Morgunblaðið - 18.03.2021, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.03.2021, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2021 Alexander Kristjánsson alexander@mbl.is Það versta við skjálftahrinuna á Reykjanesskaga eru ekki skjálft- arnir sjálfir heldur óvissan og eft- irvæntingin eftir þeim. Þetta segir Óttar G. Birgisson, sálfræðingur og deildarstjóri sálfélagslegrar þjón- ustu hjá Heilbrigðisstofnun Suður- nesja. Óttar flutti hádegiserindi í Kvikunni – menningarhúsi Grinda- víkur í gær þar sem hann fjallaði um sálræna líðan á tímum jarðhræringa. Meira en 40 þúsund skjálftar hafa mælst á Reykjanesi frá því skjálfta- hrina hófst þar í lok febrúar, en þar af 30 stærri en 4 að stærð og sjö stærri en 5. Óttar segir athyglisvert að þegar skoðaðar eru rannsóknir á sálræn- um einkennum fólks í hamförum sé nær alltaf verið að miða við einhvern einn tiltekinn atburð, sem ríður yfir og er svo yfirstaðinn. „Hér er nátt- úruváin hins vegar alltaf yfirvofandi, í bakgrunni og að minna á sig,“ segir Óttar. Hann segir kvíðakerfið ein- staklega gott þegar það er virkjað vegna raunverulegrar ógnar sem kemur upp. En þegar það er alltaf að minna á sig vegna langvarandi að- stæðna verði fólk þreytt og jafnvel örmagna. Óttar segir ýmis ráð í boði til að reyna að slá á kvíðann. Fyrir það fyrsta sé mikilvægt að fólk upplifi öryggi þegar það fer að sofa. Huga þurfi að bókahillum, þungum hlutum uppi á vegg og fleiru í þeim dúr auk þess að passa hreyfingu og matar- æði. Þá minnti hann á að fólk væri ávallt velkomið á heilsugæsluna ef það ætti erfitt með svefn. Óvissa og eftir- vænting verst - Sálræn líðan á tímum jarðhræringa Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fyrirlestur Óttar ræddi stöðuna við íbúa í Grindavík í hádeginu í gær. Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Vöxtur skjálftavirkni á Reykjanes- skaga það sem af er þessu ári og á því síðasta er gríðarlega mikill,“ sagði dr. Páll Einarsson, jarðeðlis- fræðingur og pró- fessor emeritus. Hann telur að stökkið í skjálfta- virkni megi rekja til þess að kvika er komin upp í jarðskorpuna. „Það er ekki vanalegt að jarð- skjálftavirkni taki svona rosa- legt stökk yfir þetta langan tíma. Spenna hefur hlaðist þarna upp jafnt og þétt. Svo losnar eitthvað af henni þegar ein- hver partur af svæðinu fer yfir brot- mörk og þá verður jarðskjálfti. Um leið og kominn er vökvi, í þessu til- felli kvika, upp í jarðskorpuna þá verður hún öll veikari og það brotnar allt sem brotnað getur.“ Upphafið við Fagradalsfjall Atburðarásin sem nú stendur yfir á Reykjanesskaga hófst í desember 2019 með jarðskjálftahrinu í Fagra- dalsfjalli. Upptökin voru út frá svæð- inu sem nú fóðrar kvikuganginn. Fagradalsfjall hafði ekki verið í sviðsljósinu fram að því. Þessari jarðskjálftahrinu var því tekið sem einhverri tilviljun, að sögn Páls. Í kjölfarið fylgdu kvikuinnskot við fjallið Þorbjörn á síðasta ári. Svo er að sjá sem þau hafi haft heilmikil áhrif á svæðið. „Síðan kom smá inn- skot 24. febrúar síðastliðinn sem hleypti stóra skjálftanum af stað og eftir það var fjandinn laus,“ sagði Páll. Hann telur að jarðskjálftahrinuna undanfarið megi rekja til samspils spennu sem hefur safnast upp á flekaskilum Norður-Ameríku- og Evrasíuflekanna, sem nuddast sam- an á Reykjanesskaga, og kviku- innskotsins. „Við þekkjum kviku- ganga af þessari stærðargráðu og fengum nokkra svoleiðis í Kröflueld- um. Þeim fylgdi ekki svona mikil skjálftavirkni. Það sem spilar saman á