Morgunblaðið - 16.02.2021, Side 24

Morgunblaðið - 16.02.2021, Side 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 2021 40 ára Pétur er Reyk- víkingur en býr í Hafn- arfirði. Hann er BA í guðfræði frá HÍ og er samskiptastjóri þjóð- kirkjunnar. Maki: Margrét Lilja Vil- mundardóttir, f. 1985, verðandi prestur Fríkirkjunnar í Hafnar- firði. Börn: Hörður Markús, f. 2012, Sigrún Ísabella, f. 2013, og Úa María, f. 2018. Pétur á einnig örlítið í Flóka Hrafni Markan, f. 2002. Foreldrar: Hörður Markan, f. 1945, d. 1999, pípulagningamaður og Ísabella Friðgeirsdóttir, f. 1956, leikskólaliði á Sólborg á Ísafirði. Pétur Georg Markan Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Ýmsir erfiðleikar eru fram undan ef þú ekki tekst á við vandamálin hér og nú. Þú færð undarleg skilaboð frá vini. Hugs- aðu áður en þú framkvæmir. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú finnur hugsanlega til óþolinmæði í dag. Notaðu kraftinn sem í þér býr til að efla fólkið í kringum þig. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Einhver ótti steðjar að þér í sam- bandi við það að þú náir ekki takmarki þínu. Mundu að áhyggjur breyta engu. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það er viturlegt að gera framtíðar- áætlanir og hafa þær sem raunsæjastar. Nú er komið að þér að leita eftir greiða hjá vini, sem þú hefur oft hjálpað. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er nauðsynlegt að eyða tíma með ungviðinu og um leið að finna barnið í sjálf- um sér. Mundu hvar þinn raunverulegi fjár- sjóður er falinn. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú ert á miklum þeytingi í dag og getur ekki treyst á skammtímaminnið að halda öllu til haga. Opnaðu fyrir þann möguleika að leyfa öðrum að segja sína hlið á málunum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú ert samúðarfull/ur, það er eitt sem víst er. Vertu í startholunum ef einhver bið- ur þig um aðstoð. Þú átt ekki eftir að sjá eftir því. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Ástalífið einkennist ekki bein- línis af samlyndi þessa dagana, en þú ert að reyna að gera þitt besta. Vertu þakk- látur fyrir hæfileika þína. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það eru ýmis mál sem þú þarft að fá á hreint til þess að eiga möguleika á því að ná takmarki þínu. Hálfnað er verk þá hafið er. 22. des. - 19. janúar Steingeit Allt getur gerst þegar góðir vinir gera sér glaðan dag. Það hriktir í stoðum ástarsambands, mundu að fyrirgefning er nauðsynleg. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Láttu þér ekki bregða þótt aðrir kunni ekki að meta frumleika þinn og nýj- ungagirni. Ræddu við þér eldri þegar þú íhugar framkvæmdir. 19. feb. - 20. mars Fiskar Góðlátlegt grín er í lagi, en gættu þess samt að særa ekki. Öllu gamni fylgir einhver alvara. spenntur að fá að leggjast á árar með starfsfólki að gera þetta að veruleika með hagsmuni samfélagsins að leiðarljósi. Mér hefur liðið mjög vel í heil- brigðisþjónustunni. Það er mjög gef- andi, bæði á Hrafnistu og Reykja- lundi, að fá tækifæri til að vinna með frábæru samstarfsfólki við að aðstoða þessa fjármuni með eins markvissum hætti og mögulegt er, með það að leiðarljósi að hámarka þjónustu og gæði. Mín skoðun er sú að endur- hæfing og forvarnir séu vannýttur þáttur í því sambandi og við getum gert töluvert betur. Það eru mörg tækifæri og möguleikar í stöðunni í framtíðarsýn Reykjalundar og ég er P étur Magnússon fæddist 16. febrúar 1971 á Land- spítalanum í Reykjavík en ólst upp frá fæðingu á Akranesi. „Í minning- unni var maður í fótbolta meira og minna allan daginn. Yfirleitt á Stóra- túni en líka víða annars staðar. Það var mjög skemmtilegur tími,“ en Pétur lék í marki Skagamanna upp yngri flokkana. Pétur er í árgangi ’71 á Skaganum sem er mjög samrýndur og stóð með- al annars fyrir þorrablóti Skaga- manna í 10 ár þar sem allur ágóði fór til íþrótta- og góðgerðafélaga á Akra- nesi. „Hópurinn hefur í tæp 15 ár líka staðið fyrir brekkusöng Írskra daga, sem er bæjarhátíðin á Akranesi. Brekkusöngurinn er gríðarlega fjöl- mennur viðburður en tæplega 5.000 manns mættu sumarið 2019 þegar hann var síðast haldinn í mikilli veðurblíðu.