Morgunblaðið - 18.03.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.03.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2021 alþingismenn geta byrjað að ferðast til útlanda á nýjan leik. „Alþjóðasam- starf þjóðþinga fer allt fram í fjar- fundaformi um þessar mundir og óljóst er hvenær staðfundir alþjóð- legra þingmannasamtaka hefjast að nýju. Það mun fara eftir þróun heims- faraldurs Covid-19, ferðatakmörkun- um vegna sóttvarna, framgangi bólu- setninga o.s.frv.,“ segir Ragna. Hún segir að reynslan af fjarfund- um í alþjóðlegu starfi hafi verið góð Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Þingmenn og starfsmenn Alþingis hafa ekki farið í neinar utanlandsferð- ir síðan í mars í fyrra, eða í heilt ár. Er það vegna heimsfaraldurs kórón- uveirunnar. Sparnaður fyrir þingið er verulegur, eða rúmlega 40 milljónir króna. Forsætisnefnd þingsins ákvað í mars 2020 að fella niður vinnutengdar ferðir þingmanna og starfsfólks Al- þingis frá og með 17. mars út vorþing- ið. Enda var hefðbundinni þátttöku í alþjóðastarfi sjálfhætt þegar þing- mannafundir og -ráðstefnur færðust í rafrænt form að frumkvæði skipu- leggjenda. Samkvæmt upplýsingum Rögnu Árnadóttur skrifstofustjóra Alþingis var ferðakostnaður (ferðir/dagpen- ingar) þingmanna árið 2020 krónur 10.677.214. Til samanburðar var ferðakostnaður þingmanna árið 2019 krónur 51.862.834. Að sögn Rögnu hefur engin ákvörðun verið tekin um það hvenær og mikill kraftur hafi verið í starfinu. Á heimasíðu Alþingis má sjá yfirlit yfir þátttöku í alþjóða starfinu 2020. Þar má m.a. sjá að þingmenn tóku þátt í 33 fjarfundum í október og 38 fjarfundum í nóvember svo dæmi séu tekin úr yfirlitinu. Nefndarstarf Alþingis hefur sömu- leiðis farið að mestu fram á fjarfund- inum síðasta árið og segja þingmenn góða reynslu hafa verið af því fyrir- komulagi. Þingmenn hafa ekki farið utan í heilt ár - Ferðakostnaður Alþingis lækkaði um 40 milljónir milli ára Morgunblaðið/Hari Alþingi Þingmenn hafa haldið sig í heimahögunum vegna faraldursins. C120.7-6 PCAD Verð áður 34.900 kr. Tilboðsverð 24.430 kr. Premium 180-10 Verð áður 123.800 k Tilboðsverð 86.660 kr. r. C125.7-6 PC X-tra Verð áður 32.800 kr. Tilboðsverð 22.960 kr. Rekstrarland | Vatnagörðum 10 | 104 Reykjavík | 515 1100 | Austurvegi 69 | 800 Selfossi | 480 1306 | Olís Njarðvík | 260 Reykjanesbæ | 420 1000 | rekstrarland.is C135.1-8 PC Verð áður 39.799 kr. Tilboðsverð 27.859 kr. LAGERHREINSUN ÁNILFISK HÁÞRÝSTIDÆLUM 30%AFSLÁTTUR Tvíbytnan Valur kom til Reykjavík- ur í gær, en Valur er nýjasta fjár- festing Sjótæknis á Tálknafirði. Fyrirtækið gerði nýverið þjónustu- samning við fiskeldisfyrirtækin Arnarlax og Arctic Fish og mun báturinn koma að góðum notum að sögn Kjartans Haukssonar, fram- kvæmdastjóra Sjótæknis. „Þetta er bylting í okkar þjónustu að geta boðið svona öflugan vinnubát sem er sérútbúinn fyrir okkur og okkar starfsemi,“ segir hann. Báturinn kom með skipi til Aust- fjarða frá Noregi en þaðan hefur honum verið siglt til Vestmanna- eyja, svo til Reykjavíkur og mun svo halda áfram til Vestfjarða inn- an skamms. Spurður hvernig sigl- ingin hafi gengið svarar Kjartan: „Hún hefur gengið vel þrátt fyrir leiðindasjólag.