Morgunblaðið - 18.03.2021, Blaðsíða 34
34 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2021
„Hefði ég spurt hvað
fólkið vildi, hefði það
beðið um hraðskreiðari
hesta“. Svohljóðandi er
þekkt tilvitnun í frum-
kvöðulinn Henry Ford
sem kynnti almenningi
fyrstu fjöldaframleiddu
bifreiðina. Tækninýj-
ungin mætti þónokk-
urri andstöðu. Bílar
þóttu hávaðasamir,
mengandi og plássfrekir. Fljótlega
varð fólki þó ljóst að hestar væru ekki
besti fararskjótinn. Ferðamynstur
breyttist, bíllinn færði fólki aukið
frelsi og helstu borgir heims byggðu
þéttriðin samgöngukerfi fyrir bíla.
Árið 1966 birti Lesbók Morgun-
blaðsins grein þar sem lesendum var
boðið að skyggnast inn í Reykjavík
framtíðar. Horft var til þess tíma þeg-
ar Aðalskipulag Reykjavíkur 1962-
1983 myndi verða fullframkvæmt.
Það byggði á ríkjandi viðhorfum sjö-
unda áratugarins þar sem skipulag
borga tók aðallega mið af þörfum
hinnar byltingarkenndu einkabifreið-
ar. Greinarhöfundur sá fyrir sér nú-
tímalega höfuðborg, með fullkomnu
hraðbrautakerfi, skipulögðu fyrir
bílaumferð. Miðborginni yrði gjör-
breytt og gömul hús myndu víkja fyr-
ir vegasamgöngum. Bílaborgin
Reykjavík myndi verða til.
Samgöngur fyrir suma
Á dögunum steig fram hópurinn
Áhugafólk um samgöngur fyrir alla
og kynnti hugmyndir að bættum sam-
göngum á höfuðborgarsvæðinu. Hug-
myndirnar eru settar fram með ítar-
legum rökstuðningi en minna þó eilít-
ið á áratuga tímaflakk. Telur hópur-
inn hið 60 ára gamla hraðbrauta-
skipulag höfuðborgarsvæðisins hafa
staðist allar væntingar en hefði viljað
sjá áður áformaða hraðbraut gegnum
Fossvogsdalinn. Þá telur hópurinn
ekki æskilegt að færa bílaumferð
neðanjarðar. Breiðari akvegir og
fjöldi mislægra gatnamóta verði betri
kostur.
Hópurinn leggst jafnframt gegn
áformum um Borgarlínu en kynnir til
sögunnar svokallaða Borgarlínu Lite
– metnaðarlausa útgáfu af hinu fyrir-
hugaða hágæða almenningssam-
göngukerfi. Borgarlínu Lite tilheyra
færri sérakreinar, lengri biðtími og
verri þjónusta. Hún er hvorki bylting-
arkennd né nýstárleg hugmynd. Hún
hefur áður verið fullrannsökuð og
þótti ekki standast gæðakröfur.
Tillögur hópsins taka aðeins mið af
þörfum þeirra sem vilja ferðast með
bíl. Þær taka mið af þeirri bílaborg
sem tók að þróast hérlendis kringum
1960. Þær taka ekki mið af því að
íbúum höfuðborgarsvæðisins hefur
fjölgað um 125% á síðustu sextíu ár-
um. Þær taka mið af ríkjandi við-
horfum sjöunda áratugarins, en ekki
ríkjandi viðhorfum samtímans. Sér-
fræðingarnir segja hins vegar
áherslur sínar – á meira malbik og
samgöngur fyrir suma –
til þess fallnar að ná aukn-
um ávinningi.
Hvernig metur
maður ávinning?
Við innleiðingu breyt-
inga á borgarskipulagi er
mikilvægt að kanna ávinn-
ing í víðara samhengi. Til-
lögur sérfræðinganna
meta hins vegar aðeins
ávinninginn af því að aka
bifreið hratt milli ólíkra
borgarhluta. Þær meta
ekki ávinninginn af því að ferðast með
öðrum hætti. Hópurinn metur ekki
ávinninginn af því að búa í borgar-
hverfi þar sem gott er að dvelja, held-
ur aðeins ávinninginn af því að búa í
borgarhverfi sem gott er að yfirgefa.
Borgarlínan og samhliða stokka-
lausnir, munu leiða af sér margvís-
legan ávinning fyrir gangverk og
ásýnd borgarinnar. Þær munu
tryggja mannvænna umhverfi, heild-
stæðari borgarhverfi og fjölbreyttari
valkosti. Lausnirnar eru liður í eðli-
legu þroskaferli Reykjavíkurborgar –
enda einkenni þróaðra borga ekki að
hinir efnaminni ferðist með bíl, heldur
að hinir efnameiri ferðist með almenn-
ingssamgöngum.
Að bjóða segulband
Sjaldan hafa breytingar á sam-
félagsgerð og kynslóðum verið örari.
Tímarnir breytast á leifturhraða – og
nýjum tímum fylgja ný viðhorf. Það
birtist glöggt í nýlegum mælingum á
viðhorfum til samgangna.
