Morgunblaðið - 18.03.2021, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2021
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
„Kaup á rafmagnsbíl höfðu lengi
verið á stefnuskránni. Talsverðan
tíma tók að finna bíl sem nákvæm-
lega hentaði og svaraði okkar
væntingum. Eftir að hafa sest inn í
Tesla og reynsluekið voru val og
ákvörðun hins vegar auðveld. Þetta
er afskaplega þægilegur bíll, kraft-
mikill og hefur mikla drægni,“ seg-
ir Helga Rún Guðjónsdóttir í
Reykjavík.
Þau Helga og eiginmaður
hennar, Haraldur Hrafn Guð-
mundsson, fengu í gær afhenta
spánnýja Tesla-bifreið hjá umboð-
inu hér á landi. Þetta væri ekki í
frásögur færandi nema hvað þetta
er 1.000. bíllinn sem seldur er hjá
umboðinu á því eina ári sem liðið er
síðan afhending hófst á þessum bíl-
um. Engin gerð bíla á Íslandi náði
heldur jafn mikilli sölu í fyrra og
Model 3 gerði. Bílar þessarar gerð-
ar kosta frá 5,8 milljónum króna.
„Þetta er æðislegur bíll og núna er
ég komin út í umferðina og brosið
fer bókstaflega ekki af mér. Bíllinn
er sérstaklega þægilegur í borgar-
umferð,“ segir Helga Rún.
Herjólfur Guðbjartsson, fram-
kvæmdastjóri Tesla á Íslandi, segir
viðtökur landans við bílunum vera
afar góðar og að sama skapi
ánægjulegar.
„Rafbílar koma sterkir inn á
markaðinn. Þar ræður vitund al-
mennings í umhverfismálum og svo
eldsneytisverð. Rafmagn er ódýr
orkugjafi samanborið við annað og
hleðsla á bílunum tekur æ skemmri
tíma. Tesla eru fullkomnir bílar og
með nettengingu uppfærist stýri-
kerfið reglulega, svo tala má um
stöðuga endurnýjun þess. Megin-
skýring á góðri sölu er því sú að
Tesla eru einfaldlega bílar sem
hafa sannað gildi sitt. Að 1.000
Tesla-bifreiðir séu seldar á einu ári
er stór áfangi á þeirri vegferð sem
orkuskipti í samgöngum á Íslandi
eru,“ segir Herjólfur. sbs@mbl.is
Tesla stenst væntingar
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bílafólk Herjólfur Guðbjartsson, framkvæmdastjóri Tesla á Íslandi, til vinstri, með þeim Helgu Rún Guðjónsdóttur
og Haraldi Hrafni Guðjónssyni þegar þau tóku við bílnum nýja í gær sem þau róma eftir fyrsta rúntinn á rafmagni.
- 1.000. bíllinn á Íslandi afhentur - Áfangi í orkuskiptum
LAGERSALA
LÍN DESIGN
HEFST
Á MORGUN
FLATAHRAUNI 31 HAFNARFIRÐI Á MÓTI K
APLAKRIKA
KL15.00
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Um tveir þriðju hlutar stjórnenda
fyrirtækja í ferðaþjónustu telja að
aðgerðir stjórnvalda sem kynntar
voru í mars í fyrra hafi reynst gagn-
legar. Þetta kem-
ur fram í könnun
meðal aðildar-
félaga Samtaka
atvinnulífsins, en
úr henni má í
heild lesa að for-
svarsmenn fyrir-
tækja telja að að-
gerðirnar hafi
verið sértækar,
nytsamlegar og
vel heppnaðar.
Tæplega helmingur forsvars-
manna allra fyrirtækja telur að að-
gerðirnar hafi í heildina komið að
miklu eða einhverju gagni. Sú já-
kvæðni endurspeglast í fleiri svörum
könnunarinnar og er í takt við svör í
fyrri samsvarandi könnun í ágúst
2020, þrátt fyrir að faraldurinn hafi
reynst mun langvinnari en vonast
var til.
„Það er afar ánægjulegt að sjá
þessa niðurstöðu,“ segir Bjarni
Benediktsson efnahags- og fjármála-
ráðherra í samtali við Morgunblaðið.
„Þessi breiða samstaða um að að-
gerðirnar hafi skilað árangri skiptir
máli. Ekki þó síður hitt að það hafi
verið samstaða um það í gegnum
þetta langa tímabil, vegna þess að
við höfum þurft að vera sveigjanleg
og koma með nýja aðgerðapakka,
eftir því sem staðan skýrðist.“
Bjartsýni eykst
Tíðindum sætir að tæp 60%
stjórnenda eru mjög eða fremur
bjartsýn á rekstur fyrirtækja sinna
næstu sex mánuði og um fjórðungur
er hóflega bjartsýnn, en aðeins 14%
eru fremur eða mjög svartsýn. Þá er
eftirtektarvert að stjórnendur í
ferðaþjónustu eru ekki jafnbjartsýn-
ir á komandi misseri.