“ gso@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Norskur Valur er Catamaran NABCAT 1510 DD frá Moen Marin. Valur kom við í Reykja- vík á leið til Vestfjarða Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ekkert lát hefur orðið á fiskvinnslu hjá Þorbirni hf. í Grindavík þrátt fyrir harða og langvinna jarð- skjálftahrinu sem skekið hefur bæ- inn. „Það hefur bara gengið vel,“ sagði Gunnar Tómasson, fram- kvæmdastjóri Þorbjarnar hf. Engar stór- vægilegar skemmdir hafa orðið á húsum fyrirtækisins í jarðskjálftunum undanfarið. Gunnar segir að vissu- lega hafi komið nýjar sprungur í milliveggi sem hlaðnir eru úr vik- ursteini og ekki járnbentir. Engar skemmdir hafa orðið á burðarvirkj- um húsanna. Hristingurinn hefur ekki skemmt tækjabúnað en hjá Þor- birni hf. eru margar hátæknifisk- vinnsluvélar og mikill tölvubúnað- ur. „Það fór verst þegar rafmagnið fór fyrir rúmri viku. Það var eina truflunin sem við höfum orðið fyrir og hafði meiri áhrif en jarðskjálft- arnir. Tækjabúnaðurinn er allur kominn í samt lag aftur,“ sagði Gunnar. Flestir misstu svefn Hjá Þorbirni hf. starfa rétt rúm- lega 100 manns í landi. „Starfsfólkið hefur staðið sig af- skaplega vel þótt innan um séu starfsmenn sem er mjög illa við jarðskjálftana. Menn hafa samt al- veg haldið sjó. Ég held að enginn sé svo harður að hann hafi ekki misst svefn en þetta hefur verið fínt í tvo daga,“ sagði Gunnar í gær. Fyrirtækið og bæjarfélagið hafa verið með fræðslu og þjónustu við erlenda starfsmenn og íbúa sem eru óvanir jarðskjálftavirkni og eldgosavá. „Fólkið styður hvert annað. Það hefur líka fengið upp- lýsingar á pólsku eða ensku og þær hafa hjálpað mikið. Upplýsingin hjálpar okkur geysilega mikið að komast yfir þetta,“ sagði Gunnar. Gengið hefur framar vonum að selja afurðir Þorbjarnar hf. þrátt fyrir heimsfaraldur kórónuveiru. „Við vorum með minni birgðir um síðustu áramót en um áramótin þar á undan. Þó voru bara eðlileg- ar birgðir þá. Það sýnir hvað hefur unnist vel úr þessu,“ sagði Gunnar. Afurðirnar eru bæði frystar, salt- aðar og þurrkaðar. Einnig er ferskur fiskur fluttur á hverjum degi til Evrópu og Norður-Amer- íku. Gunnar sagði öllu breyta að fraktvélar fljúga daglega. „Markaðirnir hafa breyst. Það hefur reynt mikið á dreifingaraðila okkar hvort sem er í Bandaríkj- unum eða Evrópu. Stórmarkaðir og kaupmaðurinn á horninu hafa tekið miklu meira til sín en veit- ingahúsin nánast dottið út. Það hefur þurft að laga vöruna að þessu. Stór fiskstykki sem fóru áð- ur á veitingastaði eru nú skorin niður í neytendapakkningar svo fiskurinn seljist. Við erum heppin hvað þetta hefur gengið vel,“ sagði Gunnar. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Grindavík Verið var að landa úr togara Þorbjarnar hf., Sturlu GK, í gær. Vinnslan gengur vel í skjálftunum - Ekkert slegið af hjá Þorbirni hf. í Grindavík - Vel hefur gengið að selja afurðirnar - Minni birgðir um síðustu áramót en áramótin þar á undan - Markaðir fyrir ferskan fisk hafa breyst í faraldrinum Gunnar Tómasson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.