Síðustu ár hefur langstærstur hluti
borgarbúa farið leiðar sinnar á bíl. Ný-
legar mælingar sýna að 63% höfuð-
borgarbúa ferðast til vinnu sem bíl-
stjórar á einkabíl. Hins vegar sýna
sömu mælingar að aðeins 35% höfuð-
borgarbúa kjósa helst að ferðast með
þeim hætti til vinnu. Þannig myndu um
55% íbúanna helst vilja ferðast til
vinnu á reiðhjóli, fótgangandi eða með
strætó. Það rímar við þróun síðustu
ára þar sem fjárfesting í hjólreiða-
stígum hefur leitt til þess að 75% fleiri
fara nú leiðar sinnar á reiðhjóli en með
almenningsvögnum. Niðurstaðan sýnir
glöggt að fjárfesting í nýjum sam-
göngukostum skilar árangri – jafnvel í
blautu og vindasömu Reykjavík.
Borgarskipulagið þarf að taka mið
af breyttum þörfum. Við þurfum að
skapa umhverfi sem ýtir undir nýja
valkosti og mætir óskum íbúa. Við
getum ekki haldið áfram að bjóða
landlínu þegar fólkið biður um far-
síma. Við getum ekki haldið áfram að
bjóða segulband þegar fólkið biður um
streymisveitur.
Systur í samgöngum
Nú ríflegri öld frá því Henry Ford
kynnti fyrsta fjöldaframleidda bílinn
hefur gamanið aðeins kárnað. Flestar
borgir heims glíma nú við bílafjölda
sem samgönguinnviðir ráða illa við.
Reykjavíkurborg er þar engin undan-
tekning. Um götur borgarinnar fara
bílar ríflega milljón ferðir daglega.
Samtök iðnaðarins hafa áætlað að höf-
uðborgarbúar sólundi um níu milljón
klukkustundum í umferðartafir ár-
lega. Síðustu ár hefur bílum fjölgað
meira en fólki í borginni. Mannfjölda-
spár gera ráð fyrir 70.000 nýjum íbú-
um á höfuðborgarsvæðinu næstu 20
árin. Ef bílaeign eykst samhliða, á
áður þekktum hraða, verður okkur
vandi á höndum. Við þurfum stefnu-
breytingu. Lausn samgönguvandans
mun ekki felast í hraðbraut gegnum
Fossvogsdalinn og mislægum gatna-
mótum inn í Elliðaárdalinn. Lausnin
mun felast í betra borgarskipulagi,
dreifðari atvinnutækifærum og auk-
inni fjarvinnu – en ekki síst breyttum
ferðavenjum og fjölbreyttum val-
kostum.
Samgöngusáttmáli höfuðborgar-
svæðisins var undirritaður og sam-
þykktur í september 2019 af helsta
forystufólki Sjálfstæðisflokks. Hann
boðar byltingu í samgöngum svæðis-
ins. Hann kynnir til sögunnar breiða
fjárfestingu í fjölbreyttum samgöngu-
kostum. Hann er byggður á því að
Borgarlínan, bíllinn og reiðhjólið séu
systur, ekki fjendur – þrír ólíkir far-
armátar sem saman munu leysa sam-
gönguvanda höfuðborgarsvæðisins.
Hann er byggður á því að farþegum
almenningssamgangna verði fjölgað,
en áfram muni nærri 60% fólks fara
leiðar sinnar á bíl. Sú hugmynd að
velja þurfi einn fararmáta til að notast
við öllum stundum, allra sinna ferða,
alla daga vikunnar, er nú víkjandi
sjónarmið. Framtíðin felur í sér
sveigjanleika.
Hugrekki til breytinga
Við lifum á spennandi umróts-
tímum sem kalla munu á breytingar.
Rétt eins og einkabifreið Henrys
Ford mætti andstöðu munu nýir sam-
göngukostir alltaf vekja viðbrögð.
Breytingar munu alltaf vekja við-
brögð. Það hefur verið einkennis-
merki sjálfstæðismanna að geta stað-
ist slíkan brotsjó – að geta leitt á
krefjandi umrótstímum og sýnt stað-
festu við innleiðingu breytinga.
Fortíðin er barn síns tíma. Fram-
tíðin er viðfangsefnið. Reykjavíkur-
borg þarf að byggja á framtíðarsýn
sem er aðlaðandi fyrir fjölbreytta ald-
urshópa. Við þurfum að varðveita sér-
kenni okkar en gæta þess að þróast í
takt við aðrar vestrænar borgir – að
öðrum kosti verðum við undir í sam-
keppni um ungt fólk og atgervi. Við
heillum ekki ungt hæfileikafólk með
sextíu ára gömlum lausnum. Við þurf-
um að bjóða lifandi borgarumhverfi,
úrval tækifæra og fjölbreytta valkosti
– í frjálsu samfélagi. Við þurfum að
fullþroskast úr sveit í borg.
Úr sveit í borg
Eftir Hildi
Björnsdóttur » Við þurfum að bjóða
lifandi borgarum-
hverfi, úrval tækifæra
og fjölbreytta valkosti –
í frjálsu samfélagi.
