Morgunblaðið - 18.03.2021, Blaðsíða 37
UMRÆÐAN 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2021
KRINGLAN – SMÁRALIND – DUKA.IS
LYSS
Gólflampi – 34.900,-
Borðlampi – 22.990,-
Vegglampi – 22.990,-
Aðhalds-
sundbolirnir
frá Lascana komnir
Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355
Vefverslun
selena.is
Eins og aðrir lands-
menn hef ég fylgst með
þeirri vitundarvakn-
ingu sem orðið hefur í
þjóðfélaginu á und-
anförnum misserum
um skaðsemi fjár-
hættuspila. Samtök
áhugafólks um spila-
fíkn hafa staðið að
þessari vitundarvakn-
ingu sem greinlega
hefur náð til þjóðarinnar allrar því
fram kom í ítarlegri skoðanakönnun
á vegum Gallup síðastliðið vor að
86% landsmanna vilja láta loka spila-
kössunum.
Farið undan í flæmingi
En hvorki ríkisstjórn né Alþingi
eru á sama máli og þjóðin. Eða hvað?
Því síður Rauði kross Íslands,
Slysavarnafélagið Landsbjörg og
Háskóli Íslands sem njóta afrakst-
ursins af rekstri spilavítanna. Eða
hvað?
Er alveg víst að ráðherrar og rík-
isstjórn séu hlynnt rekstri spilavíta?
Vissulega taka þau aldrei af skarið.
Svara ekki og fara undan í flæmingi
eða fara að tala um meðferðarúrræði
þegar þau eru spurð hvort þau séu
sammála meirihluta landsmanna um
að loka beri spilakössunum í ljósi
þess að verið sé að fénýta fólk sem er
ekki sjálfrátt gerða sinna. Um þetta
er talað óljósum orðum en aldrei
aukatekið orð um lokun. Aldrei af-
dráttarlaust svar.
Umræða í þingnefnd
Í vikunni sem leið efndi velferð-
arnefnd Alþingis til opins fundar um
spilakassa og spilafíkn. Ég var í hópi
þeirra sem kallaðir voru fyrir nefnd-
ina og þá sem fyrrverandi ráðherra
málaflokksins. Mælti ég mjög ein-
dregið með lokun. Heilbrigðis-
ráðherra vísaði í meðferðarúrræði,
menntamálaráðherrann komst næst
því að lýsa vanþóknun á fjár-
hættuspilum, vísaði ábyrgðinni á Al-
þingi og sagðist ekki myndi standa í
vegi fyrir breytingum. En meira
skal til svo dugi. Dómsmálaráðherr-
ann sagði að verið væri að vinna í
málinu, en svo kom í ljós að það
stæði til að vinna í málinu því enn
var ekki búið að skipa nefndina sem
var sögð vera að vinna í málinu! Sem
sagt nefnd sem verið var að skipa
fulltrúa hagsmunaðila til setu í ætti
nú loksins að ræða málið eftir linnu-
lausa umræðu í þjóðfélaginu í heilt
ár! Fram kom að menntamálaráð-
herra hafði ekki frétt af þessari
nefnd, því síður Samtök áhugafólks
um spilafíkn sem þó ættu að teljast
hagsmunaaðili, eða hvað?
Augljós vanlíðan ráðherra,
þingmanna og björgunarsveita
Þrátt fyrir linkuleg viðbrögð var
engu að síður augljóst að ráðherrum
leið ekki vel við þessa umræðu enda
öllum, sem skilja vilja, augljóst að
þeir verja með aðgerðum sínum eða
aðgerðaleysi siðlaust kerfi. Augljóst
var líka að þingmönnum leið ekki
heldur vel. Til voru þeir þingmenn
þó, þar á meðal sá þingmaður sem
frumkvæði átti að umræðunni, Sara
Elísa Þórðardóttir, Pírötum, sem
tóku afdráttarlausa afstöðu gegn
rekstri spilavíta. Þökk sé þeim.
Það sama held ég að eigi við innan
Rauða krossins, Slysavarnafélagsins
Landsbjargar og Háskóla Íslands. Á
vegum Rauða krossins starfar
margt afbragðsfólk, hugsjónafólk
sem vill láta gott af sér leiða, bjarga
bágstöddu fólki. Sama á að sjálf-
sögðu við um björgunarsveitir Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar. Þar
þekki ég persónulega marga sem
gefa vinnu sína af hugsjón einni og
vilja ekkert nema gott, bjarga fólki,
ekki koma því í vanda heldur hjálpa
því úr ógöngum! Út á það gengur
þeirra virðingarverða framlag.
Casino þýðir spilavíti
Þessu fólki líður ekki vel yfir illa
fengnu fé samtaka sinna. Þetta full-
yrði ég því ég hef heyrt
þetta úr munni svo
margra! Eða skyldu
menn ímynda sér að
starfsfólk og nemendur
við Háskóla Íslands séu
sáttir við þá niðurlæg-
ingu sinnar stofnunar
að reka spilavíti, Cas-
ino slots, eins og ís-
lenskudeild HÍ kallar
spilabúllurnar sínar?
