Morgunblaðið - 18.03.2021, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2021
SVIÐSLJÓS
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Íshellir í Kötlujökli, sem liggur frá
Mýrdalsjökli norðan við fjallið Haf-
ursey, hefur að undanförnu komið
sterkur inn sem vinsæll viðkomu-
staður ferðafólks sem fer á þennan
stað í skipulögðum ferðum. Að jökl-
inum er ekið af Mýrdalssandi austan
við Múlakvísl til norðurs og þar
þræddir gamlir slóðar og farið yfir
lækjarsprænur sem aðeins eru færar
vel búnum jeppum eða öðrum öfl-
ugum bílum. Leiðin er þó um margt
vandrötuð, því þar geta leynst
krapapyttir, svelgir og fleiri hættur.
Leiðin er því ekki á færi nema þeirra
sem þekkja til aðstæðna.
Djúpar sprungur og hvilftir
Jöklulbrúnin, frá jafnsléttu upp á
fannbreiðu, snýr mót suðri og er á að
giska 100 metra há; belti með djúp-
um sprungum og sandi orpnum
hvilftum. Í hinum háa jökulvegg er
munni íshellisins áberandi; og í svip
og lögun líkur skráargati. Hér ætti
líka enginn að fara nema í fylgd
þeirra sem í óeiginlegri merkingu
hafa „lykla“ að hellinum og einn
þeirra er Guðjón Þorsteinn Guð-
mundsson, sem rekur ferðaþjónustu-
fyrirtækið Katlatrack. Morgunblaðið
slóst í för með honum um síðastliðna
helgi og kannaði aðstæður á svæð-
inu.
„Jökullinn breytist hratt og slíkt
gerir ferðir á þessar slóðir spenn-
andi. Náttúra landsins fær sífellt
nýjan svip og sú framvinda verður sí-
fellt hraðari,“ segir Guðjón Þor-
steinn. „Ég byrjaði með skipulagðar
ferðir að Kötlujökli árið 2009 og mér
telst svo til að síðan þá hafi umhverfi
og útlit þessa staðar gjörbreyst að
minnsta kosti sjö sinnum. Sprungur
horfið og nýjar myndast, hvelfingar
orðið að skútum og loks hellum, sem
svo bráðna niður. Íshellar eins og sá
sem hér segir frá, hafa að jafnaði
eins og hálfs árs líftíma. Þannig
rýrnar Kötlujökull um að jafnaði 25
metra á ári og eðlilega gefur margt
því eftir.“
Kvikmyndaver í fjallasalnum
Frá hinum víðfeðma Mýrdalsjökli
ganga nokkrir skriðjöklar. Kötlujök-
ull, sem er beint niður af gíg og sig-
katli Kötlueldstöðvarinnar, er einn
þeirra og gengur til suðausturs.
Kötlujökull er umlukinn fjöllum í
næsta stórbrotnu umhverfi, þar sem
auðvelt er að gefa ímyndunaraflinu
lausan tauminn. Slíkt hafa kvik-
myndagerðarmenn líka gert, en í
fjallasalnum að baki Hafursey hafa
verið teknar senur í minnst þrjár bíó-
myndir; það er Syndaflóðssagan
Noah með Russel Crove í aðal-
hlutverki og Transformers með stór-
leikurunum Mark Wahlberg og
Stanley Tucci sem báðar komu út
2014. Myndin Star Wars – Rogue
One var svo tekin að hluta til í þessu
umhverfi og frumsýnd 2017.
Fyrirtækin sem gera út ferðir að
Kötlujökli eru nokkur. Eitt þeirra er
Katlatrack sem Guðjón og Sæunn
Elsa Sigurðardóttir, kona hans, reka.
„Fyrstu árin voru erlendir ferða-
menn þeir sem helst fóru með okkur
að jöklinum. Nú sjást þeir ekki á
landinu en þeirra í stað hafa Íslend-
ingar komið; fólk sem til dæmis fer í
helgarferðir til Víkur með áhuga-
verðri afþreyingu,“ segir Guðjón sem
ekur farþegum sínum frá Vík í Mýr-
dal á áfangastað, en frá bílastæði að
jökulsporði er ekki langur spotti.
Mikil hvefling
Munni íshellisins í Kötlujökli er,
skv. lauslegri áætlun, um 20 metra
hár og 10 metra breiður. Þegar inn í
gáttina er komið tekur við mikil
hvelfing þar sem lækur með leys-
ingavatni streymir fram. Miklir mal-
arbingir eru í hellinum og er gengið
upp og niður þá hrauka – og þegar
inn í botn kemur er stórt gat þar
sem sést upp í jökulbrú og háan him-
in. Alls öryggis er gætt í hellinum,
þar eru brýr og markaðir stígar og
öllum sem á staðinn koma gert að
vera með hjálma og brodda á skóm.
Þannig er öryggi ferðamanna
tryggt.
Skráargat í bráðnandi ísnum
- Kynjamyndir í Kötlujökli - Hraðar breytingar og sífellt nýr svipur á landinu - Stórbrotinn staður
að baki Hafursey á Mýrdalssandi - Syndaflóð og Stjörnustríðsmynd - Vinsæll staður Íslendinga
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Jökulsporður Suðurbrún Kötlujökuls sem er há, sprungin og hrikaleg. Munni hellisins er fyrir miðri mynd og þegar inn er komið er margt óvenjulegt að sjá.
Leiðangur Umhverfið breytist, segir Guðjón Þorsteinn um staðhætti við
Kötlujökull. Hér er hann, lengst til vinstri, með fólk í kynnisför á svæðinu.
Íshellir í Kötlujökli
Hafursey
Hjörleifshöfði
Mýrdalssandur
Vík
Dyrhólaey Reynisfjara
Kötlujökull
Múlakvísl
Heiðar-
vatn
1
1
Íshellir í sunnan-
verðum Kötlujökli
„Mér fannst stórkostleg upplifun að
koma í íshellinn og sjá þá miklu krafta
náttúrunnar sem þarna eru. Hellirinn er
stórbrotinn í allri sinni gerð,“ segir
Gunnar Bragi Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri á Selfossi, sem var á
svæðinu með góðum hópi um sl. helgi.
Hann segir ferðina hafa verið sérlega vel
skipulagða og mikill fengur hafi verið í
fróðlegum lýsingum leiðsögumanns.
„Gripið í ísnum er afar sterkt og alveg
magnað að krókur skrúfaður í ísvegginn
skuli halda halda manni sem er í línu á
festingunni. Svo vekur heimsókn á
svona stað fólk líka til þess að velta um-
hverfismálum fyrir sér; að íshellar
bráðni og hverfi á aðeins fáum miss-
erum. Þar ræður auðvitað hlýnun and-
rúmsloftsins, málefni og veruleiki sem
við þurfum að gefa meiri gaum,“ segir
Gunnar Bragi.
Jökulhellirinn er stórbrotinn
MIKIL UPPLIFUN Á ÓVENJULEGUM STAÐ
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Spennandi Gunnar Bragi í jökul-
hellinum í línu sem fest var í ísinn.
Land Hrikalegt en fallegt umhverfi að baki Hafurseynni. Þetta fjall heitir Kurl.
Listamannaspjall
laugardaginn 20. mars kl. 14
FJALLSKIL
Opið virka daga
10–18,
laugardaga 12–16
Lokað á sunnudögum
GÍSLI B. BJÖRNSSON
Síðasti sýningardagur