Morgunblaðið - 18.03.2021, Page 50

Morgunblaðið - 18.03.2021, Page 50
Hjartans þakkir fyrir sýndan hlýhug og vináttu við andlát og útför okkar ástkæra FRIÐRIKS BJÖRNSSONAR, Ársölum 3. Sérstakar þakkir fær starfsfólk deildar 11E sem og líknardeildar Landspítalans fyrir sýnda umhyggju og alúð. Gunngeir Friðriksson Edda Björg Sigmarsdóttir Sigurrós Friðriksdóttir Steinar Óli Jónsson Ásgeir Herdísarson Kristín Hinriksdóttir 50 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2021 ✝ Eysteinn Björnsson fæddist á Reyð- arfirði 26. febrúar 1954. Hann lést á heimili sínu þann 28. febrúar 2021. Foreldrar hans voru Sigrún Jóns- dóttir, f. 7. maí 1925, d. 10. apríl 1973, og Björn Ey- steinsson, f. 26. ágúst 1920, d. 5. maí 2014. Syst- ur Eysteins eru Erna Björns- dóttir, gift Ellert Borgar. Þau eiga þrjú börn, Sigrúnu, Krist- ínu og Björn Val, og Hanna Ragnheiður Björnsdóttir, gift Hafþóri Theodórssyni. Þau eiga einn son, Jóhann Birni. Eysteinn varð stúdent frá Mennta- skólanum í Reykja- vík 1972 og stund- aði síðan nám við Háskóla Íslands í ensku, bókmennta- fræði og forngrísku frá 1972 til 1984. Hann var inn- kaupastjóri hjá Bóksölu stúdenta mestan hluta starfsævinnar. Eysteinn var mikill áhugamaður um m.a. bækur, bókasöfnun, fornmenn- ingu, fornar tungur og Eddu- kvæði. Útför Eysteins fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 18. mars 2021, klukkan 15. Eysteinn bróðir minn er látinn langt um aldur fram, aðeins 67 ára að aldri. Fregnin af andláti hans var mér mikið reiðarslag, minningarnar hrönnuðust upp. Á mennta- og háskólaárum hans kom hann oftast heim á Reyðar- fjörð á sumrin og hlakkaði ég allt- af mikið til komu hans. Þá mætti hann með stóra segulbandstækið sitt með allar spólurnar með Bítl- unum. Bítlalögin hljómuðu um allt húsið allt sumarið, foreldrum okkar stundum til mikillar ar- mæðu. Sumarið áður en ég byrj- aði að læra ensku í grunnskóla gerðist Eysteinn enskukennari og fór sumarið í hörkunám enda mætti ég í skólann um haustið „fulllærð“ og virkilega stolt af af- rakstrinum. Þegar ég varð unglingur fékk ég að heimsækja hann til Reykja- víkur eftir að hann fluttist þang- að. Það var alltaf mikil upplifun að koma til hans, sjá allar bæk- urnar hans og hitta alla vinina hans. Þetta var á hippaárunum og margt svolítið framandi, alls konar te og grænmetisfæði, en alltaf var ég jafn uppnumin. Á menntskólaárum mínum þegar ég var komin til höfuðborgarinn- ar gat ég farið að hitta hann miklu oftar. Fór stundum með vinkonu minni Helgu Steingerði að heim- sækja Eystein, og eins og hún orðaði það, þá kenndi hann okkur ótalmargt. talaði mjög hreinskilnislega um lífið og tilveruna og fræddi okkur þar að auki um viðkvæm- ustu mál. Eysteinn átti eftir að hjálpa mér mikið á menntaskóla- árunum mínum, í ensku, bók- menntum, stærðfræði og eðlis- og efnafræði. Hann átti því stóran þátt í því, að ég náði stúdentsprófum í raungreinunum. Samverustundum okkar fækk- aði með árunum. Ég fór til náms í Bandaríkjunum og fluttist síðan til Vestmannaeyja. Það var þó oftast ljúft á milli okkar. Bréf voru skrifuð, símtöl tekin og þeg- ar tæknin jókst skrifast á með tölvupósti. Síðasta ár var erfitt fyrir alla heimsbyggðina og Eystein þar með. Hann tók ákvörðun um að fara í stranga sjálfskipaða sóttkví og hitta engan, nema