Morgunblaðið - 16.02.2021, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 16.02.2021, Qupperneq 19
UMRÆÐAN 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 2021 Í annað sinn á kjör- tímabilinu leggur Flokkur fólksins fram tillögu um að stofnað verði embætti hags- munafulltrúa aldraðra í Reykjavík. Mark- miðið með embætti hagsmunafulltrúa aldraðra er að hann skoði málefni eldri borgara og haldi utan um hagsmuni þeirra, fylgist með aðhlynningu þeirra og aðbúnaði. Hagsmunafulltrúi aldraðra kort- leggur stöðuna í húsnæðismálum aldraðra, heimahjúkrun og dægra- dvöl og fylgist með framkvæmd heimaþjónustu. Hann skal leggja sjálfstætt mat á það hvort borg- aryfirvöld uppfylli skyldur sínar gagnvart öldruðum. Hann fylgist einnig með hvort einkaaðilar upp- fylli kröfur laga um aðgengi og bann við mismunun þegar kemur að réttindum eldri borgara. Hann tæki á móti ábendingum frá borg- urum um málefni eldri borgara og fræðir eldri borgara um eigin rétt- indi. Auk þess ber hagsmunafull- trúa aldraðra að hafa frumkvæð- iseftirlit með högum eldri borgara, sérstaklega með tilliti til þess að koma í veg fyrir félagslega ein- angrun, næringarskort og almennt bágan aðbúnað. Hagsmunafulltrúi aldraðra skal vekja athygli stjórnvalda og al- mennings á málum sem hann telur að brjóti á réttindum eldri borg- ara. Einnig skal hann gera tillögur um úrbætur á réttarreglum sem snerta aldraða og hafa frumkvæði að stefnumarkandi umræðu í sam- félaginu um málefni aldraðra. Lagt er jafnframt til að Öldung- aráð Reykjavíkur komi að mótun hlutverks embættis hagsmunafull- trúa og að hagsmunafulltrúi gefi Öldungaráði reglulega skýrslu um starfsemi embættisins. Utanumhald og heildarsýn Með því að stofna embætti hags- munafulltrúa aldraðra í Reykjavík næst betri heildarsýn yfir málefni eldri borgara og þeir fá sinn mál- svara sem þeir geta leitað til með eigin málefni telji þeir brotið á réttindum sínum. Hagsmunafulltrúa aldraðra er samkvæmt tillögunni ætlað að vekja athygli á réttinda- og hags- munamálum aldraðra almennt, jafnt á opin- berum vettvangi sem og hjá einkaaðilum, leiðbeina öldruðum um réttindi sín innan borgarkerfisins og bregðast við telji hann að brotið sé á þeim. Þjónusta við aldr- aða dreifist á ríki, sveitarfélög, félagasamtök og einkaaðila. Lög og reglur um málaflokk aldraðra eru flókin, ekki síst á sviði skatta, almannatrygg- inga og heilbrigðismála. Aldraðir eru stór og fjölbreyttur hópur sem er misjafnlega fær um að gæta eigin réttinda og hagsmuna. Mark- miðið með þessari tillögu er ekki að hagsmunafulltrúi eldri borgara taki við starfsemi Öldungaráðs Reykjavíkur, en ráðning hags- munafulltrúa myndi tryggja að faglega menntaður einstaklingur í launaðri stöðu sinnti virkri rétt- argæslu í þágu eldri borgara. Þá getur slíkt embætti veitt Öld- ungaráðinu aðstoð í sínum störfum þar sem hagsmunafulltrúi gæti þá fylgst með því að ábendingum Öld- ungaráðs sé fylgt eftir í fram- kvæmd. Það er rík þörf á að aldr- aðir eigi málsvara í Reykjavík sem gætir réttinda þeirra og hagsmuna og leiðbeinir þeim um rétt þeirra. Taka 2 Tillagan um stofnun embættis hagsmunafulltrúa eldri borgara var áður flutt af fulltrúa Flokks fólksins í borgarstjórn vorið 2019 en var þá felld í kjölfar umsagnar Öldungaráðs Reykjavíkur. Þáver- andi Öldungaráð Reykjavíkur veitti neikvæða umsögn