Morgunblaðið - 08.03.2021, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 08.03.2021, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. MARS 2021 ENGLAND Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Þrátt fyrir að Manchester City sé enn með ellefu stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta er Manchester-borg rauð eftir 2:0- útisigur Manchester United á Man- chester City í gær. United hefur nú unnið þrjá af síðustu fjórum deildar- leikjum liðanna, en þau gerðu markalaust jafntefli í fyrri leiknum á Old Trafford á þessari leiktíð. Flestir bjuggust við City-sigri þar sem liðið vann 21 leik í röð fyrir leikinn í gær á meðan United hafði ekki skorað mark í þremur leikjum í röð. Lærisveinar Ole Gunnars Sol- skjærs höfðu hinsvegar aðrar hug- myndir og var Bruno Fernandes búinn að skora úr víti strax í upp- hafi leiks, áður en Luke Shaw gull- tryggði 2:0-sigur með marki snemma í seinni hálfleik. Þrátt fyrir úrslitin var Pep Guardiola, knatt- spyrnustjóri City, ekki af baki dott- inn. „Við spiluðum miklu betur en á móti West Ham í síðasta leik og við áttum ekki skilið að tapa. Við vorum ekki nógu góðir fyrir framan mark- ið,“ sagði hann við BBC eftir leik. Bruno Fernandes segir að kapp- hlaupið um enska meistaratitilinn sé ekki búið þrátt fyrir gott forskot City. „Þetta snýst ekki um að vinna City, þetta snýst um að vinna alla leiki. Þetta er ekki sprettur, þetta er maraþon og við hugsum aðeins um okkur,“ sagði Fernandes. Liverpool tapar og tapar Það gengur hvorki né rekur hjá ríkjandi Englandsmeisturum Liver- pool því liðið tapaði sjötta heima- leiknum í röð í deildinni er Fulham kom í heimsókn á Anfield og vann 1:0. Í leikjunum sex hefur Liverpool aðeins skorað eitt mark. Liðið fékk fullt af færum, en Alphonse Aréola í marki Fulham þurfti ekki oft að taka á honum stóra sínum, þar sem sóknarmenn liðsins áttu ekki góðan dag. Liverpool er fallið niður í átt- unda sæti og gæti liðið þurft að treysta á sigur í Meistaradeild Evr- ópu til að spila í keppninni á næstu leiktíð. Með sigrinum fór Fulham upp að hlið Brighton og er nú í fall- sæti aðeins á markatölu. Kane og Bale fóru á kostum Harry Kane skoraði tvö mörk og lagði upp önnur tvö í 4:1-sigri Tott- enham á Crystal Palace á heima- velli. Gareth Bale er einnig hrokk- inn í gang því hann skoraði tvö mörk. Tottenham hefur fjórum sinnum skorað fjögur mörk í síðustu sex leikjum í öllum keppnum og ráða fæst lið við þá Harry Kane, Son Heung-Min, Lucas Moura og Gareth Bale fremsta á vellinum. Jóhann Berg Guðmundsson sneri aftur í lið Burnley eftir fjarveru vegna meiðsla er liðið gerði jafntefli við Arsenal á heimavelli á laugar- dag, 1:1. Jóhann spilaði fyrstu 68 mínúturnar og átti sinn þátt í að Burnley náði í góð úrslit. Máluðu Manchester rauða  Liverpool tapaði enn og aftur á An- field  Tottenham skoraði aftur fjögur AFP Mikilvægur Bruno Fernandes kom United á bragðið snemma leiks. Stefan Alexander Ljubicic bjargaði stigi fyrir HK þegar liðið heimsótti Val á Hlíðarenda í deildabikar karla í knattspyrnu, Lengjubik- arnum, á laugardaginn. Kaj Leo í Bartalsstovu kom Vals- mönnum yfir á 39. mínútu og mið- vörðurinn Orri Sigurður Ómarsson bætti við öðru marki Valsmanna á 55. mínútu. Stefan minnkaði mun- inn fyrir HK á 74. mínútu og hann jafnaði metin fyrir sitt lið á 87. mín- útu og þar við sat. Allt útlit er fyrir að Valur og KA fari áfram í 8-liða úrslit úr 1. riðli en HK er í þriðja sæti fyrir loka- umferð og á smá von. Þá vann KR 3:1-sigur gegn Kór- drengjum í 2. riðli á KR-velli þar sem þeir Grétar Snær Gunnarsson, Ægir Jarl Jónasson og Oddur Ingi Bjarnason skoruðu mörk KR. Þá vann FH 4:0-sigur gegn Þór í Skessunni þar sem Einar Harðar- son, Matthías Vilhjámsson, Þórir Jóhann Helgason og Vuk Oskar Di- mitrijevic skoruðu mörk