Morgunblaðið - 18.03.2021, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 18.03.2021, Qupperneq 44
44 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2021 ✝ Helgi Vilhelm Jónsson fædd- ist í Reykjavík 30. maí 1936. Hann lést 2. mars 2021 á Sól- teigi, Hrafnistu. Foreldrar hans voru hjónin Jón Sigurður Helgason stórkaupmaður, f. 1903, og Hanna Helgason hús- freyja, f. 1910. Systkini Helga eru; Torfi, f. 1935, Hallgrímur Gunnar, f. 1940, og Sigurveig Ingibjörg, f. 1945. Helgi kvæntist árið 1958 Ingi- björgu Jóhannsdóttur, f. 1940, danskennara og húsfreyju. For- eldrar hennar voru Jóhann Gunnar Stefánsson frkvstj. Olíu- félagsins og Lára Jóhannsdóttir húsfreyja. Börn Helga V. og Ingibjargar eru; 1) Hanna Lára, f. 1962, hrl. Eiginmaður hennar er Jónas Reynisson frkvstj. Þau eiga Ingi- björgu og Reyni. Ingibjörg á Hönnu Sóleyju með sambýlis- manni sínum Bjartmari Svein- björnssyni. Reynir er í sambúð með Ásdísi Elínu Jónsdóttur. 2) Anna Dóra, f. 1966, hdl. og nefndarmaður í yfirskattanefnd. Eiginmaður hennar er Halldór síðar borgarendurskoðandi 1966-1975. Hann var einn stofn- enda Endurskoðunar hf. 1975, síðar KPMG ehf., og starfaði þar við endurskoðunar- og lög- mannsstörf til ársins 2001 en eft- ir það við einstök verkefni í fé- lagi við dóttur sína, Hönnu Láru. Helga voru falin margvísleg trúnaðarstörf á starfsferli sín- um; m.a. sat hann í ríkis- skattanefnd 1968-1973 og 1980- 1992, sparnaðarnefnd Reykja- víkurborgar 1964-1975 og stjórn SKÝRR 1967-1980. Hann var formaður kjaradeilunefndar frá 1977-1985, formaður kauplags- nefndar og formaður samninga- nefndar Tryggingastofnunar ríkisins frá 1983- 2001. Helgi var formaður Stúdentafélags Reykjavíkur 1976, í stjórn LMFÍ 1977-1982, þar af formaður 1981-1982, og í stjórn FLE 1985- 1989, þar af formaður 1987- 1989. Helgi varð heiðursfélagi í LMFÍ 2015 og sæmdur gull- merki FLE 2010. Helgi var mikill íþróttamaður. Hann lék með gullaldarliði KR í knattspyrnu og í landsliði Ís- lands auk þess sem hann spilaði körfuknattleik og handbolta í meistaraflokki. Sat hann um tíma í stjórnum Knattspyrnu- sambands Íslands og Körfu- knattleikssambands Íslands. Helgi var sæmdur gullmerki KR, silfurmerki KSÍ og gullmerki ÍSÍ. Útför Helga fer fram frá Bú- staðakirkju í dag, 18. mars 2021, klukkan 13. Jónsson hrl. Þau eiga Helga og Jón Sveinbjörn. 3) Jón Sigurður, f. 1969, lögg. endur- skoðandi og frkvstj. KPMG. Eiginkona hans er Erla Guð- rún Emilsdóttir, hárgreiðslu- og listakona. Þau eiga Tinnu Rakel. Jón Sigurður á einnig Hildi Láru með fv. eiginkonu sinni Jónínu Jónsdóttur. Erla átti áður Agnar Smára Jónsson. 4) Halla María, f. 1971, lögg. endurskoðandi hjá KPMG. Eig- inmaður hennar er Ólafur Þór Guðbjörnsson sjúkraþjálfari. Þau eiga Ísak Þór, Rannveigu Erlu og Helgu Völu. Helgi lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands 1955 og kandídatsprófi frá lagadeild Há- skóla Íslands 1960. Hann öðl- aðist réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi 1961, löggild- ingu endurskoðanda 1966 og málflutningsréttindi fyrir Hæstarétti 1976. Að loknu laga- námi starfaði Helgi á endurskoð- unarskrifstofu Kolbeins Jó- hannssonar og Co. þar til hann tók við stöðu skrifstofustjóra borgarverkfræðings 1963 og var Sem barn felldi ég tár þegar Ellý Vilhjálms söng; Við hliðið stend ég eftir ein, ó elsku pabbi minn, og tárin mín svo heit og hrein, þau hníga á gangstíginn, en höndin veifar, veifar ótt, þú veist ég sakna þín, ó komdu aftur, komdu fljótt, æ, komdu þá til mín. (Freymóður Jóhannsson) Tilhugsunin að þurfa að kveðja pabba var óbærileg. Nú er komið að kveðjustundinni. Erfið er