Hildur Björnsdóttir
Höfundur er borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins.
Í lok febrúar gaf
utanríkisráðuneytið
út skýrslu sem heitir
„Ljósleiðaramál og
útboð ljósleiðara“, sjá
www.stjornarradid.is/
library/04-Raduneytin/
Utanrikisraduneytid/PDF-
skjol/15.2.21_Starfs-
hopur_ljosleidaramal_s-
kilagrein_greinargerd_til_r-
hr_lokautgafa_uppsett.pdf.
Skýrslunni var fylgt
eftir með grein í Morgunblaðinu
eftir Guðlaug Þór Þórðarson utan-
ríkisráðherra og Harald Bene-
diktsson alþingismann undir yfir-
skriftinni „Úr kyrrstöðu í sókn“.
En um hvað snúast skýrslan og
greinin? Í stuttu máli er verið að
fjalla um þrjá ljósleiðara af átta
sem Mannvirkjasjóður NATO
kostaði að hluta og tengir saman
fjórar ratsjárstöðvar NATO á Ís-
landi, á Suðurnesjum, á Bolavík-
urfjalli, á Gunnólfsvíkurfjalli og
við Stokksnes. Árið 2008 voru
tveir þræðir af þremur í NATO-
leiðurunum boðnir til leigu í út-
boði. Gekk tilboð í einn þráðinn til
baka en Vodafone bauð í og fékk
einn þráð til leigu. Þráðurinn var
loks afhentur árið 2010 til Voda-
fone eftir að reynt hafði verið með
öllum ráðum að tefja afhendingu
hans.
Undirritaður hefur komið að
hönnun og lagningu tveggja ljós-
leiðarakerfa í dreifbýli en það var í
Öræfum árin 2007-2010 (sjá nánar
betrifjarskipti.is/fo) og hins vegar
í Mýrdal 2013-2014. Í báðum til-
vikum var um að ræða framtak
íbúanna sjálfra án stuðnings rík-
isins. Hér skal fullyrt að ef Voda-
fone hefði ekki haft umræddan
þráð í NATO-leiðaranum til um-
ráða hefði ekkert orðið af téðum
ljósleiðarakerfum. Ástæðan var
tregða Mílu til að þjónusta bæði
kerfin. Þveröfugt við viðbrögð
Mílu reyndist auðsótt mál af hálfu
Vodafone að tengja ljósleið-
arakerfin tvö við umheiminn.
Byggðuðst þær tengingar á að-
gangi Vodafone að
umræddum þræði í
NATO-ljósleið-
aranum. Á mörgum
stöðum í dreifbýli er
ekki hægt að tengja
staðbundin ljósleið-
arakerfi við umheim-
inn nema í gegnum
NATO-leiðarann. Og
þar á Míla fimm
þræði af átta. Í til-
vikum Öræfinga og
Mýrdælinga kom ber-
lega í ljós mikilvægi
þess að geta leitað eftir þjónustu
við fleiri en einn aðila, semsagt
samkeppni.
Skv. áðurnefndri skýrslu utan-
ríkisráðuneytisins er fyrirhuguð
breyting á ráðstöfun tveggja af
þremur ljósleiðurum í eigu NATO.
Tilteknar eru fjórar leiðir sem eru
færar; að ráðstafa hvorugum af
lausu þráðunum, að bjóða út einn
þráð, að bjóða út tvo þræði hvorn
til síns aðilans og að lokum að
bjóða út tvo þræði til sama aðila.
Undirritaður hvetur til þess að
boðnir verði út tveir þræðir hvor
til síns aðilans, sjá lið 3.3.4 í áður-
nefndri skýrslu. Sú ráðstöfun sem
gerð var árið 2008 með útboði á
tveimur af þremur ljósleiðurum
NATO sannaði gildi sitt rækilega
og eru Öræfanetið og ljósleiðara-
kerfi Lífs í Mýrdal ehf. sönnun
þess. Það er því afar áríðandi fyrir
fjarskipti í dreifbýli að umræddir
tveir ljósleiðaraþræðir verði boðn-
ir út skv. Lið 3.3.4 í skýrslu Utn.
Um útboð ljósleiðara-
þráða í svokölluðum
NATO-ljósleiðara
Eftir Ingólf Bruun
»Hér skal fullyrt að ef
Vodafone hefði ekki
haft umræddan þráð í
NATO-leiðaranum til
umráða hefði ekkert
orðið af téðum ljósleið-
arakerfum.
Ingólfur Bruun
Höfundur er framkvæmdastjóri Betri
fjarskipta ehf.
ib@betrifjarskipti.is
Nú finnur
þú það sem
þú leitar að
á FINNA.is
Verð: 22.995.-
Stærðir: 40 - 47
Vnr. E-504574
Verð: 21.995.-
Stærðir: 41 - 44
Vnr. E-504504
Verð: 19.995.-
Stærðir: 40 - 46
Vnr. E-504564
Verð: 19.995.-
Stærðir: 42 - 45
Vnr. E-504564
ECCO STREET TRAY
ÞÆGILEGIR GÖTUSKÓR MEÐ MJÚKU INNLEGGI
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS