Morgunblaðið - 18.03.2021, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 18.03.2021, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2021 18. mars 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 127.13 Sterlingspund 176.54 Kanadadalur 101.97 Dönsk króna 20.388 Norsk króna 15.02 Sænsk króna 14.953 Svissn. franki 137.4 Japanskt jen 1.168 SDR 181.65 Evra 151.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 183.6722 Hrávöruverð Gull 1732.3 ($/únsa) Ál 2184.5 ($/tonn) LME Hráolía 68.81 ($/fatið) Brent « Þrír lykilstjórn- endur hjá smásölu- fyrirtækinu Festi hf. keyptu í gær hluti í félaginu fyrir sam- tals 264 milljónir króna. Mest keypti stjórnarformað- urinn Þórður Már Jóhannesson eða tæplega 655 þús- und hluti á genginu 174,5, fyrir rúmlega 114 milljónir króna. Kaupin fóru fram í gegnum félagið Brekka Retail ehf. Eftir viðskiptin á Þórður Már hluti í félaginu fyrir 870 milljónir króna að markaðs- virði. Næststærstan hlut keypti forstjór- inn Eggert Þór Kristófersson eða 510 þúsund hluti á sama gengi og Þórður Már, fyrir tæplega 89 milljónir króna. Kaup Eggerts voru gerð í gegnum fyrir- tæki hans Blámara-ráðgjöf ehf. Eftir við- skiptin á Eggert hluti í Festi fyrir 104,4 milljónir að markaðsvirði. Þá keypti fjár- málastjórinn Magnús Kr. Ingason, í gegnum félagið MK Invest ehf., 350 þús- und hluti á genginu 173,8 fyrir tæplega 61 milljón króna. Í gær voru samtals 586 milljóna króna viðskipti með Festi í Kauphöll Íslands og hækkuðu bréfin um 1,31%. Gengi félags- ins er nú skráð 174 krónur hver hlutur. Lykilstjórnendur Festar kaupa fyrir 264 mkr. Kaup Gengi Festar hækkaði í gær. STUTT Baldur Arnarson baldura@mbl.is Þau tímamót verða í sölu Volvo á Ís- landi í júní næstkomandi að þá verður í fyrsta sinn í boði að kaupa bílana í beinni sölu á netinu. Nánar tiltekið verður Volvo XC40 seldur í hreinni rafbílaútgáfu en hann hefur verið til sölu hjá Brimborg sem tengiltvinnbíll. Mun salan fara fram í gegnum vef- inn volvocars.com/is en fyrirspurnin mun berast til Brimborgar sem mun panta bílinn eða, til að stytta afhend- ingartíma, bjóða upp á bíl sem er á leið til landsins. Egill Jóhannsson, forstjóri Brim- borgar, segir netsöluna hluta af alþjóð- legri þróun í bílasölu. „Þetta er að hellast yfir bílamark- aðinn á heimsvísu,“ segir Egill um þessi umskipti. Ein afleiðingin sé minni þörf fyrir lagerhald. Raunar hafi Brimborg byrjað að undirbúa sig fyrir þessa þróun fyrir tveimur árum. Sú aðlögun birtist í minna lagerhaldi en áður. Alltaf pantanir á leiðinni „Þá er spurningin hver muni eiga lagerinn. Jafnframt þarf að finna þetta samspil milli kröfu Íslendings- ins um afhendingu samdægurs og þessara hugmynda um netsölu. Við erum búnir að finna góða blöndu reynsluaksturs og sýningarbíla á staðnum og höfum alltaf smávegis í pöntun. Ef pantað er frá grunni getur af- hendingartíminn verið fjórir mánuð- ir en ef okkur tekst að sjá fyrir hlut- ina getur okkur tekist að stytta biðtímann niður í tvo mánuði. Okkur hefur tekist það frábærlega og þá kemur inn þessi hugmynd hjá fram- leiðandanum um netsölu á rafbíl- um,“ segir Egill um aðdragandann. Minni sala í sýningarsal Hann segir aðspurður að með þessu breytist viðskiptalíkanið hjá Brimborg. Það muni draga úr beinni sölu í sýningarsal en eftir sem áður verði greitt fyrir að sýna bílana, reynsluakstur og umsýslu. Þá verði Brimborg áfram með viðhald, ábyrgðarmál og muni taka notaða bíla upp í nýja. Þau tíðindi urðu jafnframt hjá Brimborg að fyrirtækið gerði þjón- ustusamning við rafbílaframleiðand- ann Polestar vegna fyrirhugaðrar sölu á Íslandi. Að sögn Egils liggur ekki fyrir hvenær hún hefst. Polestar muni opna sölusíðu og Brimborg afhenda bílana. Þá komi til greina að Brimborg muni hafa sýn- ingarsal með Polestar-rafbílum. Egill segir þjónustusamninginn m.a. til kominn af því að Brimborg sé umboðsaðili Volvo á Íslandi. „Tæknin er sambærileg og í Volvobílum, þannig að við erum með alla þjálfun og verk- færi og þekkjum hætturnar af því að þjónusta rafbíla. Þeir geta því treyst því að við getum þetta en við munum geta pantað varahluti