Morgunblaðið - 08.03.2021, Side 1
M Á N U D A G U R 8. M A R S 2 0 2 1
Stofnað 1913 56. tölublað 109. árgangur
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS | www.fi.is
Sjáumst á fjöllum
UNITED HAFÐI
BETUR Í NÁGRANNA-
SLAGNUM VIÐ CITY
OF FÁAR
KONUR Í
FORYSTU
FYRSTU TÓNLEIK-
ARNIR AF SJÖ
HALDNIR Í HÖRPU
ALÞJÓÐADAGUR KVENNA 14 VÍKINGUR HEIÐAR 29ENSKI BOLTINN 27
Tilkynnt var um tvo einstaklinga sem
greinst höfðu innanlands með Co-
vid-19 utan sóttkvíar í gær. Þetta eru
fyrstu innanlandssmitin sem greinst
hafa utan sóttkvíar síðan 1. febrúar.
Reyndust þau bæði vera af hinu svo-
kallaða breska afbrigði sem talið er
meira smitandi en önnur afbrigði sem
greinst hafa hér á landi.
Annar þeirra sem greindust er
starfsmaður á dag- og göngudeild
Landspítalans. Hluta deildarinnar
var lokað í gær og ríflega fimmtíu
einstaklingar, bæði sjúklingar og
starfsmenn sjúkrahússins, voru sett-
ir í sóttkví. Már Kristjánsson, yfir-
læknir smitsjúkdómadeildar, stað-
festi í samtali við mbl.is í gærkvöldi
að búið væri að skima um 30-40 ein-
staklinga af þeim og reyndust allar
niðurstöðurnar neikvæðar. Um 20
starfsmenn verða skimaðir í dag.
Að minnsta kosti annar þeirra sem
reyndust smitaðir sótti tónleika sem
haldnir voru í Hörpu á föstudaginn
var. Skráning gesta í sæti auðveldaði
smitrakningu og voru tíu þeirra sem
sátu næst þeim smitaða settir í
sóttkví.
Tónleikagestir fari í skimun
Boðið verður upp á skimun fyrir
alla tónleikagesti í dag, en um 800
manns voru í sæti í fjórum mismun-
andi sóttvarnahólfum, en núgildandi
reglur gera ráð fyrir að mest 200
manns megi vera samankomnir í
hverju hólfi.
Aðrir tónleikar í sömu syrpu voru
haldnir í gærkvöldi, en eftir samráð
við almannavarnir var ekki talin
ástæða til að breyta neinu varðandi
þá viðburði sem framundan eru í
Hörpu.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalækn-
ir sagði á upplýsingafundi almanna-
varna í gær að það réðist á morgun,
þriðjudag, hvort smitin hafa hrundið
af stað fjórðu bylgjunni af kórónu-
veirufaraldrinum hér á landi. Sagði
Þórólfur málið sýna hve staðan væri
viðkvæm og hvað einn einstaklingur
gæti smitað hratt út frá sér.
Mögulegt hópsmit í uppsiglingu
Loka þurfti hluta göngudeildar Landspítalans vegna smits Ekki hætt við tónleika í Hörpu í gær
MNiðurstöður skimana ráða »2
Fyrsta áætlunarferð Icelandair á Boeing MAX eftir langvar-
andi kyrrsetningu vélanna er nú í morgunsárið þegar flogið
verður til Kaupmannahafnar. Undirbúningsflug var á laugar-
daginn í kynnisför þar sem Kári Kárason flugmaður og Eiríkur
Haraldsson flugmaður voru við stjórnvölinn í ferð þar sem út-
sýnið var einstakt, enda veðrið á þessum síðvetrardegi gott.
„Sennilega eru þetta öruggustu flugvélar heimsins í dag,“ segir
Linda Gunnarsdóttir, yfirflugstjóri Icelandair, um MAX-
vélarnar en alls 12 slíkar verða teknar í flota félagsins. »10
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Einstakt útsýni í
undirbúningsflugi
á Boeing MAX