„Það vekur manni von að sjá að
það er vaxandi bjartsýni í atvinnulíf-
inu,“ segir Bjarni. „Nú er að koma í
ljós að þessi efnahagslægð er ekki
jafndjúp og við áður héldum, við
trúðum því að við værum í dýpstu
kreppu í 100 ár, en nýjustu tölur
benda til þess að við séum á svip-
uðum slóðum og önnur Evrópuríki,
jafnvel þótt við höfum verið svo ákaf-
lega háð ferðaþjónustunni.“
Almennt virðast fyrirtæki telja að-
gerðir stjórnvalda gagnlegar, þar
sem 45% töldu gagnsemina mikla
eða einhverja, en 35% að þær kæmu
að litlu eða engu gagni. Ferðaþjón-
ustan var sem fyrr segir miklum
mun ánægðari, þar sem 2⁄3 töldu að-
gerðir ríkisstjórnarinnar hafa komið
að einhverju eða miklu gagni.
Bjarni telur skýr skilaboð felast í
því útbreidda áliti að almennt sé ekki
þörf á miklu meiri efnahagsaðgerð-
um. „Þó held ég að það sé öllum ljóst
að við þurfum að grípa til aðgerða
vegna atvinnuleysisins, eins og boð-
að hefur verið. Eins getur þurft að
aðlaga einstakar aðgerðir, færa til
gjaldfresti og þess háttar. Þetta
skiptir allt gríðarlega miklu máli, því
þetta snýst allt um það að lágmarka
skaðann af efnahagslegum áhrifum
veirunnar.“
Um helmingi færri en áður telja
brýna þörf á frekari efnahags-
aðgerðum stjórnvalda vegna heims-
faraldursins eða 19%. Í ferðaþjón-
ustunni er sú skoðun algengari eða
hjá 30% stjórnenda, en þeim hefur
þó einnig fækkað um helming frá
fyrri könnun.
Ánægja hjá stjórnendum
með efnahagsaðgerðir
- Aðgerðir stjórnvalda sérhæfðar og vel heppnaðar - Könnun sýnir aukna bjartsýni
Bjarni
Benediktsson Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bjartsýni Stjórnendur fyrirtækja eru mun bjartsýnni á næstu sex mánuði.
Tveggja stiga hitatölur mældust á
nokkrum stöðum á landinu í gær,
sem þykir óvenju hlýtt miðað við
árstíma. Hitamet milli 11. og 20.
mars féll við bæinn Kollaleiru í
Reyðarfirði en þar fór hitinn mest í
17,9 stig. Fyrra metið milli 11. og
20. mars var 17,6 stig, sem mældust
á Siglufirði hinn 13. árið 2016, að
því er fram kemur á bloggsíðu
Trausta Jónssonar veðurfræðings.
Hæsti hiti sem mælst hefur í
Reykjavík 11. til 20. mars er 12,3
stig – það var hinn 20. árið 2005.
Langt er þó í hitametið í mars-
mánuði en árið 2012 féll það eftir-
minnilega þegar hiti fór í 20,5 stig í
Kvískerjum í Öræfum. Er það í eina
skiptið sem 20 stigum hefur verið
náð í mars hér á landi.
Hitamet slegið á
Austurlandi í gær
Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurð-
aði í gær tvo einstaklinga í áfram-
haldandi gæsluvarðhald vegna aðild-
ar þeirra að morðmálinu í
Rauðagerði. Lögreglan á höfuðborg-
arsvæðinu krafðist áframhaldandi
varðhalds í þágu rannsóknar sinnar.
Að sögn lögreglu var annar þeirra
úrskurðaður í fjögurra vikna varð-
hald, eða til miðvikudagsins 14. apríl,
á grundvelli a- og b-liðar 1. mgr. 95.
gr. og 2. mgr. 95. gr. sml. og hinn í
vikulangt varðhald, eða til miðviku-
dagsins 24. mars, á grundvelli rann-
sóknarhagsmuna.
Þá var einn til viðbótar úrskurð-
aður í fjögurra vikna farbann, eða til
miðvikudagsins 14. apríl. Þrír sitja
nú í gæsluvarðhaldi vegna málsins,
tveir karlmenn og ein kona. Í til-
kynningu lögreglu segir að ekki sé
hægt að veita frekari upplýsingar
um málið að svo stöddu.
Tveir áfram í varð-
haldi vegna morðs
- Einn úrskurðaður í mánaðar farbann
Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir
Rauðagerði Morðið enn rannsakað.
Að minnsta kosti 19 leikskólakenn-
arar hafa sagt upp störfum eftir að
Hafnarfjarðarbær ákvað að bjóða
upp á að hafa leikskóla opna allt ár-
ið. Þetta kemur fram í aðsendri
grein aðstoðarleikskólastjóra í
Hafnarfirði í bæjarblaðinu Hafn-
firðingi. Þar er bent á að sam-
kvæmt lögum eigi leikskólakenn-
arar að vera tæplega 67% starfs-
fólks leikskóla. Það hlutfall hafi
árið 2019 verið 26% og muni nú enn
lækka með áðurnefndum upp-
sögnum.
Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri
í Hafnarfirði sagði við Morgun-
blaðið í janúar að sama fyrirkomu-
lag hefði gefist vel í nágranna-
sveitarfélögum og hún teldi að svo
yrði einnig þar í bæ.
Uppsagnir á leik-
skólum í Hafnarfirði