á þann veg að embætti hagsmunafulltrúa aldraðra væri óþarft þar sem nú þegar væri verið að fjalla um þessi mál. Þess utan væri starfandi um- boðsmaður borgarbúa, sem fer meðal annars með málefni eldri borgara eins og segir í umsögn- inni. Umsögnin kom á óvart fyrir nokkrar sakir en ekki síst í ljósi þess hversu brösuglega gekk að reka embætti umboðsmanns borg- arbúa. Fram kom hjá umboðs- manninum þegar hann var beðinn um álit á afgreiðslu tillögunnar að mikið álag væri á embættið og málsmeðferðartími langur. Ef embættið ætti að anna öllum þeim málum sem það fæst við þyrfti fjármagn og mannafla, ekki síst svo það geti haft frumkvæði að því að nálgast jaðarsetta hópa, svo sem aldraða. Embætti umboðs- manns borgarbúa var stuttu síðar lagt niður. Flokkur fólksins á Alþingi hefur einnig lagt í þrígang fram tillögu um hagsmunafulltrúa aldraðra á vegum ríkisins. Öldungaráð Reykjavíkur sendi inn sömu nei- kvæðu umsögnina; „að hagsmuna- fulltrúi aldraðra væri óþarfur þar sem verið væri að vinna þessi störf af starfsmönnum velferðarsviðs og hagsmunafélaga“. Það kvað við annan tón í síðari umsögn Öldungaráðs Reykjavíkur við þingsályktunartillögu Flokks fólksins um hagsmunafulltrúa aldraðra dagsett 14. október 2019. Þá fagnar Öldungaráðið tillögunni og hvetur til þess að félags- og barnamálaráðherra leggi fyrir árs- lok 2020 fram frumvarp til laga um embætti hagsmunafulltrúa aldraðra. Félag eldri borgara hef- ur hins vegar ávallt verið hlynnt og stutt hugmynd um hagsmuna- fulltrúa aldraðra. Það er skylda sveitarfélags að sjá til þess að haft sé frumkvæði að því að nálgast jaðarsetta hópa, svo sem aldraða. Það er jákvætt ef Öldungaráð er starfrækt á vegum borgarinnar en engu að síður er þörf á embætti sem sinnir virkri réttindagæslu í þágu eldri borg- ara. Þannig fá eldri borgarar bæði sína fulltrúa þegar kemur að stefnumótun Öldungaráðsins og framkvæmd í formi hagsmunafull- trúa. Hagsmunafulltrúi aldraðra – taka 2 Eftir Kolbrúnu Baldursdóttur » Það er rík þörf á að aldraðir eigi mál- svara í Reykjavík sem gætir réttinda þeirra og hagsmuna og leiðbeinir þeim um réttindi þeirra. Kolbrún Baldursdóttir Höfundur er oddviti Flokks fólksins í borgarstjórn Reykjavíkur. kolbrun.baldursdottir@reykjavik.is Það er virðingarvert að Pavel Bar- toszek (Mbl. 13.2. 2021) skuli reyna að verja borgarlínuna fyrir hönd sinna manna í borgarstjórn Reykja- víkur. Honum finnst allt upplýst í 160 síðum í frumdragaskýrslunni sem nýlega kom út. En hann getur lesið það sem eftir er af skýrslunni (hún er 300 síður, ekki 160) án þess að finna annað en rauðan dregil sem kostar 1.200 krónur á milli- metra og er alveg óþarfur, 24 metra bláan vagn á dísilrafmagni sem á ekki að kaupa hvort eð er, ótal bannaðar vinstribeygjur og hraðatakmarkanir og bílastíflur. Borgarstjórn er úti að aka með sín samgöngumál. Hún vill ekki byggja mislæg gatnamót, þau eru of ljót, bara háhýsi við Lækjartorg sem mörgum finnst enn ljótari. Það er kolröng samgöngustefna að læsa sig inni í svona mislægri gatna- mótaþrjósku, láta svo umferðarsult- una eiga sig en hleypa strætó í gegn. Að byggja rándýra borgar- línu í sérrými fyrir 12% borgarbúa en láta 88%, og þar með allt at- vinnulífið, sitja í súpunni gengur ekki upp. Jónas Elíasson Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Mislæg gatnamótaþrjóska