Morgunblaðið - 17.03.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 17.03.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MARS 2021 hafðu það notalegt í vetur vottun reynsla ára ábyrgð gæði miðstöðvarofnar Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - sími 577 5177 - ofnasmidja.is Eigum úrval af miðstöðvar- og handklæðaofnum Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Heildarorkukostnaður heimila á ári vegna rafmagns og húshitunar, fyrir sambærilega eign á landinu er hæstur í dreifbýli þar sem ekki er hitaveita eða 312 þúsund kr. Heildarkostnaður- inn í þéttbýli er hæstur 284 þúsund kr. á Hólmavík og öðrum þéttbýlisstöðum á Vestfjörðum með beina rafhitun og þar næst 279 þúsund kr. á þétt- býlisstöðum annars staðar á landinu þar sem er rafhitun, þ.m.t. á Grund- arfirði, í Neskaupstað, á Reyðarfirði og á Vopnafirði. Lægsti heildar- orkukostnaður landsins er á Seltjarn- arnesi, 145 þúsund kr., en þar næst á Flúðum, 155 þús. kr., og í Mosfellsbæ, 160 þús. kr. Þessar upplýsingar koma fram í ný- birtum samanburði á orkukostnaði heimila 1. september í fyrra sem Orkustofnun hefur reiknað út fyrir Byggðastofnun, sem birtir hana á vef sínum. Viðmiðunareignin er 140 fer- metra einbýlishús. Í ljós kemur að munur á milli lægsta mögulega raforkuverðs og al- gengasta verðs hefur vaxið síðustu ár. „Árið 2017 var munurinn mestur 2,1% á höfuðborgarsvæðinu og á Akranesi en fór í 3,8% árið 2018 og 4,7% 2019 á sömu stöðum. Nú er munurinn enn meiri og er nú mestur 5,4%.“ Lægsti húshitunarkostnaðurinn er á Flúðum og Seltjarnarnesi, um 66 þúsund kr. á heimilið, og í Braut- arholti á Skeiðum, um 53 þúsund kr., og segir í skýrslunni að á þessum stöð- um sé því húshitunarkostnaður um þriðjungur af kostnaðinum þar sem hann er hæstur. Á höfuðborgarsvæð- inu er húshitunarkostnaður viðmið- unareignar hæstur í Reykjavík, Kópa- vogi, Garðabæ og Hafnarfirði, 106 þúsund kr. „Lægsti húshitunarkostn- aður höfuðborgarsvæðisins er á Sel- tjarnarnesi hjá Hitaveitu Seltjarnar- ness, um 66 þ.kr., en hann hefur hækkað um 19,1% frá 2014. Húshitunarkostnaður í Mosfellsbæ hjá Hitaveitu Mosfellsbæjar er einnig með minna móti eða 82 þ.kr. og hefur lækkað um 3,6% síðan 2014,“ segir þar enn fremur. Fram kemur að munurinn er tals- vert meiri á húshitunarkostnaði á milli svæða en á raforkuverði. „Lægsti mögulegi kostnaður þar sem húshitun er dýrust er um þrefalt hærri en þar sem húshitun er ódýrust. Lægsta mögulega verð er hæst á stöðum þar sem þarf að notast við beina rafhitun, meðal annars á Grundarfirði, á Hólmavík, á Neskaupstað, á Reyð- arfirði, í Vík og á Vopnafirði auk dreif- býlis á svæðum RARIK og Orkubús Vestfjarða.“ Birt hefur verið mæla- borð á vefnum þar sem hægt er að skoða orkukostnað á einstökum stöð- um. Vestmannaeyjar 229.809 Grundarfjörður 279.221 Reykjavík, Kópavogur og Garðabær (austur) 198.896 Hafnarfjörður og Garðabær (vestur) 187.493 Patreksfjörður 276.823 Hvammstangi 197.778 Reyðarfjörður 279.221 Vopnafjörður 279.221 Hvolsvöllur 244.638 Búðardalur 250.318 Drangsnes 229.299 Stokkseyri 204.249 Varmahlíð 178.182 Reykjahlíð 193.802 Reykhólar 256.563 Ísafjörður 276.539 Grindavík 175.849 Kópasker 271.334 Blönduós 250.318 Hrafnagil 183.010 Grenivík 273.606 Húsavík 188.974 Höfn 267.074 Vík 279.221 © 2021 Mapbox © OpenStreetMap 145 þús. 284 þús. Orkukostnaður á ári Orkukostnaður árið 2020 Kostnaður við rafmagnsnotkun og húshitun *Miðað við einbýlishús, 140 m2 að grunnfleti og 350 m3, 4.500 kWst í almennri rafmagnsnotkun og 28.400 kWst við húshitun. **Samkvæmt gjaldskrá 1. sept. 2020. Heimild: ByggðastofnunHeildarkostnaður, krónur á ári* – lægsta mögulega verð** Lægsti orkukostnaður Seltjarnarnes 144.852 Flúðir 154.610 Mosfellsbær 160.472 Hæsti orkukostnaður Vík 279.221 Vopnafjörður 279.221 Hólmavík 283.574 Vaxandi verðmunur - Heildarorkukostnaður heimila lægstur á Seltjarnarnesi en hæstur á Hólmavík samkvæmt samanburði Orkustofnunar Hlutfall eldri borgara hér á landi af