Morgunblaðið - 17.03.2021, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 17.03.2021, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MARS 2021 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Kjólar • Tunikur Blússur • Peysur Bolir • Jakkar • Vesti Verið velkomin Nýjar töskur Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Emer Cooke, forstjóri Lyfjastofnun- ar Evrópu, EMA, sagði í gær að hingað til hefði ekkert komið fram sem tengdi bóluefni Oxford-háskóla og AstraZeneca gegn kórónuveir- unni við aukna hættu á blóðtappa- myndun. Hvatti Cooke ríki Evrópu til þess að halda áfram bólusetning- um með efninu, en um 20 ríki hafa nú frestað þeim, þrátt fyrir að farald- urinn sé í uppgangi í álfunni. Sérfræðingar Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunarinnar, WHO, í örygg- ismálum bóluefna funduðu í gær með fulltrúum EMA og ræddu þau gögn sem fram eru komin um öryggi AstraZeneca-efnisins. Cooke sagði að stofnunin væri að fylgjast með mögulegum neikvæðum afleiðingum í öllum bóluefnum, ekki bara AstraZeneca. Greint hefur ver- ið frá um 37 tilfellum af blóðtappa í kjölfar bólusetningar með efninu, en búið er að gefa um 17 milljónir skammta af því. Er sú tíðni lægri en tíðni blóðtappa almennt. Faraldurinn er í miklum uppgangi á meginlandi Evrópu sem stendur og hafa nokkur ríki, eins og Noregur og Ítalía, hert á sóttvarnareglum sínum að undanförnu. Því hefur heyrst nokkur gagnrýni um að stjórnvöld í þessum ríkjum séu að slá bólusetn- ingum á frest vegna málsins. Ólga er sögð í þýsku ríkisstjórninni vegna málsins, en forsvarsmenn þýska Sósíaldemókrataflokksins SPD, samstarfsflokks Angelu Merkel kanslara, gagnrýndu ákvörðunina harðlega og sögðu hana sýna að rík- isstjórnin hefði enga skýra stefnu. Krafðist einn úr röðum SPD afsagn- ar Jens Spahn heilbrigðisráðherra, en óttast er að ákvörðunin muni draga úr trausti Þjóðverja á efninu, sér í lagi þar sem það var sagt öruggt í síðustu viku. Hafi fallið fyrir ofsahræðslu Ekki hafa öll Evrópuríki þó kosið að hætta við bólusetningu með AstraZeneca-efninu, en Michal Dworczyk, yfirmaður bólusetningar- herferðar Póllands, sagði að þau ríki „hefðu fallið fyrir ofsahræðslu sem fjölmiðlar hefðu ýtt undir með um- fjöllun um meintar aukaverkanir“. Utan Evrópu hafa Kanadamenn ákveðið að halda sínu striki, og skor- aði Justin Trudeau forsætisráðherra á samlanda sína að láta bólusetja sig, en fregnir hafa borist þaðan um aukna tregðu til bólusetningar með AstraZeneca vegna fréttanna. Þá ákvað Prayut Chan-O-Cha, for- sætisráðherra Taílands, að bólusetja sig með AstraZeneca, en landið af- létti banni sínu við efninu í gær. „Ég sýni fordæmi í dag,“ sagði Prayut. Engin tengsl hafa fundist - EMA segir ekkert benda til þess að bóluefni AstraZeneca auki líkur á blóðtappa - Faraldurinn í uppgangi í Evrópu - Kanadamenn hvattir til að bólusetja sig 2.000 ára gömul textabrot úr biblíunni, lúsakambur og tágakarfa sem sögð er um 10.500 ára gömul voru á meðal fornminja sem ísraelskir fornleifafræðingar sýndu í fyrsta sinn í gær. Leifarnar uppgötvuðust fyrir skömmu við uppgröft í suðurhluta Ísraels. Textabrotin úr Biblíunni voru á grísku og fundust í helli, sem nefndur er „Hryllingshellirinn“. Er þetta fyrsti slíkur fundur frá því að Dauðahafshandritin fundust árið 1960. Kolefnisrannsóknir segja að tágakarfan sem hér sést til hægri sé um 10.500 ára gömul og er hún því elsta slíka karfa sem varðveist hefur. Vanalega myndi viðurinn í körfunni hafa grotnað niður, en að- stæður í hellinum og eyðimerkurloftið varðveittu körfuna að sögn fornleifafræðinga. AFP Textabrot og tágakörfur Filippus prins, hertogi af Ed- inborg og eig- inmaður El- ísabetar 2. Bretadrottn- ingar, var í gær útskrifaður af St. Bartholomew’s- sjúkrahúsinu í Lundúnum, en prinsinn hefur glímt við hjartavandamál und- anfarnar vikur. Filippus er 99 ára gamall og stað- festi breska konungsfjölskyldan að hann væri nú aftur kominn til Wind- sor-kastala, en þar hefur hann dval- ist ásamt drottningunni í einangrun frá því að heimsfaraldurinn byrjaði. BRETLAND Filippus kominn heim af sjúkrahúsi Filippus, hertogi af Edinborg Kim Yo-jong, systir einræð- isherrans Kims Jong-un, varaði í gær Bandaríkja- menn við því að „valda púðurþef“ í samskiptum ríkjanna, en um- mæli hennar féllu í tilefni af ferð þeirra Lloyds Austin, varn- armálaráðherra Bandaríkjanna, og Antonys Blinken utanríkisráðherra til Japans og Suður-Kóreu. Ferð þeirra er ætlað að styrkja bandalag Bandaríkjanna við helstu bandamenn sína í Kyrrahafi og sporna um leið við ítökum bæði Kínverja og Norður-Kóreumanna. Kim Jong-un hefur ráð systur sinnar í miklum hávegum og þykir yfirlýsing hennar því vísbending um þankagang norðurkóreskra stjórnvalda gagnvart Bandaríkj- unum, en þetta var í fyrsta sinn sem Norður-Kóreumenn tala opin- berlega um Bandaríkjastjórn eftir að Joe Biden tók við forsetaemb- ættinu. Telja sérfræðingar í mál- efnum landsins líklegt, að Norður- Kóreumenn muni reyna að ögra Bandaríkjunum bráðum. NORÐUR-KÓREA Varar Bandaríkin við að „valda púðurþef“ Kim Yo-jong Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.