Morgunblaðið - 18.03.2021, Page 48

Morgunblaðið - 18.03.2021, Page 48
48 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2021 ✝ Þórður Magn- ússon fæddist í Vestmannaeyjum 17. apríl 1933. Hann lést á Heil- brigðisstofun Suð- urlands í Vest- mannaeyjum 9. mars 2021. Foreldrar hans voru hjónin Gíslína Jónsdóttir hús- móðir, f. 16. nóv- ember 1888, d. 22. mars 1984, og Magnús Þórðarson kaupmaður, f. 24. desember 1876, d. 1. apríl 1955. Systkini Þórðar voru Hall- dóra, Sigríður, Ívar, Gísli, Ósk- ar, Guðrún Lilja, Magnús, Klara og Guðmundur. Þau eru öll lát- in. Þórður ólst upp ásamt for- eldrum sínum og systkinum á Skansinum í Vestmannaeyjum. Þórður kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni Hrönn Vilborgu ísson. 4) Elín, f. 1970, synir hennar eru Ísólfur, f. 2005, og Hannes Thor, f. 2008. Eftir hefðbundna skólagöngu vann Þórður ýmis störf, m.a. hjá Einari Sigurðssyni í Hraðfrysti- stöðinni og við húsamálun með Guðna Hermansen hjá Tryggva Ólafssyni. Árið 1959 kaupir hann vörubíl og hefur störf á Bifreiðastöð Vestmannaeyja. Í Heimaeyjargosinu 1973 vann hann við flutninga á búslóðum Eyjamanna frá og til Eyja. Árið 1974 stofnar hann fyrirtækið Vinnutæki hf. ásamt Arnari Sig- hvatssyni. Árið 1983 stofnar hann eigið fyrirtæki, Vélaþjón- ustu Þórðar ehf. Þar vann hann til starfsloka og eru þær ófáar byggingarnar og lóðirnar sem Þórður hefur lagfært í gegnum árin í Vestmannaeyjum. Útförin fer fram frá Landa- kirkju í dag, 18. mars 2021, klukkan 13. Slóð á streymi: https://www.landakirkja.is/ Hlekk á streymi má finna á www.mbl.is/andlat/ Hannesdóttur hús- móður þann 28. desember 1957. Hrönn er fædd í Vestmannaeyjum þann 22. febrúar 1939. Þórður og Hrönn eignuðust fjórar dætur. Þær eru: 1) Hanna Margrét, f. 1955, gift Óskari Valtýssyni, synir þeirra eru Þórður, f. 1975, og Ásgeir, f. 1981. Sambýliskona Ásgeirs er Gunnhildur Magn- úsdóttir og eiga þau þrjú börn, Samúel Mána, Írisi Björt og Freyju Dögg. 2) Ósk, f. 1957, gift Kristni Leifssyni, dóttir þeirra er Hrönn, f. 1984. Sam- býlismaður Hrannar er Steinar Birgisson og eiga þau eina dótt- ur, Ósk. 3) Guðbjörg, f. 1964, dóttir hennar er Arndís, f. 2002, og sambýlismaður er Páll El- Elsku hjartans Þórður minn. Þá er komið að kveðjustund eft- ir 67 ára farsæla samveru, sem góður Guð gaf okkur og ég er endalaust þakklát fyrir. Þú varðst á vegi mínum þegar ég var ung og þurfti mest á þér að halda, þú brást aldrei, varst trúr og traustur líkt og Heimaklettur sem var næsti nágranni þinn á Skansinum. Þú bjóst mér og dætrum okkar gott heimili og okkur skorti aldrei neitt og þeg- ar við mæðgur brugðum okkur af bæ var kveðjan þín „farðu varlega væna mín“ því ekki skorti umhyggjuna fyrir okkur. Þú varst vandaður og góður maður, frábær pabbi, yndislegur afi og langafi. Þú sast ekki auð- um höndum um ævina og eru verkin þín mörg hér í Eyjum, til hagsbóta fyrir íbúana og um- hverfið, enda þurfti margt að laga eftir gosið. Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý og hógvær göfgi svipnum í. Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt og hugardjúpið bjart og stillt. Svo hvíl þig, vinur, hvíld er góð, - vor hgjörtu blessa þína slóð og Laxárdalur þrýstir þér í þægum friði að brjósti sér. (Jóhannes úr Kötlum) Hjartans þakkir, ástin mín, fyrir allt og allt. Ég sakna þín en við hittumst svo í Blómabrekk- unni. Þín Hrönn. Englar Guðs þér yfir vaki og verndi pabbi minn vegir okkar skiljast núna, við sjáumst ekki um sinn. En minning þín hún lifir í hjörtum okk- ar hér því hamingjuna áttum við með þér. Þökkum kærleika og elsku, þökkum virðingu og trú þökkum allt sem af þér gafstu, okkar ástir áttir þú. Því viðmót þitt svo glaðlegt var og góðleg var þín lund og gaman var að koma á þinn fund. (Guðrún Sigurbjörnsdóttir) Í dag kveðjum við systurnar yndislega pabba okkar sem var okkur svo kær. Pabbi var klett- urinn í lífi okkar, hann var heið- arlegur, ljúfur og vinnusamur. Honum féll sjaldan verk úr hendi. Hann byggði ásamt mömmu og okkur systrum tvö heimili frá grunni, Bakkastíg 16 og Stapaveg 10 í Vestmannaeyj- um. Bæði heimilin voru í útjaðri bæjarins þannig að við nutum allar frelsis og náttúrunnar í æsku. Pabbi vann alltaf mikið þann- ig að sumarfríin urðu oft stutt og fá. Þó eru ógleymanlegar ferðirnar á Laugarvatn til Ívars frænda og fjölskyldu með við- komu í Þykkvabænum. Eins minnumst við einu hringferðar- innar sem fjölskyldan fór í sum- arið 1981 og ekki voru nú teknir margir dagar í þá ferð. Samvera á Þjóðhátíð var nán- ast fastur liður hjá fjölskyldunni og ríkti mikil spenna í undirbún- ingnum fyrir hana. Að sjálf- sögðu vorum við með tjald og til- heyrandi. Mest spennandi var að fara með dótið inn í Dal á vörubílnum hans pabba. Pabbi lagði mikla áherslu á að vera ekki með bekkjarbíl heldur njóta hátíðarinnar með fjöl- skyldu og vinum. Oft var gest- kvæmt í tjaldinu og mikið hleg- ið, gantast og sungið. Þegar pabbi var 75 ára lagði öll fjölskyldan land undir fót til að halda upp á afmælið í kóngs- ins Kaupmannahöfn. Ekki dugði minna til en heil vika til að halda upp á afmæli Skansarans. Því þannig var pabbi að ef hann gerði eitthvað þá gerði hann það almennilega og ekkert var til sparað. Við kveðjum þig að sinni elsku pabbi og yljum okkur við minningarnar. Við þökkum þér fyrir allar samverustundirnar og það góða veganesti sem þú gafst okkur út í lífið. Hvíl í friði, elsku pabbi. Hanna, Ósk, Gugga og Elín (Ella). Mig langar að minnast tengdapabba míns í nokkrum orðum. Þórður var mjög áhugasamur við allt sem hann tók sér fyrir hendur, bæði starf sitt og áhugamálin og ekki má gleyma dugnaði þeirra hjóna við að koma upp tveimur húsum sem þau byggðu í Eyjum. Fyrra hús- ið misstu þau í gosinu en það var klárað og að fullu fráengið sum- arið fyrir gos. Þau flytja svo til Eyja eftir gos og byggja nýtt hús á Stapaveginum. Þórður var jarðvinnuverktaki og rak fyrirtæki sitt af dugnaði og útsjónarsemi, það sá ég þeg- ar ég starfaði með honum nokkrar vikur eitt sumarið með- an ég var að bíða eftir plássi á sjó. Maður sá þá fljótt að þarna var Þórður á heimavelli, kunni vel til verka og þekkti vel allar aðstæður, bæði þekkti hann vel inn á vélarnar og að beita þeim við vinnu ásamt því að bregðast við aðstæðum sem koma upp þegar verið er að vinna við upp- gröft á jarðvegi. Þórður var góð- ur verkstjóri og gott að vera í kringum hann. Þórður var áhugasamur stangveiðimaður og fór mikið í veiðitúra austur í Skaftafells- sýslur. Þau