Samgöngumál Borgarstjórn vill ekki byggja mislæg gatnamót, þau eru of ljót. Bara háhýsi sem mörgum finnst enn ljótari. Morgunblaðið greindi í gær frá því að stjórn Íslandspósts hefði litið svo á, samkvæmt drög- um að fundargerð sem blaðið hefur undir hönd- um, að Bjarni Bene- diktsson fjármálaráð- herra hefði fallizt á að ríkissjóður bætti fyrir- tækinu alþjónustubyrði ársins 2020, að fjárhæð 490 milljónir króna. Þetta hefði komið fram á fundi sem Bjarni og Katrín Jak- obsdóttir forsætisráðherra hefðu hald- ið með þáverandi forstjóra og stjórn- arformanni Póstsins. Síðastliðinn föstudag hafði blaðið eft- ir Þórhildi Ólöfu Helgadóttur, forstjóra Póstsins, að samtal væri í gangi á milli fyrirtækisins, samgönguráðuneytisins, fjármálaráðuneytisins og Póst- og fjar- skiptastofnunar (PFS) um kostnað vegna alþjónustubyrði. Rifjaði forstjór- inn sérstaklega upp að Alþingi hefði ákveðið með nýjum póstlögum að eitt verð ætti að vera á pakkasendingum um allt land og verið væri að reikna út kostnað vegna þess. Morgunblaðið hefur einnig fjallað undanfarið um áhrif pakkagjaldskrár Íslandspósts á rekstur keppinauta fyrirtækisins, staðbundinna vörudreif- ingarfyrirtækja víða um land, sem hafa misst mikil viðskipti eftir að stjórnendur Póstsins ákváðu að í byrj- un árs 2020 skyldi verð fyrir pakka- sendingar um lengri veg lækka niður í sama verð og gilti um sendingar innan höfuðborgarsvæðisins. Þannig verð- leggur Pósturinn þjónustuna undir kostnaðarverði og kippir rekstrar- grundvellinum undan pakkaflutn- ingum keppinauta víða um land. Í Morgunblaðinu hefur einnig komið fram að þessi verðlagning á pakka- sendingum Póstsins hafi veikt stöðu verzlana á landsbyggðinni gagnvart netverzlunum á höfuðborgarsvæðinu vegna þess hversu ódýrt er orðið að fá vörurnar sendar. Pakkagjaldskráin er ólögmæt Þessi mál tengjast náið. Félag at- vinnurekenda hefur nú í rúmlega heilt ár vakið athygli á ólögmæti und- irverðlagningar Íslandspósts á pakka- sendingum, en hún gengur gegn skýru ákvæði póstlaga um að verð- lagning alþjónustu skuli taka mið af raunkostnaði, að viðbættum hæfileg- um hagnaði. Það má undrum sæta að PFS hafi ekki þegar gripið inn í og stöðvað þessa ólögmætu undir- verðlagningu Póstsins. Birgir Jónsson, fyrrverandi for- stjóri Íslandspósts, sagði í viðtali við mbl.is í október síðastliðnum að það hefði verið „pólitísk ákvörðun að ríkið ætlaði að borga með þessu eina ákvæði, „eitt land, eitt verð“. Það er ósköp einfaldlega rangt. Í nefndaráliti meirihluta umhverfis- og samgöngu- nefndar, sem lagði til umrætt ákvæði póstlaganna, kom hvergi fram sá skilningur að ríkið hygðist niður- greiða þjónustuna, enda gengi það gegn öðrum ákvæðum laganna og samkeppnissjónarmiðum. Þótt Ís- landspósti beri að hafa eitt verð um allt land, má það verð ekki vera undir kostnaði við þjónustuna. Undirverðlagning er ekki alþjónustubyrði Að Póstinum hafi verið lofað 490 milljóna króna framlagi til að standa undir alþjónustubyrði kemur líka afar spánskt fyrir sjónir. Áðurnefnt ákvæði póstlaganna um verðlagningu alþjónustu á nefnilega að koma í veg fyrir að fyrirtækið tapi á alþjónust- unni – verðið á henni á að taka mið af kostnaðinum og hæfilegum hagnaði. Tap Póstsins vegna undirverðlagn- ingar á samkeppnisþjónustu eins og pakkasendingum getur aldrei talizt til alþjónustubyrði. Samkvæmt laganna hljóðan getur kostnaður vegna alþjónustu átt við um „tiltekna notendur eða hópa notenda sem aðeins er hægt að þjóna með tapi eða með meiri kostnaði en eðli- legt getur talist í við- skiptum, að teknu tilliti til kostnaðar og tekna af starfrækslu viðkomandi þjónustu og viðeigandi samræmdra gjalda. Undir þennan flokk falla notendur og hópar not- enda sem fengju enga þjónustu hjá póstrek- anda sem starfaði á við- skiptagrundvelli og væri ekki skylt að veita alþjónustu.