnarborðið. Í gegnum þau öll kynntist ég Svavari og lærði hvaða mann hann hafði að geyma. Metnaðarfullan og dríf- andi, sem kom hugmyndum í verk. Síðast hitti ég Svavar vegna áforma hans og annarra um að treysta byggð í Dalasýslu með menningartengdri starfsemi á svæðinu sem fóstraði Sturlu Þórðarson, Auði djúpúðgu, feðg- ana Eirík rauða og Leif heppna, Guðrúnu Ósvífursdóttur og fleiri. Þar átti Svavar rætur og kaus að verja drjúgum hluta eft- irlaunaáranna, í sumarhúsi fjöl- skyldunnar við Króksfjörð. Með Svavari er gengið eitt af hinum stóru nöfnum íslenskrar stjórnmálasögu. Ég votta eftir- lifendum hans samúð. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningar- málaráðherra. Á Þjóðræknisþingi fyrir sjö árum spurði Svavar mig hvort ég gæti ekki látið mér detta í hug verðugt samstarfsverkefni Þjóð- ræknisfélagsins og Árnastofnun- ar. Hann var þá formaður heið- ursráðsins. Ég sagði honum frá erindi sem Katie Parsons hafði þá nýverið haldið um handrit sem landnemarnir höfðu tekið með sér yfir hafið og vakið hafði forvitni mína um þau íslensku handrit sem enn kynnu að leyn- ast í fórum afkomendanna. Svav- ar greip hugmyndina á lofti, setti allt í gang af sínum alkunna fít- onskrafti. Hann safnaði strax liði, aflaði fjár með fulltingi Há- skólasjóðs og þar með fæddist verkefnið stórkostlega Í fótspor Árna Magnússonar í Vestur- heimi. Öflugir ungir fræðimenn hafa á síðustu árum farið um Ís- lendingabyggðir í Kanada og Bandaríkjunum, stofnað til dýr- mætra tengsla, fundið íslensk handrit og skjöl, skráð þau og loks myndað tugþúsundir blað- síðna sem brátt verða aðgengi- legar á gagnvirkum vef sem verða mun eins og brú yfir hafið. Án Svavars hefði hugmyndin enn legið í loftinu. Án hans at- beina og ástríðu lítið gerst. Sama hugsjónaeldinn og kraftinn reyndi ég oft síðan, ekki síst þegar hann talaði máli Dalanna og þeirrar menningar sem þar dafnaði allt frá miðöldum. Fleiri hugmyndir urðu að veruleika í höndum hans, sögukynning í Dölum, Sturlufélagið og upp- byggingin á Staðarhóli – og nú síðast Vínlandssýningin sem var opnuð á sólríkum degi í júlí. Dýrmætasta afurð bollalegg- inga okkar um handritin fyrir vestan varð þó vinskapur sem skipti mig afar miklu máli. Ég gat leitað til hans í smáu og stóru. Hann var hlýr og ráðagóð- ur, hvetjandi og traustur – vinur í raun. Hann hafði sérstakt lag á að láta fólkið í kringum sig glansa, gaf öðrum rými og leyfði þeim að taka heiðurinn. Það er óvenjulegur eiginleiki. Það var einstök ánægja að verða samferða þeim Guðrúnu á ferð í Vesturheimi vorið 2019 og finna þá virðingu og hlýju sem mætti þeim hvar sem við kom- um. Þau voru sem einn maður, en um leið sterkir og sjálfstæðir einstaklingar. Svavar var fyrirferðarmikill á opinberum vettvangi og lét til sín taka hvar sem hann kom, en hann var þó fyrst og fremst fjöl- skyldumaður og stoltur af sínum fallega hópi. Þegar hann talaði um Guðrúnu og börnin kom al- veg sérstakt glimt í augað og mýkt í röddina. Ég kveð vin minn með miklum söknuði. Guðrún Nordal. Ég minnist Svavars Gestsonar með miklum hlýhug. Honum kynntist ég fyrst að gagni þegar ég gekk í Alþýðubandalagið um miðjan níunda áratug síðustu aldar. Hann hafði þá skapað sér sess meðal helstu stjórnmálafor- ingja landsins. Virðing og vin- átta ríkti milli hans og foreldra minna sem bæði störfuðu í Al- þýðubandalaginu. Gott samstarf tókst með okkur. Hann setti mig m.a. í efnahagsnefnd sem starf- aði á þessum árum. Tillögur hennar fólu í sér meiri markaðs- lausnir en Alþýðubandalagið hafði fram að því hallast að. Þær fengu misjafnar undirtektir í flokknum en hugnuðust Svavari að ýmsu leyti. Eftir á að hyggja var vinna nefndarinnar hluti af víðtækari