heildarfjölda íbúa er lægra en í flestum öðrum Evrópulöndum. Nýr samanburður Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins, sýnir að hlut- fall 65 ára og eldri var 14,4% af íbúafjölda á Íslandi og á Írlandi í byrjun seinasta árs. Þetta er næst- lægsta hlutfallið í samanburði sem nær til 37 landa og var eingöngu lægra í Tyrklandi þar sem það var 9,1%. Eldri borgarar, 65 ára og eldri, eru ríflega fimmtungur allra íbúa í löndum Evrópusambandsins. Í elstu aldurshópunum hefur fjölgað um- talsvert á umliðnum árum. Hlutfall 65 ára og eldri af íbúafjölda í lönd- um ESB hefur hækkað um þrjú pró- sentustig á einum áratug. Á Íslandi hefur þetta hlutfall hækkað úr 13,2% í 14,2% frá árinu 2014. Tæpur fjórðungur Ítala Hæsta hlutfall aldraðra í ESB- löndunum var á Ítalíu í byrjun síð- asta árs eða 23,2% og næsthæst á Grikklandi og í Finnlandi eða 22,3% í hvoru landi um sig. Hlutfall aldraðra af mannfjöld- anum í Svíþjóð í fyrra var 20%, í Danmörku 19,9% og 17,5% íbúa Noregs voru 65 ára eða eldri. Aldraðir 2,7% íbúa Mayotte Hagstofan skoðaði einnig fjölda aldraðra á einstökum landsvæðum og í héruðum og borgum í nokkrum löndum. Hlutfall aldraðra er t.a.m. mun hærra meðal íbúa í borginni Chemnitz í austurhluta Þýskalands eða 29,3% en í landinu öllu þar sem það er 21,8%. Eldri borgarar eru aftur á móti ekki fyrirferðarmiklir meðal íbúa í Mayotte í Frakklandi þar sem þeir eru aðeins 2,7% af íbú- um og 6,1% íbúa í Franska Gvæjana. omfr@mbl.is Eldra fólk á Ís- landi 14,4% íbúa - Eurostat ber saman hlutfall eldri borgara af íbúafjölda í Evrópu Morgunblaðið/Eggert Á myndlistarsafni Hlutfall 65 ára og eldri af íbúafjöldanum fer vaxandi. Vegagerðarmenn hafa þrengt að umferð á Suðurstrandarvegi nálægt Festarfjalli, lækkað hámarkshraða og sett þungatakmarkanir á vegna skemmda sem komu í ljós í fyrradag og í gærmorgun. Skemmdirnar eru afleiðingar jarðskjálfta sem þar hafa orðið. Sprungur hafa myndast við axlir og í fyllingu og fylling einnig sigið töluvert þannig að vegrið hefur ekki fullan stuðning á nokkrum köflum, samkvæmt upplýsingum frá Vega- gerðinni. Vegurinn hefur einnig sprungið þvert á nokkrum stöðum. Ekki er að sjá að vegurinn sjálfur hafi sigið. Þrengt er að umferð þar sem mestu skemmdirnar eru. Stórir flutningabílar geta ekki notað veginn á meðan sjö tonna þungatakmark- anir eru í gildi. Stórir skjálftar riðið yfir Eftir er að skoða skemmdirnar betur og meta burð í vegbrúninni, að sögn G. Péturs Matthíassonar upp- lýsingafulltrúa. Jafnframt þarf að skipuleggja viðgerðir. Segir hann að vegurinn teljist ekki hættulegur veg- farendum með þeim ráðstöfunum sem gripið hefur verið til. Vegagerð- in hvetur vegfarendur þó til að fara varlega um veginn og svæðið allt enda sé skjálftavirknin áframhald- andi og breytingar geti orðið. Skemmdirnar komu í ljós í fyrra- dag og í gærmorgun. G. Pétur segir að vegurinn sé vel vaktaður. Hann segir þó ekki hægt að tengja þær neinum tilteknum jarðskjálfta en þeir hafa verið margir. Stærsti skjálftinn að undanförnu var á sunnudag, um klukkan hálf fjögur, 5,4 að stærð, en hann varð einmitt undir Suðurstrandarvegi, nokkra kílómetra niðri í jarðskorpunni. Hætta vegna grjóthruns Jarðskjálftarnir á Reykjanesi hafa einnig haft þær afleiðingar að grjót hefur hrunið úr fjöllum. Vegna þess hvetur lögreglan á Suðurnesjum göngufólk til að gæta varúðar í fjall- lendi á svæðinu. Ekki er þó einungis hætta á ferðinni í fjalllendi, heldur einnig við strendur skagans. Vart hefur orðið við mikið grjóthrun úr sjávarhömrum vestan við Festar- fjall, í grennd við Grindavík. Gera má ráð fyrir slíku hruni víðar, svo sem við Krýsuvíkurbjarg og Vala- hnjúk við Reykjanesvita. helgi@mbl.is Ljósmynd/Vegagerðin Suðurstrandarvegur Fylling utan á öxlum vegarins hefur sigið og sprunga myndast. Vegrið nýtur ekki lengur fulls stuðnings frá uppistöðum sínum. Skemmdir á vegi vegna skjálftanna - Aka þarf varlega við Festarfjall

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.