Morgunblaðið - 08.03.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 08.03.2021, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. MARS 2021 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Kraftur í KR kl. 10.30, rútan fer frá Vesturgötu kl. 10.10, Grandavegi 47 kl. 10.15 og Afla- granda kl. 10.20. Útskurður kl. 13. Kaffi kl. 14.30-15.20. Vegna fjölda- takmarkana þarf að skrá sig í viðburði hjá okkur. Grímuskylda er í Samfélagshúsinu, gestir bera ábyrgð á að koma með eigin grímu og passa uppá sóttvarnir. Upplýsingar í síma 411 2702. Allir velkomnir. Árskógar Smíðastofa með leiðb. kl. 9-14. Leikfimi með Hönnu kl. 10. Opin vinnustofa kl. 9-12. Handavinnuhópur kl. 12-16. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Ensku kl. 14. Kaffisala kl. 14.30-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. Grímuskylda og það þarf að skrá sig í viðburði eða hópa: 411 2600. Boðinn Myndlist kl. 13-16. Munið grímuskyldu og tveggja metra regluna. Sundlaugin er opin frá kl. 13.30-16. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Opið frá kl. 8.10-16. Kaffisopinn góður er kl. 8.10-11. Opin Listasmiðja kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11.30- 12.30. Mannamál með Helgu Margréti kl. 12.40-13.30. Tálgun með Valdóri kl. 13-15.30, fellur niður í dag. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir óháð aldri og búsetu. Hjá okkur er grímuskylda og vegna fjöldatakmarkanna þarf að skrá sig fyrirfram. Nánari upplýsingar í síma 411 2790. Garðabæ Poolhópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13. Stólajóga í Jónshúsi kl. 10 og 11. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 12.40. Zumba í sal í kjallara Vídalíns- kirkju kl. 16.30 og 17.15. Vatnsleikfimi Sjál kl. 14 og 14.40. Litlakot opið kl. 13-16. Munið sóttvarnir. Gjábakki Kl. 8.30-10.30 handavinnustofa opin, bókið komu daginn áður. Kl. 8.45-10.45 postulínsmálun. Kl. 10.50 Jóga, kl. 11.30-12.30 matur, kl. 13.30-15.30 handavinnustofa opin fyrir spjall - bókið daginn áður. Kl. 14.30-16 kaffi og meðlæti. Gullsmára Handavinna kl. 9 og 13. Jóga kl. 9.30 og 17. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Opin handavinna kl. 9-14. Hádegismatur kl. 11.30. Samsöngur kl. 13.15-14. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Jóga með Kristrúnu kl. 9.15. Minningahópur kl. 10. Jóga með Ragnheið Ýr á netinu kl. 11.15. Stólaleikfimi kl. 13.30. Gönguhópur – lengri ganga kl. 13.30. Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga kl. 8.30 í Borgum. Starfsmanna- fundur Borgardætra kl. 8.30 í Borgum. Ganga kl. 10 frá Borgum, Grafrvogskirkju og inni í Egilshöll, þrír styrkleikahópar. Dansleikfimi með Auði Hörpu kl. 11 í Borgum allir með. Prjónað til góðs og frjáls skartgripagerð kl. 13 í listasmiðju Borga. Tréútskurður á Korpúlfs- stöðum kl. 13 og línudans með Guðrúnu kl. 14 í dag í Borgum allir velkomnir. Samfélagshús Vitatorgi Í dag er leirmótun í smiðju 1. hæðar kl. 9- 12.30. Núvitund hefst í handverksstofu kl. 10 og á sama tíma er einnig viðvera hjúkrunarfræðings. Eftir hádegi, kl. 13-15.30 er Handaband í handverksstofu 2. hæðar. Þá verður farið í gönguferð kl. 15, mæting í móttöku 3. hæðar. Við minnum á að grímuskylda er fyrir alla í félagsstarfinu. Hlökkum til að sjá ykkur! Seltjarnarnes Gler á neðri hæð félagsheimilisins kl. 9 og 13. Leir á Skólabraut kl. 9. Billjard í Selinu kl. 10. Kaffispjall í króknum alla virka morgna. Jóga / leikfimi með Öldu í salnum á Skólabraut kl. 11. Handavinna, samvera og kaffi í salnum á Skólabraut kl. 13-16. Ath á morgun þriðjudag 9. mars fellur fyrirhuguð helgistund á Skólabraut niður. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bílar Nýr Renault Zoe 52 kWh með leðursætum. Drægni um 390 km. Vel útbúnir bílar með 360°. Myndavél ofl. Litir Svartur - hvítur og dökkgrár. Okkar verð aðeins 4.690.000,- www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. Húsviðhald mbl.is alltaf - allstaðar Vantar þig fagmann? FINNA.is Okkur er gefið eitt líf og er það okk- ar verkefni að fara vel með það, finna þá leið sem hentar, vinna úr þeim verkefnum sem verða á vegi okkar, vera stolt af því sem vel fer og læra af því sem mið- ur fer. Þessu lífi vonumst við öll til að lifa fram á gamalsaldur, það eru hins vegar ekki allir sem fá það tækifæri og eru ástæðurnar marg- ar en oftast óskiljanlegar. Elskulega móðir mín greindist með erfiðan sjúkdóm sem hægt og rólega stal öllum minningum hennar og lífsgæðum. Fyrst fór það sem minna skipti máli, síðan hurfu uppeldisminningar, staðir og kennileiti, minningar með vin- um, fjölskyldu, börnum og barna- börnum og svo undir lokin þá hurfu allar minningar, hún þekkti sitt fólk ekki lengur og líkaminn varð þreyttur og máttvana. Yndislega móðir mín svo já- kvæð, brosmild, vinur allra, þús- undþjalasmiður, úrræðasöm, rétt- lát og stolt kona. Ég er svo þakklát fyrir þig og okkar yndislegu vin- áttu, þú varst móðir sem alltaf var til staðar, gott að leita til enda svör Ásgerður Ásmundsdóttir ✝ Ásgerðurfæddist 6. jan- úar 1940. Hún lést 10. febrúar 2021. Útför Ásgerðar fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. þín svo rökrétt. Ég sakna þess mikið að geta ekki leitað til þín eða þú til mín. Elsku mamma mín, takk fyrir að vera þú. Mér leið alltaf vel í nærveru þinni, ávallt nóg að ræða enda þú full af skemmtileg- um frásögnum, allar bréfaskriftirnar á milli okkar á þeim tíma sem við fjölskyldan bjuggum í Ástralíu. Ég trúi því að nú líði þér vel, hafir hitt ömmu og afa, sem ég bið að heilsa. Nú kveð ég þig með miklum söknuði en þú munt alltaf eiga pláss í hjarta mínu og minn- ing um þig ávallt ofarlega og skýr. Læt fylgja fallega bæn sem amma kenndi mér og þú hélst síðan uppi, bæn sem ávallt var farið með fyrir svefninn. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Elsku mamma mín, hvíl í friði. Þín dóttir, Hrefna. Góð kona hefur kvatt. Það er með þakklæti sem ég minnist hennar Ásgerðar tengdamóður minnar og ömmu barna okkar Hrefnu, margar góðar og skemmtilegar minningar sem gott er að hugsa aftur til. Hún Ásgerð- ur var ekki bara góð kona, hún var frábær tengdamóðir og klárlega æðisleg móðir og amma. Það var í nóvember 1985 sem við Ásgerður hittumst fyrst. Þann- ig var að við Hrefna dóttir Ásgerð- ar vorum glænýtt kærustupar og nú var rétti tíminn til að kynna nýja kærastann fyrir mömmu sinni. Þau kynni voru góð og á eftir fylgdu mörg enn betri ár með samverustundum sem gott er að hugsa til. Mér leið vel í nærveru Ásgerðar allt frá fyrstu kynnum, það sem tengdi okkur var sameig- inleg ástríða fyrir útivist og gátum við strax spjallað og spjallað um fjallgöngur, tjöld, skó, bakpoka, nesti og nánast allt sem tengdist því að þvælast fótgangandi um holt og hæðir. Það voru margar ferðasögurnar sagðar og enn fleiri myndir skoðaðar af fjallaferðum, aðallega hennar myndir af því að ég átti nú ekki myndavél til að byrja með, en hún kom pínu síðar. Við töluðum þá oft um filmur, en um filmur vissi Ásgerður ansi miklu meira en ég. Þetta á ekki að vera löng grein um samferð okkar en minningin er yndisleg og veit ég að við fjöl- skyldan erum heppin og óendan- lega þakklát fyrir okkar dýrmætu minningar frá samverustundum við góðan vin, yndislega og ást- kæra ömmu, móður og tengda- móður. Stefán Axelsson. Sárt er að kveðja elsku ömmu