FH. KR og Víkingur eru nær örugg áfram úr 2. riðli en FH á veika von. Stjarnan er komin áfram úr 3. riðli en Keflavík, ÍA og Grótta geta öll náð öðru sæti. Breiðablik er komið áfram úr 4. riðli en Fylkir og Leiknir R. berjast um annað sætið. Morgunblaðið Íris Jóhannsdóttir Mark Stefan Alexander skoraði bæði mörk HK gegn Val á Hlíðarenda. Hetjan gegn Val Arnór Þór Gunnarsson var marka- hæsti leikmaður Bergischer þegar liðið heimsótti Hannover í þýsku 1. deildinni í handknattleik á laugar- daginn. Arnór skoraði sjö mörk en leikn- um lauk með fjögurra marka sigri Bergischer, 27:23. Þetta var sjötti sigur liðsins í síð- ustu sjö leikjum en liðið hefur kom- ið skemmtilega á óvart í deildinni á tímabilinu og er með 24 stig í fimmta sæti deildarinnar. Þá var Ómar Ingi Magnússon næstmarkahæstur þegar Magde- burg vann stórsigur gegn Coburg í gær en leiknum lauk með 43:22- sigri Magdeburg. Ómar Ingi skoraði sex mörk úr sjö skotum og Gísli Þorgeir Krist- jánsson skoraði tvö mörk fyrir Magdeburg, ásamt því að gefa þrjár stoðsendingar. Magdeburg er með 28 stig í öðru sæti deildarinnar, fjórum stigum minna en topplið Flensburg. Viggó Kristjánsson skoraði sex mörk fyrir Stuttgart þegar liðið heimsótti Leipzig en Viggó var markahæstur í sínu liði. Hann lagði einnig upp þrjú mörk fyrir liðsfélaga sína en leiknum lauk með tveggja marka sigri Stutt- gart, 25:23. Stuttgart er með 19 stig í ellefta sæti deildarinnar. Viggó er markahæsti leikmaður þýsku 1. deildarinnar með 136 mörk í tuttugu leikjum. Bjarki Már Elísson, leikmaður Lemgo, er fjórði markahæstur með 124 mörk í nítján leikjum og Ómar Ingi Magn- ússon kemur þar á eftir með 123 mörk í nítján leikjum. Íslendingar fóru mikinn í Þýskalandi Morgunblaðið/Eggert Sjö Arnór Þór var markahæstur. KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin: Ásvellir: Haukar – Njarðvík................ 18.15 Origo-höll: Valur – ÍR .......................... 20.15 1. deild karla: Dalhús: Fjölnir – Hamar ..................... 19.15 Í KVÖLD! Dominos-deild karla Þór Þ. – Keflavík................................... 88:94 Þór Ak. – Grindavík............................ 101:98 Höttur – Stjarnan................................. 93:94 Tindastóll – KR................................... 99:104 Staðan: Keflavík 13 11 2 1203:1045 22 Stjarnan 13 10 3 1234:1144 20 Þór Þ. 13 9 4 1279:1159 18 KR 13 9 4 1191:1189 18 ÍR 12 6 6 1061:1056 12 Grindavík 13 6 7 1158:1193 12 Njarðvík 12 5 7 1028:1044 10 Tindastóll 13 5 8 1183:1219 10 Höttur 13 4 9 1150:1217 8 Valur 12 4 8 977:1026 8 Þór Ak. 12 4 8 1046:1134 8 Haukar 11 2 9 933:1017 4 Dominos-deild kvenna Keflavík – Breiðablik ........................... 75:65 Staðan: Keflavík 11 10 1 907:786 20 Valur 12 10 2 894:727 20 Haukar 12 8 4 810:779 16 Fjölnir 12 7 5 896:853 14 Skallagrímur 12 6 6 814:833 12 Breiðablik 12 3 9 708:775 6 Snæfell 11 2 9 775:849 4 KR 12 1 11 789:991 2 Spánn Zaragoza – Joventut Badalona........ 95:100  Tryggvi Snær Hlinason tók tvö fráköst fyrir Zaragoza á ellefu mínútum. San Pablo Burgos – Andorra............. 82:68  Haukur Helgi Pálsson skoraði 4 stig fyr- ir Andorra, tók þrjú fráköst og gaf tvær stoðsendingar á 21 mínútu. Þýskaland Göttingen – Fraport Skyliners .......... 89:93  Jón Axel Guðmundsson skoraði 15 stig fyrir Fraport Skyliners, tók sex fráköst og gaf fimm stoðsendingar á 33 mínútum. Litháen Pieno Zvaigzdes – Siauliai ................. 70:88  Elvar Már Friðriksson skoraði 7 stig fyrir Siauliai, gaf ellefu stoðsendingar og tók eitt frákast á 33 mínútum.  Olísdeild kvenna FH – HK ............................................... 23:24 KA/Þór – Haukar ................................. 27:27 Stjarnan – Valur ................................... 