Morgunblaðið - 08.03.2021, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. MARS 2021
SÉRBLAÐ
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími 569 1105 kata@mbl.is
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til mánudagsins 22. mars
Páskablað
Morgunblaðsins
kemur út föstudaginn
26. mars
Girnilegar uppskriftir af veislumat
og öðrumgómsætum réttum
ásamt páskaskreytingum,
páskaeggjum, ferðalögum
og fleira.
50 ára Halldóra er
Reykvíkingur, ólst upp í
Breiðholti en býr í Kópa-
vogi. Hún á eftir að ljúka
lokaritgerð í viðskipta-
fræði við HR og er inn-
kaupastjóri hjá Sam-
kaupum. Halldóra hefur
verið dugleg í ýmsum félagsstörfum
gegnum ævina.
Maki: Þorvaldur Guðmundsson, f. 1964,
eigandi rafmagnsheildsölunnar Reykjafell.
Dóttir: Gabríella Ýr, f. 2000, og stjúpson-
ur er Gauti, f. 1990.
Foreldrar: Lárus A. Jónsson, f. 1949, raf-
virkjameistari, og Sigríður M. Sigurjóns-
dóttir, f. 1952, fv. formaður kvennadeildar
Rauða kross Íslands. Þau eru búsett í
Garðabæ.
Halldóra Jóna
Lárusdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Láttu liðið vera liðið í samskiptum
við aðra og hafðu stjórn á skapi þínu. Taktu
málin föstum tökum.
20. apríl - 20. maí
Naut Hikaðu ekki við að leita nýrra lausna
á vandamálum í vinnunni. Stundum þarf
bara að rífast og illu er bestu aflokið.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það skiptir engu hversu vel þú
telur þig þekkja einhvern, viðkomandi getur
samt komið þér á óvart. Láttu ekkert slá
þig út af laginu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er viturlegra að biðja um hlut-
ina kurteislega en krefjast þeirra með ein-
hverjum þjósti. Leyfðu öðrum að njóta sín
líka og þá munu hlutirnir ganga vel fyrir sig.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það vantar ekki mikið upp á að þér
takist að ljúka því verkefni sem þér hefur
verið falið. Sýndu sjálfum þér sama skilning
og þú myndir sýna öðrum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Reyndu að komast í stutt frí á næst-
unni. Lundin léttist og þú öðlast nýtt sjón-
arhorn á vandamál sem hefur verið að
plaga þig undanfarið.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þarf ekki að gera eitthvað áberandi
eða meiriháttar til að falla í kramið. Ef þú
ert ekki spenntur, verður enginn annar það.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert ekki viss af hverju
ákveðin röð atburða átti sér stað og hvern-
ig þú átt að bregðast við. Ekki hafa áhyggj-
ur því allt mun fara vel að lokum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú leggur þitt af mörkum til að
gera aðra hamingjusama og kímnigáfa þín
fellur í góðan jarðveg. Forðastu að dragast
inn í atburðarás sem kemur þér ekkert við.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú mátt búast við truflunum en
mátt ekki láta þær slá þig út af laginu.
Vertu bjartsýnn, ástvinur vill allt fyrir þig
gera.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Samræður við vini verða spenn-
andi og uppörvandi í dag. Settu í þig kraft,
brettu upp ermarnar og gakktu í verk sem
setið hafa á hakanum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú er nauðsyn að þú takir af skarið
og nýtir forystuhæfileika þína. Vonandi
skjóta engin vandamál upp kollinum en ef
það gerist skaltu nálgast þau af léttleika og
gleði.
G
uðný Ólafía Pálsdóttir
fæddist 8. mars í
Reykjavík og ólst upp
í Vesturbænum. Hún
var einkabarn for-
eldra sinna fyrstu sjö árin eða
þangað til litli bróðir hennar Stef-
án fæddist. Guðný dvaldi oft hjá
ömmu sinni og afa á Öldugötunni
fyrstu árin enda bjó hún þá í ris-
hæðinni ásamt foreldrum sínum í
sama húsi. Guðný gekk í Öldu-
götuskóla og stundaði nám við
Fjölbrautaskólann við Ármúla fyr-
ir 40 árum og útskrifaðist þaðan
með stúdentspróf.
Athafnakonan Guðný hóf
snemma störf hjá Flugleiðum inn-
anlands sem seinna varð Flugfélag
Íslands eða í um það bil 26 ár og
segist hún hafa búið til þetta flug-
félag þegar sá gállinn er á henni.
Hún hefur verið viðloðandi ferða-
bransann alla tíð, er með ríka
þjónustulund og veit fátt betra en
að veita öðrum góða þjónustu. Síð-
ast var hún að vinna fyrir ferða-
skrifstofuna Vita. Þau hjónin hafa
samhliða þessu rekið og verið eig-
endur að til að mynda Snælands-
videó og Glersalnum á Salavegi.
Einnig hafa þau reist nokkur
verslunarhús í Kópavogi.
Guðný er mikil sjálfstæðiskona
og hefur sinnt í gegnum tíðina
ýmsum störfum fyrir flokkinn, þó
minni í senni tíð. Hún vill meina
að pólitík sé erfið tík og vill frekar
láta gott af sér leiða í samfélaginu
með vinkonum sínum til margra
ára, þríeykinu Elísbetu Sveins-
dóttur, Gróu Ásgeirsdóttur og
Guðnýju, í góðgerðarfélaginu Á
allra vörum. Þær stöllur hafa
safnað samtals um 900 milljónum
og veitt til hinna ýmsu þjóðþrifa-
verka, s.s. til Krabbameinsfélags-
ins, Ljóssins, Kvennaathvarfsins,
Geðdeildarinnar á Landspít-
alanum, Neistans og Krabbamein-
sjúkra barna svo eitthvað sé
nefnt. „Við byrjuðum á þessu fyrir
ellefu árum þegar Gróa fékk
brjóstakrabbamein. En það er
brjálæði að taka þátt í svona, sér-
staklega fyrir konur í fullri vinnu
því allur frítíminn fer í þetta. Við
tókum okkur því hlé fyrir tveimur
árum, ákváðum að hvíla okkur að-
eins og vera bara vinkonur.“
Guðný hefur þó ekki látið staðar
numið í góðgerðarmálum því hún
hefur undanfarið ár líka verið í
fjáröflun og kynningarstörfum
fyrir SÁÁ og nú einnig fyrir
Píeta-samtökin.
Þau hjónin hafa notið þess að
koma sér upp lítilli paradís við
Þingvallavatn og hefur þeirra frí-
tími farið í að byggja þar upp bú-
stað. Barnabörnin þeirra, þrír
drengir, una sér þar sérstaklega
vel með ömmu og afa.
Áhugamál Guðnýjar eru það
sem hún hefur helgað líf sitt,
ferðalög til framandi landa, njóta
og lifa. „Ég hef átt gott líf og
Guðný Pálsdóttir athafnakona – 60 ára
Á Sunnubrautinni Guðný ásamt Stefáni bróður sínum og Önnu móður sinni heima í Kópavogi.
Vill láta gott af sér leiða
Hjónin Kári og Guðný í paradísinni við Þingvallavatn.
40 ára Gunnar er Dal-
víkingur og er fisk-
tæknir að mennt frá
Menntaskólanum á
Tröllaskaga. Hann er
verkstjóri hjá Sam-
herja á Dalvík. Gunnar
er formaður Sjálf-
stæðisfélags Dalvíkurbyggðar og situr í
félagsmálaráði og íþrótta- og æskulýðs-
ráði.
Maki: Katrín Kristinsdóttir, f. 1981,
sjúkraliði og hjúkrunarfræðinemi.
Börn: Viktor Máni, f. 2001, Guðrún Erla,
f. 2007, og Víóla Mjöll, f. 2009.
Foreldrar: Eiríkur Ágústsson, f. 1948, fv.
verkstjóri hjá Samherja, og Guðrún Erla
Gunnarsdóttir, f. 1954, handavinnukona.
Þau eru búsett á Dalvík.
Gunnar
Eiríksson
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is