Morgunblaðið - 02.02.2021, Síða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 2021
SÉRBLAÐ
SMARTLANDS
BLAÐIÐ
Fylgir Morgunblaðinu 12. febrúar
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til 8. febrúar
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
Fjallað verður
um tískuna 2021
í förðun, snyrtingu,
útliti og fatnaði auk
umhirðu húðarinnar,
heilsu, dekur o.fl.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Jóhann Smári Sævarsson bassa-
söngvari kemur fram á hádegistón-
leikum í Hafnarborg í dag kl. 12
ásamt Antoníu Hevesi píanóleikara
og munu þau flytja aríur eftir Ross-
ini, Mozart og Verdi. Vegna tilslak-
ana á fjöldatakmörkunum er nú
loksins hægt að halda hádegistón-
leika með áhorfendum í sal þótt
fjöldi gesta sé takmarkaður. Gestum
er boðið að panta sér miða í síma
585-5790 á afgreiðslutíma safnsins
og verður tónleikunum einnig
streymt beint á Facebook og á
heimasíðu Hafnarborgar þannig að
allir geta notið flutningsins. Upp-
takan verður áfram aðgengileg á
netinu að tónleikunum loknum.
Langur og glæsilegur ferill
Jóhann Smári hóf söngnám við
Tónlistarskólann í Keflavík hjá Árna
Sighvatssyni og við Nýja tónlistar-
skólann hjá Sigurði Demetz og
stundaði framhaldsnám við sam-
eiginlega óperudeild Royal College
of Music og Royal Academy of Mu-
sic í London. Að námi loknu hóf
hann að syngja við Kölnaróperuna
og var einnig fjögur ár á föstum
samningi við óperuna í Regensburg.
Jóhann hefur sungið sem gesta-
söngvari við fjölda óperuhúsa í Evr-
ópu, m.a. í Köln, Bonn og Würzburg,
við Berlínarfílharmóníuna og hefur
sungið í Royal Albert Hall, Sadlers
Wells Theater í London og Dublin
Grand Opera, Scottish Opera,
Borgarleikhúsinu, Þjóðleikhúsinu
og Íslensku óperunni. Þá hefur Jó-
hann einnig starfað með ýmsum
frægum hljómsveitarstjórum, þeirra
á meðal Gennadi Rozhdestvenskíj.
Jóhann hefur sungið yfir 50 hlut-
verk í óperum og má af þeim nefna
Ochs barón, Filippus II., Fígaró,
Ónegin og Tevje í Fiðlaranum á
þakinu. Fyrir utan þetta hefur hann
svo komið fram á tónleikum bæði
hér heima og erlendis og komið
fram á Listahátíð. Jóhann hefur
einnig kennt söng víða um land og
verið liðsmaður sönghópsins Orfeus-
ar. Og er þá ferilskráin langt frá því
tæmd.
Gaman og alvara
Jóhann segist vera að hlaupa í
skarðið fyrir söngvara sem komst
ekki til landsins og að aríurnar þrjár
endurspegli þema tónleikanna, Ástir
og vesen í óperum. Aríurnar eru „La
calunnia è un venticello“ úr Rak-
aranum í Sevilla eftir Rossini þar
sem tónlistarkennarinn Don Bazile
leggur á ráðin með Don Bartoló um
hvernig hann geti komið Almaviva
greifa frá sem felst í því að koma af
stað kjaftasögu; „Madamina, il cata-
logo è questo“ úr Don Giovanni eftir
Mozart þar sem þjónn Don Giovann-
is syngur um allar kærustur hús-
bónda síns og þriðja arían er svo,
ólíkt hinum, ekki grínaría heldur úr
Don Carlo eftir Verdi og í henni
syngur vansvefta Filippus II. Spán-
arkonungur um að líklega verði
hann jarðaður einn þegar hann deyi
þar sem konan hans elski hann ekki.
„Þær eru allar frekar stórar
þannig að þær fylla út í þennan
tíma,“ segir Jóhann um aríurnar en
tónleikarnir verða um hálftími að
lengd og Antonía mun auk þess
kynna hverja aríu. Jóhann segir að
allar aríurnar séu krefjandi, hver á
sinn hátt, en þar sem tónleikarnir
séu stuttir sé óhætt að flytja þær
saman. „Þetta er valið þannig að
þetta byggist rétt upp,“ bendir hann
á, „að maður byrji á réttu aríunni og
endi á þeirri réttu.“
Sigurður kveikti áhuga
Jóhann Smári er spurður að því
hvenær ástríða hans fyrir söng hafi
kviknað og segist hann hafa byrjað í
Karlakór Keflavíkur 19 ára að aldri
og þótt afskaplega gaman. Síðan
hafi hann kynnst Sigurði Demetz
sem hafi verið fjölskylduvinur.
„Hann kveikti í mér, fór að benda
mér á söngvara að hlusta á og ég fór
í nám til hans. Við sátum oft um eft-
irmiðdaginn og hlustuðum á plötur
og hann sagði mér sögur af óperu-
heiminum,“ rifjar Jóhann upp en
segist þó ekki hafa byrjað að syngja
fyrr en 19 ára og þar sem söng-
röddin var djúp var hann settur
strax í 2. bassa.
