Morgunblaðið - 18.03.2021, Side 20

Morgunblaðið - 18.03.2021, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2021 Trönuhrauni 8, Hafnarfirði, stod.is LÉTTU ÞÉR LÍFIÐ Fagfólk STOÐAR veitir nánari upplýsingar og ráðgjöf. Fjölbreytt úrval göngugrinda sem auka öryggi og tækifæri til hreyfingar og útivistar Verð frá 39.800,- Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ákveðið hefur verið að hefja enn á ný innkaupaferli á tveimur nýjum skíða- lyftum fyrir Bláfjöll. Í framhaldinu verður hafinn undirbúningur að kaupum á fleiri lyftum þar og í Skála- felli og því að koma upp snjófram- leiðslu á skíðasvæðinu. Fram- kvæmdum á að ljúka á árinu 2026 og er áætlað að þær kosti í heildina 5,2 milljarða króna. Jafnframt er verið að ræða möguleika á að bæta aðstöðu fyrir gönguskíðafólk í Bláfjöllum og víðar á höfuðborgarsvæðinu. „Skíðamennska og útivera fólks fer vaxandi. Sveitarfélögin vilja endurnýja búnað og gera skíðasvæð- in betri og aðgengilegri en þau eru í dag. Með framleiðslu á snjó fæst betri nýting á skíðasvæðunum,“ segir Páll Björgvin Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH). Öll sveitarfélögin innan SSH, nema Kjósarhreppur, standa að uppbygg- ingaráformunum. Tekur 2-3 ár Stjórn SSH hefur ákveðið, eftir samráð við sveitarfélögin, að hefja samkeppnisútboð á Evrópska efna- hagssvæðinu fyrir fyrsta áfanga. Það eru nýjar stólalyftur í Bláfjöll og koma þær í staðinn fyrir Drottningu við Öxlina og Gosa í Suðurgili. Nýj- asta skíðalyftan, Kóngurinn í Kóngs- gili, stendur áfram. Áformað er að framkvæmdir verði á árunum 2021 til 2024. Í vor verður farið að undirbúa kaup á notaðri stólalyftu fyrir Skála- fell og síðar kaup á nýrri toglyftu úr Kerlingardal í Bláfjöllum. Leyfismál töfðu Umræður og undirbúningur þess- ara framkvæmda hefur staðið yfir í meira en áratug. Á árinu 2018 kynntu sveitarfélögin áform um uppbygg- ingu skíðasvæðanna í Bláfjöllum og Skálafelli. Endurnýja átti stólalyftur á báðum stöðum og toglyftu úr Kerl- ingardal í Bláfjöllum og koma upp aðstöðu til snjóframleiðslu í Bláfjöll- um og ef til vill einnig í Skálafelli. Var þá miðað við að framkvæmt yrði á ár- unum 2019 til 2024 fyrir 3,6 milljarða króna. Undirbúningur og öflun leyfa reyndist harðsóttari en reiknað var með og dróst að ráðist yrði í fram- kvæmdir. Loks var efnt til útboðs á fyrsta áfanga síðastliðið sumar. Bár- ust þrjú tilboð í lyfturnar og voru þau á bilinu 2,3 til 2,6 milljarðar króna sem var 350 til 600 milljónum króna yfir kostnaðaráætlun. Stjórn SSH ákvað að hafna öllum tilboðum og vildi reyna að ná niður kostnaði með samkeppnisútboði sem nú hefur ver- ið ákveðið að ráðast í. Aðstaða fyrir gönguskíðafólk Skíðaganga er vaxandi grein í skíðamennskunni. Samtök sveitar- félaga á höfuðborgarsvæðinu hafa fengið hvatningu frá einstökum sveit- arfélögum og bæjarfulltrúum um að hraða framkvæmdum við að bæta að- stöðu fyrir gönguskíðafólk. Ekki er aðeins kallað eftir brautum heldur annarri aðstöðu sem skíðafólk þarf að hafa aðgang að, svo sem salernum. Páll Björgvin segir að samráðs- nefnd skíðasvæðanna ræði nú hvern- ig best sé að standa að uppbyggingu gönguskíðaaðstöðu í Bláfjöllum og víðar á höfuðborgarsvæðinu. Nýtt útboð á stóla- lyftum fyrir Bláfjöll - Gosa og Drottningu skipt út - Snjóframleiðsla síðar Morgunblaðið/Hari Bláfjöll Skíðað í Bláfjöllum á fallegum sunnudagsmorgni. Aðstaðan