Morgunblaðið - 17.03.2021, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MARS 2021
HLÍÐASMÁRI 19, 2.HÆÐ · 201 KÓPAVOGI · SÍMI 534 9600
Hljóðnemi í hlustinni notar hæfni eyrans til að safna upplýsingum sem heilinn þarf til að skilja hljóðin.
Auðveldara að taka þátt í samræðum í virku hljóðumhverfi.
Betri talgreining um leið og bakgrunnshávaði er lágmarkaður í háværu hljóðumhverfi.
Fjarþjónusta. Fáðu heyrnartækin þín stillt án þess að mæta á staðinn.
NÝ TÆKNI!
NÝ BYLTINGARKENND HEYRNARTÆKI
MEÐ ÞREMUR HLJÓÐNEMUM
FAGLEG ÞJÓNUSTA HJÁ LÖGGILTUM HEYRNARFRÆÐINGI
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur
hafnað ósk um sameiningu tveggja
lóða í Kvosinni í Reykjavík, Póst-
hússtrætis númer 3 og 5. Á lóðunum
standa tvö sögufræg hús, gamla lög-
reglustöðin og gamla pósthúsið.
Synjunin var ákveðin á grundvelli
umsagnar verkefnisstjóra.
Það voru THG arkitektar sem
sendu inn framangreinda fyrirspurn
fyrir hönd eiganda húsa á lóðunum,
fasteignafélagsins Reita.
Fram kemur í umsögn verk-
efnastjóra skipulagsfulltrúa að
ástæða fyrirspurnar sé fyrirhuguð
viðbygging við Pósthússtræti 5 sem
að hluta til verður staðsett á lóð Póst-
hússtrætis 3. „Eins og fram kemur í
aðalskipulagi um borgarvernd skal
vernda grunnmynstur byggðarinnar
og lóðafyrirkomulag í eldri hlutum
borgarinnar – ekki síst í Kvosinni.
Ekki skal sameina lóðir nema mjög
sérstakar aðstæður séu fyrir hendi.
Rök fyrir sameiningu lóðanna nr. 3
og 5 við Pósthússtræti eru ekki talin
nægilega sterk,“ segir í umsögninni.
Hins vegar mætti skoða minni háttar
tilfærslu/hliðrun á mörkum lóðanna.
Reitir áforma að endurbyggja bak-
byggingu í portinu bak við húsin, alls
132 fermetra, og byggja við hana
létta 140 fm viðbyggingu. Nýbygg-
ingin verður ein hæð og kjallari, eins
og núverandi bakbygging. Fyrir-
hugað er að koma fyrir veitinga-
starfsemi á 1. hæð og kjallara Póst-
hússtrætis 5 (pósthúsinu).
Markmiðið með endurbótum og við-
byggingu í portinu sé að bæta að-
gengi hreyfihamlaðra og fegra port-
ið, sem snýr að Hafnarstræti.
Nýbyggingin verði vönduð og muni
taka mið af núverandi byggingum.
Minjastofnun hafi ekki gert at-
hugasemdir við þessar fram-
kvæmdir. Fyrirhugaðar fram-
kvæmdir verða unnar í samráði við
stofnunina.
Reitir fasteignafélag hf. sótti í des-
ember í fyrra um leyfi til þess að
breyta núverandi starfsemi á 1. hæð
gamla pósthússins í Pósthússtræti 5 í
mathöll með alls 12 rekstrarein-
ingum. Staðurinn á að rúma samtals
161 gest í sæti á 1. hæð og 28-50 í
kjallara, eða allt að 211 gesti.
„Rólegar“ vínveitingar
Veitingastaðirnir í mathöllinni
verða í flokki ll, tegund C. Í reglu-
gerð er þessari tegund veitingastaða
þannig lýst: „Umfangslitlir áfengis-
veitingastaðir þar sem starfsemin er
ekki til þess fallin að valda ónæði í
nágrenninu, svo sem með háværri
tónlist, og afgreiðslutími er ekki
lengri en til kl. 23 og kalla ekki á mik-
ið eftirlit og/eða löggæslu.“
Húsið í Pósthússtræti 5 var reist
árið 1915. Það er í klassískum stíl og
er síðasta verk Rögnvalds Ólafs-
sonar, sem kallaður hefur verið fyrsti
íslenski arkitektinn. Þegar Íslands-
póstur hætti rekstri pósthúss þar í
nóvember 2018 lauk einnar og hálfr-
ar aldar póststarfsemi við Pósthús-
stræti
Pósthússtræti 3, gamla lög-
reglustöðin, sem fyrst var notað fyrir
barnakennslu, er hlaðið steinhús,
reist árið 1882. Það er hannað af
Frederik Anton Bald en Guðjón
Samúelsson húsameistari hannaði
þakbreytingu. Bæði húsin eru friðuð,
enda tengjast þau sögu barna-
kennslu, löggæslu og póst- og síma-
mála í Reykjavík.
Svokallaðar mathallir hafa rutt sér
til rúms í Reykjavík á undanförnum
árum og nú hillir undir fleiri slíkar.