gerjun innan Alþýðu- bandalagsins sem leiddi síðar til uppstokkunar flokkakerfisins á vinstri væng stjórnmálanna. Svavar lék veigamikið hlutverk í þeirri sögu. Svavar var alla tíð hollur gagnvart vinum og samstarfs- fólki. Þetta fékk ég oft að reyna eftir að ég sagði skilið við stjórn- málastarf um miðjan tíunda ára- tug síðustu aldar. Hann var vak- andi yfir hag móður minnar og fylgdist með mér og minni fjöl- skyldu. Hann hafði öðru hverju samband við mig til að prófa skilning á hagfræðilegum mál- efnum eða sannreyna tölur. Í þessum efnum vann hann alltaf heimavinnuna. Skemmtilegt dæmi um það er þegar hann gaf út bók sína Sjónarrönd árið 1995. Ég hafði rennt yfir hluta hennar og fyrir bragðið var okk- ur Elsu boðið í útgáfuhóf í Elliðaárdalnum. Þar voru líka mættir Ragnar Árnason og Þórður Friðjónsson vegna sama greiða! Þetta var einstaklega skemmtilegt boð og Svavar og Guðrún léku á als oddi. Á fyrsta áratug þessarar aldar voru sam- skipti okkar Svavars með minnsta móti vegna langdvala erlendis. Þegar við Elsa komum heim á árinu 2009 höguðu örlög- in því þannig að vináttubönd okkar treystust. Við vorum báðir breyttir. Jafnvægi sálarinnar var betra hvað sem leið ólgunni í samfélaginu. Hann hafði tekið sæti í „lávarðadeild“ íslenskra stjórnmála. Það hafði alltaf verið gott að tala við Svavar en það var orðið enn betra og ég syrgi að samtölin verða ekki fleiri. Síð- an spillti það ekki fyrir að Guð- rún hafði tekið sæti í bókaklúbb sem Elsa hafði tekið þátt í að stofna og var einkum fyrir konur í erlendum sendiráðum hér á landi og íslenskar konur sem bú- ið höfðu erlendis í svipuðu sam- hengi. Klúbburinn býr nú að hópi fyrrverandi meðlima um all- an heim. Þegar hann hittist ásamt mökum í Kaupmannahöfn 2019 leiddi Svavar hópinn um götur og sagði með áhrifaríkum hætti sögu Íslendinga í borginni. Sjálf segist Elsa aldrei munu gleyma því þegar Svavar hringdi í hana þegar hvað harðast var sótt að mér fyrir vörslu al- mannahagsmuna og spurði hana hvernig hún hefði það því hann þekkti það vel af eigin reynslu að slíkt kæmi mun verr við makana en þá sem uppteknir væru í vörninni. Þetta var lýsandi fyrir hann. Ég minnist mikils manns sem setti sterkan svip á þjóðlífið, þurfti að glíma við ólgusjó en kom standandi niður. Við Elsa sendum Guðrúnu, Svandísi, Benedikt, Gesti og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðj- ur. Már Guðmundsson. Svavar Gestsson var öflugur liðsmaður hvar sem hann beitti sér. Hann átti margt ógert enda vel á sig kominn og elli kerling ekki farin að leiða hugann að glímu við hann. Hans er sárt saknað af þeim sem nutu krafta hans. Svavar hafði mikinn áhuga á sögu þeirra Íslendinga sem fluttu vestur um haf á árunum 1870-1914. Að auka samskipti Ís- lendinga við afkomendur þessa fólks í Vesturheimi var sameig- inlegt hugsjónarmál okkar. Þau hjónin Svavar og Guðrún voru samtaka í að rækta þessi sam- skipti og áttu fjölmarga vini þar vestra sem mátu einlægni þeirra. Við Svavar áttum ánægjulegt og árangursríkt samstarf í stjórn Þjóðræknisfélags Íslendinga (ÞFÍ) um sjö ára skeið og stóð- um að fjölmörgum viðburðum á þeim árum. Sem fyrsti formaður heiðursráðs ÞFÍ beitti hann sér af krafti fyrir verkefninu Í fót- spor Árna Magnússonar í Vest- urheimi. Verkefnið felst í því að safna upplýsingum um handrit og önnur menningarverðmæti sem tengdust fyrstu kynslóð ís- lensku landnemanna þar vestra og skrá þær á stafrænt form. Fyrir allt þetta er nú þakkað af heilum hug. Fyrir hönd heiðursráðs ÞFÍ sendi ég Guðrúnu eiginkonu Svavars og börnum hans og af- komendum innilegar samúðar- kveðjur. Halldór Árnason. Svavar Gestsson var afkasta- maður á mörgum sviðum og meðal þekktustu forystumanna