Reykjanesi er spennan á flekaskil- unum og vökvinn, kvikan, sem veikir skorpuna. Þá hrekkur allt sem getur hrokkið. Orkan í skjálftunum kemur í rauninni úr flekarekinu en kviku- gangurinn virkar eins og gikkur á allt kerfið og lætur allt brotna sem er með spennu á annað borð,“ sagði Páll. Kvikan storknar á endanum Hingað til hafa ekki sést teikn um að kvikuhólf sé að myndast undir Reykjanesskaga. Svo virðist sem kvikan komi upp um rás og safnist ekki fyrir nema í kvikuganginum. Páll hefur líkt kvikuganginum við borðplötu sem stendur upp á rönd. Hann segir að kvika streymi enn upp í ganginn. Á meðan hann lengist ekki er hann líklega að þykkna eða gildna. Það mælist nokkuð vel á GPS-mæl- um. En hvaða líkur eru á að kvikan „rjúfi þakið“ og komi til yfirborðs í eldgosi? „Það er bara spurning um magn af kviku og hvað streymið heldur lengi áfram. Það getur mögulega hætt. Það eru dæmi þess,“ sagði Páll. „Við fengum 20 svona ganga í Kröflueld- um og níu af þeim náðu til yfirborðs og urðu að eldgosi. Þeir stærstu gerðu það ekki.“ Hann segir að samkvæmt eðlis- fræðinni hljóti kvikan í ganginum að vera farin að storkna að hluta. Hún storkni á nokkrum dögum eða vikum í gangi sem er ekki þykkari en þessi. Kvikuinnskotið hefur staðið í þrjár vikur og því eru þynnstu hlutarnir sennilega storknaðir. Skjálftavirkni á Reykjanesskaga 2014-2021* 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 Fjöldi skjálfta stærð 3 og yfir 7 2 3 20 10 11 113 593 Fjöldi skjálfta stærð 4 og yfir 1 2 12 61 Fjöldi skjálfta stærð 5 og yfir 1 5 *Fram til 17. mars 2021 Heimild: skjlalftalisa.vedur.is Samspil kviku og spennu í skorpunni - Gríðarleg fjölgun jarðskjálfta á Reykjanesskaganum Páll Einarsson Morgunblaðið/Eggert Fagradalsfjall Atburðarásin hófst í nágrenni fjallsins í lok árs 2019. Í kjölfarið fylgdu kvikuinnskot við Þorbjörn. Náttúruhamfaratryggingu Íslands (NTÍ) hafa borist 64 tilkynningar vegna meintra jarðskjálftatjóna und- anfarið. Af þeim eru 19 frá Reykja- vík, 15 úr Hafnarfirði, tíu frá Grinda- vík, átta úr Reykjanesbæ, fjögur úr Vogum og jafn mörg úr Garðabæ, tvö úr Kópavogi og frá Akranesi og Ár- borg hefur borist ein tilkynning frá hvorum stað. Hulda Ragnheiður Árnadóttir, framkvæmdastjóri NTÍ, segir að ekki sé víst að rekja megi öll þessi tjón til jarðskjálftanna. Þá sé ekki talið að mörg þeirra séu meiri en nemur eigin áhættu en hún er 400.000 krónur í húseignum. Hún segir að tilkynningar um tjón vegna jarðskjálfta hafi borist á nær hverj- um degi undanfarið. „Fólk er yfirleitt að tilkynna um minniháttar sprungur í húsum og lít- ilsháttar tjón á innbúum. Það hefur ekki verið neitt teljandi stórt tjón,“ sagði Hulda. Hún sagði að alltaf kæmu tilkynn- ingar þegar jarð- skjálftar yrðu, það segði ekki til um hvar jarð- skjálftar yllu- raunverulega tjóni. Fólk tengi oft eðlilegar sprungur í húsum við jarðskjálfta. Náttúru- hamfaratrygging óski eftir myndum af meintu tjóni sem matsmenn skoða. Sum mál geta þeir metið eftir mynd- unum en í öðrum tilvikum þurfa þeir að fara á staðinn til að meta tjónið. Hulda Ragnheiður segir að þótt mikilvægt sé að tilkynna tjón sem fyrst, þá sé líka allt í lagi að bíða að- eins á meðan hrinan gengur yfir. Frestur til að tilkynna tjón er eitt ár frá því að eigandinn uppgötvar að tjón hafi orðið á eigninni. gudni@mbl.is 64 tilkynningar um jarðskjálftatjón Hulda Ragnheiður Árnadóttir - Flestar af höfuðborgarsvæðinu Skjálftahrina á Reykjanesskaga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.