okkar sem tekin var frá okkur allt of snemma. Amma var okkur góð og hjálpsöm, kona sem sniðug var að gera mikið úr litlu, eins og hennar hugmyndir að föndri og leik. Það var alltaf gott að koma til ömmu, hjá ömmu fengum við ávallt ristabrauð, sem var smurt með smjörva og osturinn sem sett- ur var á brauðið var skorinn með ostaskera, ekki hvaða ostaskera sem var, heldur var þessi skeri gæddur töfrum sem gerði rista- brauðið hennar ömmu það besta í heimi. Það eru svo margar stund- irnar sem við fjölskyldan áttum með ömmu, hvort sem það var vet- ur, sumar, vor eða haust, já, elsku amma okkar var mikið með okkur. Amma hafði gaman af allri útiveru sem við fengum að njóta með henni. Þá var nú líka notalegt að vera inni og spila snákaspilið, lúdó, ólsen ólsen eða bara skemmtileg- an veiðimann. Við vitum í dag að hún leyfði okkur að vinna hana í spilum. Það kom fyrir að við gist- um helgi og helgi hjá ömmu eða hún kom til okkar og gætti okkar yfir helgi, jafnvel viku. Þar sem ömmu fannst gaman að lesa, þá nutum við lestrar hennar fyrir svefninn, hillur hennar voru fullar af bókum, ekki bara fullorðinsbók- um heldur líka skemmtilegum og gömlum barnabókum, hún las vel og lék raddir sem gerði lestur hennar skemmtilegan, þá var komið að því að fara með bænir og síðan knúsað fyrir svefninn. Hjá ömmu fundum við fyrir mikilli hlýju, ást og umhyggju. Við kveðjum þig með söknuði en jafnframt þakklæti fyrir að hafa kynnst þér, eins yndislegri ömmu sem þú ert. Hafðu það gott í sumarlandinu, við elskum þig. Þín ömmubörn, Harpa Lind og Axel Gerðar. ✝ Baldur fæddistá Ísafirði 23. júní 1944. Hann lést á Sjúkrahúsi Siglufjarðar 16. febrúar 2021. Foreldrar hans voru Bóas Daði Guðmundsson frá Fossum í Skutuls- firði, f. 20.3. 1919, d. 6.1. 1969, og Þórveig Hulda Sigurbaldursdóttir frá Ísafirði, f. 21.5. 1921, d. 28.5. 1955. Eldri systir Baldurs er Minný, f. 19.6. 1939. Yngri bræður Baldurs eru þeir Alfreð Ómar, f. 10.12. 1946, Veigar Már, f. 6.8. 1950, og Viktor Daði Bóasson, f. 24.8. 1952, d. 19.12. 2012. ling Karl, f. 1.12. 1987, Atli Freyr, f. 6.6. 1989, og Hildur, f. 27.6. 1998. Fyrst um sinn bjuggu Baldur og Hrólfdís í Kópavogi en árið 1970 fluttu þau til Siglufjarðar og hafa búið þar síðan. Fljót- lega eftir að þau fluttu á Siglu- fjörð keyptu þau Matstofu Siglufjarðar og ráku þau Mat- stofuna í nokkur ár en eftir þann tíma sneri Baldur sér nær alfarið að störfum tengdum sjávarútvegi. Baldur byrjaði ungur á sjó og var bæði á togurum sem og í smábáta- og trilluútgerð. Einnig vann hann í Síldarverk- smiðjum ríkisins um tíma, ásamt því að þau hjón ráku blómabúð til fjölda ára. Eftir að sjómennskunni lauk vann hann í Sundhöll Siglu- fjarðar um stundarsakir og síð- ustu ár starfsævinnar vann hann við beitningu fyrir línu- báta. Útförin fram 27. febrúar í kyrrþey að ósk hins látna. Yngri hálfbróðir Baldurs var Ragn- ar Þór Bóasson, f. 13.8. 1958, d. 12.3. 2016. Baldur kvæntist Hrólfdísi Hrólfs- dóttur 17. júní 1969. Saman eiga þau einn son, Jón Hrólf Baldursson. Maki hans er Ólöf Kristín Daníels- dóttir og börn þeirra eru: Emma Hrólfdís, fædd 17. febr- úar 2009, Ellen Daðey, fædd 5. júlí 2012, og Ellý Þórveig, fædd 16. janúar 2020. Fyrir átti Baldur dótturina Auði, f. 4.5. 1962. Maki Erling Pétur Erlingsson, f. 29.4. 