Morgunblaðið - 16.02.2021, Síða 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 2021
PON er umboðsaðili
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður
Sími 580 0110 | pon.is
Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna!
GÆÐI OG ÞJÓNUSTA
Veitinga- og afþreyingarfyrirtækið
Gleðipinnar og Stefna hugbúnaðar-
hús hafa gert með sér samstarfs-
samning um að Stefna annist staf-
ræna vegferð og þjónustu við
fyrirtæki á vegum Gleðipinna.
Vörumerkin undir hatti Gleði-
pinna eru American Style, Shake-
&Pizza, Saffran, Blackbox, Eld-
smiðjan, Aktu taktu, Hamborgara-
fabrikkan og Keiluhöllin Egilshöll.
Í tilkynningu frá fyrirtækjunum
segir að um sé að ræða viðamikið og
metnaðarfullt samstarf sem feli í sér
ráðgjöf, hönnun, forritun, hýsingu
og innleiðingu á afgreiðslukerfum og
vildarkerfi fyrir alla veitingastaði
Gleðipinna.
Jóhannes Ásbjörnsson, einn eig-
enda og talsmaður Gleðipinna, segir
í tilkynningunni að um spennandi og
áhugavert ferðalag sé að ræða. „Eitt
af því sem við lögðum til grundvallar
þegar við sameinuðumst í Gleðipinn-
um var að verða framúrskarandi í
stafrænum dreifileiðum og af-
greiðslulausnum þar sem áherslan
er á sjálfsafgreiðslu og notenda-
upplifun. Það er stór þáttur í því að
auka ánægju viðskiptavina og eins
að auka sölu almennt og treystum
við engum öðrum samstarfsaðila en
Stefnu betur til að fara í þetta ferða-
lag með okkur,“ segir Jóhannes.
Stofnað árið 2003
Stefna var stofnuð 2003 og eru
starfsmenn rúmlega 30. Fyrirtækið
hefur frá upphafi lagt áherslu á víð-
tæka þjónustu á sviði upplýsinga-
tækni og hugbúnaðarþróunar á sviði
veflausna. „Við erum virkilega
spenntir fyrir samstarfinu við Gleði-
pinna. Þetta er skemmtileg áskorun
fyrir okkar fólk,“ segir Guðlaugur
Arnarsson, viðskiptaþróunarstjóri
Stefnu, í tilkynningunni.
Samstarf Guðlaugur Arnarsson og
Jóhannes Ásbjörnsson.
Annast stafræna vegferð
Gleðipinnar og Stefna hugbúnaðarhús hafa gert með sér
samstarfssamning Vilja auka ánægju viðskiptavina
BAKSVIÐ
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Mikillar óánægju gætir meðal
rekstraraðila veitingastaða í mið-
borginni um þessar mundir. Svo
virðist sem skilningur rekstraraðila
og lögreglu á afgreiðslutíma veit-
ingahúsa sé ekki sá sami. Þannig
hefur í nokkur skipti komið til
snarpra orðaskipta milli eigenda og
lögregluþjóna, sem hafa hótað að
beita sektum verði stöðunum ekki
lokað og allir gestir farnir þaðan
klukkan 22. Allt virðist þetta þó
byggt á mismunandi túlkun á þeim
reglum sem nú eru í gildi.
Erlendur Þór Gunnarsson hæsta-
réttarlögmaður er lögmaður fjölda
rekstraraðila í miðborginni. Segir
hann lögregluna beita óbeinum hót-
unum í samskiptum við rekstrarað-
ilana þegar líða tekur að lokun. „Ég
hef heyrt af nokkrum stöðum í mið-
bænum þar sem lögreglan er að
koma rétt fyrir klukkan 22 á kvöldin
og hóta einhverjum sektum þar sem
örfáir sitja og eru að klára að borða
eða drekka drykki sína. Þessi hegð-
un minnir á ófagra stemningu í A-
Evrópu á sínum tíma og er eftirlits-
aðilum ekki til framdráttar enda
rekstraraðilar að leggja sig alla fram
um að virða þær reglur sem eru til
staðar á hverjum tíma,“ segir Er-
lendur og bætir við að reglurnar séu
mjög skýrar. Staðirnir megi vera
opnir til klukkan 22 en við það bætist
ein klukkustund þar sem fólki er gef-
ið færi á að klára drykki og veitingar.
