Morgunblaðið - 02.02.2021, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 02.02.2021, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 2021 Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar vinnuföt fást einnig í Mikið úrval af öryggisvörum HAGI ehf • Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414 3700 • hagi@hagi.is • hagi.is • Hagi ehf HILTI Opið: 8-18 virka daga – 10-12 laugardaga 60 ára Guðlaugur er Reykvíkingur, ólst upp í Álftamýri en býr í Selja- hverfi. Hann er vélstjóri að mennt frá Vélskóla Íslands og er rekstrar- stjóri vöruflokka hjá úr- vinnslusjóði. Guðlaugur situr í stjórn RÚV. Maki: Halla Unnur Helgadóttir, f. 1964, viðskiptafræðingur, löggiltur fasteigna- sali og einn af eigendum Gimlis. Börn: Sverrir Geir, f. 1992, Elín Rósa, f. 1994, og Freyja Sóldís, f. 2001. Foreldrar: Anna Margrét Guðjónsdóttir, f. 1928, d. 2013, húsvörður í Álftamýrar- skóla, og Sverrir Guðmundsson, f. 1926, d. 1965, stýrimaður og fyrrverandi starfsmaður Hafrannsóknastofnunar. Guðlaugur Gylfi Sverrisson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú þarft að gæta þess vel að fá nægan svefn því of miklar vökur fara illa með sál og líkama. Ef þú nýtir eldmóð þinn færðu marga til liðs við þig. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú getur ekki gefið þeim sem þú elskar of mikið af tíma þínum. Mundu að aðstoð getur borist úr ólíklegustu áttum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er kominn tími til þess að þú dragir þig í hlé frá ákveðnum málum og leyfir öðrum að taka við. Þú ert ekki ómissandi. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Láttu ekki atburðarásina kippa undan þér fótunum heldur haltu þínu striki ótrauð/ur. Sannleikurinn er sagna bestur. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Að láta sér lynda við ástvini er hvorki erfitt né auðvelt. Láttu þér í léttu rúmi liggja þótt einhver mótmæli þér. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er leiður vani að láta vonbrigði sín bitna á öðrum. Vinir þínir hafa mikil áhrif á þig í sambandi við ákvarðanir sem þú þarft að taka. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú ert svo samdauna vissu umræðu- efni að þú sérð ekki það augljósa í málinu. Vertu vakandi fyrir nýjum tækifærum. Slepptu takinu á gömlum tilfinningum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Frestaðu því ekki til morguns að gera eitthvað fyrir heilsuna. Varastu að bera þig saman við aðra. Reyndu að víkka sjóndeildarhringinn. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Hlutirnir virðast á fullri ferð í kringum þig og þú átt fullt í fangi með að fylgjast með. Einhver af gamla skólanum reynir að ráðleggja þér með uppeldið. 22. des. - 19. janúar Steingeit Nú er upplagt tækifæri til þess að hefjast handa við verk, sem þú hefur lengi látið þig dreyma um. Margar hendur vinna létt verk. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þér kann að berast óvænt tækifæri upp í hendurnar og ef þú heldur rétt á spilunum, getur það orðið þér til mikillar gleði. Blandaðu geði við fólk sem þú þekkir ekki mikið. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú þarft að hugsa alvarlega um hvað það er sem í raun skiptir máli í þínu lífi. Frestunarárátta þín er í hæstu hæðum. G ísli Örn Bjarnhéðins- son fæddist 2. febrúar 1971 á Akureyri og ólst þar upp, lengst af í Glerárhverfi eða frá sex ára aldri. Hann var virkur í æskulýðsstarfi á yngri árum auk þátttöku í fótbolta og körfubolta hjá Þór Akureyri Gísli varð stúdent frá Mennta- skólanum á Akureyri 1991, lauk iðnrekstrarfræði 1994, B.Sc. í rekstrarfræði frá Háskólanum á Akureyri 1996, M.Sc. í stjórnun og stefnumótun frá Álaborgarháskóla í Danmörku 2000 og kennslu- og uppeldisfræði frá KHÍ 2004. „Ég hef einnig lokið öllum námskeiðum við M.Sc.