hún. Tilfinningarnar eiginlega eins og jarðhræringarnar sem hófust þegar pabbi missti kraftinn. Söngur svartþrastarins hefur vakið mig sl. morgna. Hann er væntanlega að færa mér kveðju pabba og segja mér að vakna á morgnana, halda áfram og gera það sem þarf að gera. Pabbi vakti mig nefnilega á morgnana og þeg- ar ég sneri mér á hina hliðina var potað í bakið á mér með tísti þar til ég drattaðist fram úr. Árrisull og vinnusamur, heiðarlegur, til- litssamur, hógvær, yfirlætislaus, kærleiksríkur með bros og augu sem sögðu mér allt sem segja þarf. Það þurfti ekki orðin. Þetta var pabbi minn. Milli okkar var einhver sterkur ósýnilegur strengur. Við þekktum og lásum hvort annað og það kom sér oft vel þegar pabbi veiktist af alzheimer og fékk málstol. Við horfðumst í augu og vissum. Já ég er gæfusöm að hafa átt þennan pabba og mömmu því þau voru eitt. Annað eins hjónaband vandfundið. Klett- arnir og akkeri hvort annars og okkar systkinanna. Þvílíkar fyrir- myndir. Pabbi var besti vinur minn, mentorinn og samstarfsmaður. Að fylgjast með honum vinna var lærdómur. Vandfundnir eru aðrir eins sátta- og samningamenn. Hann átti auðvelt með að finna kjarnann og koma með málamiðl- anir. Að leita leiða til að komast að niðurstöðu, hávaðalaust. Það er ekki hægt að minnast pabba nema minnast á íþróttir. Þrátt fyrir annríki alla tíð þá fann hann alltaf tíma fyrir þær. Pabbi elskaði að vera í sólinni í Andalús- íu, spila golf og læra spænsku. Þar naut hann sín og ætlaði að eyða enn meiri tíma í ellinni með ást- inni sinni. Ég smitaðist af áhug- anum á Spáni, elti. Við fórum að fara saman yfir spænskuna og pabbi kenndi mér. Svo snerist það við. Pabba vantaði orðin. Saman fundum við þau í fyrstu en svo týndust þau. Pabbi kenndi mér golfið, hann var keppnismaður, við kepptum. Auðvitað var hann miklu betri. Við fórum tvö og spil- uðum hans síðasta hring á Spáni fyrir þremur árum. Þá var sjúk- dómurinn búinn að taka völdin. Ég tók að mér að vera meðspilari, kylfusveinn og hafa augun á bolt- anum. Honum reyndist erfitt að velja kylfur og fylgjast með kúl- unni. Engu að síður var getan til að sveifla og pútta enn til staðar og spilaði hann hringinn eins og engill. Alzheimersjúkdómurinn er eins og Covid-19 ólíkindatól sem gerir ekki mannamun. Ræðst aft- an að fólki og leggur það smám saman að velli. Þrátt fyrir allt naut ég hverrar mínútu með pabba allt þar til yfir lauk þótt vissulega hafi verið erfitt að horfa á þennan sterka og keppnisfulla mann lúta í lægra haldi. Ég vil þakka öllum þeim sem aðstoðuðu okkur við að sinna pabba í hans sjúkdómi. Ykkar störf eru ómetanleg. Þú varst friðarins maður. Þín Hanna Lára. Elsku pabbi minn fékk hvíldina sína þriðjudaginn 2. mars sl. eftir að hafa glímt við alzheimersjúk- dóminn í nokkur ár. Þegar maður lítur yfir farinn veg er manni þakklæti efst í huga. Þakklæti fyr- ir samfylgdina og allar ljúfu minn- ingarnar sem staðfesta hversu sterka ást maður ber til pabba. Já, ég vann svo sannarlega þann stóra í foreldralottóinu. Mamma og pabbi höfðu verið saman í tæp 65 ár, stoðir og styttur fjölskyld- unnar, öflugt teymi og fyrirmynd- ir okkar systkinanna. Pabbi var einstakur ljúflingur sem vildi öll- um vel, heiðarlegur og réttsýnn, vinnusamur og ósérhlífinn, kom fram við alla af virðingu og gerði aldrei mannamun. Hjá pabba voru engin vandamál, bara verkefni sem þurfti að leysa, með þolin- mæði, jákvæðni og útsjónarsemi. Pabbi lagði sig fram um að skapa alls staðar jákvætt andrúmsloft með sínum leiftrandi húmor, glettni og smá stríðni. Þessir eig- inleikar hans nýttust vel í þeim fjölmörgu trúnaðarstörfum sem hann gegndi í