Reglurnar mjög skýrar
Bæði í reglugerð um veitingastaði,
gististaði og skemmtanahald og eins
í málsmeðferðarreglum borgarráðs
um veitingastaði og gististaði kemur
fram að „allir gestir skulu hafa yf-
irgefið veitingastað eigi síðar en
einni klukkustund eftir lokun hans“.
Ekki verður deilt um umræddar
reglur sem rekstraraðilum veitinga-
staða er skylt að starfa eftir og hafa
gert í áraraðir. Í kjölfar heimsfarald-
urs kórónuveiru hafa veitingastaðir
þurft að lúta ansi stífum reglum um
opnunar- og afgreiðslutíma. Nú síð-
ast voru reglurnar rýmkaðar með
það fyrir augum að létta örlítið undir
með rekstraraðilum veitingastaða.
Var afgreiðslutíminn þar lengdur
um eina klukkustund. Núgildandi
reglugerð er svo hljóðandi: „Þá er
öðrum veitingastöðum, þar sem eru
heimilaðar áfengisveitingar, heimilt
að hafa opið til kl. 22.00, en er þó ekki
heimilt að hleypa inn nýjum við-
skiptavinum eftir kl. 21.00. Þó er
heimilt að selja mat út úr húsi til kl.
23.00.“
Engin svör hjá lögreglunni
Ekki verður þetta skilið öðruvísi
en svo að veitingastaðirnir megi vera
með opið til klukkan 22 á kvöldin, en
þó með þeim skilyrðum að engir nýir
gestir megi koma inn á staðinn eftir
klukkan 21. Sé horft til áðurnefndra
reglna má vera ljóst að síðustu gest-
irnir verði að hafa yfirgefið staðinn í
síðasta lagi klukkan 23, eða klukku-
stund eftir lokun hans.
„Það er einfaldlega mjög óþægi-
legt fyrir veitingastaði, sem á að
vera afslappandi upplifun að sækja,
að hafa lögreglumenn ítrekað inni á
gólfi hjá sér. Aðallega er þó óheppi-
legt þegar lögregla eða aðrir eftir-
litsaðilar fara ekki eftir þeim skýru
reglum sem settar eru. Rekstrarað-
ilarnir skilja reglurnar alveg en lög-
reglan virðist því miður vera með
annan skilning. Ég hef óskað eftir
upplýsingum um við hvað eftirlits-
aðilar styðjast en þrátt fyrir fjölda
tölvupósta frá rekstraraðilum hafa
lögregluyfirvöld ekki svarað og ég
hef einfaldlega ekkert heyrt frá
þeim,“ segir Erlendur og bætir við
að það hafi lítið upp á sig að lengja
afgreiðslutímann um klukkustund ef
ekki má selja veitingar og drykki á
tímabilinu.
