Morgunblaðið - 18.03.2021, Page 26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2021
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
„Það er nú mikil óvissa með grá-
sleppuna eins og eiginlega á hverju
ári,“ segir Ásbjörn Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskkaupa hf., beðinn
um að gefa álit sitt á komandi grá-
sleppuvertíð. Gefið hefur verið út að
vertíðin fari af stað 23. mars, en
veiði hefst ekki í Breiðafirði fyrr en
20. maí. Mikil óvissa ríkir um vænt-
anlegt afurðaverð sem Ásbjörn tel-
ur líklegt að lækki verulega miðað
við þróun verðs frá síðustu vertíð.
„Verðið sem við keyptum á í fyrra
var miklu hærra en það sem við
fengum. Það lækkaði mikið verðið á
grásleppunni í fyrra eftir að við vor-
um búin að kaupa,“ útskýrir Ás-
björn og segir óraunhæft að horfa
til þess verðs sem grásleppusjó-
menn fengu í fyrra og spá um vertíð
ársins. „Það var mikil lækkun á
söluverði hrognanna í fyrra og það
sést í útflutningstölum.“
Spurður hvort þessa stöðu sem
skapaðist í fyrra megi rekja til kór-
ónuveirufaraldursins svarar Ás-
björn því játandi enda hafi farald-
urinn haft áhrif til lækkunar á verði
flestra ef ekki allra sjávarafurða.
„Veitingastaðir eru til dæmis enn
lokaðir í Evrópu. Áhrifin eru ennþá
rosaleg og ófyrirséð hvernig þetta
verður hreinlega.“
Vill enginn kaupa hvelju
Kristján Þór Júlíusson sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra
undirritaði reglugerð um veiðarnar
að kvöldi þriðjudags og felur nýja
reglugerðin í sér heimild grásleppu-
sjómanna til að fleygja grásleppu-
skrokkunum frá borði eftir að hafa
hirt hrognin.
Ásbjörn segir erfitt að koma
hveljunni í verð. „Grásleppan er
70% skrokkkur og 30% hrogn og við
erum enn með tugi gáma af hveljum
sem eru óseldar frá í fyrra,“ segir
hann og bendir á að nokkur þúsund
tonn séu óseld í Kína frá síðustu
vertíð. Ásbjörn segir margt benda
til þess að ekki fáist hátt verð fyrir
hrognin og hefði það verið alveg
öruggt ef ekki fengist heimild til að
henda hveljunni í sjóinn.
Ekki þykir góð lausn að koma
grásleppunni í bræðslu að sögn Ás-
bjarnar. „Það er svo mikill kostn-
aður við að koma henni í bræðslu,
að keyra hana. Það vill enginn
borga fyrir hana,“ útskýrir hann. Þá
sé einnig mjög dýrt að farga grá-
sleppunni ef grásleppusjómönnum
yrði gert að koma með hveljuna að
landi.
Fram kemur í tilkyningu sem birt
var á vef Fiskistofu í gær að stofn-
unin geri ráð fyrir að hefja móttöku
umsókna um leyfi til grásleppuveiða
í dag. Leyfi verða gefin út fyrir 25
samfellda veiðidaga og verða þau
bundin við ákveðin svæði og veiði-
tímabil, en veiðisvæðin verða sjö
talsins.
Í Morgunblaðinu á þriðjudag kom
fram að sumir grásleppusjómenn
væru sannfærðir um að gráslepp-
unni yrði á endanum komið í kvóta,
með samþykkt frumvarps þess efn-
is, og að þeir þess vegna hygðust
sækja á miðin til að tryggja sér
veiðireynslu þrátt fyrir lágt verð.
Grásleppuvertíð hefst
þriðjudag 23. mars
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Umrót Ásbjörn segir verð á grásleppu hafa lækkað mikið í fyrra.
- Tugir gáma af hveljum óseldir frá í fyrra - 25 veiðidagar
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
ÍV SIF Equity Farming ehf. (ÍSEF)
festi nýverið kaup á meirihluta í fisk-
eldisfyrirtækinu ÍS 47 ehf. á Flat-
eyri sem hefur byggt upp þorsk- og
regnbogasilungseldi í Önundarfirði.
ÍSEF er eignarhaldsfélag í eigu
hóps íslenskra fjárfesta sem hefur
að meginmarkmiði að byggja upp
eignasafn í fiskeldi og tengdri starf-
semi og eru það Íslensk verðbréf
sem halda utan um rekstur þess.