verður bætt með tveimur nýjum stólalyftum og aðgengi að svæðinu betrumbætt. Þótt næsta fáir ferðamenn komi um þessar mundir á friðlýst svæði og í þjóðgarða landsins hefur starfsfólk þar í nægu að snúast. „Innviðirnir þurfa að vera í lagi, segir Guð- mundur Jensson, landvörður í Þjóð- garðinum Snæfellsjökli. Hann var í vikunni að endurbæta línur sem af- marka göngustíga á Svalþúfu við Lóndranga. Tíminn nú er nýttur í margvísleg slík verkefni, en margt fleira og stærra er fram undan í þjóðgarðinum. Má þar nefna gerð útsýnispalla á Arnarstapa, Malarrifi og Saxhóli. Einnig steinhlaðinn stíg á Djúpalónssandi, enda hafa sér- stakar fjárfestingar fengist til þess. „Við erum að búa í haginn til framtíðar, segir Jón Björnsson þjóð- garðsvörður. „Vissulega eru að- stæður í þjóðgarðinum óvenjulegar nú. Á síðasta ári komu hingað 200 þúsund manns, þá að mestu Íslend- ingar, borið saman við hálfa milljón árið 2019 þar sem erlendir ferða- menn voru stærsti hlutinn. Miðað við aðstæður nú, horfum við sérstaklega til Íslendinga í sumar.“ sbs@mbl.is Landvörðurinn lítur eftir innviðunum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Umhverfi Guðmundur Jensson á Svalþúfunni, hér með Hvalvík í baksýn. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Á dögunum afhenti Vélrás, umboðs- fyrirtæki VDL á Íslandi, Hópbílum í Hafnarfirði fimm nýjar hópferða- bifreiðar af umræddri gerð. Bílar þessir eru allir 15 metra langir og taka 61-63 far- þega. Hjá Hópbíl- um er ætlunin að nota þessa bíla í strætóferðir út á land, skv. samn- ingi sem fyrir- tækið gerði við Vegagerðina. Þrír af bílunum fimm eru búnir hjólastólalyftum. Slíkt er nýjung í almenningssamgöngum og verður þessi þjónusta í boði á flestum leið- um, en panta þarf fyrir fram. Bílarnir nýju eru allir búnir full- komnum öryggisbúnaði. Þar má nefna þriggja punkta öryggisbelti í öllum sætum, sjálfvirka neyðar- bremsu, línuvara og sjálfvirkan hraðastilli. Eins eru bílarnir búnir öflugu hita- og kælikerfi. Allt frá stofnun hafa Hópbílar lagt mikla áherslu á að takmarka eins og mögulegt er neikvæð áhrif starfsem- innar á umhverfið, segir í tilkynn- ingu. Með það í huga var árið 2003 innleitt umhverfisstjórnunarkerfi. Síðan hefur öll starfsemi fyrir- tækisins þurft að uppfylla þær ströngu kröfur sem eru gerðar staðl- inum samkvæmt. Meðal annars er gerð sú krafa að Hópbílar velji birgja í samræmi við áherslur þeirra í umhverfismálum. Þá er allur rekst- ur sem og akstur bíla fyrirtækisins kolefnisjafnaður. Gengu að öllu vísu með kaupum á VDL-bílum „Reynslan af bílunum nýju er góð, enda gengum við að öllu vísu við kaupin á þeim,“ segir Ágúst Har- aldsson, rekstrarstjóri hjá Hópbíl- um, í samtali við Morgunblaðið. Alls eru um 200 bílar, litlir sem stórir, í útgerðinni hjá fyrirtækinu og verk- efnastaðan um þessar mundir er ágæt. Þar kemur til að mörg verk- efnin eru föst, svo sem skólaakstur, ferðaþjónusta fatlaðs fólks, þjónusta við fyrirtæki og svo framvegis. Vænst er að enn meira verði umleik- is þegar erlendir ferðamenn fara aft- ur að koma til landsins. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Rútur Tvær af þeim nýju á flotastöð Hópbíla á Hvaleyrarholti í Hafnarfirði. Hópbílar fá fimm nýja bíla í flotann - VDL-rútur - Taka rúmlega 60 far- þega - Umhverfisvænar og öruggar Ágúst Haraldsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.