Morgunblaðið - 18.03.2021, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 18.03.2021, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2021 DAGMÁL Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Stjórnvöld geta stillt upp tvöfaldri verðlagningu á hlutabréfum í Íslands- banka, sé vilji til þess að tryggja víð- tæka þátttöku almennings í frum- útboði á hlutum í bankanum. Þetta segir Gylfi Magnússon, prófessor og formaður bankaráðs Seðlabanka Ís- lands, í viðtali í Dagmálum sem birt eru á mbl.is í dag. Þar ræðir hann ásamt Ásdísi Kristjánsdóttur, aðstoð- arframkvæmdastjóra Samtaka at- vinnulífsins, um fyrirhugað söluferli. „Ef það er ríkur pólitískur vilji fyr- ir því að fá fjölda innlendra hluthafa þá er náttúrlega hægt að stýra verð- lagningunni þannig að það gangi eftir og þótt við þurfum að fara 20 ár aftur í tímann þá eigum við fordæmi fyrir því.“ Vísar Gylfi þar m.a. til söluferlis á Búnaðarbankanum þar sem almenn- ingi bauðst að kaupa hluti í bankanum á hagstæðu verði. Segir Gylfi að það ferli hafi þó endað með „dálitlum fífla- gangi“ þar sem fjárfestar hafi ráðist í umfangsmikla kennitölusöfnun. „[…] og svo söfnuðust bréfin eftir það smám saman á hendur færri aðila en það er náttúrlega hægt með verðlagn- ingu að ná einhverju slíku fram ef það er vilji til þess. Ég gæti vel trúað því að menn væru til í að selja einhvern lítinn hluta þannig,“ segir Gylfi. Fái sem hæst verð fyrir hlutina Ásdís geldur varhug við aðferða- fræði af því tagi og segir hættu á að með því verði sanngirnissjónarmið- um skákað til hliðar. „Þetta eru peningar okkar skatt- greiðenda og við eigum að reyna að hámarka það verð sem við fáum fyrir þennan hlut sem og komandi sölur í framtíðinni á eignarhlut ríkisins í Ís- landsbanka.“ Ásdís segist ekki telja að afslátt- arkjör þurfi til þess að tryggja góða þátttöku almennings í útboðinu. Vís- ar hún þar m.a. til vel heppnaðs hlutafjárútboðs Icelandair sem fram fór í september í fyrra. Þá vísar hún til þess að enn sem komið er sé vaxtastig mjög lágt og að það hvetji almenning eins og aðra fjármagns- eigendur til þátttöku. Þegar hag- kerfið fari í gang, sem vonandi gerist þegar líða tekur á sumarið, muni vextir þokast upp á við og þá verði hvatinn ekki eins mikill. Segir hún því tímasetningu útboðsins í raun ekki geta verið ákjósanlegri. Gylfi segist ekki eins sannfærður um þátttöku almennings og segir að hugmyndin um almenningshluta- félög á Íslandi hafi verið svo gott sem dauð á síðustu árum. Hluta- bréfaeign almennings hafi að mestu verið í gegnum lífeyrissjóðina hin síðari ár. „Ég sé satt best að segja ekki fyrir mér neina ástæðu fyrir því að það breytist jafnvel þótt þessi hlutur rík- isins verði seldur,“ segir Gylfi. Gagnrýnir Arion banka Í umræðu um fyrirhugaða sölu á hlut í Íslandsbanka hefur talsvert verið rætt um eigið fé bankanna. Hafa forsvarsmenn Arion banka og Íslandsbanka bent á að mikið eigið fé sé bundið í bönkunum og í viðtali í Dagmálum fyrir skemmstu ítrekaði Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka að innan vébanda hans væri um 40 milljarða umfram eigið fé sem ekki nýttist sem skyldi. Gylfi gagn- rýnir þetta viðhorf og segir stöðuna sem upp er komin á ábyrgð bank- anna sjálfra. „Þegar banki ákveður að lána ekki þá verður til umfram eiginfé vegna þess að eiginfjárbindingin ræðst af stærð efnahagsreikningsins. Þannig að ef Arion banki segist ekki geta nýtt þetta fé þá er það vegna þess að þeir hafa ekki verið að gera það sem bankar eiga að gera, sem er að lána. Nú er auðvitað hægt að fara of langt í hina áttina hvað það varðar og það gerðu auðvitað bankarnir fyrir hrun þannig að þetta er svolítið ný staða. Fyrir um áratug voru útlán bank- anna að vaxa of hratt en núna gætum við haft áhyggjur af því að þau væru að vaxa of hægt.“ Ásdís Kristjánsdóttir segist ekki deila þeirri skoðun með Gylfa. „Við upplifum það ekki sem svo að bankarnir séu á bremsunni hvað varðar útlán. Það þarf líka að vera eftirspurn eftir útlánum og við vitum öll í hvernig ástandi við erum búin að vera. Það hefur verið gríðarlega mikil óvissa og það hefur kannski að einhverju leyti haft áhrif á eftir- spurn fyrirtækja til útlána og til fjár- festinga.“ Afsláttur gæti örvað fólk til þátttöku - Vilji ríkið tryggja almenna þátttöku í söluferli Íslandsbanka mætti selja lítinn hlut með afslætti - Hagfræðingar ósammála um hvort líkur séu á mikilli þátttöku almennings í hlutafjárútboði Morgunblaðið/Skjámynd Umræða Gylfi Magnússon prófessor og Ásdís Kristjánsdóttir aðstoð- arframkvæmdastjóri SA eru gestir Dagmála þennan fimmtudaginn. Sr. Vigfús Þór Árnason, fv. sókn- arprestur í Grafarvogssókn í Reykjavík, var á dögunum heiðr- aður af félögunum í Lionsklúbbnum Fjörgyn í Grafarvogi fyrir störf sín fyrir klúbbinn með Kjaransorðunni svonefndu. Orðan er kennd við Magnús Kjaran, sem fór fyrir stofn- un fyrsta Lionsklúbbs á Íslandi og er æðsta viðurkenning Lions á Íslandi. Af þessu tilefni greiddi Fjörgyn 1.000 Bandaríkjadali, 127 þúsund ísl. kr., í Heiðurssjóð Guðrúnar Bjartar Yngvadóttur, fyrrum alþjóðaforseta Lions, en það er hinn íslenski hjálp- arsjóður Lionshreyfingarinnar. Ferill sr. Vigfúsar innan Lions spannar rúmlega 40 ár. Sem ungur maður gekk hann í Lionsklúbb Siglufjarðar og innan hans var hann árin 1976-1989 þegar hann var prestur á Siglufirði. Árið 1990 var Lionsklúbburinn Fjörgyn í Graf- arvogi stofnaður og er Vigfús einn stofnfélaga. Vigfús hefur verið for- maður beggja þessara klúbba. Lionsklúbburinn Fjörgyn hefur staðið fyrir ýmsum líknarverk- efnum. Hélt um árabil Eirdaginn, í samstarfi við Lionsklúbbinn Fold, þar sem íbúum hjúkrunarheimilisins var boðið upp á tónlistarveislu. Til margra ára hefur Fjörgyn einnig út- deilt matargjöfum fyrir jólin til bág- staddra. Loks skal nefna árlega stór- tónleika Fjörgynjar til styrktar BUGL. Fram til þessa hafa rúmlega 100 listamenn komið fram á tónleik- unum, þar sem Vigfús hefur verið lykilmaður í undirbúningi. Þá hafa fundir Fjörgynjar lengst verið haldnir í Grafarvogskirkju, sem hef- ur skapað starfi klúbbsins trausta umgjörð sbs@mbl.is Sr. Vigfús fékk Kjaransorðu Ljósmynd/Lions á Íslandi Lions Frá vinstri talið Jónas Yngvi Ásgrímsson, umdæmisstjóri Lions, sr. Vigfús Þór Árnason og Sigmar Arnar Steingrímsson, formaður Fjörgynjar. Sjáum um allar merkingar Höfðabakka 9, 110 Rvk | www.runehf.is Gísli, sölu- og markaðsstjóri vinnufatnaðar Sími 766 5555 | gisli@run.is ÖRYGGIS- SKÓR VANDAÐUR VINNUFATNAÐUR 6424 6202 55505536 3307 3407 SAFE & SMART monitor Miðstöð íslenskra bókmennta auglýsir eftir umsóknum um Nýræktarstyrki sem veittir eru fyrir skáldverk höfunda sem eru að stíga sín fyrstu skref á ritvellinum. Umsóknarfrestur er til 15. apríl 2021. Allar nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð á islit.is/styrkir/nyraektarstyrkur Matur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.