Morgunblaðið - 17.03.2021, Síða 24
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Kvikmynd Marteins Þórssonar,
Þorpið í bakgarðinum, verður frum-
sýnd í kvöld og hefjast almennar sýn-
ingar á föstudaginn kemur. Í mynd-
inni segir af fertugri konu, Brynju,
sem lýkur dvöl á heilsuhæli í litlum
bæ úti á landi en treystir sér ekki til
að snúa aftur til daglegs lífs í Reykja-
vík og kemur sér því fyrir á gisti-
heimili. Þar kynnist hún Englend-
ingnum Mark, fimmtugum
ferðamanni sem á líka erfitt með að
yfirgefa bæinn. Þau bindast vin-
áttuböndum og finna í sameiningu
færa leið um þrautirnar sem lífið hef-
ur lagt fyrir þau, eins og segir á vef
Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.
Handrit myndarinnar skrifaði
Guðmundur Óskarsson og framleiðir
hann einnig myndina með Marteini
en með helstu hlutverk fara Laufey
Elíasdóttir, Tim Plester, Eygló
Hilmarsdóttir, Sóley Elíasdóttir,
Sara Dögg Ásgeirsdóttir og Helgi
Svavar Helgason. Stjórn kvikmynda-
töku var í höndum Bergsteins Björg-
úlfssonar, um klippingu sáu Mar-
teinn og Valdís Óskarsdóttir og
tónlistina samdi Jófríður Ákadóttir.
Stígur Steinþórsson sá um leikmynd
og Aleksandra Koluder um búninga.
Tekin í Hveragerði
Marteinn býr í Hveragerði og rek-
ur þar gistiheimili með eiginkonu
sinni, rithöfundinum Guðrúnu Evu
Mínervudóttur, og heitir það einmitt
Backyard Village eða Þorpið í bak-
garðinum. Má því segja að hæg hafi
verið heimatökin við gerð mynd-
arinnar sem tekin var í Hveragerði
og nágrenni.
Marteinn og Guðmundur sömdu
söguna saman í sameiningu í byrjun
árs 2019 og var handritið tilbúið í
ágúst sama ár. „Við ætluðum í tökur í
nóvember en okkur seinkaði um
mánuð út af Tim Plester þannig að
við byrjuðum 1. desember 2019 og
myndin var tekin á ellefu dögum,“
segir Marteinn.
Blaðamaður hváir. Ellefu dögum?
Er það Íslandsmet, stystu kvik-
myndatökur Íslandssögunnar? „Ég
veit það ekki,“ svarar Marteinn og
hlær við, „en það gekk alla vega mjög
vel. Það hjálpaði til að við hönnuðum
myndina fyrir „micro budget“ pæl-
ingu, settum hálfgert dogma.“ Nefnir
Marteinn sem dæmi að aðalleikarar
hafi ekki mátt vera fleiri en tveir,
ákveðinn hámarksfjölda tökustaða
og fleira. „Við settum okkur ramma
til að geta unnið þessa mynd og þetta
er eitthvað sem við gætum gert
meira af á Íslandi,“ bendir Marteinn
á og að eftirvinnslustyrkirnir hjá
KMÍ séu ansi lágir. Kostnaðurinn
hafi farið hækkandi en sá styrkur
hefur ekki hækkað frá því í byrjun
þessarar aldar.
Með þrjár milljónir
í farteskinu
–Hvernig gekk þá að fjármagna
myndina?
„Við vorum heppnir að Síminn for-
keypti hana bara strax fyrir Sjón-
varp Símans Premium sem gerði
okkur kleift að fara í tökur. Svo feng-
um við líka fjárfestingu frá Upp-
byggingarsjóði Suðurlands, frá Sam-
tökum sunnlenskra sveitarfélaga,
SASS, sem gerði okkur kleift að fara
í tökur. En við vorum ekki með nema
tvær, þrjár milljónir til að fara í tök-
ur og tókum hana í raun fyrir þann
pening. Við sömdum líka við tökulið
og leikara um að þau fengju 20% af
hefðbundnum launum og svo full
laun ef við gætum klárað fjármögnun
alveg. Og það tókst, líkt og með XL,“
segir Marteinn en XL gerði hann
2013.
Um aðalpersónur myndarinnar,
Brynju og Mark, segir Marteinn að
þau séu bæði að díla við ákveðin áföll.