“ Þetta á alveg augljóslega ekki við þegar stjórnendur Póstsins ákveða upp á sitt einsdæmi að undirverð- leggja þjónustu á virkum markaðs- svæðum, þar sem samkeppni hefur ríkt um árabil. Raunar er mikið vafamál að Póst- urinn eigi yfirleitt rétt á háum fjár- hæðum úr vösum skattgreiðenda vegna alþjónustu. Í árslok 2019 tók Póst- og fjarskiptastofnun þá óvenju- legu ákvörðun, að beiðni samgöngu- ráðuneytisins, að heimila 250 milljóna króna „varúðarframlag“ til Póstsins sem „innborgun upp í alþjónustubyrði á árinu 2020“. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um Póstinn sem út kom síðastliðið sumar kemur fram að samgöngu- og sveit- arstjórnarráðuneytið hafi bent á að veiting alþjónustu ætti almennt ekki að vera vandamál fyrir Íslandspóst þar sem fyrirtækið fái lögum sam- kvæmt endurgreiddan allan kostnað sem sannanlega fellur til vegna al- þjónustunnar. „Ráðuneytið telur því að fjárhagserfiðleikar Íslandspósts ohf. séu ekki tilkomnir vegna alþjón- ustunnar og hefur bent á að óheimilt sé að nota alþjónustuframlag til að bæta úr öðrum rekstri fyrirtækisins. Ráðuneytið hefur jafnframt bent á að ákvörðun þess um greiðslu var- úðarframlags til Íslandspósts hafi verið tekin vegna erfiðrar fjárhags- stöðu fyrirtækisins,“ segir í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Loforð á hvaða forsendum? Fréttir af fundahöldum forsvars- manna Póstsins með fjármála- og for- sætisráðherra og „samtali“ á milli tveggja ráðuneyta, Póstsins og PFS, vekja óneitanlega upp spurningar um hvort rétt hafi verið að málum staðið. Fjármögnun alþjónustubyrði Íslands- pósts er ekki pólitískt úrlausnarefni. PFS á að heita sjálfstæð eftirlits- stofnun og á að reikna framlagið út samkvæmt lögum og reglum. Svo mikið er víst að ef kostnaður Ís- landspósts af hinni ólögmætu pakka- gjaldskrá verður greiddur úr ríkis- sjóði, eru skattgreiðendur að fjármagna skaðlega undirverðlagn- ingu, sem stórskaðar samkeppni á markaði fyrir pakkadreifingu. Sú spurning vaknar óneitanlega hvort ráðherrarnir sem nefndir eru til sögu hafi látið stjórnarmenn Íslandspósts plata sig til að lofa greiðslum úr rík- issjóði sem enginn grundvöllur er fyrir. Til að fá svar við þeirri spurningu er nauðsynlegt að birta opinberlega þá útreikninga, sem Pósturinn leggur fram til stjórnvalda til grundvallar kröfu sinni um 490 milljónir króna vegna alþjónustubyrði. Og ráðherr- arnir mættu líka gjarnan gera hreint fyrir sínum dyrum og svara því hvort loforð hafi verið gefin um greiðslur og þá á hvaða grundvelli. Plataði Pósturinn ráðherrana? Eftir Ólaf Stephensen ÓlafurStephensen »Ef kostnaður Ís- landspósts af hinni ólögmætu pakka- gjaldskrá verður greiddur úr ríkissjóði, eru skattgreiðendur að fjármagna skaðlega undirverðlagningu. Höfundur er framkvæmdastjóri Fé- lags atvinnurekenda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.