Morgunblaðið - 18.03.2021, Page 42

Morgunblaðið - 18.03.2021, Page 42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2021 Hlaðvörp hafa verið gífurlega vinsæl undanfarið og erfitt getur verið að finna hlaðvarp sem hentar áhugasviði hvers og eins enda er um svakalegt úrval að ræða. Við hér á K100 erum mikið áhugafólk um hlaðvörp og ákváðum að ræða við það fólk sem heldur úti hlaðvarpi hér á Íslandi og fá það til þess að gefa okkur upp hvaða hlaðvarpsþætti, fyrir utan sína eigin, það hlustar á í sínum frítíma. Það ætti að geta gefið fólki góðar hugmyndir um áhugaverð hlaðvörp sem henta þess áhugasviði. Eva Mattadóttir úr hlaðvarpinu Normið „Normið er hrátt plebbaspjall um mannlegheit. Við elskum að skoða mannlega hegðun og pæla í hvers vegna í ósköpunum fólk hegðar sér eins og það gerir stundum. Spjallið er oft djúpt og stundum er bara mjög óþægilegt að spegla sig í umræðuefn- inu og átta sig á því að maður getur gjörsamlega hagað sér eins og fífl án þess að fatta það. Við tökum líka við- töl við flott fólk í þjóðfélaginu og kroppum í heilann þeirra. Það er til svo margt öflugt fólk sem hægt er að taka sér til fyrirmyndar og læra af,“ segir Eva, spurð út í hlaðvarp sitt. Eva segist hlusta mikið á hlaðvörp í bílnum og göngutúrum og segist velja gaumgæfilega hvaða umræðu- efni hún sé í stuði fyrir hverju sinni. „Ég hugsa stundum á ensku, þess vegna hlusta ég mikið á hlaðvörp á ensku,“ segir hún. Hlaðvarpslisti Evu The Bossbabe Podcast „Tvær öflugar konur sem stofnuðu Bossbabe-konseptið frá grunni. Þær hafa flott input í frumkvöðlaheiminn, tala bæði um sína eigin reynslu og taka viðtöl við fólk sem hefur byggt upp sitt eigið brand.“ Draugasögur „Katrín og Stefán leggja virki- legan metnað í framleiðslu þáttanna og mér finnst alger snilld að kúpla mig stundum út og láta þau hræða úr mér líftóruna, sérstaklega í göngutúrum á kvöldin.“ SoberCast „Ég er edrúmanneskja og stund- um þarf ég einfaldlega að grípa í þetta hlaðvarp og hlusta á aðra óvirka alka tala um eigin reynslu. Það hjálpar mér að núllstilla mig, al- veg magnað hvað það hjálpar að heyra aðra tala um sínar áskoranir. Við erum öll bara að rölta í gegnum þetta líf, reka okkur á og að gera okkar besta.“ Hæ hæ – Ævintýri Helga og Hjálmars „Kemistrían hjá Helga og Hjamma er náttúrlega rugl fyndin. Þeir eru þeir allra mannlegustu og taka lífið ekki of alvarlega, ferskur blær.“ Super Soul „Hlaðvarpið hennar Opruh, þarf að segja eitthvað meira? Hún tekur djúp viðtöl og þorir að fara alla leið með umræðuna. Hún er viskubrunn- ur sem er endalaust hægt að læra af.“ How I Built This with Guy Raz „Þarna fær maður að heyra sög- urnar af því hvernig stór fyrirtæki urðu til. Það er hvetjandi að heyra byrjunarskrefin og holurnar sem stofnendur detta í á leiðinni.“ Áhugaverð Hlaðvörp: Eva Matta gefur álit Eva Matta Eva hlustar reglu- lega á hlaðvörp. Eva Mattadóttir heldur úti hlaðvarpinu Normið ásamt Sylvíu Briem. Sjálf hlustar hún reglu- lega á hlaðvörp og fékk K100 hana til þess að gefa lesendum álit á því sem hún hlustar á. Aðalstræti 2 | s. 558 0000 | www.matarkjallarinn.is Tónlist fyrir sálina matur fyrir líkamann BIRKENSTOCK ARIZONA 12.995.- / ST. 36-47 KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS S K Ó V E R S L U N STEINAR WAAGE Fjölskyldubingó mbl.is verður á sínum stað í kvöld þar sem þau Siggi Gunnars og Eva Ruza sjá til þess að færa fjöl- skyldum landsins bingó- tölurnar beint heim í stofu. Í síðustu viku kom söngkonan Klara Elias ásamt gítarleikaranum Daníel Friðriki Böðv- arssyni og fluttu þau þátttakendum ljúfa tóna. Í kvöld mætir tónlist- armaðurinn Sigtryggur Baldursson sem meðal annars er þekktur fyrir að hafa verið í hljóm- sveitinni Milljónamær- ingunum og sem Bogomil Font. Sigtryggur vann einnig með hléum með söngkonunni Emilíönu Torrini frá árunum 1998 til ársins 2010 ásamt því að vinna tónlist fyrir leikhús, kvikmyndir og heimildarmyndir. Þá hefur hann einnig leikið inn á fjölda hljóm- platna sem trommu- og slagverks- leikari. Í kvöld tekur hann lögin Veður- fræðingar ljúga og Þvo sér um hendur. „Það hefur verið mjög gaman í bingóinu síðan við fórum aftur af stað eftir smápásu. Vinningarnir hafa streymt út og allt gengið eins og í sögu,“ segir Siggi Gunnars bingóstjóri. Ásamt þeim Sigga og Evu verður furðu-DJ-inn í setti, tóm gleði og fullt af stórglæsilegum vinningum. Allar upplýsingar um þátttöku og útsendingu má finna með því að fara inn á heimasíðu bingósins á www.mbl.is/bingo. Allar fyrir- spurnir vegna bingósins er hægt að senda á bingo@mbl.is. Gestur kvöldsins er Bogomil Font Bogomil Font Tekur lagið í kvöld. Ljósmynd/Aðsend

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.