Morgunblaðið - 16.02.2021, Side 26

Morgunblaðið - 16.02.2021, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 2021 England West Ham – Sheffield United ................. 2:0 Chelsea – Newcastle ................................ 2:0 Staðan: Manch. City 23 16 5 2 46:14 53 Manch. Utd 24 13 7 4 50:31 46 Leicester 24 14 4 6 42:26 46 Chelsea 24 12 6 6 40:24 42 West Ham 24 12 6 6 37:28 42 Liverpool 24 11 7 6 45:32 40 Everton 22 11 4 7 34:30 37 Aston Villa 22 11 3 8 36:24 36 Tottenham 23 10 6 7 36:25 36 Arsenal 24 10 4 10 31:25 34 Leeds 23 10 2 11 40:42 32 Wolves 24 8 6 10 25:32 30 Southampton 23 8 5 10 30:39 29 Crystal Palace 24 8 5 11 27:42 29 Brighton 24 5 11 8 25:30 26 Burnley 23 7 5 11 17:29 26 Newcastle 24 7 4 13 25:40 25 Fulham 23 3 9 11 19:31 18 WBA 24 2 7 15 19:55 13 Sheffield Utd 24 3 2 19 15:40 11 Þýskaland Bayern München – Bielefeld................... 3:3 Staðan: Bayern München 21 15 4 2 61:29 49 RB Leipzig 21 13 5 3 37:18 44 Eintr.Frankfurt 21 10 9 2 43:29 39 Wolfsburg 21 10 9 2 32:19 39 Leverkusen 21 10 6 5 39:23 36 Dortmund 21 10 3 8 41:31 33 Mönchengladbach21 8 9 4 37:31 33 Freiburg 21 8 7 6 35:33 31 Union Berlin 21 7 9 5 34:25 30 Stuttgart 21 6 8 7 38:35 26 Werder Bremen 20 5 8 7 24:27 23 Hoffenheim 21 6 5 10 32:39 23 Augsburg 21 6 4 11 21:34 22 Köln 21 5 6 10 20:35 21 Hertha Berlín 21 4 6 11 26:37 18 Arminia Bielefeld 20 5 3 12 18:35 18 Mainz 21 3 5 13 21:42 14 Schalke 21 1 6 14 15:52 9 Spánn B-deild: Real Oviedo – Lugo ................................. 2:1  Diego Jóhannesson var ónotaður vara- maður hjá Real Oviedo. Holland B-deild: Jong Ajax – Dordrecht ........................... 1:2  Kristian Nökkvi Hlynsson var ekki í leikmannahóp Jong Ajax. Excelsior – Roda...................................... 1:3  Elías Már Ómarsson lék allan leikinn með Excelsior. Belgía B-deild: Westerlo – Lommel ................................. 1:1  Kolbeinn Þórðarson kom inn á sem vara- maður hjá Lommel á 71. mínútu. Rúmenía CFR Cluj – Voluntari .............................. 0:0  Rúnar Már Sigurjónsson var ekki í leik- mannahóp Cluj. Grikkland Giannina – PAOK .................................... 0:2  Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn með PAOK og lagði upp mark. Danmörk FC Köbenhavn – SönderjyskE............... 3:2  Ísak Óli Ólafsson var ekki í leikmanna- hóp SönderjyskE.  Olísdeild karla Valur – Stjarnan ................................... 27:35 ÍBV – KA............................................... 28:29 FH – Haukar ........................................ 29:29 Staðan: Haukar 8 6 1 1 233:199 13 Afturelding 9 6 1 2 226:222 13 FH 9 5 2 2 260:235 12 Selfoss 8 5 1 2 216:193 11 Valur 9 5 0 4 261:253 10 KA 8 3 3 2 212:195 9 Stjarnan 9 4 1 4 244:244 9 ÍBV 8 4 1 3 231:220 9 Fram 9 4 1 4 217:221 9 Grótta 9 1 3 5 214:222 5 Þór Ak. 9 2 0 7 204:238 4 ÍR 9 0 0 9 201:277 0   NBA-deildin Charlotte – San Antonio .................. 110:122 Detroit – New Orleans..................... 123:112 Toronto – Minnesota........................ 112:116 Dallas – Portland.............................. 118:121 Oklahoma – Mailwaukee.................. 114:109 Phoenix – Orlando .............................. 109:90 Denver – LA Lakers ........................ 122:105 LA Clippers – Cleveland ................. 128:111 Sacramento – Memphis ................... 