Morgunblaðið - 02.02.2021, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 02.02.2021, Qupperneq 27
AKUREYRI Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is KA/Þór er það lið sem hefur komið einna mest á óvart í úrvalsdeild kvenna í handknattleik, Olísdeild- inni, á tímabilinu. Liðið vann fjögurra marka sigur gegn bikar- og deildarmeisturum Fram, 27:23, í síðustu umferð úr- valsdeildarinnar í KA-heimilinu á Akureyri en liðið er í efsta sæti deildarinnar með 10 stig líkt og Valur. Martha Hermannsdóttir er á meðal reynslumestu leikmanna liðs- ins en hún hefur ekkert leikið með liðinu síðan keppni í deildinni hófst að nýju í janúar vegna meiðsla. Martha, sem er á 38. aldursári, er bjartsýn á framhaldið hjá Ak- ureyrarliðinu og spennt fyrir kom- andi verkefnum. „Við settum okkur markmið síð- asta haust um að við ætluðum okk- ur í úrslitakeppnina,“ sagði Martha í samtali við Morgunblaðið. „Við gerðum okkur ekki alveg grein fyrir því hvar við stæðum gagnvart Fram og Val til dæmis og þá höfðu bæði Stjarnan og ÍBV styrkt sig mikið fyrir tímabilið. Við vissum þess vegna að þetta yrði erfitt en við ætluðum okkur að reyna að nálgast bæði Fram og Val að styrkleika á tímabilinu. Við lögð- um svo Fram að vell í Meist- arakeppni HSÍ í ágúst og þótt það hafi vissulega vantað sterka leik- menn í þeirra lið þá töldum við okkur vera komnar aðeins styttra en við héldum. Eins þá gerðum við okkur ekki almennilega grein fyrir því hversu stór partur Rut yrði af liðinu og hversu langt hún gæti farið með liðið. Varnarleikurinn hefur smollið á þessari leiktíð og eins hefur markvarslan verið betri núna en í fyrra. Ég held að það sé því alveg óhætt að segja að gengið á tíma- bilinu, enn sem komið er, hafi farið fram úr okkar björtustu vonum,“ bætti Martha við. Þjálfarinn alltaf glaður Andri Snær Stefánsson tók við þjálfun KA/Þórs fyrir tímabilið og hefur innkoma þjálfarans breytt miklu fyrir Akureyringa. „Sjálfstraust er ótrúlega stór partur af íþróttum og maður þekkir það af eigin raun. Ef maður skorar úr fyrstu tveimur skotunum sínum er allt í blóma en ef maður klikkar á fyrstu tveimur þá er allt eins lík- legt að maður eigi slæman leik. Þetta snýst allt um að hafa trú á sér og sjálfstraustið við að vinna Fram gaf okkur þvílíkt mikið. Það er einhvern veginn allt skemmti- legra þegar maður er að vinna og þessi gleði sem fylgir því að vinna er svo mögnuð. Æfingarnar verða skemmtilegri og hlutirnir verða einfaldari fyrir vikið. Eins erum við með jákvæðasta þjálfara í heimi. Hann er alltaf glaður og tilbúinn að peppa mann áfram. Það er ekki til neikvætt bein í honum og auðvitað er það líka stór partur af þessu hversu vel hann og þjálfarateymið hafa komið inn í þetta. Hann var búinn að fylgjast mjög vel liðinu áður en hann tók við því og hann lagði strax mikla áherslu á að við yrðum fljótari að skila okkur til baka. Við höfum lagt upp með að spila góða vörn og keyra svo upp hraðaupp- hlaupin. Hann kemur inn með þennan aukakraft sem hefur kannski aðeins vantað og þeir sem hafa fylgst vel með liðinu í vetur hafa tekið eftir því hversu mikið við fögnum inni á vellinum. Við eigum að fagna þegar vel gengur og þá er líka leyfilegt að gera sín mistök. Þú ert ekki skammaður ef þú klikkar á færi eða átt lélegt skot. Ungu stelpurnar eru þess vegna ekki hræddar við að taka af skarið því þú færð þitt svig- rúm til þess að gera mistök.