Morgunblaðið - 18.03.2021, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2021
Í skýrslu HeilbrigðisstofnunarDanmerkur segir að finni
starfsfólk eða nemendur skóla fyrir
alvarlegum veikindaeinkennum
vegna raka eða svartmyglusvepps
beri að hætta að
nota húsnæðið. Hér
á landi, líkt og í
Danmörku, er al-
mennt gripið til
harkalegra aðgerða
þegar slík óværa
breiðir úr sér í
skólahúsnæði og
fjöldi barna veikist.
- - -
Kjörnir fulltrúar taka almennt áslíku máli af fullri alvöru og á
þeim hraða sem eðlilegt er. Nema í
Reykjavík. Í höfuðborginni er
meirihluti sem ræður ekki við að
takast á við vanda af þessu tagi.
Engum dettur í hug að það sé
vegna þess að meirihlutinn vilji að
börnin séu veik, en ráðaleysið er al-
gert.
- - -
Þegar málið hafði mallað mán-uðum og misserum saman lét
einn borgarfulltrúi meirihlutans
hafa það eftir sér að hún ætti ekki
að dæma um þetta mál, það væri
sérfræðinganna, en að hún sem
kjörinn fulltrúi ætti „að tryggja að
verkferlar séu góðir“ og að hún
hefði beitt sér fyrir því.
- - -
Hún telur þess vegna að myglu-mál framtíðarinnar verði tek-
in betri tökum en myglan í Foss-
vogsskóla. En vandi þessa Pírata er
sá að stjórnmálamenn geta ekki
verið stikkfrí. Það nægir ekki börn-
um í Fossvogsskóla að settir séu
upp verkferlar, það þarf að taka á
vandanum – og hefði þurft að gera
fyrir löngu.
- - -
Þeir sem ráða ekki við að takaákvarðanir eiga ekki að bjóð-
ast til að taka að sér stjórn heillar
borgar. Þar er of mikið í húfi.
Dóra Björt
Guðjónsdóttir
Borgarfulltrúar
eru ekki stikkfrí
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Innkaupa- og framkvæmdaráð Reykjavíkur hefur
samþykkt beiðni Borgarsögusafns um heimild til
framlengingar á samningi við Eldingu um ferju-
siglingar og veitingarekstur í Viðey.
Núgildandi samningur við Eldingu er til fjög-
urra ára með gildistíma til 1. apríl 2021. Heildar-
útgjöld vegna hans hafa numið 52,4 milljónum.
Vegna óvissu sem ríkir í Covid- faraldrinum hefur
Borgarsögusafn efasemdir um að rétt sé að efna
til útboðs núna. Því er lagt til að framlengja samn-
inginn við Eldingu til loka árs 2021 og samnings-
upphæðin verði rúmar 10 milljónir króna.
Fram kemur í greinargerð Borgarsögusafnsins
að vegna heimsfaraldursins hafi fjöldi farþega út í
Viðey hrunið og sértekjur samhliða því. Munar
þar mest um brotthvarf erlendra ferðamanna,
sem eru í eðlilegu árferði stór hluti gesta Við-
eyjar. Þá höfðu lokanir vor og haust 2020 vegna
hertra sóttvarnaaðgerða mikil áhrif. Að sama
skapi hafi dregið verulega úr sérferðum með hópa
ferðamanna til Viðeyjar, svo sem í tengslum við
friðarsúlu Yoko Ono. Loks hafi rekstur veitinga-
staðar verið þungur allt árið í fyrra. sisi@mbl.is
Gestum í Viðey fækkaði mikið
- Samið við Eldingu um
framhald ferjusiglinga
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Viðey Covid 19 hefur haft mikil áhrif á aðsókn.
Breiðafjarðarferjan Baldur hefur
áætlunarsiglingar á ný í dag eftir
stöðvun í viku vegna vélarbilunar.
Viðgerðin gekk vel.
Vél ferjunnar bilaði síðastliðinn
fimmtudag þegar hún var á siglingu
yfir Breiðafjörð. Tókst að koma skip-
inu til hafnar í Stykkishólmi eftir
langa bið á sjó. Strax varð ljóst að
bilun var í túrbínu sem keypt hafði
verið á síðasta ári og sett upp vegna
bilunar í þeirri eldri. Því var strax
gengið í það að fá nýja túrbínu og
tókst að kaupa hana úti í Evrópu á
föstudag og koma henni til landsins
með flugi á sunnudag. Gunnlaugur
Grettisson, framkvæmdastjóri út-
gerðarinnar, sótti hana á Keflavík-
urflugvöll og ók með hana í Stykk-
ishólm aðfaranótt mánudags.
Túrbínan sem bilaði var aðeins
keyrð í 2.000 klukkustundir. Öxull
túrbínunnar var ekki í lagi og segir
Gunnlaugur viðurkennt að galli hafi
verið í honum sem valdið hafi vél-
arbiluninni.
Viðgerð lauk í gær ásamt því sem
farið var yfir tengd atriði í vélinni.
Ferjan fór í reynslusiglingu síðdegis
í gær og gekk allt vel.
Hugað að lausn til frambúðar
Gunnlaugur segir að innflytjandi
túrbínunnar taki vandamálið alvar-
lega og hafi látið tryggingafélag sitt
vita. Eftir eigi að koma í ljós hvað út
úr því komi en Gunnlaugur segir að
málið hafi valdið Sæferðum miklum
erfiðleikum og tjóni. „Við munum
gera það sem við getum til að vinna
aftur traust farþega og flutnings-
aðila. Tíminn verður að leiða í ljós
hvernig til tekst með það,“ segir
hann.
Liður í því er að setja viðmiðanir
um siglingu skipsins við erfiðar að-
stæður. Skýrt verði í hvaða veðri og
sjó verði siglt og hvenær ekki.
Jafnframt er verið að leita lausna
til frambúðar. Komið hefur til tals að
nota gamla Herjólf í siglingar á
Breiðafirði en þá þarf að breyta
ferjuhöfnunum. Að öðrum kosti þarf
að finna aðra hentuga ferju erlendis
og stendur leit yfir. helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Breiðafjarðarferja Baldur siglir á
ný samkvæmt áætlun sinni í dag.
Baldur hefur áætl-
unarsiglingar í dagBaðinnréttingar
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
2
0
0
0
—
2
0
2
0
Tímabundin opnunartími
vegna Covid–19
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga 11–15