Morgunblaðið - 16.02.2021, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 16.02.2021, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 2021 Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratug a reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. „Þetta er bara búið að vera rugl,“ segir Kristján Berg, einnig þekktur sem fiskikóngurinn, en það eru ekki bara rjómabollurnar sem seldust vel í gær og um helgina. Fiskibollur fiskikóngsins hafa rokið út, rúm- lega fimm tonn. Kristján segir starfsfólkið hafa steikt um 800 kíló af bollum á dag, en sem betur fer er sprengidagurinn á morgun og er það jafnframt róleg- asti söludagur fiskverslana á ári hverju. gso@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ríflega fimm tonn af fiskibollum Guðni Einarsson gudni@mbl.is Gera má ráð fyrir að hægt verði að bólusetja nær 190 þúsund manns hér á landi gegn Covid-19 fyrir lok júní, að sögn heilbrigðisráðuneytisins. Það er mun meira en áður var vænst. Nýr samningur ESB við Pfizer tryggir Íslandi bóluefni fyrir 25-30 þúsund manns á öðrum ársfjórðungi til viðbótar við fyrri samning. Aukin framleiðslugeta AstraZeneca hefur einnig áhrif. Auk þess má vænta fleiri bóluefna á öðrum ársfjórðungi. Von er á um 9.700 skömmtum af bóluefni í þessari viku. Frá Pfizer koma um 6.000 skammtar og verða þeir notaðir í síðari bólusetningu um allt land. Mest er það eldra fólk sem fær það bóluefni. Frá Moderna koma um 1.300 skammtar og verða þeir notaðir til að bólusetja heilbrigðis- starfsmenn á Landspítalanum og Sjúkrahúsinu á Akureyri fyrri bólu- setningu og eins starfsfólk í heima- hjúkrun og dagdvöl. Þá koma um 2.400 skammtar frá AstraZeneca og verða starfsmenn hjúkrunar- og dvalarheimila á landsbyggðinni bólusettir með því bóluefni, sam- kvæmt upplýsingum frá embætti landlæknis. Yfir 70.000 fyrir lok mars Þórólfur Guðnason sóttvarna- læknir greindi frá því í gær að bólu- efnaframleiðendur hefðu aukið framleiðslu sína. Því eru bundnar vonir við að afhending bóluefna verði hraðari en áður var reiknað með. Fyrirliggjandi dreifingaráætlun nær þó aðeins út marsmánuð, að sögn Þórólfs. Samkvæmt fyrirliggj- andi áætlunum fær Ísland yfir 70.000 skammta fyrir lok mars. Inn í það vantar bóluefni frá AstraZeneca. „Ég held að við getum verið von- góð um að fá meira af bóluefni,“ sagði Þórólfur. Bólusett í tvo daga Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH), segir að þar verði bólusett bæði í dag og á morgun. HH fær alls 2.604 skammta frá Pfizer, Moderna og AstraZeneca. Eldra fólk í dagþjálfun, dagdvöl og heimahjúkrun fær nú seinni bólu- setningu. Starfsmenn heimahjúkr- unar og hjúkrunarheimila fá fyrri sprautuna. Eftir þessa viku verður búið að bólusetja um 2⁄3 hluta þeirra en þeir eru alls um 3.000 talsins. Hjúkrunarfræðingar á viðkom- andi stofnunum munu bólusetja fólk í dagdvöl, heimahjúkrun, dagþjálfun og á hjúkrunarheimilum og sjúkra- húsum. Ekki verður því þörf á að nota aðstöðuna í Laugardalshöllinni í þessari viku. Ragnheiður sagði að bólusetningarnar hefðu gengið mjög vel. Ekki einn einasti bóluefnis- skammtur hefði farið forgörðum hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins svo hún vissi til. »16 Nær 190.000 bólusettir fyrir lok júní  Nýr samningur við Pfizer tryggir meira bóluefni  Ísland fær yfir 70.000 skammta fyrir lok mars  Í þessari viku koma 9.700 skammtar  Bólusett um allt landið  Eldra fólk og heilbrigðisstarfsfólk Morgunblaðið/Eggert Þríeykið Þórólfur, Víðir og Alma undirbúa sig fyrir upplýsingafund í