Morgunblaðið - 18.03.2021, Side 35

Morgunblaðið - 18.03.2021, Side 35
UMRÆÐAN 35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2021 Dagana 19. og 20. mars verður ráðstefna um náttúrufræði- menntun. Ráðstefnan er ætluð kennurum á öllum skólastigum í náttúrufræði- og raun- vísindagreinum en er opin öllum sem áhuga hafa. Undirrituð mun flytja erindið: Náttúruvísindi – Grunnur að farsælli framtíð. Heiti er- indisins vísar bæði til framtíðar hvers einstaklings og til framtíðar jarð- arinnar. Að hver einstaklingur sé menntaður til að taka upplýstar ákvarðanir í tæknivæddu nútíma- samfélagi og að framtíð jarðarinnar sé í höndum þeirra sem hafa þekk- ingu til að vinna að úrbótum í lofts- lagsmálum, heilbrigðismálum og öðr- um stórum áskorunum sem við blasa. Með auknum skilningi nemenda á náttúruvísindum verða þeir betur í stakk búnir að leggja mat á ólíkar ógnir sem og tækifæri til að gera heiminn betri. Við eigum því mikið undir því að kynna börnum og ungu fólki undraheim náttúruvísinda á skapandi hátt og vekja áhuga. Þetta sést til dæmis í áherslum UNESCO sem árið 2019 ákvað að framvegis yrði 4. mars Dagur verkfræði og sjálf- bærrar þróunar. Gömul saga og ný Verkfræðingafélag Íslands var stofnað 1912 og frá upphafi hafa menntunarmál verið einn af hornsteinunum í starfi félagsins. Upp- haflega kom þessi áhugi félagsins á mennt- unarmálum ekki til af góðu einu. Fyrstu ís- lensku verkfræðinem- unum sem fóru til Kaupmannahafnar til náms sóttist námið iðu- lega seint vegna lélegs undirbúnings í raun- greinum. Í dag stöndum við enn frammi fyrir því að staða raun- greina innan skólakerfisins á undir högg að sækja. Verkfræðingafélag Íslands hefur margsinnis bent á, og beitt sér fyrir því, að kennsla í stærðfræði og raungreinum verði efld. Nýlegt dæmi er umsögn félags- ins um viðmiðunarstundaskrá grunnskóla, í október 2020. Þar er lýst stuðningi við þá stefnu að auka vægi móðurmáls og náttúrufræði til móts við viðmið nágrannaþjóða okk- ar. Slíkar úrbætur verður að gera til að tryggja samkeppnishæfni þjóð- arinnar á sviði náttúruvísinda og tækni þeim tengdum. Þar er einnig bent á að ekki nægir að fjölga kennslustundum. Fleiri kennara vantar í grunnskólana sem eru menntaðir í stærðfræði og raun- greinum og það verður að styðja vel við bakið á þeim, til dæmis með möguleikum til símenntunar. Einnig þarf að bæta stórlega aðbúnað í skól- unum til verklegrar kennslu í raun- greinum. Við getum ýmislegt lært með því að líta til hinna Norður- landaþjóðanna og læra af því sem þar hefur verið gert til að efla áhuga ungs fólks á vísindum og tækni. Verkfræðingafélagið hefur komið þeirri skoðun á framfæri að stytting framhaldsskólans hafi verið mistök sem vinda þurfi ofan af. Mikil hætta er á því að nemendur komi nú verr undirbúnir en áður fyrir krefjandi nám í háskóla og ýmis merki eru um að áhrifanna sé nú þegar farið að gæta. Með nýsköpun, hugvit og tækni að leiðarljósi tökumst við á við áskor- anir framtíðarinnar. Grunnur að þeim tækifærum er lagður í metn- aðarfullu, skapandi og skemmtilegu námi í raunvísindum á öllum skóla- stigum. Upplýsingar um ráðstefnuna eru á vefslóð Náttúrutorgs – starfs- samfélags náttúrufræðikennara: natturutorg.is. Eftir Svönu Helen Björnsdóttur »Með nýsköpun, hug- vit og tækni að leið- arljósi tökumst við á við áskoranir framtíð- arinnar. Grunnur að þeim tækifærum er lagð- ur í metnaðarfullu, skap- andi og skemmtilegu námi í raunvísindum á öllum skólastigum. Svana Helen Björnsdóttir Höfundur er formaður Verkfræðinga- félags Íslands. Náttúruvísindi – Grunnur að farsælli framtíð 14. febrúar sl. flutti Útvarp Saga viðtal við menn um Brennu-Njáls sögu og ætlaðan höfund hennar. Sá þekkti rit- höfundur Einar Kárason heldur því fram að bróðursonur Snorra Sturlusonar, Sturla lögmaður Þórðarson (1214- 1284), hafi ritað þá einstöku og sérstæðu bók. Í þessum umræðu- þætti kom fram hjá Einari að hann telur Njáluhöfund illa kunn- ugan í Rangárvallasýslu. Í nýlega útkominni bók, „Leitin að Njáluhöfundi“, er leitast við af hlutleysi að skoða hvar Njáluhöf- undur var helst kunnugur og hvar síst. Niðurstaðan þar er sú að Njáluhöfundur hafi verið gjör- kunnugur í Rangárvallasýslu; þar gjörþekkir hann afstöðuna frá einum bæ til annars og í sumum lýsingum hans þaðan er eins og hann hafi landslag og umhverfi myndrænt fyrir sínum hugar- sjónum. Það sannar ekki að höf- undur hafi verið úr þeirri sýslu, einungis að hann (eða hans hugs- anlegur fyrirlesari) hafi verið þar gjörkunnugur. Því má við bæta, að höfundur virðist kunnugur á ferðaleiðum Skálholtsbiskupa í þremur landsfjórðungum. Það, eitt og sér, sannar ekki að höf- undur sjálfur hafi verið biskup í Skál- holti. Svo virðist sem Njáluhöfundur hafi verið heldur illa að sér í landafræði Nor- egs, en í því landi hlýtur Sturla lögmað- ur að hafa verið vel kunnugur vegna veru sinnar þar. Mörg fleiri atriði mætti tína til, sem mæla gegn því að Sturla hafi ritað Njálu – það margt að fullyrða má, að hann hefur ekki komið nálægt ritun þeirrar bókar. Þótt þeir hafi margt áhugavert lagt til Njálurannsókna Einar Kárason, Matthías Johannessen og þeirra samskoðendur, þá er ljóst að þeir „vaða reyk“, hvað ætlaðan Njáluhöfund snertir. Einar Kárason og höfundur Njálu Eftir Gunnar Guðmundsson frá Heiðarbrún Gunnar Guðmundsson »Mörg fleiri atriði mætti tína til sem mæla gegn því að Sturla hafi ritað Njálu – það margt að fullyrða má að hann hefur ekki komið nálægt ritun þeirrar bókar. Höfundur er fræðimaður og rithöfundur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.