Að sjálfsögðu ekki.
En hvers vegna þá
halda þessari ósvinnu áfram?
Svarið er peningar. Spilafíklar
gefa nefnilega vel af sér. Bransinn
veltir milljörðum, eftir að vinningar
hafa verið dregnir frá standa eftir
3,73 milljarðar, þrjú þúsund og sjö
hundruð milljónir, samkvæmt tölum
frá 2019. Og þessu tíma hlutaðeig-
andi aðilar ekki að sjá af. Það yrði
þeim mikið harmsefni að verða af
þessu fé.
En þetta getum við sem samfélag
ekki látið viðgangast. Við eigum að
hætta að hagnast á spilafíklum óháð
því hvernig við kjósum að standa að
uppbyggingu fyrir Háskóla Íslands,
reka Rauða krossinn og fjármagna
börgunarsveitirnar svo þær verði í
stakk búnar til þess að bjarga fólki.
Lokun spilakassa á
ekki að vera háð skilyrðum
Það er óásættanlegt að það verði
gert að skilyrði fyrir því að hætt
verði að skapa veiku fólki og að-
standendum þess vandræði og
óhamingju að aðrir tekjustofnar
verði fundnir en vasar spilasjúkra
fyrir þessar stofnanir. Engu að síður
finnst mér eigi að finna þá tekju-
stofna. Auðvitað er það hægt og er
þá komið að því að leggja út af fyr-
irsögn þessarar greinar.
Umfangið
Þótt afraksturinn af spilakössum
eftir að vinningar hafa verið dregnir
frá sé mikill, eða 3,73 milljarðar, sem
áður segir, þá er óhætt að draga frá
þeirri upphæð, áður en við komum
við pyngju styrkþeganna.
Í fyrsta lagi skulum við draga frá
760 milljónir sem fara út úr landinu
til þeirra sem selja og leigja kassana.
Skyldi nokkur maður sjá eftir því að
skerða þeirra tekjur? Þá eru það 840
milljónir sem fara til þeirra sem
reka spilasalina. Auðvitað kæmi það
illa við þeirra fjárhag að svipta þá
þessari tekjulind en spurning hvort
þetta fólk geti ekki fundið sér önnur
og verðugri viðfangsefni að starfa
við. Enn er ótalinn umtalsverður
rekstrarkostnaður, 330 milljónir. Þá
erum við komin niður í 1.800 millj-
ónir. Þetta er orðið talsvert viðráð-
anlegra en upphafleg upphæð, rúm-
lega helmingi lægri.
Efnt verði til
hugmyndasamkeppni
Þá erum við væntanlega að nálg-
ast að geta bjargað heiðri og sam-
visku Alþingis, ríkisstjórnar lands-
ins, æðstu menntastofnunar okkar,
Rauða kross Íslands og Slysavarna-
félagsins Landsbjargar.
Og einmitt það er verkefnið: Að
bjarga því fólki sem þarna ber
ábyrgð.
Hvernig væri að efna til keppni
um bestu lausnina þessum aðilum til
hjálpar? Verkefnið gæti heitið
Björgum þeim. Ég set hér fram
fyrstu tillöguna sem vinur minn einn
hvíslaði að mér: Hækkum skilagjald
á flöskum þannig að dugi til að
björninn verði unninn.
Björgum þeim
Eftir Ögmund
Jónasson
Ögmundur Jónasson
» Spilafíklar gefa
nefnilega vel af sér.
Bransinn veltir millj-
örðum, eftir að vinn-
ingar hafa verið dregnir
frá standa eftir 3,7
milljarðar
Höfundur er fyrrverandi
dómsmálaráðherra.
„Per aspera ad astra“ sögðu þeir
gömlu og áttu við að leiðin á toppinn
væri erfið og þyrnum stráð. Árangur
næðist ekki án fórna og fórnarkostn-
aður gæti verið hár. Nú hafa vís-
indamenn unnið fáheyrð afrek, að
þróa bóluefni gegn veirunni á met-
tíma, bæði í samvinnu og hver í sínu
horni. Þessa dagana bætast sífellt
við fyrirtæki sem fá viðurkenningu
og síðast í morgun var sagt frá einu
nýju sem væri að bætast í sam-
keppnina.
En það er eitt fyrirtæki sem hefur
lent í mótbyr á leið til stjarnanna,
stjarnan sjálf Astra. Þó er hún ódýr-
ust lyfja og segist ekki hagnaðar-
drifin í þessari heimsbaráttu. Tugir
milljóna hafa fengið sprautu og
vernd í hennar nafni en þó lendir
Stjarnan endurtekið í hakkavél fjöl-
miðla, popúlista og stjórnmála-
manna sem þykjast betur vita en
vísindamenn. Nógu erfitt virðist
vera, í ýmsum löndum, að fá fólk til
að láta sprauta sig þótt upphrópanir
og tröllasögur bætist ekki við.
En enginn verður óbarinn biskup
og leiðin til stjarnanna er grýtt.
Sunnlendingur
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
Grýtt er leiðin
Morgunblaði/Arnþór Birkisson