112:124   HANDKNATTLEIKUR Olísdeild kvenna: Vestmannaeyjar: ÍBV – HK......................18 Í KVÖLD! Knattspyrnumaðurinn Albert Guð- mundsson var valinn í lið umferð- arinnar í hollensku úrvalsdeildinni fyrir frammistöðu sína með AZ Alkmaar gegn Heerenveen í fyrra- dag. Albert skoraði þriðja mark liðsins í 3:1-sigri AZ og var hann valinn í lið umferðarinnar hjá Voet- bal International, elsta knatt- spyrnutímaritinu í Hollandi. Albert hefur skorað fjögur mörk og lagt upp þrjú í þrettán byrjunarliðs- leikjum í hollensku úrvalsdeildinni á tímabilinu en AZ er í þriðja sæti deildarinnar með 43 stig. Í liði vikunnar í Hollandi Morgunblaðið/Eggert Mark Albert var á skotskónum fyrir AZ Alkmaar um síðustu helgi. HANDBOLTINN Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Dramatíkin var allsráðandi í loka- leikjum níundu umferðar úrvals- deildar karla í handknattleik, Ol- ísdeildarinnar, sem fram fóru í gær. Stórleikur FH og Hauka í Kapla- krika stóð undir nafni eins og alltaf þegar þessi tvö lið mætast í barátt- unni um Hafnarfjörð, en lokatölur urðu 29:29 eftir æsispennandi loka- mínútur. Mikið jafnræði var með liðunum allan leikinn og var staðan jöfn í hálfleik, 15:15. FH-ingar náðu mest þriggja marka forskoti í síðari hálf- leik, 20:17, en alltaf komu Haukar til baka. „Haukar náðu stigi gegn FH á útivelli þótt manni hafi ekki fundist liðið ná sér sérstaklega á strik. Ef til vill segir það eitthvað um styrk liðs- ins í vetur. Mörg lið í deildinni geta unnið Hauka í einum leik en með þennan leikmannahóp og sig- ursælan þjálfara verður ekki auð- velt að vinna Haukana í lengri rimmum eins og þeim sem fylgja úr- slitakeppninni. FH-ingar eru að mér finnst á ágætri leið og þegar allir eru heilir er liðið mjög sterkt. Sóknarleikur liðsins er skiljanlega annar þegar Egill Magnússon er með enda kem- ur hann með annars konar ógnun. En þegar Egils nýtur ekki við finna Einar Rafn og Ásbjörn Friðriksson yfirleitt lausnir í sókninni,“ skrifaði Kristján Jónsson m.a. í umfjöllun sinni um leikinn á mbl.is. Dramatík í Eyjum Þá reyndist Patrekur Stefánsson hetja Akureyringa þegar KA heim- sótti ÍBV til Vestmannaeyja en hann skoraði sigurmark KA þegar fimm sekúndur voru til leiksloka. Markið var umdeilt því Eyjamenn vildu fá dæmdan ruðning á Patrek í aðdraganda marksins. Markið fékk hins vegar að standa og Akureyringar fögnuðu afar dýr- mætum 29:28-sigri eftir að Eyja- menn höfðu leitt með einu marki í hálfleik, 16:15. „Sóknarleikur Eyjamanna var hægur á lokakaflanum og virtist erf- itt fyrir liðið að skapa sér góð færi, sóknarleikur KA-manna var oftast hraðari en þeir náðu að keyra hrað- ann í leiknum vel niður þegar þeir fengu brottvísanir. Vörn Eyja- manna er mjög þunnskipuð og máttu þeir illa við meiðslum Ásgeirs Snæs Vignissonar og Arnórs Við- arssonar í leiknum sem þurftu báðir að sitja meiddir á bekknum í góðan tíma. Það nýttu KA-menn sér vel og fengu mörg góð færi, vörn KA- manna hélst góð út leikinn þrátt fyr- ir að hafa misst Ólaf Gústafsson af velli með þrjár tveggja mínútna brottvísanir,“ skrifaði Guðmundur Tómas Sigfússon meðal annars í umfjöllun sinni um leikinn á mbl.is. Þá átti Tandri Már Konráðsson stórleik fyrir Stjörnuna þegar liðið heimsótti Val í Origo-höllina á Hlíð- arenda. Tandri Már skoraði níu mörk í leiknum sem lauk með átta marka sigri Garðabæinga, 35:27, en Vals- menn voru í vandræðum nánast frá fyrstu mínútu. Stjarnan leiddi með sex mörkum í hálfleik, 18:12, og Valsmenn voru aldrei líklegir til þess að koma til baka í síðari hálfleik. Adam Thorstensen átti mjög góð- an leik í marki Stjörnunnar, varði 13 skot og var með 33% markvörslu. Magnús Óli Magnússon var markahæstur Valsmanna með sex mörk en þetta var fjórða tap Vals á tímabilinu til þessa í átta leikjum. Stjarnan var hins vegar að vinna sinn fjórða leik á tímabilinu og virð- ist vera að finna taktinn jafnt og þétt. Hafnarfjarðar- slagurinn stóðst allar væntingar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Átök Agúst Birgisson, FH, og Darri Aronsson, Haukum, eigast við í gær.  