hana Heiðu vinkonu sína á efri hæðinni. Við vorum einungis í sambandi í gegnum síma og með tölvupósti. Við systurnar sendum okkar dýpstu samúðarkveðjur til Heiðu og Snorra sem reyndust Eysteini alveg einstaklega vel síðustu ár- in. Við þökkum af alhug. Vinum, kunningjum og aðstandendum eru þakkaðar hlýjar kveðjur. Sérstakar þakkir fær Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði, sem hefur reynst okkur með afbrigð- um vel og á ómetanlegan hátt vegna andláts Eysteins og við undirbúning útfarar hans. Gangi ykkur allt að sólu! Ég vil enda þessi minningar- orð með ljóði sem móðir okkar, Sigrún Jónsdóttir, orti: Fjöllin mín heima Í lygnum firði ljóma þau um ljósar sumarnætur og svanahjónin syngja blítt er silfurdöggin grætur. Það er sem einhver æðri máttur upp úr sjónum streymi og öllu illu, öllu sáru í undraleiðslu ég gleymi. Þau veita mér þann unað sem orð ei kunna að mynda. Þau standa þar svo stolt og trygg með stælta háa tinda. Og tregi þeirra og tíguleiki er tign í æðra veldi, sem til má sækja töframátt á tæru sumarkveldi. Blessuð sé minning þín kæri bróðir. Þín systir, Hanna. „Lífið hefur hendur kaldar.“ Þessi ljóðlína kom í hug mér er ég frétti af óvæntu og ótímabæru andláti þínu, kæri bróðir. Í stóra samhenginu finnst mér eftir á, að ræskingar hinna rámu reginafla að undanförnu gætu hafa verið fyrirboði þess, að þú, náttúru- barnið, yrðir kallaður yfir á ann- að tilverustig. Við andlát þitt hrannast upp minningar um æskuár okkar austur á Reyðarfirði, um fjöl- skyldu okkar og ákvarðanir sem leiddu okkur út í lífið. Hæfileikar þínar voru fjöl- þættir og greind þín og gáfur leiddu til þess að þú vildir kynna þér sem flest, læra sem mest og miðla til samferðafólks, vina og kunningja. Fróðleiksþorsta þínum var aldrei að fullu svalað. Mikill var áhugi þinn á fornum bókmennt- um, stjörnuspeki og spám, tungu- málum, bókmenntum innlendum sem erlendum og síðast en ekki síst á siðum og menningu Íslend- inga og átrúnaði forfeðranna. Það kom enginn að tómum kof- unum hjá þér þegar reyndi á víð- læsi og þekkingu. Frá barnæsku fléttaðist tónlist inn í líf þitt og átti með þér gef- andi samleið allt til síðasta dags. Þú barst víða niður og hvar sem sleginn var tónn er snerti þig varð hann þinn hvort sem hann kom frá Kóreu eða úr „túninu heima“. Á þekkingaröflun þinni varð aldrei hlé og mörgum steinum velt við. Kæri bróðir. Á kveðjustund minnist ég þeirra mannkosta er þú hafðir að geyma. Mildi og mannúð var áberandi í fari þínu þótt birtingarmynd þeirra göf- ugu eiginleika væru ekki alltaf allra. Ég er og verð í hjarta mínu þakklát fyrir að hafa átt þig að bróður og vini. Við för þína í ný heimkynni bið ég þig að færa kveðju mína móð- ur okkar sem var okkur systk- inunum kærust allra. Hún var þér eitt og allt og frá- fall hennar í blóma lífsins var þér þung raun. Þú tendraðir ljós minninga um mömmu með því að hafa frumkvæði að samantekt ljóða hennar sem eru okkur svo dýrmæt. Far þú í friði! Brottför þína bar að svo skjótt burtu horfinn vinur of fljótt um sig grípur söknuður sár. Þín mynd lifir mild og svo tær minning þín geymist, fögur og skær, elsku bróðir, um ókomin ár. (eb) Erna systir. Eysteinn Sigrúnar Björnsson „Maður heyrir bara aldrei í þér“ eru kannski fyrstu orðin sem koma upp í hugann þegar ég hugsa til mömmu. Þetta er ekki köld kveðja heldur svona það sem við notuðum okkar á milli síðustu ár. Hún byrjaði oft símtalið: „Já sæll, maður heyrir bara aldrei í þér!