í gegnum þeirra kerfi. Sumir varahlutirnir eru eins [og hjá Volvo], sérstaklega þeir sem tengjast tækninni,“ segir Egill. Polestar muni vekja áhuga Spurður hvaða væntingar hann hafi um sölu Polestar á Íslandi segist Egill vongóður um góða sölu. Almennt sé spurn eftir rafbílum að aukast og það helst orðið til að hamla sölu á Íslandi að úrvalið af rafbílum hafi verið tak- markað. „Það er ljóst að ef svona bíll [frá Polestar] væri í boði á Íslandi væri um- talsverð eftirspurn eftir honum. Ef maður skoðar sölutölur frá Noregi kemur í ljós að Polestar 2 er nú sjötti mest seldi rafbílinn,“ segir Egill. Audi e-tron var í 1. sæti. Svo kom Tesla Model 3. Þá Nissan Leaf, svo Peugeot 2008 og Volvo XC 40 var í 5. sæti, á undan Polestar 2. Samkvæmt Bílgreinasambandinu voru nýorkubílar að baki 57,9% ný- skráninga í fyrra en hlutfallið var 27,6% árið 2019. Þar af var hlutfall raf- bíla af nýskráningum 25,2% en hlutur tengiltvinnbíla 19,9%. Netsala á Volvo-rafbíl vísir að nýju viðskiptalíkani Ljósmynd/Volvo Seldur á netinu Sala á rafbílnum Volvo XC40 hefst á Íslandi í júní. - Brimborg hefur líka samið við Polestar, sem hyggur á sölu rafbíla á Íslandi Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, fagstjóri ferðaþjónustu, útflutnings og fjárfestingar hjá Íslandsstofu, segir spurð um þau tíðindi sem greint var frá í Morgunblaðinu í gær að bæði Bretum og Banda- ríkjamönnum, helstu ferðaþjóðum til Íslands, og öðrum þjóðum utan Schengen-samstarfsins verði gert kleift að koma til landsins á ný hafi þeir gild bóluefnavottorð, að Ís- landsstofa sé byrjuð að viða að sér gögnum til að skoða hvernig best sé að bregðast við. Fregnirnar hafi nú þegar verið sendar til almanna- tengslaskrifstofa í löndunum og við- brögðin verið gríðarlega góð. „Við hófum markaðsaðgerðir í Bretlandi fyrir einni og hálfri viku sem miða að því að viðhalda áhuga á Íslandi sem áfangastað. Viðtökur við þeirri herferð gefa jákvæð teikn um áhuga fólks á að koma hingað til lands. Þessa markaðsherferð er einfalt að yfirfæra á Bandaríkja- markað og við erum að undirbúa sambærilegar aðgerðir þar í landi,“ segir Sigríður Dögg. Talað inn í ástandið Hún segir að markaðsaðgerðirnar snúist um sýningar á myndbandi sem er hluti af „Enough“-herferð Ís- landsstofu. Hún hafi verið notuð síð- asta sumar með góðum árangri við að vekja áhuga þýskra og danskra ferðalanga á Íslandi. Sigríður Dögg segir að myndbandið hafi fengið milljón áhorf á þeirri einu og hálfu viku sem það hefur verið í birtingu í Bretlandi. „Það að tala beint inn í ástandið, við fólk sem hefur verið lokað inni á heimilum sínum, skilar mjög miklum viðbrögðum.“ Hún segir mjög gott að herferðin sé í gangi nú þegar jákvæðar fréttir berist af bóluefnavottorðunum. Morgunblaðið/Ómar Túristar Bretar voru tíðir gestir á Íslandi fyrir veirufaraldurinn. Gríðarlega góð viðbrögð - Myndband í Bretlandi búið að fá milljón áhorf Even Sandvold Roland, yfir- maður upplýsingamála hjá Tesla í Noregi og á Íslandi, segir áformað að hefja framleiðslu á Tesla Model Y fyrir Evrópu- markað á miðju þessu ári. Ísland sé þar meðtalið. Hvað snertir Cyber- truck-pallbílinn sé stefnt að því að hefja framleiðslu fyrir Bandaríkjamarkað seint á þessu ári. Hins vegar hafi engar tíma- setningar verið gefnar út í þessu efni fyrir Evrópu. Spurður hversu marga bíla Tesla hafi selt til Íslands í beinni sölu segir Roland að fyrirtækið gefi ekki upp sölu á einstaka mörkuðum. Spurður hvar bíl- arnir eru framleiddir bendir hann á að Tesla hafi nú verk- smiðjur í Kína og Bandaríkj- unum. Þá sé áformað að taka nýja verksmiðju í notkun í Berlín síðar á þessu ári. Model Y í boði á Íslandi í ár TESLA Með nýsköpun og sjálfbærni að leiðarljósi höldum við ótrauð áfram að umbylta matvælaframleiðslu á heimsvísu. Þar höfum við ætíð hugfast að allt telur. Öll tækni telur. Hvert og eitt samtal. Hver og ein hugmynd. Hvert og eitt viðbótargramm af matvöru. Hver og einn vatnsdropi við framleiðslu. Við getum öll haft áhrif. Kynntu þér ársskýrslu Marel 2020 ámarel.com/ar Nýsköpun til áhrifa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.