Morgunblaðið - 08.03.2021, Síða 32
Sýning á verkum eftir Gísla B. Björnsson var opnuð
um helgina í Galleríi Fold. Gísli er einn þekktasti
grafíski hönnuður sinnar kynslóðar hér á landi og
hefur komið að mörgum vel þekktum merkjum fyr-
irtækja í gegnum árin. Hin síðustu ár hefur hann
einkum einbeitt sér að myndlist og er náttúra Íslands
honum hugleikin í henni. „Gísli er mikið náttúrubarn
og hefur ferðast mikið um hálendið á hestum sem
rata gjarna í verk hans. Margbreytileiki í landslagi,
formi fjalla, svartir sandar og marglitar ár og skógar
með öllum sínum tónum eru hans yrkisefni,“ segir í
tilkynningu. „Ég hef farið í áratugi um
landið, mest á hestum. Þetta markar
klárlega mína myndsköpun. Form
hinna ýmsu fjalla láta mig
ekki í friði,“ er haft eftir
Gísla.
Sýningin
stendur til 20.
mars og er opin
á afgreiðslu-
tíma gallerísins.
Gísli sýnir myndlist í Galleríi Fold
MÁNUDAGUR 8. MARS 67. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Dominykas Milka var stigahæstur Keflvíkinga þegar lið-
ið heimsótti Þór frá Þorlákshöfn í toppslag úrvals-
deildar karla í körfuknattleik, Dominos-deildarinnar, í
Icelandic Glacial-höllina í Þorlákshöfn í gær. Milka
skoraði 21 stig og tók sex fráköst en leiknum lauk með
sex stiga sigri Keflavíkur, 94:88. Þá gerðu KR-ingar
góða ferð til Sauðárkróks og unnu fimm stiga sigur
gegn Tindastóli, 104:99. Á sama tíma þurfti Stjarnan
að hafa fyrir sigrinum gegn Hetti á Egilsstöðum og þá
unnu Þórsarar Grindavík á Akureyri í spennuleik. »26
Keflavík stendur vel að vígi eftir
sigur í Þorlákshöfn í toppslagnum
ÍÞRÓTTIR MENNING
Karítas Ríkharðsdóttir
karitas@mbl.is
„Ég hef búið í Ameríku alla mína
ævi. Þar voru alltaf búðir eins og
Pound land og Dollar store og ég
spurði mig hvers vegna þetta væri
ekki til á Íslandi og hvort þetta
myndi mögulega virka hér á landi,“
sagði Stefán Franz Jónsson, sem
heldur úti hundrað krónu búðinni
100kr.is, í samtali við Morgun-
blaðið.
„Ég velti því fyrir mér hvort fólki
myndi finnast þetta of ódýrt eða
hvort fólk væri mögulega bara til í
þetta.“
Stefán Franz er 23 ára frum-
kvöðull sem lærði hagfræði og fjár-
mál í Háskólanum í San Diego og
útskrifaðist með BS-gráðu þaðan í
vor. Hann samdi við heildsölur sem
þurftu að rýma til á lagernum sín-
um, ýmist vegna plássleysis eða
vegna þess að matvara var komin
nálægt síðasta söludegi, um að fá að
selja vörur fyrir þær.
„Í stað þess að henda mat sem
gæti runnið út í verslunum hugsaði
ég að það væri miklu betra að nýta
hann einhvern veginn. Ég hugsaði
hvernig hægt væri að selja þennan
lager sem hraðast, án þess að þurfa
að henda. Úr varð hundrað krónu
búðin og lagerinn kláraðist í dag,“
sagði Stefán á sunnudagskvöldi.
Stefán myndi gjarnan vilja halda
starfseminni áfram ef hann finnur
til þess birgja sem þurfa að rýma til
hratt og örugglega.
„Kannski breytist þetta mögu-
lega í 200kr.is, þetta snýst bara allt
um hvort hægt sé að finna vöruna,“
segir Stefán. Hugmyndin um
hundrað krónu búðina er því eins
og ein samfelld rýmingarsala með
minnkun sóunar fyrir augum.
„Það eru lagerar með matvöru
sem þeir sjá ekki fram á að ná að
selja vegna þess hve nálægt síðasta
söludegi er komið. Svo vorum við
líka með árstíðabundnar vörur sem
voru ekki á réttum árstíma, við vor-
um til dæmis með jólasokka í
mars,“ sagði Stefán.
Hann segir bróður sinn hafa
hjálpað sér með framkvæmdina.
„Mér fannst þetta alveg virka mjög
vel en þetta var líka mjög mikil
vinna,“ segir Stefán, aðspurður
hvort hann sjái fyrir sér að þetta sé
eitthvað sem hann vilji gera að
framtíðarstarfi. Haldi hann áfram
með búðina sér hann fyrir sér að
koma undir hana betri aðstöðu og
huggulegri stað fyrir fólk til að
koma á. Búðin var rekin í geymslu í
Fosshálsi þar sem pantanir voru
sóttar.
Rúmlega 8.800 vörur voru til sölu
í búðinni, í 514 vöruflokkum og 14
yfirflokkum frá þremur heildsölum.
Allt frá hreingerningarvörum til
bílavara og verkfæra var að finna á
síðunni.
Ljósmynd/Aðsend
Lager Stefán Franz rak hundrað krónu búðina í geymslu í Fosshálsi. Hann segir söluna hafa gengið afar vel.
Allt seldist upp í fyrstu
hundrað krónu búðinni
Rúmlega 8.800 vörur voru til sölu í 514 vöruflokkum