Morgunblaðið - 02.02.2021, Síða 32

Morgunblaðið - 02.02.2021, Síða 32
ALLA VIRKA DAGA FRÁ 16-18 Með loga bergmann og sigga gunnars Síðdegisþátturinn á k100ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 33. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. ÍÞRÓTTIR MENNING Dominos-deild karla í körfuknattleik er ekki fyrirsjáan- leg í vetur eins og úrslitin sýna. Stjarnan burstaði Keflavík á dögunum en tapaði í gær í Grindavík þótt Grindavíkurliðið saknaði Dags Kárs Jónssonar sem er í stóru hlutverki hjá Grindvíkingum. Keflavík náði aftur toppsætinu með sigri á ÍR og hef- ur Keflavík tveggja stiga forskot á Grindavík og Stjörn- una en fjögurra stiga forskot á fjögur lið þar fyrir neð- an. ÍR er einmitt í þeim hópi. Sjö umferðum er lokið í deildinni á keppnistímabilinu. »26 Úrslitin eru ekki fyrirsjáanleg í leikjunum í efstu deild karla Fjöruáhrif er heiti sýningar Hauks Dórs Sturlusonar myndlistarmanns sem var opnuð í Gallerí Fold við Rauðarárstíg um liðna helgi. Heitið dregur sýningin af staðsetningum vinnustofa listamannsins sem hafa oft- ar en ekki verið við sjávarsíðuna. Fjaran hefur verið Hauki hugleikið viðfangsefni og má sjá hana læðast inn í verkin hans þar sem þari, fuglar og önnur dýr taka sér gjarna bólfestu á striganum. Haukur Dór hefur haldið fjölda sýninga á löngum og farsælum ferli. Fjöruáhrif stendur til 13. febrúar og er grímuskylda í galleríinu. Fjöruáhrif nefnist sýning Hauks Dórs sem stefndur nú yfir í Fold Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri „Ég veit nú ekkert um það,“ svarar Helga St. Jónsdóttir, íbúi á Dalbæ á Dalvík, spurð hvort hún sé ekki frekar hress. Helga er 100 ára í dag, 2. febrúar. „Ég kemst minna ferða hér innanhúss með aðstoð við- haldsins. Ég er nú ekki hressari en það,“ bætir hún við. Viðhaldið er göngugrind sem hún hefur sér til halds og trausts og ekki annað að sjá en hún dugi bærilega. Helga fæddist á Kálfsskinni á Ár- skógsströnd og ólst þar upp fram á fullorðinsár. Foreldrar hennar voru þau Jón Einarsson bóndi og Rósa Elísabet Júníusdóttir. Hún lést fer- tug að aldri þegar Helga var átta ára gömul. Þau eignuðust sex börn, þar af tvenna tvíbura. Elstar eru tvíburarnir Gunnhildur og Bryn- hildur og þá komu þær Helga og Bergrós sem varð 93 ára. Yngst voru Einar og loks Þórey. Hálf- bróðir Helgu, sonur Jóns, er Sveinn Elías, fyrrverandi bóndi á Kálfs- skinni. Helga minnist æskuáranna á Kálfsskinni með ánægju, en þar ráku foreldrarnir bú, voru með kýr og kindur. „Við krakkarnir höfðum okkar hlutverk, við hjálpuðum til með skepnurnar og gerðum það sem við gátum. Heimilið var mann- margt eins og tíðkaðist á þeim tíma og það miðaðist allt við að til væri nægur matur fyrir allt, að heimilið hefði það sem þurfti og allir hefðu í sig og á.“ Fýkur einhvern veginn yfir allt Komin á fullorðinsár flutti hún sig um set innan héraðs, kom sér fyrir við sjávarsíðuna á Árskógs- sandi. „Ég var í línuvinnu, var að stokka og beita,“ segir hún. Hún kynntist eiginmanni sínum, Jóhanni Ásgrími Ásmundssyni, sjómanni frá Litla-Árskógssandi, á þessum tíma. Þau bjuggu fyrstu árin á Árskógs- sandi en fluttu yfir í Hrísey, bjuggu m.a. á Syðstabæ. Jóhann lést árið 1970. Helga og Jóhann eignuðust þrjú börn, tvíburana Elísabetu og Ásmund sem fæddust 1942, bæði látin, og Jónu, sem fæddist 1958. „Það fýkur einhvern veginn yfir þetta allt saman og í burtu, mér finnst eiginlega ekki neitt eitt vera eftirminnilegra en annað,“ segir Helga, spurð hvort eitthvað standi upp úr þegar litið er yfir farinn veg. „Maður gleymir svo mörgu,“ seg- ir hún en rifjar upp góða minningu úr æsku sinni þegar skólabörnum var boðið í vorferð í Mývatnssveit á svonefndum boddíbíl. Það þótti vel í lagt að fara svo langt og mikil upp- lifun að sjá það sem fyrir augu bar í ferðinni. Gist var í Mývatnssveit, strákarnir í bílnum en stúlkur fengu inni í húsi. „Það þótti mjög merkilegt að fara svona langt og þetta var skemmtileg ferð,“ segir Helga. Liðtæk saumakona Hún var flink saumakona og leit- uðu margir liðsinnis hennar í þeim efnum. Hún saumaði á sína fjöl- skyldu og einnig fyrir aðra, þá veitti hún aðstoð þegar konur voru að sauma upphlut og annað sem teng- ist þjóðbúningasaumi og hafði þau verkefni í hendi sér. „Ég hafði gam- an af því að sauma og hef eflaust verið frekar handlagin,“ segir hún. „Lífið snýst nú mest um að hafa eitthvað fyrir stafni og ég hef um tíðina verið svo lánsöm að hafa allt- af haft nóg að gera,“ segir hún. Al- mennt kveðst hún hafa verið heilsu- hraust og sjaldan orðið misdægurt um dagana. Helga segir að ekki hafi verið til siðs í gamla daga að gera sér dagamun á afmælum, „það þótti gott ef menn mundu hvaða dag þeir voru fæddir“. Morgunblaðið/Margrét Þóra Aldarafmæli Helga St. Jónsdóttir, íbúi á dvalarheimilinu Dalbæ á Dalvík, er 100 ára í dag. Hún fæddist á Kálfsskinni á Árskógsströnd 2. febrúar 1921. Lífið snýst um að hafa eitthvað fyrir stafni  Helga St. Jónsdóttir, íbúi á Dalbæ á Dalvík, 100 ára í dag

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.