Morgunblaðið - 08.03.2021, Page 13
AFP
Sanaa Svartur reykur liðaðist yfir höfuðborgina eftir loftárásir Sádi-Araba.
Ras Tanura, ein af olíuhöfnum Sádi-
Arabíu, varð fyrir drónaárás í gær-
kvöldi og reynt var að skjóta eldflaug
á íbúðahverfi í borginni Dhahran, þar
sem starfsmenn olíufélagsins
Aramco hafa búsetu. Engan sakaði í
árásunum, en þær voru raktar til
uppreisnarmanna úr hópi Húta í
Jemen.
Fyrr um daginn varpaði flugher
Sádi-Araba sprengjum á höfuðborg-
ina Sanaa, en hún er á valdi Húta, en
loftárásin var sögð í refsiskyni fyrir
fjölda eldflauga- og drónaárása um
helgina. Sögðu talsmenn Húta að
minnst sjö sprengjum hefði verið
varpað á borgina, en þykkur reykur
stóð upp af þeim stöðum þar sem þær
lentu.
Árásirnar á báða bóga í gær þóttu
marka upphaf harðari átaka á milli
Sádi-Araba og uppreisnarmanna
Húta, en þeir njóta stuðnings ír-
anskra stjórnvalda.
Sögðu stjórnvöld í Sádi-Arabíu að
þau hefðu stöðvað minnst 12 dróna og
2 meðaldrægar eldflaugar á sunnu-
daginn. Sagði í fréttatilkynningu
stjórnvalda að þeim hefði verið miðað
á borgaraleg skotmörk í Sádi-Arabíu,
og að slík hegðun fæli í sér „rautt
strik“ og yrði ekki látin óátalin.
Uppreisnarmenn
svara árásum Sáda
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. MARS 2021
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Kórónuveiran er aftur sögð á uppleið
í Evrópu eftir að tilfellum hafði fækk-
að jafnt og þétt í sex vikur þar á und-
an. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
WHO varaði við því fyrir helgi að til-
fellum kórónuveirunnar í álfunni
hefði fjölgað um 9% á einni viku. Hef-
ur nú rúmlega ein milljón Evrópubúa
smitast af kórónuveirunni, en Hans
Kluge, yfirmaður Evrópudeildar
WHO, sagði að rúmlega helmingur
þeirra ríkja sem falla undir deildina
hefði séð fjölgun tilfella í vikunni sem
leið.
Sagði Kluge að nýrra tilfella yrði
einkum vart í ríkjum Mið- og Austur-
Evrópu, en að einnig mætti sjá
nokkra fjölgun í álfunni vestanverðri,
en þar hefði nýgengið verið hátt fyrir.
„Við verðum að fara aftur í grunn-
atriðin,“ sagði Kluge og bætti við að
það yrði að fjölga þeim bóluefnum
sem væru á markaði í Evrópu gegn
veirunni.
45 af þeim 53 ríkjum sem falla und-
ir Evrópudeild WHO hafa þegar haf-
ið bólusetningarherferð, en sam-
kvæmt heimildum AFP-fréttastof-
unnar var búið að bólusetja um 2,6%
af íbúafjölda Evrópusambandsins
fyrir helgi, og 5,4% höfðu fengið einn
skammt af bóluefni.
Ræða við Bandaríkin
Evrópusambandið hyggst hefja
viðræður í dag við Bandaríkjamenn
til að tryggja að þau bóluefni sem
bandarískir framleiðendur standa
að muni berast á réttum tíma til
ríkja sambandsins, en harðar út-
flutningshömlur eru nú í gildi í
Bandaríkjunum á bóluefnum og/eða
ýmsum fylgihlutum þeirra og hrá-
efnum.
Sagði heimildarmaður AFP-frétta-
stofunnar innan Evrópusambandsins
að tilgangur viðræðnanna væri eink-
um sá að liðka fyrir útflutningi þann-
ig að þegar framleiðsla bóluefna næði
sér á strik innan sambandsins væri
ekki skortur á neinu sem þyrfti til.
Sambandið hefur sjálft gripið til
útflutningshamla á bóluefni, en ítölsk
stjórnvöld ákváðu fyrir helgi að
banna útflutning á um 250.000
skömmtum af bóluefni AstraZeneca
til Ástralíu.
Segja ítölsk stjórnvöld að bannið
hafi verið nauðsynlegt með tilliti til
reglna ESB, sem settar voru í síðasta
mánuði þegar deilur sambandsins við
AstraZeneca stóðu sem hæst. Rök-
studdu Ítalir bannið einnig með því
að bóluefnanna væri frekar þörf í
Evrópu en í Ástralíu. Scott Morrison,
forsætisráðherra Ástralíu, sagði á
föstudaginn að ákvörðunin myndi
ekki hafa nein áhrif á bólusetningar-
herferð landsins, en að hann myndi
engu að síður ræða við forsvarsmenn
sambandsins um að þeir endurskoð-
uðu ákvörðun sína.
Faraldurinn á örri uppleið í Evrópu
9% fjölgun tilfella í ríkjum álfunnar á einni viku ESB ræðir við Bandaríkin um útflutningshömlur
Þúsundir mótmælenda flykktust út á götur Jan-
gon og annarra helstu borga Búrma, einnig
þekkt sem Mjanmar, til að mótmæla herfor-
Kyi aðfaranótt sunnudags, en embættismaður úr
stjórnarflokknum NLD var laminn til bana með-
an á rassíunni stóð.
ingjastjórninni þar í landi. Mótmæltu þeir sér-
staklega fantatökum hersins, sem hóf fjölda-
handtökur á stuðningsmönnum Aung San Suu
AFP
Þúsundir flykktust út á götur Jangon til að mótmæla
Lloyd Austin,
varnarmálaráð-
herra Banda-
ríkjanna, hét því
í gær að Banda-
ríkin myndu
gera það sem
þyrfti til þess að
verja sig gegn
árásum. Vísaði
Austin þar til
eldflaugaárása á
herbækistöð í Írak þar sem m.a.
bandarískir hermenn dvöldust.
Enginn hermaður lést í árás-
unum, en Bandaríkjamaður sem
var verktaki fékk hjartaáfall og
lést af völdum þess skömmu síðar.
Þetta var fjórða eldflaugaárásin í
Írak á síðustu þremur vikum.
Sagði Austin við ABC-
fréttastöðina að enn væri verið að
kanna hver bæri ábyrgðina á
árásunum, en böndin hafa beinst
að írönskum stjórnvöldum sem
áður hafa staðið að svipuðum
árásum á bandaríska hagsmuni í
Írak.
Sagði Austin að verið væri að
þrýsta á írösk stjórnvöld að flýta
rannsókn sinni á málinu, og hét
því að Bandaríkjamenn myndu
svara fyrir sig í sömu mynt ef
þess væri talin þörf.
Munu verja sig
með öllum ráðum
Lloyd
Austin
BANDARÍKIN