gegnum lífið. Pabbi var mikill íþróttamaður, spilaði með meistaraflokki í körfu-, hand- og fótbolta þar sem hann varð margfaldur meistari með gullaldarliði KR og það með fullu húsi stiga árið 1959 eins og maður var ósjaldan minntur á. Já, hann var mikill keppnismaður sem þoldi ekki að tapa þótt hann færi fínt með það. Það var því aug- ljóst að einkasonurinn sem leit upp til pabba síns yrði KR-ingur en KR-ferillinn hjá drengnum varð þó ekki langur og endaði snögglega þegar hann fór með vini sínum á æfingu hjá Val í KR- búningnum. Þar sem í móðurfjöl- skyldunni voru miklir Valsarar var drengnum ekki afneitað held- ur áfram stutt við bakið á honum við íþróttaiðkun frá morgni til kvölds. Þegar færi gafst var drengurinn svo tekinn með í golf og látinn leysa af í skákklúbbnum. En pabbi var ekki bara fyrir- mynd í íþróttum. Það segir sína sögu að af okkur fjórum systkin- um eru tvær eldri systur mínar lögmenn og við hin yngri endur- skoðendur. Pabbi, ofurmennið, var auðvitað hvort tveggja. Skömmu eftir háskólanám mitt fór ég að vinna hjá KPMG, félag- inu sem foreldrar mínir stofnuðu ásamt tvennum öðrum hjónum. Fyrir mig voru það forréttindi að fá að vinna á sama vinnustað og pabbi í yfir tíu ár. Í gegnum starf- ið og lífið allt hefur maður reglu- lega fengið staðfestingu á þeirri velvild og virðingu sem pabbi naut meðal vina, samstarfsfélaga, við- skiptavina og þeirra fagstétta sem hann tilheyrði. Ég hef svo sann- arlega notið þess á minni starfs- ævi. Elsku pabbi, hvíldu í friði, við systkinin pössum upp á mömmu. Ég er svo stoltur af að vera sonur þinn. Jón Sigurður Helgason. Fallinn er frá heiðursmaðurinn Helgi V. Jónsson. Andlát hans kemur óneitanlega róti á hugann og dregur fram skemmtilegar minningar um samverustundir með fjölskyldu og samstarf á vinnustað. Endurminningar um Helga vekja líka almennar hug- leiðingar um hve miklu framkoma fólks skiptir í samskiptum. Helgi kom nefnilega alltaf vel fram við aðra og uppskar velvild að ég hygg allra sem hann þekktu. Hann sýndi að það var auðveldara að ná árangri með kurteisi og þægilegu viðmóti en óbilgirni og kröfuhörku. Þessi jákvæða og notalega framkoma hans ein- kenndi í rauninni allt hans fas. Þessi skapgerð Helga var grunnurinn í því hversu farsæll hann var í starfi og leik. Það hefur auðvitað hjálpað að vera eðlis- greindur, vel lesinn og með frá- bæra kímnigáfu en ævistarfið gat hann aðeins byggt upp með því að hafa hana Ingibjörgu sér við hlið, nánast alla tíð. Ég þekki engin hjón sem hafa náð því jafnvel og þau að vera sinn helmingurinn af einni heild. Andlát Helga skilur eftir sig skarð sem ekki verður fyllt en þeir sem eftir sitja ylja sér við og rækta minningarnar um hann. Helgi var bæði endurskoðandi og hæstaréttarlögmaður og gat því annast mál sem hvorki aðrir endurskoðendur né aðrir lögmenn gátu tekið að sér – má segja að hann hafi þannig verið að minnsta kosti „tveir fyrir einn“ í starfi. Hann var snjall málafærslumaður og samningamaður, alltaf vel und- irbúinn og gat nýtt sér glettni og jafnlyndi sitt sem styrk í sam- skiptum. Það var sérlega lær- dómsríkt að starfa með honum og kynnast honum sem fagmanni en ekki aðeins sem tengdaföður og afa strákanna okkar Önnu Dóru. Hann var sönn fyrirmynd á öllum sviðum. Einhvern veginn held ég að það hafi alltaf verið brjálað að gera hjá Helga meðan hann var í fullu starfi, enda var honum treyst af þeim sem þekktu hann. Það hefur haft mótandi áhrif á hann að missa föður sinn tiltölulega ungan þegar Helgi var rétt um fertugt, því að hann einsetti sér að gefa sér tíma fyrir fjölskyldu og frístundir, jafn- vel þótt mikið væri að gera