23:30 ÍBV – Fram........................................... 26:24 Staðan: KA/Þór 11 7 3 1 277:241 17 Fram 11 8 0 3 322:267 16 ÍBV 11 6 1 4 271:250 13 Stjarnan 11 6 0 5 295:280 12 Valur 11 4 3 4 285:261 11 Haukar 11 4 2 5 275:286 10 HK 11 4 1 6 267:289 9 FH 11 0 0 11 216:334 0 Þýskaland RN Löwen – Göppingen ..................... 31:32  Ýmir Örn Gíslason skoraði eitt mark fyr- ir Löwen.  Janus Daði Smárason hjá Göppingen er frá keppni vegna meiðsla. Magdeburg – Coburg.......................... 43:22  Ómar Ingi Magnússon skoraði 6 mörk fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Krist- jánsson 2. Bergischer – Hannover-Burgdorf .... 27:23  Arnór Þór Gunnarsson skoraði 7 mörk fyrir Bergischer. Leipzig – Stuttgart.............................. 23:25  Viggó Kristjánsson skoraði 4 mörk fyrir Stuttgart. Danmörk Skjern – Kolding ................................. 32:29  Elvar Örn Jónsson skoraði 4 mörk fyrir Skjern.  Ágúst Elí Björgvinsson varði 4 skot í marki Kolding. Fredericia – SönderjyskE .................. 30:31  Sveinn Jóhannsson skoraði 4 mörk fyrir SönderjyskE. Pólland Kielce – Zabrze.................................... 34:30  Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 5 mörk fyrir Kielce. Svíþjóð Kristianstad – Malmö.......................... 35:27  Ólafur Guðmundsson skoraði 6 mörk fyrir Kristianstad og Teitur Einarsson 4. Guif – IFK Ystad.................................. 31:25  Daníel Freyr Ágústsson varði 12 skot í marki Guif og skoraði 2 mörk.    Martin Hermannsson átti mjög góðan leik fyrir Valencia þegar liðið tók á móti Manresa í A-deild Spánar í körfuknattleik í gær. Martin skoraði 12 stig, tók eitt frákast og gaf sjö stoð- sendingar en leiknum lauk með 112:82-sigri Valencia. Valencia leiddi með einu stigi í hálfleik, 54:53, en Val- encia-menn voru mun sterkari í síðari hálfleik og fögnuðu öruggum sigri í leikslok. Valencia er í fimmta sæti deildarinnar með 34 stig, 10 stigum minna en topplið Real Madrid.  Andri Rúnar Bjarnason var á skot- kónum fyrir Esbjerg þegar liðið vann 2:0-sigur gegn Fremad Amager í dönsku B-deildinni í knattspyrnu á laugardaginn. Andri Rúnar kom inn á sem varamaður á 55. mínútu og kom Esbjerg yfir á 70. mínútu. Þetta var þriðja mark Andra á leiktíðinni en Kjartan Henry Finnbogason lék allan leikinn í fremstu víglínu hjá Esbjerg. Esbjerg er í öðru sæti, fimm stigum á eftir toppliði Viborg, en Ólafur Helgi Kristjánsson er þjálfari liðsins.  Katla Björg Dagbjartsdóttir og Sturla Snær Snorrason höfnuðu bæði í öðru sæti í svigi á móti í Rogla í Slóveníu í gær. Katla styrkti stöðu sína á heimslistanum með því að næla í 44,82 FIS-stig. Katla hefur bætt stöðu sína á heimslistanum með hverju móti að undanförnu, bæði í svigi og stórsvigi. Sturla náði í 35,59 FIS-stig. Með þeim árangri og 4. sætinu í undankeppninni á HM á Ítalíu á dögunum hefur hann styrkt stöðu sína á heimslistanum til muna. Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir náði sínum besta árangri í svigi er hún endaði í sjötta sæti með 57,80 FIS-stig.  Landsliðsmaðurinn Sigtryggur Arnar Björnsson lék vel fyrir Real Canoe þegar liðið vann 79:75-heima- sigur á Alicante í framlengdum leik í spænsku B-deildinni í körfubolta í gær. Arnar lék í 33 mínútur og skoraði á þeim tíma 13 stig, tók tvö fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. Var hann næststigahæstur í sínu liði. Þrátt fyrir sigurinn er Real Canoe enn í neðsta sæti með aðeins tvo sigra í sextán leikjum, en liðið hafði tapað fimm leikjum í röð fyrir leik gærdags- ins.  Elías Már Halldórsson, þjálfari karlaliðs HK í handknattleik, hefur ver- ið ráðinn þjálfari kvennaliðs Fredrik- stad í Noregi frá og með næsta keppnistímabili. Liðið er sem stendur í áttunda sæti af þrettán liðum í úrvals- deildinni. Martin Hermannsson Guðlaug Edda Hannesdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.