Jóhann stjórnar nú Karlakór
Keflavíkur og hefur gert í nokkur ár
og auk þess er hann stjórnandi
sönghóps sem kallar sig Söngsveit-
ina Víkinga. Lítið hefur hins vegar
verið um kóræfingar út af kófinu en
vonandi fer brátt að rofa til.
Ást og vesen í þremur aríum
Jóhann Smári Sævarsson syngur aríur eftir Rossini, Mozart og Verdi í hádeg-
inu Ástríðan fyrir söng kviknaði í Karlakór Keflavíkur þegar hann var 19 ára
Ljósmynd/Áslaug Íris Friðjónsdóttir
Samstarf Jóhann Smári og Antonía Hevesi í Hafnarborg þar sem tónleikarnir fara fram í hádeginu í dag.
Japanshátíð við
Háskóla Íslands
hófst í gær, 1.
febrúar, og
stendur yfir í
viku. Hátíðin er
með breyttu
sniði í ár þar sem
allir viðburðir
fara fram á net-
inu vegna Covid-
-19 og dreifast
nú á heila viku. Allir eiga þeir sam-
eiginlegt að hafa japanskt mál og
menningu sem viðfangsefni en
sjónarhornin eru fjölbreytt og segir
í tilkynningu að flestir viðburðanna
bjóði upp á gagnvirka þátttöku á
Zoom og verði líka streymt á Face-
book. Í dag kl. 14 verður boðið upp
á spjall við höfund og þýðanda,
Yoko Tawada og Margaret Mitsut-
ani. Kristín Ingvarsdóttir, lektor í
japönskum fræðum, ræðir við gest-
ina um skáldsöguna The Emissary
eða Sendiboðann eins og hún heitir
á íslensku, og áralangt samstarf
þeirra. „Tawada er þekkt fyrir
frumlega meðferð sína á tungumál-
inu sem hefur reynst ærin áskorun
fyrir jafnvel færustu þýðendur,“
segir í tilkynningu.
Ræðir við höfund
og þýðanda
Kristín
Ingvarsdóttir
Vínylplata hefur
verið gefin út í
tengslum við
leiksýninguna
Vertu úlfur í
Þjóðleikhúsinu
og mun ágóði af
sölu á henni
renna til Geð-
hjálpar. Vertu
úlfur er ein-
leikur byggður á
bók Héðins Unnsteinssonar þar sem
fjallað er opinskátt um baráttu við
geðsjúkdóma og á plötunni má
finna tónlist sem þau Valgeir Sig-
urðsson, Emilíana Torrini, Markéta
Irglová og Prins Póló sömdu fyrir
sýninguna og lestur Héðins Unn-
steinssonar á Lífsorðunum 14. Plat-
an er framleidd í 39 eintökum og
hvert þeirra kostar 39.000 kr. og er
með því vísað í átakið 39.is.
Vínylplata seld til
styrktar Geðhjálp
Héðinn
Unnsteinsson
Skoska tónlistarkonan Sophie er lát-
in aðeins 34 ára að aldri. Lést hún að
morgni laugardags af slysförum á
heimili sínu í Aþenu í Grikklandi, að
því er fram kemur í tilkynningu frá
umboðsfyrirtæki hennar, Modern
Matters. Sophie þótti með áhrifa-
mestu tónlistarmönnum síðasta ára-
tugar og afar hugmyndarík bæði
sem upptökustjóri og tónlistar-
maður. Segir í frétt dagblaðsins The
New York Times að í tónlist hennar
hafi verið samtvinnaður hraði, há-
vaði, melódía, skýrleiki og auk þess
hafi lög hennar verið grípandi. Var
tónlist hennar flokkuð sem „hyper-
pop“ sem mætti þýða sem ofurpopp.
Í fyrrefndri tilkynningu segir að
Sophie hafi fallið úr stiga þegar hún
ætlaði sér að horfa á fullt tungl. Dó
hún nokkru síðar.
Sophie starfaði með mörgum
heimskunnum tónlistarmönnum,
þeirra á meðal Madonnu og Vince
Steples. Hún hlaut tilnefningu til
Grammy-verðlauna fyrir plötu sína
Oil of Every Pearl’s Insides frá
árinu 2018 í flokki dans- og raf-
tónlistar. Sophie hét fullu nafni
Sophie Xeon og sendi fyrstu smá-
skífuna frá sér árið 2013, Nothing
More to Say. Jukust vinsældir henn-
ar mjög við útgáfu næstu plötu,
Bipp, sama ár og sama má segja um
fjölda smáskífa sem komu út sem
lagasafn árið 2015. Sophie var trans
og talaði opinskátt um þau mál í við-
tali árið 2018 í tímaritinu Paper.
AFP
Dáð Tónlistarkonan og upptökustjórinn Sophie átti sér marga aðdáendur.
Hér sést hún á tónleikum á hátíðinni Coachella í Kaliforníu árið 2019.
Sophie látin, 34 ára