í vinnunni. Frá fimmtugu lengdust Spánarferðir þeirra Ingibjargar stöðugt og svo kom að því að Helgi hætti formlega störfum um 65 ára. Áfram sinnti hann þó ýmsum verkefnum samhliða því að njóta þess gæðalífs hér og á Spáni sem þau hjónin höfðu lagt grunn að í gegnum árin. Það var alltaf gam- an að fara til Los Alamos. Það var eins gott að hann ákvað snemma að nýta tímann vel því að veikindi áttu eftir að draga verulega úr lífsgæðum hans. Fljótlega upp úr sjötugu greindist hann með krabbamein sem hann var lengi að sigrast á en síðustu árin glímdi hann við alzheimersjúkdóminn sem hafði lamandi áhrif, ekki að- eins á Helga sjálfan heldur fjöl- skylduna alla. Við erum öll mótuð af sam- ferðafólki okkar með einum eða öðrum hætti. Það er enginn vafi á að Helgi V. Jónsson hafði góð áhrif á alla sem umgengust hann og var þannig mannbætandi. Blessuð sé minning hans. Halldór Jónsson. Gæðablóð er það orð sem kem- ur upp í huga minn þegar ég hugsa til tengdaföður míns, Helga V. Jónssonar, sem lést þriðjudag- inn 2. mars sl. Ég kynntist honum fyrst í kringum 1993 þegar við Halla María vorum að stinga sam- an nefjum og strax leið mér vel í návist hans. Hann hafði einstakt lag á að láta fólki finnast það skipta máli með því að sýna áhuga, virða skoðanir þess og með sínum einstaklega skemmtilega húmor. Hann kom fram við fólk sem jafningja og ávallt var hægt að treysta því sem hann sagði. Hann setti sínar þarfir aldrei fram fyrir þarfir annarra. Hann reynd- ist mér og fjölskyldunni afar vel í starfi og leik. Alltaf var hægt að leita til hans til að fá ráðleggingar og ófáar stundir passaði hann börnin og létti undir með okkur þegar veikindi komu upp. Hann var mikill íþróttaáhugamaður og líkaði vel að koma að horfa á barnabörnin stunda sínar íþróttir hvort sem var um æfingar eða keppni að ræða. Ég er honum afar þakklátur fyrir það og eiga börnin yndislegar minningar um afa sinn. Fyrir um fimm árum bankaði alzheimer-sjúkdómurinn að dyr- um hjá Helga sem tók honum af æðruleysi. Alltaf fannst manni honum vera efst í huga líðan ann- arra og aldrei lét hann okkur finna áhyggjur sínar af eigin heilsu, þótt þær hafi auðvitað verið til staðar. Allt fram á síðasta dag mætti hann sínu nánasta fólki með brosi sem gefur manni von um að hann hafi farið með góðar minningar með sér því klárlega skildi hann mikið af yndislegum minningum eftir. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast og umgangast Helga, því hann var einn af þeim mönnum, sem fá mann til að vilja verða að betri manni, ekki af því að hann predikaði það, heldur með viðhorfi og gjörðum sínum. Elsku Ingibjörg, ég bið Guð að gefa þér og börnum þínum styrk á þessum erfiðu tímum. Við skulum geyma og njóta minninganna um þann einstaka mann sem Helgi var og það sterka tvíeyki sem þið mynduðuð. Ólafur Þór. Elsku afi minn. Það er sárt að kveðja þig en ég kveð þig með hlýjar minningar í hjarta og er þakklát fyrir allar þær stundir sem við áttum saman. Þú varst dásamlegur maður, alltaf rólegur, ráðagóður, fyndinn og traustur. Ég hefði ekki getað ósk- að mér betri afa og vinar. Ég fór ekki varhluta af hjálp- semi þinni. Þú lagðir oft mikið á þig. Þegar ég var að læra fram á nótt fyrir ballettpróf heima hjá ykkur ömmu og átti erfitt með að muna hin ýmsu spor þá gerðir þú þau ógleymanleg þegar þú hófst á loft, hoppaðir og sýndir mér hvaða ballerína var þekkt fyrir lítil snögg hopp. Við amma veltumst um af hlátri við tilþrifin. Oft komst þú og sóttir mig í skóla svo ég gæti hvílt mig hjá ykkur ömmu áður en ég fór á æfingar. Þú hafðir áhuga á skák og varst lunkinn skákmaður. Þegar þú greindist með