Morgunblaðið - 16.02.2021, Page 25

Morgunblaðið - 16.02.2021, Page 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 2021 „HJÓNABANDI FYLGIR VERKASKIPTING. ÉG BORÐA MATINN SEM ÞÚ ELDAR SVO ÞÚ ÁTT AÐ SJÁ UM UPPVASKIÐ.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ... að elska að ferðast saman á mótorhjólinu. SEKUR OG SÆTUR! MYNDI ÞAÐ DREPA ÞIG AÐ FARA ÚT MEÐ RUSLIÐ? SVARIÐ ER JÁ! „HVERS VEGNA ÞURFUM VIÐ ÖRK? ÉG HÉLT AÐ ÞÚ TRYÐIR EKKI Á LOFTSLAGSBREYTINGAR.” vatnasund á 12 mánaða tímabili. Pétur og Inga hafa líka gengið er- lendis, til dæmis árið 2018 gengu þau á Elbrus í Rússlandi, sem er hæsta fjall Evrópu, og komu við á HM þar sem þau sáu leik Íslands og Argent- ínu. Árið 2019 fóru þau í Simien- þjóðgarðinn í Eþíópíu þar sem þau gengu í 10 daga á mjög afskekktu há- fjallasvæði, meðal annars á hæsta tind Eþíópíu. Fjölskylda Eiginkona Péturs er Ingibjörg Eydís Ingimarsdóttir, f. 30.8. 1973, hjúkrunarfræðingur og markþjálfi og starfar sem verkefnastjóri hjá Þraut ehf. – miðstöð vefjagigtar og tengdra sjúkdóma. Fjölskyldan hefur búið í Mosfellsbæ frá árinu 1999. Foreldrar Ingu eru hjónin Ingimar Einarsson, 5.8. 1935, búfræðingur og bifvéla- virki, starfaði lengst á nautastöð Bændasamtaka Íslands á Hvanneyri, nú búsettur á Flúðum, og Anna Kristinsdóttir, f. 31.5. 1942, 11.10. 2012, matráður við Andakílsskóla á Hvanneyri. Börn Péturs og Ingu eru: 1) Ágúst Logi, f. 24.6. 1996, meistaranemi í tölvunarfræði við HÍ. Unnusta hans er Lena Rós Þórarinsdóttir, f. 20.4. 1992, starfsmaður í aðhlynningu og félagsliðanemi; 2) Magnús Árni, f. 25.1. 2003, nemandi í Kvennaskól- anum í Reykjavík; 3) Svandís Erla, f. 8.3. 2011, nemandi í Krikaskóla. Foreldrar Péturs: Hjónin Magnús Oddsson, f. 17.11. 1935, d. 11.4. 2017, rafveitustjóri, bæjarstjóri og veitu- stjóri á Akranesi, og Svandís Péturs- dóttir, f. 1.2. 1941, fv. sérkennari í Brekkubæjarskóla á Akranesi. Svandís er búsett á Akranesi. Pétur Magnússon Sigríður Árnadóttir húsfreyja í Tungufelli Jón Árnason bóndi í Tungufelli í Hrunamannahreppi Helga Jónsdóttir húsfreyja og saumakona í Reykjavík Pétur Ágúst Árnason sjómaður og verkamaður í Reykjavík Svandís Pétursdóttir sérkennari á Akranesi Sigríður Pétursdóttir húsfreyja í Reykjavík Árni Hannesson skipstjóri í Reykjavík Kristjana Símonía Pétursdóttir húsfreyja á Vöðlum og í Reykjavík Oddur Kristjánsson bóndi á Vöðlum í Dýrafirði, síðar starfsm. Rafmagnsv. Rvíkur Guðný Maren Oddsdóttir húsfreyja í Reykjavík Oddur Erik Ólafsson verkstjóri hjá Rafmagnsveitum Reykjavíkur Guðrún Birgitta Gísladóttir húsfreyja á Staðarhóli í Saurbæ í Dalasýslu Sr. Ólafur Ólafsson prestur á Staðarhóli og prófastur í Dalaprófastsdæmi Úr frændgarði Péturs Magnússonar Magnús Oddsson rafveitustjóri, bæjarstjóri og veitustjóri á Akranesi Helgi R. Einarsson skrifar á vef-inn og spyr: „Er Samfylking réttnefni?“ Er pólitík orðin undur, einskonar lýðræðisglundur? Bresta nú böndin er brúka menn vöndinn og sam- virðist merkja sundur! Spurning hvort heimóttir spilla, splundra og orsaka kvilla. Vitlaust er valið, vottað og falið, mér sýnist það samstöðuvilla. Jónas Frímannsson sendi mér vísu eftir Böðvar Guðlaugsson og rifjast upp gamlir tímar: Leit ég standa lotinn mann leysa band af tösku þar að vanda hafði hann hálfa landaflösku. Kosningar eru á næsta leiti og Hólmfríður Bjartmarsdóttir gefur það ráð, að best sé að kjósa ekki: Enginn fær atkvæðin mín sagði Einar bóndi við svín Þeir bjóða fram bjána og kellingakjána en lofa ekki að lækka mitt vín. Á Boðnarmiði rifjar Indriði á Skjaldfönn upp stökur eftir Pál Bergþórsson sem skýra sig sjálfar: Æstum loga Askja spjó upp um breiða sprungu. Hygg ég Egill hafi þó hættulegri tungu. Öskjuhraunsins hitaglóð hverfur eins og gengur. Ætla ég að Egils ljóð ylji meir og lengur. Friðrik Steingrímsson gefur gott ráð á þessum kórónuveirutímum: Ef að þrjótum á að ná sem ekki sóttkví hlíta, við eftirlitið eflaust má ökklabandið nýta. Hagyrðingar yrkja um Trump - sem von er. Kristján H. Theódórs- son kveður: Almenning þótt allan dræpi, álfarnir mundu sýkna hann. Ef hendir sér í „harðari“ glæpi, þeir heiladauðu sinn verja mann. „Trump sýknaður“ segir Friðrik Steingrímsson: Sýknun þessi sauður fær sífellt þó að orgi, ég held það væri heldur nær að hýð’ann úti á torgi. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Spurt er um réttnefni í pólitík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.