„Þetta er frábært fyrir íslenskt
fiskeldi, Flateyri og svæðið í heild,“
segir Gísli Jón Kristjánsson, stofn-
andi ÍS 47. Hann kveðst hvergi
hættur þrátt fyrir að hafa selt stóran
hlut í félaginu og fer hann ásamt eig-
inkonu sinni, Friðgerði Ómars-
dóttur, nú með 16% hlut í félaginu
sem hefur verið lítið fjölskyldufyr-
irtæki frá stofnun árið 2003. Félagið
fékk fyrst leyfi til eldis á regnboga-
silungi í Önundarfirði árið 2013 og
setti þá út 19.000 seiði.
Það var í janúar sem Matvæla-
stofnun gaf út nýtt rekstrarleyfi fyr-
ir eldið í Önundarfirði og fimmfald-
aðist heimilaður hámarkslífmassi ÍS
47 í firðinum úr 150 tonnum af
þorski og 50 tonnum af regnbogasil-
ungi í 1.000 tonn af þorski og regn-
bogasilungi. „Þetta er í raun og veru
bara byrjunin,“ segir Gísli Jón, en
hann hefur áður lýst því yfir að
stefnt sé að því að stækka eldið í Ön-
undarfirði í 2.500 tonn í samræmi við
burðarþol.
Seiði til útsetningar í vor
Þá telur Gísli Jón aðkomu ÍSEF
til þess fallna að styðja við stækk-
unaráformin og hafa nýir hluthafar
lagt félaginu til aukið hlutafé. Í til-
kynningu segjast þeir telja að
„rekstur félagsins geti til framtíðar
stutt duglega við atvinnuuppbygg-
ingu á Vestfjörðum og þá sér-
staklega á Flateyri. Félagið hefur
þegar tryggt sér seiði til útsetningar
í vor og munu fjárfestingar í frekari
búnaði og mannaráðningar fylgja í
kjölfarið.“ Kveðast nýir eigendur
meirihluta í ÍS 47 sjá „tækifæri í
mögulegu samstarfi eða samein-
ingum við önnur félög sem stunda
fiskeldi á norðanverðum Vest-
fjörðum.“
Fjárfest Gísli Jón Kristjánsson, annar f.v., kveðst hæstánægður með að-
komu ÍSEF og segir um að ræða góðar fréttir fyrir samfélagið á Flateyri.
Nýtt hlutafé styður
við stækkun ÍS 47
- Fjárfestar eignast meirihluta
Afurðaverð á markaði
16. mars 2021, meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 286,54
Þorskur, slægður 322,67
Ýsa, óslægð 386,65
Ýsa, slægð 335,61
Ufsi, óslægður 114,24
Ufsi, slægður 155,63
Gullkarfi 195,33
Blálanga, slægð 100,00
Langa, óslægð 165,00
Langa, slægð 148,41
Keila, óslægð 50,00
Keila, slægð 64,63
Steinbítur, óslægður 97,72
Steinbítur, slægður 162,99
Skötuselur, slægður 783,46
Grálúða, óslægð 378,00
Grálúða, slægð 639,74
Skarkoli, slægður 279,63
Þykkvalúra, slægð 674,84
Langlúra, óslægð 149,00
Sandkoli, óslægður 132,16
Bleikja, flök 1.446,00
Regnbogasilungur, flök 3.176,00
Gellur 1.195,43
Grásleppa, óslægð 192,45
Hlýri, slægður 261,16
Hrogn/ýsa 242,47
Hrogn/þorskur 527,56
Lúða, slægð 618,22
Lýsa, slægð 127,33
Rauðmagi, óslægður 108,34
Skata, slægð 54,48
Tindaskata, óslægð 11,00
Undirmálsýsa, slægð 83,00
Undirmálsþorskur, óslægður 199,94
Undirmálsþorskur, slægður 198,00
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna.
Betri svefn
Melissa Dream er
hannað til að stuðla
að djúpri slökun og
værum svefni.
Þessi blanda inniheldur ekki efni
sem hafa sljóvgandi áhrif.
Valið besta
bætiefni við streitu
hjá National Nutrition
í Kanada
„Þvílíkur munur!
Ég bæði sef fastar og sofna fyrr. Ég ligg ekki andvaka á koddanum og
vakna endurnærð og úthvíld. Ég sef alla nóttina og er ekki sífellt að
vakna upp eins og áður. Ég mæli hiklaust með Melissa Dream fyrir alla“
Elsa M. Víðis.