“ Gefur mikið af sér Landsliðskonan Rut Arnfjörð Jónsdóttir sneri heim úr atvinnu- mennsku og gekk til liðs við KA/ Þór fyrir tímabilið en hún hefur verið einn besti leikmaður deilda- innar á tímabilinu. „Innkoma Rutar hefur breytt þvílíkt miklu og ég vissi að hún væri góð áður en hún kom hingað en ég vissi ekki að hún væri svona góður leikmaður. Hún er heilinn í sóknarleiknum okkar og það er klárt mál að hún verður þjálfari þegar skórnir fara á hilluna hjá henni. Hún er ekkert smá klár í handbolta og hún og Andri fara saman yfir kerfin sem við spilum. Hún kemur líka inn með þvílíkt mikið flæði á boltann sem er mjög mikilvægt fyrir okkur því boltinn gekk sem dæmi ekki nægilega vel hjá okkur í fyrra. Við vorum mikið að dripla í sóknarleiknum en hún hefur komið sóknarleiknum okkar í hærri gæðaflokk. Við erum með lágvaxið lið og höf- um þess vegna þurft að stóla aðeins meira á þessi gegnumbrot og línu- blokkeringar. Hún er ótrúlega mik- ilvæg og ef hún myndi meiðast myndi leikur liðsins breytast mikið. Á sama tíma erum við með leik- menn sem eru tilbúnir að koma inn, stíga upp og hjálpa liðinu og við förum líka langt á því. Rut hefur líka verið frábær með ungu stelp- urnar og hún er oft lengur eftir æf- ingar með þeim að kenna þeim og sýna allskyns hluti. Hún gefur því- líkt mikið af sér og yngri stelp- urnar njóta svo sannarlega góðs af því að hafa Rut með sér í liði.“ Óttaðist hið versta KA/Þór er með 10 stig í öðru sæti deildarinnar eftir fyrstu sjö leiki tímabilsins, jafn mörg stig og Valur, en Fram og Stjarnan koma þar á eftir með 8 stig eftir sex leiki. „Deildin er jafnari en undanfarin ár. Ég var skíthrædd fyrir tímabilið þar sem margir leikmenn virtust vera á leið í Fram og Val og ég var þess vegna virkilega ánægð þegar bæði Stjarnan og ÍBV styrktu sig líka. Minni lið deildarinnar eru að nálgast þessi topplið sem hafa verið sigursælust í deildinni undanfarin ár og þannig á þetta auðvitað að vera. Það er hundleiðinlegt að fara inn í nýtt tímabil og það vita allir hvaða lið verður bikar-, deildar- og Íslandsmeistari. Á sama tíma eiga bæði Fram og Valur eftir að verða sterkari eftir því sem líður á og þær eiga helling inni í bæði Karenu [Knútsdóttur] og Þóreyju Rósu [Stefánsdóttur]. Á sama tíma vonumst við líka til þess að verða sterkari eftir því sem líður á og ég sé þess vegna fram á mjög spennandi tímabil í efstu deild kvenna. Ég vonast sjálf til þess að vera orðin klár í slaginn í vor en ég er búin að vera að glíma við meiðsli í hæl að undanförnu. Ég missteig mig í október og fór að beita mér eitthvað vitlaust. Þá kom upp tognun í liðbandinu undir hælnum og ég gat nánast ekkert gert. Ég gat varla hlaupið en ég er búin að fara í tvær sterasprautur og vonast til þess að vera komin af stað eftir þrjár vikur vonandi. Ég veit ekki hversu góð ég verð og stefnan er þess vegna að koma inn af fullum krafti í úrslitakeppninni þegar hún hefst því við ætlum okk- ur að vera þar,“ bætti Martha við í samtali við Morgunblaðið. Ótrúlegur handboltaheili  KA/Þór hefur byrjað tímabilið með látum í úrvalsdeild kvenna í handknattleik  Rut Jónsdóttir hefur gjörbreytt sóknarleik Akureyringa með innkomu sinni Morgunblaðið/Þórir Tryggvason Liðstyrkur Rut Arnfjörð Jónsdóttir skoraði sjö mörk gegn Fram og hefur gert 44 mörk í fyrstu sjö leikjum Akureyrarliðsins á tímabilinu. Morgunblaðið/Þórir Tryggvason Ánægðar Leikmenn KA/Þórs höfðu ástæðu til að fagna vel í leikslok á laugardaginn eftir sannfærandi sigur gegn Fram, 27:23. ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 2021 Andrúmsloftið hjá FC Barcelona er væntanlega raf- magnað í upphafi þessar vinnu- viku eftir tíðindi helgarinnar. Ekki er annað að sjá en að samn- ingi félagsins við fyrirliðann Lionel Messi hafi verið lekið og birti Mundo Deportivo mikla skúbbfrétt á sunnudag. Þar komu fram tölur og upplýs- ingar úr samningi Messis og upphæðirnar eru vafalaust slá- andi fyrir marga. Ekki síst þá sem standa félaginu nærri. Á þessu eina samningstímabili, 2017-2021, virðist sem FC Barce- lona borgi Messi álíka mikið og Cleveland Cavaliers, Miami Heat og Los Angeles Lakers borga Le- Bron James á tveimur áratugum í NBA-deildinni. Forráðamenn FC Barcelona neita því alfarið að hafa nokkuð með lekann á gögnunum að gera en gera ekki athugasemdir við tölurnar í fréttinni eftir því sem ég best veit. Félagið og Messi eru að skoða möguleikana á lögsókn á hendur blaðinu. Hafi einhver í herbúðum félags- ins lekið gögnunum veltir maður því fyrir sér hvort það sé til að koma höggi á Messi. Hvernig ætli þessi tíðindi leggist í stuðnings- menn liðsins? Félagið er í fjárhagserfið- leikum í kjölfar efnahagskrepp- unnar sem fylgt hefur heims- faraldrinum og fólkið í borginni fór ekki vel út úr baráttunni við veiruna. Ætli það sé mikil stemn- ing fyrir því að fyrirliðinn, sem virðist vilja fara frá félaginu, sé á þvílíkum ofurlaunum að dáðir menn hjá félaginu eins og Johan Cruyff hefðu litið út eins og fá- tæklingar í samanburðinum? Þess vegna veltir maður því fyrir sér hvort lekinn sé hluti af átökum félagsins og Messis. Þessar upplýsingar gætu skaðað ímynd fyrirliðans. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin: Eyjar: ÍBV – Haukar ................................ 18 TM-höllin: Stjarnan – Fram................ 19.30 Í KVÖLD! Dominos-deild karla Keflavík – ÍR......................................... 86:79 Grindavík – Stjarnan............................ 93:89 Staðan: Keflavík 7 6 1 637:575 12 Grindavík 7 5 2 634:630 10 Stjarnan 7 5 2 670:604 10 Þór Þ. 7 4 3 710:645 8 Njarðvík 7 4 3 611:606 8 KR 7 4 3 646:657 8 ÍR 7 4 3 621:630 8 Valur 7 3 4 583:596 6 Tindastóll 7 3 4 667:665 6 Þór Ak. 7 2 5 641:680 4 Haukar 7 1 6 591:647 2 Höttur 7 1 6 614:690 2 1. deild karla Álftanes – Selfoss ................................. 84:67 Breiðablik – Hrunamenn................... 113:75 Staðan: Álftanes 6 4 2 549:508 8 Breiðablik 5 4 1 504:446 8 Hamar 4 3 1 386:364 6 Sindri 5 3 2 458:426 6 Vestri 6 3 3 536:564 6 Hrunamenn 5 2 3 424:483 4 Skallagrímur 6 2 4 516:512 4 Selfoss 5 1 4 386:420 2 Fjölnir 4 1 3 345:381 2 NBA-deildin Indiana – Philadelphia ..................... 110:119 Toronto – Orlando ............................ 115:102 Washington – Brooklyn ................... 149:146 Minnesota – Cleveland..................... 109:104 

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.