hjónin buðu okkur oft með sér í veiði í Grenlækinn en Þórður veiddi mikið í Gren- læknum og í ánum þar í kring. Síðan varð hann einn af leigu- tökum í Grenlæk þegar veiði- félagar hans, sem sumir voru leigutakar þar, tóku hann inn í hópinn. Þórður var ákaflega kát- ur þegar honum var boðið í hóp leigutakanna og alltaf var hann ákafur að komast í Lækinn eins og hann kallaði Grenlækinn þeg- ar hann átti sína veiðidaga þar. Fjölskyldan átti margar ánægjulegar samverustundir í Grenlæknum við veiðarnar og ekki síður í spjallinu á kvöldin. Einu sinni fórum við tveir saman í Skaftána og áttum skemmtilegan veiðitúr þar. Þá sá ég hvað hann var fiskinn, hann veiddi vel þrátt fyrir að þekkja ána ekki mikið, hafði komið þarna aðeins einu sinni áður. Ég á virkilega góðar minn- ingar frá síðasta sumri þegar við vorum með Þórði og Hrönn við veiðar í Læknum. Þórður átt orðið erfitt með gang og gat því ekki labbað langt. Það var veiði- staður sem hann hafði mikinn áhuga á að renna í en var ekki í göngufæri fyrir hann. Ég fór því akandi með hann á staðinn. Þeg- ar við erum komnir á staðinn og hann búinn að græja færið var rennt í hylinn og viti menn, hann fékk þennan fallega tíu punda sjóbirting og mikil var gleðin hjá Þórði og mér ekki síður. Þetta var, það ég best veit, síðasti fisk- urinn sem hann veiddi. Ég er ákaflega þakklátur fyrir að hafa fengið að vera með honum við þetta tækifæri og eiga þessa skemmtilegu minningu um tengdapabba. Takk fyrir samleiðina og sam- verustundirnar og allan velvilj- ann sem þú sýndir mér Þórður minn. Hvíl þú í friði. Kristinn Leifsson. Elsku afi okkar. Við kveðjum þig í dag og söknum þín mikið en eigum fullt af góðum minningum um þig sem við geymum í hjartanu okk- ar. Þú varst alltaf svo góður við okkur og sagðir okkur margar sögur af því þegar þú varst lítill. Þið amma heimsóttuð okkur oft í Reynigrundina og við ykkur til Eyja, þá var gott að skríða upp í til þín, fá afaknús og spjalla saman. Okkur þótti líka skemmtilegt að heimsækja ykkur ömmu í Lækinn þar sem þú kenndir okkur að veiða. Þú sagðir okkur oft að fara varlega og það sagðir þú því þér þótti svo vænt um okkur, kallaðir okkur alltaf strákana þína. Það var svo gott að fá að hitta þig um daginn elsku afi. Þú varðst svo glaður að sjá okkur og vildir helst koma með okkur heim en það var ekki hægt því þú varst orðinn svo lasinn en nú líður þér örugglega vel. Takk fyrir allar samverustundirnar elsku afi. Þegar eitthvað virðist þjaka mig þarf ég bara að sitja og hugsa um þig, þá er eins og losni úr læðingi lausnir öllu við. Þó ég fái ekki að snerta þig veit ég samt að þú ert hér, og ég veit að þú munt elska mig geyma mig og gæta hjá þér. (Ingibjörg Gunnarsdóttir) Guð geymi þig, elsku afi. Ísólfur og Hannes Thor. Elsku afi minn var hjartahlýr og góður maður. Að vera í nánd við hann veitti manni gleði og ró. Alltaf var stutt í grínið hjá mín- um manni og allt sem hann gerði gerði hann vel. Hann ræktaði rósir handa ömmu, bakaði afa- brauð og bar mikla væntum- þykju til okkar barnabarnanna. Ekki veit ég hvernig lífið verður án þín elsku afi minn. Mér finnst afskaplega skrítið að hugsa mér framtíðina án þín. Í hjarta mínu mun ég ætíð geyma þær minningar sem við