þjóðarinnar í áratugi. Eftir hann liggja heilladrjúg framlög víða í samfélaginu. Leiðir okkar lágu fyrst saman 1971 er hann kom í MR sem for- ystumaður í Alþýðubandalaginu til að kynna stefnu og markmið flokksins. Ég var þá kennari í sögu og var að þróa valgrein í þjóðfélagsfræði í MR með stuðn- ingi rektors. Hver stjórnmála- flokkur fékk eina kennslustund Svavar Gestsson Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, PÉTUR JÓSEFSSON, Fróðengi 9, Reykjavík, lést á Landspítala Fossvogi miðvikudaginn 27. janúar. Útförin fer fram fimmtudaginn 4. febrúar klukkan 13 frá Fossvogskirkju. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu ættingjar og vinir viðstaddir. Hlekk á streymi er hægt að nálgast á mbl.is/andlat. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Sérstakar þakkir til starfsfólks Landspítala á deild B4 fyrir alúð og stuðning. Helgi Pétursson Lísa María Pétursson Halldór Pétursson Halldóra Ingibergsdóttir Hildur Pétursdóttir Oliver Kentish Hólmfríður Pétursdóttir Arnar Helgi Kristjánsson Arnkell Logi Pétursson Marta María Hafsteinsdóttir Þorkell Máni Pétursson Dröfn Guðjónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Sonur okkar og faðir, HALLGRÍMUR SVEINN SÆVARSSON, lést fimmtudaginn 14. janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Hrefna María Hallgrímsdóttir Sævar Hallgrímsson og fjölskylda Linda Hreggviðsdóttir og fjölskylda Ástkær eiginmaður minn, faðir, bróðir og mágur, JÓHANNES EÐVALDSSON, Glasgow, Skotlandi, lést á sjúkrahúsi í Glasgow 24. janúar. Útförin fer fram í Glasgow 5. febrúar og henni verður streymt. Þeim sem vilja minnast hans er bent á söfnun til handa fjölskyldu hans í Glasgow á erfiðum tímum. Reikningsnr. 0370-13-3501, kt. 1512585739. Catherine Bradley Ellen Sigríður Edvaldsson Anna Elisabeth Edvaldsson Andrew Atli Edvaldsson Joey Edvaldsson Anna Eðvaldsdóttir Gísli Ágúst Guðmundsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÍÐUR ÁGÚSTSDÓTTIR, Ríta, Rjúpnasölum 14, sem lést 16. janúar, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík laugardaginn 6. febrúar klukkan 14. Vegna aðstæðna eru ættingjar og vinir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Athöfninni verður einnig streymt, hlekk á streymi má finna á www.mbl.is/andlat. Guðjón Gunnarsson Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir Helga Gunnarsdóttir Leifur Aðalsteinsson barnabörn og langömmubörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, GUNNAR JÓHANNSSON, Hlynsölum 3, Kópavogi, varð bráðkvaddur á heimili sínu laugardaginn 30. janúar. Útför verður auglýst síðar. Inga Elíasdóttir Einar Gunnarsson Elísabet Þórðardóttir Þorsteinn Gunnarsson Ragnheiður Pétursdóttir og barnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, KRISTÍN ÞRÁINSDÓTTIR, Sólvangsvegi 2, áður Hjallabraut 9, Hafnarfirði, lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi laugardaginn 16. janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Alúðarþakkir til allra sem komu að umönnun hennar undanfarin ár, sérstaklega starfsfólks á Vífilsstöðum og á Sólvangi. Margrét Bjargmundsdóttir Þorgerður Bjargmundsdóttir Jakob Richter María Bjargmundsdóttir ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SNJÓLAUG BRUUN, lést á öldrunardeild Landspítalans, Vífilsstöðum, 23. janúar. Útförin fer fram í Garðakirkju föstudaginn 5. febrúar klukkan 13. Boðsgestir. Streymt verður frá athöfninni: https://youtu.be/9EzIGHTneqQ Gunnar Bruun Bjarnason Bára Einarsdóttir Kristján Bjarnason Svava Bogadóttir Snjólaug Elín Bjarnadóttir Hans Kristjánsson Björn Bjarnason Kolbrún Elíasdóttir Knútur Bjarnason Helga Friðriksdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.