gær. Karítas Ríkharðsdóttir karitas@mbl.is „Við funduðum með Fiskistofu varð- andi drónaeftirlit fyrir stuttu. Við er- um nú ekki par hressir með þetta,“ segir Arthur Bogason, formað- ur Landssam- bands smábáta- eigenda (LS), um eftirlit Fiskistofu með smábátasjó- mönnum með dróna. Hann segir vanta verulega upp á að jafnræð- is sé gætt og að meðalhófsreglu sé beitt við notkun Fiskistofu á drónum. „Mér er ekki kunnugt um að það sé verið að fljúga þessum apparötum yfir stóru skipunum. Þetta virðist eiga fyrst og fremst að sveima hérna með ströndinni og fylgjast með litlum bátum. Ef það er jafnræði í þessum málum þá er ég alveg hættur að skilja það orð,“ segir Arthur. Fiskistofa hefur notað dróna við eftirlit með fiskveiðum frá miðjum janúar og hefur með þeim hætti komist upp um þó nokkur brot gegn lögum um stjórn fiskveiða. Munu leita til Persónuverndar Arthur segir að LS muni leita til Persónuverndar vegna myndavéla- eftirlitsins og að hann hafi upplýst Fiskistofu um það. „Við teljum að þrátt fyrir allt þurfi að vera eitthvert traust á milli manna. Þegar menn hafa það á til- finningunni að eitthvert opinbert eft- irlitsauga sé hangandi yfir þeim þá er þetta komið aðeins of langt,“ segir Arthur og bætir við að fiskveiðieftir- litsmenn séu bæði á höfnum og oft í bátum. „Ég spurði Fiskistofu hvort þeir væru með myndband af broti þar sem stórt fiskiskip kemur við sögu, þeir eru ekki með það,“ segir Arthur. Hann telur ekki mögulegt að fylgjast með stórum fiskiskipum langt úti á hafi í alls konar veðrum með sama hætti og smábátum nálægt landi í góðum veðrum. Ósáttir við opin- bert eftirlitsauga  Telja meðalhófs ekki gætt við eftirlit Arthur Bogason Þorsteinn Ásgrímsson thorsteinn@mbl.is Pakistönsk yfirvöld hafa ákveðið að halda grunnbúðum K2 áfram opnum og mun leit að þeim John Snorra Sig- urjónssyni, Mohammad Ali Sadpara og Juan Pablo Mohr halda áfram eft- ir því sem veður og aðstæður leyfa. Johns Snorra og félaga hefur verið saknað síðan 5. febrúar og leitin hingað til engan árangur borið. Boðað hafði verið til blaðamanna- fundar í Pakistan í gær vegna máls- ins, en eftir því sem Morgunblaðið kemst næst var hann ekki haldinn. Ótrúlegur kraftur Í tilkynningu frá fjölskyldu Johns Snorra kemur fram að hún hafi ákveðið að veita ekki viðtöl að svo stöddu heldur setja alla sína orku í að takast á við þá þungbæru stöðu sem uppi er. Haft er eftir Línu Mó- eyju Bjarnadóttur, eiginkonu Johns, að hún ítreki þakkir til allra sem hafi tekið þátt í leitinni, en henni hefur verið stýrt af pakistönskum yfirvöld- um, en íslensk og sílesk yfirvöld hafa einnig átt þar hlut að máli. Mikil leit hefur verið gerð að mönnunum og gervihnattarmyndir, ratsjármyndir og ljósmyndir verið nýttar. „Þeir félagar eru enn týndir en vonin um kraftaverk lifir. Hjörtu okkar, ástvina þeirra, slá með þeim,“ er haft eftir Línu í tilkynningunni. „Það er búið að vera ótrúlegt að finna þann kraft sem hefur verið í leitinni, bæði af hálfu íslenskra, pak- istanskra og síleskra yfirvalda. Ekki síður hefur sú umhyggja og sá stuðn- ingur sem fjöldi fólks hefur sýnt okk- ur styrkt fjölskylduna á þessum erf- iðu tímum. Hjartans þakkir til ykkar allra.“ Í fyrradag var greint frá því að að- stoðarmenn Johns, Ali Sadpara og Mohr, væru á leið heim af fjallinu. „Vonin um kraftaverk lifir“  Leit að John Snorra og félögum haldið áfram eftir því sem aðstæður leyfa  Fjölskyldan þakkar umhyggju og stuðning Klifur John Snorri á fjallinu K2.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.