„Grunntónninn í þessu er fólk að díla
við sitt, áföll í lífinu og myndin byggir
svolítið á okkar reynslu. Ég hef sjálf-
ur verið að díla við þunglyndi og
kvíða, missi og annað sem fólk geng-
ur í gegnum og mig langaði að gera
mynd um það án þess að vera með
einhverjar tilfinningasprengingar
eða melódrama. Að gera þetta á lág-
stemmdan, mannlegan og einfaldan
hátt. Það er auðvelt að sökkva í til-
finningaklám en ég vildi standa fyrir
utan það, gefa fólkinu tíma og áhorf-
andanum rými til að skoða þessar
persónur, vera með þeim og taka
þátt í þessu persónulega ferðalagi,“
segir Marteinn.
Kynntist Plester í
gegnum Ólaf Darra
Hann segir sögusviðið, Hveragerði
og nágrenni, hafa hentað myndinni
fullkomlega. „Þá vorum við komnir
með grunninn að þessu og Guð-
mundur tók síðan við og fór að
skrifa,“ segir Marteinn. Myndin var
tekin í gistiheimilinu hjá þeim Mar-
teini og Guðrúnu, inni í bænum og
svo hjá Kerinu, í malarnámu sem
Marteinn segir hafa verið mjög
skemmtilegan tökustað. „Svo leigð-
um við hús við hliðina á okkur fyrir
tökuliðið þannig að þetta er beint úr
héraði,“ segir Marteinn kíminn.
Leikararnir hafi sofið í sviðsmynd-
inni, svo að segja, í sömu herbergjum
og þeir dvelja í í myndinni.
Tim Plester, leikaranum enska,
kynntist Marteinn í gegnum leik-
arann Ólaf Darra Ólafsson sem vann
með Plester fyrir margt löngu í er-
lendum sjónvarpsþáttum. Plester
kom síðar til Íslands, kynntist Mar-
teini þá og eins og gengur þegar
kvikmyndaleikstjóri og leikari koma
saman var rætt um að gera eitthvað
saman, að sögn Marteins. „Hann var
í Game of Thrones, í After Life með
Ricky Gervais og í Bohemian Rhap-
sody,“ nefnir Marteinn sem dæmi um
fyrri verkefni Plesters og segir hann
afar fagmannlegan og með öll tækni-
leg atriði á hreinu.
Plester og Laufey leika aðal-
persónur myndarinnar og fjallar hún
að langmestu leyti um þau tvö.
Nokkrar aukapersónur koma við
sögu og þá m.a. móðir Brynju sem
systir Laufeyjar, Sóley, leikur og
Eygló Hilmarsdóttir, dóttir Sóleyjar,
leikur systur Laufeyjar. „Og þær eru
allar leikkonur,“ segir Marteinn kím-
inn um þessa leikkvennafléttu og að
konurnar séu allar glettilega líkar
enda náskyldar.
Cronenberg leikur gallerista
Talið berst að öðrum verkefnum
en þeir Marteinn og Guðmundur eru
að vinna saman að annarri kvikmynd,
Villisumri, sem byggir á samnefndri
bók Guðmundar og segir Marteinn
að David Cronenberg, leikstjórinn
heimskunni, muni fara með hlutverk
í henni ef allt fari að óskum. Mar-
teinn kynntist Cronenberg ágætlega
þegar hann var heiðursgestur Al-
þjóðlegrar kvikmyndahátíðar í
Reykjavík, RIFF, árið 2015 og þann-
ig kom það til að hann tók að sér hlut-
verk í mynd Marteins. Hann mun
leika gallerista með tengingu við Ís-
land, að sögn Marteins. „Við erum að
vonast til að geta tekið hana á næsta
ári,“ segir Marteinn að lokum.
Almennar sýningar hefjast á Þorp-
inu í bakgarðinum á föstudag og hef-
ur hún einnig verið valin til sýninga á
hátíðinni Santa Barbara Inter-
national Film Festival og mun þar
keppa í flokki norrænna kvikmynda.
Hátíðin fer fram 31. mars til 10. apríl.
Tekist á við þrautir lífsins
- „Það er auðvelt að sökkva í tilfinningaklám en ég vildi standa fyrir utan það,“ segir leikstjórinn
Marteinn Þórsson um aðalpersónur nýrrar kvikmyndar sinnar, Þorpið í bakgarðinum
Áföll „Grunntónninn í þessu er fólk að díla við sitt, áföll í lífinu,“ segir Marteinn um efni kvikmyndarinnar. Hér sjást Laufey Elíasdóttir og Tim Plester.
Rammi „Við settum okkur ramma til að geta unnið þessa mynd og þetta er
eitthvað sem við gætum gert meira af á Íslandi,“ segir Marteinn.
24 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MARS 2021