“ Pétur gekk í grunnskóla á Akra- nesi og lauk stúdentsprófi frá Fjöl- brautaskóla Vesturlands á Akranesi 1991. Hann varð lyfjafræðingur frá Háskóla Íslands 1998 og lauk MBA- gráðu frá Háskólanum í Reykjavík með áherslu á mannauðsstjórnun 2004. Pétur hefur mikla reynslu af stjórnun og rekstri í heilbrigðisþjón- ustu, en hann starfar nú sem forstjóri Reykjalundar. Þangað var hann ráð- inn á síðasta ári eftir að hafa stýrt Hrafnistuheimilunum í rúm 12 ár. „Á starfstímanum á Hrafnistu naut ég þess að vinna með skemmtilegu og metnaðarfullu samstarfsfólki þar sem Hrafnistuheimilin, sem nú eru átta talsins, hafa verið fararbroddi í öldr- unarþjónustu á landsvísu.“ Reykjalundur er stærsta endur- hæfingarstofnun landsins og þjónar öllu landinu. „Þrátt fyrir að flestir telji heilbrigðisþjónustu einn af horn- steinum samfélagsins er ljóst að fjár- munir í heilbrigðismálum eru og munu verða takmarkaðir. Vegna þessa er mjög mikilvægt að nota einstaklinga við að auka lífsgæði sín.“ Pétur hefur alla tíð verið virkur í félagsmálum og setið í ýmsum nefnd- um og ráðum tengdum heilbrigðis- málum. Hann var m.a. formaður Öldrunarráðs Íslands 2010-2016, for- maður 100 ára afmælisnefndar Vífils- staðaspítala og varaformaður Sam- taka fyrirtækja í velferðarþjónustu 2008-2016 og formaður þeirra 2016- 2020. Auk þess var hann formaður knattspyrnudeildar Aftureldingar í nokkur ár, er nú forseti rótarý- klúbbsins Reykjavík Miðborg og hef- ur verið gjaldkeri í stjórn Ferða- félags Íslands frá árinu 2017. Hann hefur verið fararstjóri hjá Ferða- félaginu í 15 ár. Fyrir utan að rækta fjölskyldu og vini eru helstu áhugamál Péturs ferðalög, útivist og gönguferðir um landið. „Laugavegurinn er uppá- haldssvæðið en þar var ég til dæmis fararstjóri 10 sumur í röð. Við Inga konan mín erum saman í þessu áhugamáli og það er mikilvægt. Við höfum ferðast mikið um landið og gengið síðustu 20 ár – bæði sjálf en einnig í skemmtilegum ferða- og gönguhópum. Við vorum í fyrra í Landvættaverkefninu hjá ferðafélag- inu þar sem ég kláraði allar greinar en Inga náði því ekki vegna meiðsla. Þess vegna ætlum við okkur að vera í þessu aftur og klára þetta nú í sumar saman,“ en til að geta orðið Land- vættur þarf að klára fjórar mismun- andi íþróttagreinar í öllum lands- fjórðungum; skíðagöngu, fjalla- hjólreiðar, utanvegahlaup og Pétur Magnússon, lyfjafræðingur og forstjóri Reykjalundar – 50 ára Fjölskyldan Pétur og Inga ásamt börnum og tengdadóttur. Það er gefandi að fá að taka þátt í að bæta líf fólks Á Elbrus Inga og Pétur að klífa hæsta tind Evrópu, sumarið 2018. Afmælisbarnið Brugðið á leik. Tryggvi Sigurðsson á afmæli í dag. Hann fæddist í Reykjavík 16. febrúar 1931. Hann ólst upp á Nönnugötunni til 9 ára aldurs, en síðan þá hefur hann búið í Vestmannaeyjum. Tryggvi vann sem vélstjóri í Ísfélagi Vestmannaeyja í yfir 50 ár. Frá 1958 og fram að eldgosinu í Vestmannaeyjum bjó Tryggvi og fjölskylda í Grænuhlíð 3 sem fór undir hraun í mars 1973. Tryggvi byggði það hús sjálfur og hefur það þess vegna verið honum ofarlega í huga síðan. Hann keypti Birkihlíð 11 haustið 1973 og býr þar enn. Eiginkona Tryggva var Sigríður Ólafsdóttur frá Gíslholti, f. 1931, hún lést 2018. Börn þeirra eru Ólafur Kristinn, f. 1951, Hallgrímur, f. 1952, Sigurður Hjálmar, f. 1956, d. 2004, Klara, f. 1961 og Kristný Sigurbjörg, f. 1966. Foreldrar Tryggva voru Sigurður Hjálmarsson, f. 1900, d. 1981, og Klara Tryggvadóttir, f. 1906, d. 1997. Árnað heilla 90 ára 30 ára Sigríður er frá Höfn í Hornafirði en býr í Kópavogi. Hún er BS í lífeindafræði og MS í lyfjavísindum, hvort tveggja frá Há- skóla Íslands, og er doktorsnemi í lyfjavís- indum við lyfjafræðideild HÍ. Maki: Bjarki Jóhannsson, f. 1989, for- ritari hjá Marel. Börn: Eitt á leiðinni. Hálfbróðir: Jón Þór Ólafsson, f. 1983. Foreldrar: Sigurbjörg Árnadóttir, f. 1955, þroskaþjálfi, búsett í Reykjavík, og Ólafur Ágúst Gunnlaugsson, f. 1956, smiður í Kristiansand í Noregi. Sigríður Ólafsdóttir Til hamingju með daginn FASTEIGNIR Fasteignablað Morgunblaðsins Efnistökin er t.d þessi: • Hvernig er fasteigna- markaðurinn að þróast? • Viðtöl við fólk sem elskar að flytja. • Hvernig gerir þú heimili tilbúið fyrir fasteignamyndatöku? • Viðtöl við fasteignasala. • Innlit á heillandi heimili. • Góðar hugmyndir fyrir lítil rými. Pöntun auglýsinga: Sigrún Sigurðurdóttir 569 1378 sigruns@mbl.is Bylgja Sigþórsdóttir 569 1148 bylgja@mbl.is KEMUR ÚT 26. feb

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.