„Upphaflega voru reglurnar þann-
ig að fólk þurfti að vera búið að panta
fyrir klukkan 21 og hafði þá að há-
marki klukkustund til að klára mat-
inn eða drykkinn. Reglurnar voru
síðan rýmkaðar í desember sl. og þá
máttu staðirnir selja mat og drykki
til klukkan 22. Sömu málsmeðferð-
arreglur eru í gildi og því ætti fólk að
mega yfirgefa staðinn í seinasta lagi
eina mínútu í ellefu. Það er aftur á
móti ekki skilningur lögreglunnar á
sama tíma og þeir vilja ekki benda á
hvar annað kemur fram.“
Breytt stemning í samfélaginu
Bendir hann á að staðirnir hafi
tapað tugum milljóna sökum
ástandsins. „Allir þessir staðir eru
búnir að tapa tugum milljóna, hver
og einn þeirra, á þessu ástandi. Þeir
þurftu að sætta sig við þröngar
skorður í rekstri á síðasta ári, og
skiljanlega enda fordæmalausar að-
stæður, en með frekari tilslökunum
var hægt að hafa opið klukkutíma
lengur en í byrjun desember. Ef
skilningur lögreglunnar væri réttur,
af hverju ættu þá staðirnir að vera
með opið í klukkutíma lengur ef þeir
geta ekki boðið upp á veitingar á
þeim tíma? Ekki er það til þess að
bæta á sig kostnaði í starfsmanna-
haldi í klukkustund til viðbótar ofan
á allt tapið. Það er auðvitað niður-
staða sem gengur ekki upp.“
Að hans sögn hefur enginn rekstr-
araðilanna sem hann starfar fyrir
verið kærður af lögreglu eða sekt-
aður þrátt fyrir hótanir um slíkt. Þá
undrast hann mjög hegðun lögreglu-
þjóna sem verður ekki skilin öðruvísi
en sem breytta stemningu í sam-
félaginu. Í stað samstarfs og sam-
vinnu við að leysa úr málum á þess-
um erfiðu tímum er farið fram með
ógnunum og hótunum.
„Áður en þetta ástand skall á, hve-
nær gerðist það síðast að lögregla
var að mæta í hópum inn á fjölda
veitingastaða og hóta sektum þegar
allir gestir voru ekki farnir út nokkr-
um mínútum eftir lokun? Það er ein-
faldlega þannig í réttarríki að reglur
og refsiheimildir eiga að vera skýrar.
Ef minnsti vafi er til staðar þá er það
eðlileg og sanngjörn lágmarkskrafa
að lögregla og aðrir eftirlitsaðilar
upplýsi um eftir hvaða reglum þeir
starfa, svo almenningur geti kynnt
sér og fylgt þeim.“
Kurr í rekstraraðilum
veitingstaða í miðborginni
Gestir megi sitja til klukkan 23 á veitingahúsum Lögreglan er á öðru máli
Krá Tekið skal fram að staðurinn á myndinni tengist fréttinni ekki beint og er ekki sá sem um ræðir.
Morgunblaðið/Eggert
16. febrúar 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 128.73
Sterlingspund 177.6
Kanadadalur 101.08
Dönsk króna 20.952
Norsk króna 15.151
Sænsk króna 15.455
Svissn. franki 144.21
Japanskt jen 1.2256
SDR 185.37
Evra 155.8
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 187.9471
Hrávöruverð
Gull 1818.0 ($/únsa)
Ál 2076.0 ($/tonn) LME
Hráolía 60.82 ($/fatið) Brent
Alls seldust 65 þúsund bollur í bak-
aríi Ikea í aðdraganda bolludags í
gær. Er það um fjórðungs aukning
milli ára. Þetta segir Stefán Rúnar
Dagsson, framkvæmdastjóri Ikea, í
samtali við Morgunblaðið.
„Salan hefur verið svakaleg. Það
hefur verið gríðarlegt álag á bak-
aríinu hjá okkur og við finnum að
viðskiptavinir okkar eru mjög
ánægðir,“ segir Stefán.
Nú stendur yfir yfirhalning á
veitingastað og kaffihúsi Ikea í
Kauptúni. Öll bollusala hefur því
farið í gegnum bakaríið. „Það er
ótrúlegt að ná meira magni núna
með lokaðan veitingastað og kaffi-
hús. Þetta er allt í gegnum bak-
aríið,“ segir Stefán og bætir við að
sölumarkmiðinu sé löngu náð.
„Helgin núna var mjög stór og við
ákváðum að byrja tveimur dögum
fyrr en venjulega að selja. Við erum
löngu búin að ná sölunni í fyrra og
markmiðum okkar. Við erum að
auka söluna hjá okkur um 25% milli
ára og við finnum fyrir mikilli
ánægju meðal viðskiptavina.“
Samkvæmt lauslegum útreikn-
ingum Morgunblaðsins hleypur
bollusalan á 17 til 18 milljónum
króna. aronthordur@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Ikea Bollusalan jókst milli ára.
Seldu rétt
um 65 þús-
und bollur