alzheimer fékk ég kunningja minn til að kenna mér mannganginn svo við gætum teflt saman. Þrátt fyrir veikindin tókst mér aldrei að vinna þig. Sögurnar þínar um beinagrindina og úlfinn munu seint gleymast og ég mun segja þær litlu langömmustelp- unni þinni, Hönnu Sóleyju, sem þú náðir að hitta nokkrum sinnum og hún fékk að upplifa fallega brosið þitt. Þú varst einstakur maður. Hvíl í friði. Ingibjörg Jónasdóttir. Í dag kveðjum við ástkæran bróður okkar og mág, Helga V. Jónsson. Hann var stoð okkar og stytta alla tíð, auk þess að vera ómetanlegur gleðigjafi og bak- hjarl þegar á þurfti að halda. Helgi var næstelstur okkar systkinanna og reyndist hann okkur hinum góð fyrirmynd. Snemma lét hann til sín taka í leik og störfum, ekki síst í sveitinni þar sem við undum öll sumur. Foreldrar okkar reistu sér á fjórða áratug síðustu aldar sum- arbústað í Mosfellssveit og þar var nægt athafnarými fyrir alls kyns leiki og fjallgöngur. Fótbolti var þar mikið stundaður og bolta- áhugi Helga vaknaði því snemma. Svo fór að hann hóf knattspyrnu- æfingar með KR og var ungur kominn í meistaraflokk og síðar landsliðið. Jafnframt stundaði hann körfubolta með ÍR og hand- bolta með Aftureldingu í Mosfells- sveit. Við yngri systkinin fyllt- umst stolti yfir íþróttaframa okkar ágæta bróður, þótt ekki fet- uðum við í hans spor. Æskuárin voru hamingjurík í skjóli góðra foreldra. Áður fyrr tíðkaðist að senda krakka í sveit á sumrin og svo fór að Helgi lét snemma til sín taka við sveitastörf. Síðar starfaði hann hjá Olíufélaginu hf. sem starfs- maður á plani. Kom sú reynsla sem hann aflaði með þessum störfum að góðu haldi síðar. Helgi var óhemju duglegur og ósérhlíf- inn hvort heldur var í íþróttum eða í störfum sínum. Hann var einstaklega greiðvikinn og leysti vel úr málum þeirra sem til hans leituðu. Hann kvæntist ungur Ingi- björgu Jóhannsdóttur danskenn- ara og var hjónaband þeirra ein- staklega gifturíkt, enda voru þau hjónin alltaf mjög samhent. Þau eignuðust fjögur börn sem öll komust vel til manns og bera for- eldrum sínum gott vitni. Helgi lauk prófi í lögfræði og endur- skoðun og náði góðum árangri á þeim sviðum. Hann varð eftirsótt- ur til vinnu og reyndist vinnudag- urinn oft vera langur og erilsam- ur. Til að ná nauðsynlegri hvíld frá störfum leituðu þau hjónin suður á bóginn og festu sér litla íbúð á Spáni. Þar voru hjónin í essinu sínu og urðu m.a. vel liðtæk í golfi. Heimsóknir til þeirra á Spáni voru einstaklega skemmtilegar, enda þekktu þau vel til og voru ólöt við að fara með gestina í frábærar ferðir um sólarlandið góða. Þá eru heimsóknir í Brautar- landið til þeirra Ingibjargar og Helga minnisstæðar. Glettni og góður húmor Helga var allsráð- andi og oft var stutt í grín og gleði. Og myndarskapur Ingibjargar var þar ævinlega ráðandi. Eftir langan og árangursríkan feril þar sem flest gekk í haginn hjá þeim Helga og Ingibjörgu dró ský fyrir sólu. Vegna veikinda Helga voru síðustu árin fjölskyld- unni erfið, sérstaklega eftir að hann greindist með alzheim- ersjúkdóminn. Í þeirri baráttu veitti fjölskyldan honum einstak- an stuðning, ekki síst Ingibjörg sem stóð eins og klettur við hlið hans. Með miklum söknuði og djúpu þakklæti fyrir órofa vináttu og tryggð kveðjum við bróður okkar og mág, Helga V. Sigurveig, Hallgrímur og Valgerður. Í dag kveðjum við vin okkar Helga V. Jónsson, eftir langvar- andi veikindi, þar hefur hann bar- ist lengi gegn miklum erfiðleikum. Helgi Vilhelm Jónsson Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Við tökum vel á móti ástvinum í hlýlegu og fallegu umhverfi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.