1964. Börn Auðar og Erlings eru Er- Baldur Bóasson er fallinn frá. Við minnumst Balda með hlýhug. Hann var einstakur öðlingur og húmoristi í okkar huga og trygg- lyndur mjög. Við urðum þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast Balda og eigum við honum mikið að þakka. Baldi var okkar helsti og besti ráðgjafi og hjálparhella við uppeldi hunds sem við tókum að okkur í desember 2003. Stuttu eftir að Depill kom til okkar leituðum við ráða hjá Balda. Ferfætlingurinn naut heldur betur velvildar, gleði og trygglyndis Balda þau þrettán ár sem hann var hjá okkur. Nánast daglega mætti Baldi um hádegisbil til að taka hundinn með í göngu suður á fjörð og oft og tíðum var Hrólfdís með í för. Ósjaldan var Depli boðið í mat eftir göngutúrinn. Var þá vel veitt og höfum við vissu fyrir því að hundurinn fékk sömu rétti á sinn disk og húsráðendur enda fannst Balda þurrfóður ekki merkilegur matur fyrir þennan vin sinn. Í hvert skipti sem við þurftum að bregða okkur af bæ átti Depill öruggt athvarf hjá þeim heiðurs- hjónunum Balda og Hrólfdísi, hvort sem um var að ræða lengri eða skemmri tíma og í einu af mörgum skiptum þegar við komum til að ná í hundinn skreið hann und- ir sófa og vildi ekki fara heim. Oftar en ekki þegar við komum heim úr vinnu lá hundurinn á mott- unni og slakaði á eftir ævintýri dagsins með Balda. Við ólina var miði með skilaboðum til okkar um að hann hefði fengið vel að éta hjá vini sínum. Gjarnan voru skilaboðin í formi vísu : Ekki dapur Depill karl Drottinn veit af sínum Baldi greyið bauð mér snarl af birgðum sínum. Við fjölskyldan í Grundargötu 12 erum ævarandi þakkát fyrir að hafa fengið að kynnast öðlingnum Baldri Bóassyni og erum þess full- viss að honum hafi verið fagnað í annarri tilveru af vinum sínum og ekki síst þeim ferfættu. Við sendum Hrólfdísi og fjöl- skyldu okkar dýpstu samúðar- kveðjur. Minningin um góðan dreng lifir. Jónína Magnúsdóttir, Ragnar Aðalsteinsson. Baldur Þór Bóasson Það þótti saga til næsta bæjar þegar fréttist á seinasta ári síðustu aldar að trillukarl á Akra- nesi reyndist vera skattakóngur á Vesturlandi. Svo vildi til að Sigvaldi Loftsson frá Hafnar- Sigvaldi Guðbjörn Loftsson ✝ Sigvaldi Guð-björn Loftsson fæddist 10. mars 1931. Hann lést 22. febrúar 2021. Útför hans fór fram 5. mars 2021. hólma í Strandar- sýslu hafði selt gömlu, góðu trill- una sína. Henni fylgdi kvóti sem var var afleiðing ára- tuga dugnaðar Sig- valda við sjósókn. Við söluna tengdist hár skattstofn sem varð til þess að Sig- valdi varð skatt- kóngur Vesturlands 2000. Líklegt þykir mér að fáir alþýðumenn á Íslandi hafi verið jafnstoltir í hjarta sínu að hafa lagt meira til samfélagsins en forstjórar, framkvæmdamenn, útgerðarmenn, júristar og aðrir athafnamenn það árið vestan- lands. Sigvaldi hafði verið kvæntur móðursystur minni, Ágústínu Hjörleifsdóttur, hátt í 70 ár. Í Morgunblaðinu í byrjun apríl 1953 er greint frá trúlofun þeirra og í framhaldi stofnun heimilis. Þau bjuggu lengi að Stekkjarholti 22 á Akranesi, þar sem mér telst til að þau hafi bú- ið alla tíð frá því að húsið var byggt. Oft var ég í bernsku minni og lengi síðan gestkom- andi hjá þeim hjónum. Í fyrstu var húsið þeirra langt fyrir utan meginbyggðina, nánast uppi í sveit, aðeins Garðar og Mjólk- urstöðin voru innar. Alltaf var yndislegt að heimsækja þau hjónin sem tóku gangandi frændum sínum fagnandi, Ró- bert systrungi mínum og mér. Síðar áttum við lengi mjög góð samskipti og ræddum sam- an. Við fjölskyldurnar áttum frí- stundahús við norðurströnd Skorradalsvatns og sóttum þangað í kyrrð og nutum hvíldar í sveitinni. En oft fór svo að meira var að starfa þar og það á við fólk sem stöðugt finnur sér eitthvað að starfa. Nú er komið að þeirri stundu að sjá á eftir góðum vini. Fjöl- skyldu, ættingjum og vinum og einkum Stínu frænku er vottuð innileg samúð. Við eigum góðar minningar um Sigvalda Loftsson frá Hafn- arhólma á Ströndum. Blessuð sé minning hans. Guðjón Jensson, Mosfellsbæ.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.