áttum saman. Þær óteljandi stundir sem ég átti hjá ykkur ömmu í Eyjum. Þegar við brunuðum á sleða niður Stapaveginn og þeg- ar við fórum saman og gáfum öndunum brauð. Þegar þú hjálp- aðir mér að mála kofann sem ég hafði smíðað með vinkonu minni og þegar þú kenndir mér að veiða í Læknum. Þegar við spil- uðum saman á orgelið og þegar þú sagðir mér sögur frá því þeg- ar þú varst lítill. Sumrin í Eyj- um og bros ykkar ömmu þegar þið ýmist sóttuð mig á flugvöll- inn eða niður á bryggju. Svo má ekki gleyma öllum ferðalögun- um með ykkur ömmu og þegar þú kenndir mér að baka afa- brauðið þitt, besta brauð í heimi. Aldrei mun ég gleyma góð- mennsku þinni, hlýjunni og notalegheitunum með þér. Þú varst góð fyrirmynd, þú kenndir mér margt og alltaf mun ég vera jafn stolt af því að geta kallað þig afa minn. Elsku afi,guð mun þig geyma yfir okkur muntu sveima en eitt vil ég þó að þú vitir nú minn allra besti afi,það varst þú. (Katrín Ruth Þ.) Guð geymi þig, elsku afi minn. Þín Arndís. Fallinn er frá vænn drengur hann Þórður á Skansinum. Þórður var hvers manns hugljúfi og kunni ráð við öllu sem snýr að framkvæmdum enda verktaki og mikill hagleiks maður. Marg- ar góðar minningar á ég um Þórð og hans fjölskyldu. Ég átti þá gæfu að kynnast honum sem ungur drengur er ég dvaldi hjá þeim í Vestmannaeyjum eitt sumar og fékk það starf að að- stoða Þórð við að gera upp gamla bens bifreið og var aðdá- unarvert að njóta verkkunnáttu hans fyrir ungann og þrótt mik- inn dreng. Veturinn 1973 fór ég ásamt Steinari frænda mínum til Vestmannaeyja í gosinu til að hjálpa við að moka ösku ofan af þaki á húsi foreldra hans. Við komum með strandferða skipinu um nótt og á hafnarbakkanum var Þórður með sitt trausta góða bros á vörubíl sínum til að taka á móti okkur. Þarna er Þórði rétt lýst alltaf til staðar fyrir sitt fólk og samferðamenn. Í júlí var okkur Guðrúnu Soffíu boðið í veiðiferð í Gren- læk af fjölskyldu Þórðar. Þar var Þórður hrókur alls fagnaðar enda um ræða uppáhalds- veiðiána hans. Þar hefur hann notið þess að eiga sínar góðu stundir með sinni fjölskyldu og vinum. Við sendum fjölskyldu Þórðar innilegar samúðarkveðjur. Ragnar Atli Guðmundsson. Það er tímanna tákna að þeim fækkar Eyjamönnunum sem kenndir eru við æskuheim- ili sín. Þórður á Skansinum er einn þeirra. Í huga lítils peyja í Grænuhlíðinni var ljómi yfir vörubílstjóranum sem bjó á Bakkastígnum. Hann átti snemma kranabíl og var á und- an sinni samtíð og svo var hann líkari stórstjörnunum sem ég sá í þrjúbíó. Svo flottur með há kollvik, síða barta og skeggið á efri vörinni persónueinkenni Skansarans. Eðlislægt glottið og hlýleg framkoman gerði það að verkum að gullfyllingin í framtönninni var áberandi. Ég var bara viss um að eingöngu kvikmyndastjörnur væru með svona útlit. Leiðir okkar lágu síðan saman þegar ég var verk- stjóri hjá Viðlagasjóði við hreinsunina í Eyjum eftir gos og þá var ég gröfumaður hjá honum og Arnari í Ási. Þeir áttu saman fyrirtækið Vinnuvélar og við unnum að hitaveitufram- kvæmdum í Eyjum. Það var skemmtilegur tími en það þurfti stundum að taka í rassgatið á gröfumanninum sem sleit nær allar vatnslagnir sem lágu ómerktar stystu leið milli húsa. Ég viðurkenni það nú fyrir góð- um