-nám í fjármálum við HÍ sem var tekið með vinnu en ekki hefur fundist tími til að klára lokaverkefni enda mikið að gera á stóru heimili.“ Á yngri árum kom Gísli að fjöl- breyttum störfum, svo sem skóg- rækt, hótel-, verslunar- og þjón- ustustörfum og fiskvinnslu auk umönnunarstarfa. Eftir nám í Há- skólanum á Akureyri starfaði hann sem sumarmaður hjá Bún- aðarbankanum og var svo í fullu starfi hjá Kaupþingi Norðurlands við fjármálaráðgjöf og verðbréfa- miðlun 1996-1998. Hann kenndi einnig við grunnskólann á Þórs- höfn einn vetur, 1994-1995. Að meistaranámi loknu starfaði Gísli hjá Hug sem rekstrarstjóri ráðgjafarsviðs, 2002-2005 við rekstrarráðgjöf hjá PWC Consult- ing, síðar ParX, við fjölbreytt skipulags- og breytingaverkefni. Hann var síðan framkvæmdastjóri Búseta 2006-2017. Hann starfaði sjálfstætt í eigin félagi við fast- eignaþróun og ráðgjöf og frá 2019 einnig sem fjármálastjóri og með- eigandi hjá Alverki ehf., við þróun og byggingu íbúða og mannvirkja. „Ég var í tæp tólf ár hjá Búseta og vildi fara að nýta mína sér- þekkingu og spreyta mig á eigin spýtur. Það er erilsamt að standa í brúnni og nauðsynlegt að breyta til svo maður staðni ekki. Þannig heldur maður áfram að vaxa með því að takast á við nýja hluti. Annars voru árin hjá Búseta góð og félagið dafnaði vel og við kom- um töluverðu í verk. Við endur- fjármögnuðum m.a. félagið á markaði og fórum í stórt metnaðarfullt verkefni við Ein- holt/Þverholt sem var klárað með glæsibrag, á tíma og kostnaði, þrátt fyrir fortölur sumra.“ Það gengur ljómandi vel hjá Al- verki og mörg verkefni í gangi. „Við erum að byggja á þriðja hundrað íbúða, m.a. fyrir Samtök aldraðra og Byggingafélag náms- manna auk fleiri. Þá erum við að fara af stað með 52 íbúðir, sem er hagkvæmt húsnæði fyrir fyrstu kaupendur, í Úlfarsárdal og verð- ur væntanlega kynnt í byrjun mars. Þetta er mjög spennandi verkefni sem er gert í samstarfi við borgina. Við vorum að skila af okkur 78 íbúðum síðastliðið sum- ar og í vor skilum við 60 íbúðum til Samtaka aldraðra sem eru í Austurhlíð.“ Gísli hefur tekið virkan þátt í félagsmálum. Hann tók meðal annars þátt í stofnun JCC við- skiptafélags frá 2000-2002 og var virkur í félagsstarfi RoundTable 1 frá 2004 í góðan áratug. Hann hefur tekið þátt í stjórnum margra félaga og sótt fjölmörg námskeið tengd stjórnun, rekstri félaga og bygginga, þ.m.t. um- fangsmikið Euromoney-námskeið í París 2015 um fjármál og fast- eignir. Hann var stjórnarmaður og varamaður í um áratug hjá Housing Nordic sem eru regn- hlífarsamtök húsnæðisfélaga á Norðurlöndunum þar sem menn deila þekkingu sinni og reynslu af húsbyggingum, byggingar- Gísli Örn Bjarnhéðinsson, fjármálastjóri og meðeigandi Alverks – 50 ára Afmælisbarnið Horft yfir sundin á hlýjum sumardegi úr Grafarvogi. Mikilvægt að takast stöðugt á við ný og krefjandi verkefni Fjölskyldan Bríet Emma, Gísli, Oliver, Tumi, Verity og Kristinn Gísli. 40 ára Hannes Óli er Reykvíkingur, ólst upp í Breiðholti en býr í Laugardalnum. Hann er leikari frá Listahá- skóla Íslands og bók- menntafræðingur frá HÍ. Hannes Óli er sjálf- stætt starfandi leikari og er fagstjóri leik- arabrautar sviðslistadeildar LHÍ. Maki: Aðalbjörg Árnadóttir, f. 1980, sjálf- stætt starfandi leikkona og sviðshöf- undur, einnig með MA í hagnýtri menn- ingarmiðlun frá HÍ. Börn: Saga Sólrún, f. 2017. Foreldrar: Þórhildur Óladóttir, f. 1952, vann skrifstofustörf, búsett í Reykjavík, og Anna Margrét Grétarsdóttir, f. 1953, vinnur við umönnun, búsett í Reykjavík. Hannes Óli Ágústsson Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.