Morgunblaðið - 16.02.2021, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 16.02.2021, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 6. F E B R Ú A R 2 0 2 1 Stofnað 1913  39. tölublað  109. árgangur  VANTALDI FJÖLDA LÁTINNA Í NEW YORK VILJANDI 40 ÁR FRÁ ENGIHJALLA- VEÐRINU DRÆGNI RAF- BÍLANNA KOST- AR MISMIKIÐ UMFANGSMIKIÐ TJÓN 11 BÍLAR 16 SÍÐURCUOMO RÍKISSTJÓRI 16 Glöggir vegfarendur í miðbæ Reykjavíkur hafa vafalaust tekið eftir nýrri klukku sem stendur utan á viðbyggingu við gamla Landsímahúsið á Austurvelli. Jóhannes Stefánsson, fram- kvæmdastjóri Lindarvatns, eiganda hússins, segir að klukkan sé hluti af verðlaunahugmynd um byggingu á Landsímareitnum. Fyrir þá sem vilja vita hvað tímanum líður, er þeir ganga um Austurvöll, er þetta kærkomin viðbót við klukkuskífurnar á turni Dómkirkjunnar. Þessi nýja klukkan sést vel úr fjarlægð og er mun sýnilegri frá jörðu en dómkirkjuklukkurnar. Morgunblaðið/Eggert Stærðarinnar klukka rís á Austurvelli Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Mikill kurr er í rekstraraðilum veit- ingastaða í miðborginni. Er þar um að kenna mismunandi túlkun lög- reglu og umræddra aðila á reglum um afgreiðslutíma veitingahúsa. Þannig hefur í nokkur skipti komið til snarpra orðaskipta milli eigenda og lögregluþjóna, sem hafa hótað sektum hafi ekki allir gestir yfirgef- ið staðinn við lokun klukkan 22. Erlendur Þór Gunnarsson hæsta- réttarlögmaður er lögmaður fjölda rekstraraðila í miðborginni. Segir hann hegðun lögreglunnar henni ekki til framdráttar. „Ég hef heyrt af nokkrum stöðum í miðbænum þar sem lögreglan er að koma rétt fyrir klukkan 22 á kvöldin og hóta einhverjum sektum þar sem örfáir sitja og eru að klára að borða eða drekka drykki sína. Þessi hegð- un minnir á ófagra stemningu í A- Evrópu á sínum tíma og er eftirlits- aðilum ekki til framdráttar.“ Að sögn Erlends eru reglurnar mjög skýrar, en samkvæmt þeim megi staðirnir vera opnir til klukkan 22 en við það bætist ein klukkustund þar sem gestum er gefið færi á að klára drykki og veitingar. Vísar hann þar til reglugerðar um starf- semi umræddra staða auk málsmeð- ferarreglna borgarráðs þar sem fram kemur að „allir gestir skulu hafa yfirgefið veitingastað eigi síðar en einni klukkustund eftir lokun hans“. Í núgildandi reglum stjórn- valda um afgreiðslutíma veitinga- húsa kemur fram að þeim sé heimilt að hafa opið til klukkan 22, en eftir klukkan 21 megi ekki hleypa inn nýjum gestum. Erlendur kveðst undrast vinnu- brögð lögreglunnar. Í stað sam- starfs og samvinnu við að leysa úr málum sé farið fram með ógnunum og hótunum. Það sé jafnframt til marks um breytta stemningu í sam- félaginu. Segja lögreglu fara fram með hótunum  Kurr í veitingahúsaeigendum  Lögregla mistúlki reglur MKurr í rekstraraðilum »14  Borgarstjórn- arflokkur Sjálf- stæðisflokksins mun í dag leggja fram til- lögu í borgar- stjórn um að rekstrarein- ingum Orku- veitu Reykjavík- ur verði skipt upp. Þannig myndu Veitur, Orka náttúrunar (ON) og Gagnaveitan verða sjálf- stæð fyrirtæki. Með þessum breytingum er markmiðið að bæta skil milli sam- keppnisreksturs og einokunar- reksturs, en lög gera ráð fyrir að einokunarrekstur greiði ekki nið- ur samkeppnisrekstur og með því að aðskilja einingarnar telja sjálf- stæðismenn mögulegt að tryggja aukið gagnsæi og skýrari ábyrgð. Gert er ráð fyrir að eignarhald sveitarfélaga á umræddum fé- lögum verði beint. »6 Vilja aðskilja félög Orkuveitunnar Eyþór Arnalds  Lögreglan hefur fengið töluvert af upplýsingum og er búin að ræða við þó nokkurn fjölda fólks vegna skotárásar í Rauðagerði á laugar- dagskvöld þar sem albönskum manni var ráðinn bani fyrir utan heimili sitt. Margeir Sveinsson aðstoðaryfir- lögregluþjónn segir að erfitt sé að segja til um einhverjar hefndar- aðgerðir vegna árásarinnar á laug- ardagskvöld. „Þetta ber öll merki þess að hafa verið aftaka,“ segir Helgi Gunn- laugsson afbrotafræðingur. » 4 Morgunblaðið/Eggert Glæpur Morðið er nú til rannsóknar. Árásin í Rauðagerði ber merki um aftöku

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.