Akureyringar sóttu tvö stig til Eyja Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu hefst á nýjan leik í kvöld er 16 liða úrslitin fara af stað með tveimur leikjum. Leikin er tvöföld umferð, á heimavelli og að heiman, en þó verða einhverjir leikir spilaðir á hlutlausum velli vegna kórónu- veirufaraldursins. Englandsmeist- arar Liverpool mæta þýska liðinu RB Leipzig klukkan átta í kvöld en leikurinn fer fram í Ungverjalandi, á Puskas Arena í Búdapest, sökum þess að Englendingar mega ekki ferðast til Þýskalands vegna sótt- varnaráðstafana. Á sama tíma fer fram leikur stórliða Barcelona frá Spáni og PSG frá Frakklandi á Ný- vangi, heimavelli Barcelona. Liverpool á í vök að verjast heima fyrir. Meistararnir hafa tapað þrem- ur leikjum í röð og eru 13 stigum frá toppnum þegar fimmtán umferðum er ólokið. Það gæti því vel verið að Meistaradeildin sé síðasta vígi Jür- gens Klopps og lærisveina hans, ætli Liverpool að takast að vinna stóran titil þriðja árið í röð. Hjá Leipzig er staðan önnur, liðið hefur unnið síðustu fjóra leiki sína og er í spennandi baráttu við Bayern München um þýska meistaratitilinn. Fyrir liðinu fer ungi knatt- spyrnustjórinn Julian Nagelsmann og hefur liðið vakið verðskuldaða at- hygli fyrir framgöngu sína í keppn- inni en Leipzig vann frækinn sigur gegn Manchester United í riðla- keppninni til að komast í þetta ein- vígi. Spænsku risarnir í Barcelona eiga harma að hefna í Meistaradeildinni eftir að hafa verið hent úr keppni gegn Bayern í fjórðungsúrslitunum á síðustu leiktíð, 8:2. Frönsku meist- ararnir eru þó í svipaðri stöðu, enda fóru þeir alla leið í úrslit í sumar en lutu þar í lægra haldi gegn einmitt Evrópumeisturum Bayern. Annað kvöld mætast portúgölsku meistararnir í Porto og ítölsku meistararnir í Juventus og á sama tíma fer fram leikur Sevilla frá Spáni gegn Dortmund frá Þýska- landi. Fyrri viðureignum 16-liða úr- slitanna lýkur svo í næstu viku. La- zio mætir Evrópumeisturum Bay- ern München og Atalanta fær Real Madríd í heimsókn. Þá eru tveir aðr- ir leikir sem fara fram á hlutlausum velli.Þjóðverjarnir í Borussia Mönc- hengladbach mæta Manchester City en sá leikur verður einnig spilaður í Búdapest í Ungverjalandi. Þá mætir Atlético Madríd Chelsea í Rúmeníu. kristoferk@mbl.is Meistaradeildin síðasta vígið  Liverpool þarf að bjarga tímabilinu  Stórliðin eiga harma að hefna AFP Klopp Liverpool þarf á sigri í Meist- aradeildinni að halda í kvöld. Alexander Petersson, landsliðs- maður í handknattleik, leikur vænt- anlega ekki með Flensburg næstu vikurnar vegna meiðsla. Alexander gekk til liðs við Flensburg í janúar og félagið greindi frá því að Alex- ander væri á sjúkralistanum vegna meiðsla í læri. Netmiðillinn Hand- bolti.is hefur eftir Alexander að sin hafi rifnað og hann vonist til að jafna sig á fimm til sex vikum. Ljóst þykir að Alexander verði því ekki til taks þegar Ísland á að mæta Ísrael 11. mars í undankeppni EM í Ísrael. Frá keppni í fimm til sex vikur AFP Meiddur Stórskyttan Alexander meiddist á læri á dögunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.