Mathallir hafa verið starfræktar við
Grandagarð og á Ártúnshöfða. Auk
mathallarinnar við Pósthússtræti er
áformað að opna slíkar hallir í Borg-
artúni og Kaffi Reykjavík við Vest-
urgötu.
Fá ekki að sameina
lóðir í Pósthússtræti
- Mathöll með 12 veitingastöðum verði í gamla pósthúsinu og
minni byggingum í porti baka til - Húsin sögufræg og friðuð
Morgunblaðið/sisi
Pósthússtræti Gamla pósthúsið (rautt), þar sem mathöllin verður á 1. hæð.
Svarta húsið er gamla lögreglustöðin en í porti hússins verða útiveitingar.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Það er ekki eftir neinu að bíða við
undirbúning viðspyrnu við kórónu-
kreppunni. Það er samdóma álit
þeirra Jens Garðars Helgasonar,
framkvæmdastjóra Laxa, og Jó-
hannesar Þórs Skúlasonar, fram-
kvæmdastjóra Samtaka ferðaþjón-
ustunnar (SAF), en þeir eru gestir í
Þjóðmálunum, umræðuþætti Dag-
mála, sem birtur er í dag.
Þar var kórónukreppan í brenni-
depli, hvernig hún hefur leikið efna-
hags- og atvinnulíf landsins, hvernig
komast megi upp úr henni og hvaða
áskorana og breytinga sé helst að
vænta á því sviði.
Þeir félagar lýstu ólíkum að-
stæðum í ferðaþjónustu, sjávar-
útvegi og fiskeldi á dögum heims-
faraldursins, þar sem ferða-
þjónustan hefur nánast lagst í dvala,
en hinar hefðbundnari greinar
mallað áfram eins og vel smurð vél.
Þeir minntu hins vegar á að atvinnu-
lífið í litlu landi væri mjög samþætt
og einstakar greinar háðar hver ann-
arri. Jens Garðar dró þannig fram að
bæði sjávarútvegur og fiskeldi væru
háð viðskiptum við ferðaþjónustuna
og Jóhannes Þór minnti á að útflutn-
ingur á ferskum fiski, einhver arð-
bærasti hluti sjávarútvegsins, væri
háður tíðum flugferðum milli landa.
Kórónukreppan hefði verið að
miklu leyti linuð með skuldsetningu
ríkissjóðs, en þar hefði markmiðið
einnig verið að halda lífi í ferðaþjón-
ustunni. Það gengi þó ekki til eilífð-
arnóns og einstaklega mikilvægt að
ferðaþjónustan tæki að einhverju
leyti við sér í sumar, ætti hún að vera
lífvænleg. Fjárfesting í steinsteypu
og aðstöðu myndi vissulega lifa þótt
sumarið í ár brygðist, en það ætti
ekki við um þekkingu og mannauð,
sem myndi leita annað, eða það
markaðssamband, sem byggt hefði
verið upp á umliðnum árum.
Þá blasti við að þar munaði um
hvern dag og hverja viku, því sér-
hver töf á viðspyrnunni gæti lengt
þann tíma um mánuði eða ár, sem
tæki að vinda ofan af efnahags-
lægðinni og skuldsetningunni.
Dagmál eru einungis opin áskrif-
endum Morgunblaðsins, en þar birt-
ast daglegir viðtalsþættir um fréttir,
menningu, íþróttir, hagsmunamál,
dægurmál og fleira. Þá má finna á
mbl.is/dagmál
Morgunblaðið/Hallur
Dagmál Jens Garðar Helgason hjá Löxum og Jóhannes Þór Skúlason hjá
Samtökum ferðaþjónustunnar (SAF) í viðtali við Andrés Magnússon.
Liggur lífið á
í viðspyrnunni
Stjórn Samtaka fyrirtækja í vel-
ferðarþjónustu hefur sent frá sér
ályktun þar sem skorað er á heil-
brigðisráðherra að endurskoða af-
stöðu sína til uppsagna starfsfólks
hjúkrunarheimilanna í Fjarða-
byggð og Vestmannaeyjum. Að öðr-
um kosti beiti ráðherra sér fyrir
þeim lagabreytingum sem þörf er á
til að yfirfærsla rekstrarins frá
sveitarfélögum til stofnana ríkisins
gangi vel fyrir sig og kippi ekki fót-
unum undan starfseminni. „Næg
mistök hafa verið gerð í þessum
málum hingað til,“ segir þar.
Í ályktuninni kemur fram að þörf
er fyrir skýrt, gegnsætt og skilvirkt
verklag við yfirfærslu jafn við-
kvæmra verkefna og felast í heil-
brigðisþjónustu á milli rekstrar-
aðila, hvort sem ríkið eða annar
aðili á í hlut. Stjórnvöld verði að
gera sitt til að slík yfirfærsla hafi
lágmarksáhrif á þjónustunotendur,
þau geti ekki aðeins lagt þær kröf-
ur á aðra aðila.
Morgunblaðið/Golli
Seljahlíð Hjúkrunarheimili eru komin í rekstrar- og greiðsluerfiðleika.
Starfsfólki verði
ekki sagt upp
- Þörf á skýru verklagi við yfirfærslu