vini að ég skemmti mér tölu- vert yfir því brasi. Ég var kannski að grafa í mjúkum jarð- vegi þegar ég fann nett höggið og svo stóð vatnsbunan langt upp í loftið. Þórður og Arnar komu þá hlaupandi með fittings og rörtöng, bölvuðu í hljóði en stungu sér óhikað í skurðinn fullan af vatni og græjuðu rörið. Vinnan var skóli hjá mönnum með verksvit og þekkingu. Seinna þegar ég fór í diplóm- anám í mannauðsstjórnun í HR kom í ljós að ég var löngu búinn að læra þetta allt saman; í sveit- inni, á sjónum, í Net hf., hjá Stebba Run, Arnari í Ási og Þórði á Skansinum. Það hafði bara engum dottið í hug að út- skrifa mig. Þórður og hans líkar færðu Ísland inn í nútímann með útsjónarsemi, dugnaði og áræði. Í dag fengju þeir hvergi vinnu því þeir áttu engin próf- skírteini sem hægt er að ramma inn og setja upp á vegg. En ómetanleg reynslan og þekking- in er hvergi innrömmuð til skrauts á skrifstofum sem eru fullar af reynslulausu fólki með prófskírteini. Fyrstu skref Þórðar í vinn- una voru niður Skansinn í Hrað- frystistöðina þar sem hann vann hjá Einari ríka. Einfalt atriði eins og að gogga fisk á færiband hafði líka sitt lag. Þórður kom eitt sinn í aðgerð til mín og þar var ungur maður að gogga fisk á bandið. Að meðfæddri kurteisi Þórðar sagði hann við strákinn: „Þú átt alltaf að láta hausinn á fiskinum snúa svona því þá þarf Ási ekki að snúa hverjum þung- um þorski þegar hann fer inn í’ann.“ Þegar Þórður og vinnu- félagar hans í Hraðinu gerðu að hundruðum tonna, 17 klukku- stundir á dag sjö daga vikunnar, vertíðina á enda, skipti þetta sköpum að létta öllum vinnuna því allt var gert á höndum. Skansarinn skipti ekki skapi þótt álagið væri mikið, langur vinnudagur og pressa í gangi. Og alltaf mætti hann ef við gerðum okkur glaðan dag, hann hafði gaman af góðum vinnu- staðaanda og þeim móral sem fylgdi slíku spjalli. Skansinn mun standa en Skansarinn er fallinn, glottið og yfirvaraskegg- ið heyrir nú sögunni til. En minningin um góðan mann lifir. Votta Hrönn og fjölskyldu hjartans samúð. Ásmundur Friðriksson. Þórður Magnússon Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og stuðning vegna andláts og útfarar elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HAUKS JÓHANNSSONAR, skipstjóra og útgerðarmanns, Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja fyrir góða og kærleiksríka umönnun meðan hann dvaldi þar. Emma Kristjánsdóttir Kristján Hauksson Ída Night Ingadóttir Guðrún Hauksdóttir Jón Gísli Ólason Jóhanna Hauksdóttir Sigurður Óli Hauksson Margrét Helgadóttir afabörn og langafabörn Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ERNU SIGURBALDURSDÓTTUR frá Ísafirði. Sérstakar þakkir fær starfsfólk hjúkrunarheimilisins Grundar fyrir góða umönnun og hlýtt viðmót. Hólmfríður S. Sigurðardóttir Ragnar Stefánsson Pétur Örn Sigurðsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SIGRÍÐUR ERLENDSDÓTTIR, lést á Hrafnistu á Nesvöllum þriðjudaginn 9. mars. Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn 19. mars klukkan 13. Athöfninni verður streymt á Facebook/Njarðvíkurkirkjur-Útfarir. Hlekk á streymi er hægt að nálgast á mbl.is/andlat Fyrir hönd aðstandenda, Finnur Eyjólfsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.