“ Og ég tók þetta upp með eða á móti henni en þó aldrei sagt með illsku eða fýlu. Ég vissi alltaf að mamma mín Henný Tryggvadóttir ✝ Henný Tryggvadóttir fæddist 27. ágúst 1946. Hún lést 23. febrúar 2021. Útför Hennýjar fór fram í kyrrþey 5. mars 2021. yrði aldrei hundrað ára en að hún þyrfti að fara núna er ekki það sem ég var tilbúinn til að sætt- ast við. Oft var ég á leið- inni til hennar eða bara að hringja í hana en stundum fór tíminn í annað þegar bæjarferð var farin til Akureyrar. Klárlega veit ég, og ég hugga mig við það, að mamma er komin á góðan stað hjá góðu fólki og þótt mér finnist það ótímabært að hún sé farin má kannski segja að hennar tími hafi verið kominn. Það er margt sem mamma kenndi mér, sýndi mér, sagði mér og margir staðir sem hún fór með mig á, sérstaklega í gamla daga. Eins og góð kona í sveitinni sagði alltaf: „Það er nú enginn smá dugnaður í henni mömmu þinni, búin að fæða ykkur fjögur systkinin í heiminn og koma ykk- ur á legg, það er nú ekkert smá- ræði og stolt má hún vera af því.“ Það held ég líka að mamma hafi verið og sé ennþá pínulítið stolt af okkur. Ég er að minnsta kosti alveg klár á því að eitt er víst, það er það að eitt sinn munu allir menn deyja. „Tja, ekki er maður enn dauð- ur,“ sagði hún stundum. Ljóst er að lífið er frekar stutt og rétt er að nýta það vel og svona eftir á að hyggja hefði ég viljað stoppa lengur, koma oftar og tala meira. Elsku mamma, hvíl í friði. Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. (Reinhold Niebuhr) Þinn litli strákur, Ketill. Bréf til afa míns, Rafns Magnússon- ar. Það er erfitt að sætta sig við þá staðreynd að nú skilur leiðir okkar. Þú varst mér góð fyrirmynd, kletturinn sem hafðir réttlæti, sanngirni og dugnað að leiðarljósi. Þú kenndir mér mörg gildi sem ég hef reynt að temja mér og breyta eftir í líf- inu. Þú varst beinskeyttur maður, fullur eldmóði og gast verið hvass og ákveðinn í samskiptum. Oft var mikið fjör í smíða- og suðu- stofum vélskólans þar sem þú kenndir til fjölda ára, en þú hafð- ir einmitt byggt upp aðstöðu vél- skólans til suðukennslu fljótlega upp úr 1970. Ég dáðist oft að hug- myndaauðgi þeirra skörpu orða sem féllu þegar við nemendurnir stóðum okkur ekki. Því þótti mér Rafn Magnússon ✝ Rafn Magn- ússon fæddist 25. febrúar 1932. Hann lést 15. febr- úar 2021. Útför Rafns fór fram 25. febrúar 2021. skemmtilegt að fylgjast með, reynd- ar oft og tíðum al- veg sprenghlægi- legt. Ég veit að margir voru nem- endurnir einnig á þeirri skoðun að þessi beinskeytti samskiptamáti væri skemmtilegur, þótt vissulega þætti sumum hann fram- andi eða jafnvel stuðandi, a.m.k. við fyrstu kynni. Flestir nemend- urnir sáu þó brátt að innra með þér bjó hjarta úr gulli. Þú hafðir góð tök á því að skapa árangur meðal okkar „bjálfanna“. Þrátt fyrir beinskeytt yfir- bragð varst þú mér afar góður afi, gafst þér ávallt tíma fyrir spjall, varst bóngóður og viljugur til að sýna mér og kenna. Ég er þér afar þakklátur þá góðu tíma. Mér eru minnisstæð mörg at- vik þar sem góðmennska og hjálpsemi þín sýndu sig. Ein slík minning er frá vorinu 1989. Í miðju kennaraverkfalli bað ég þig um hjálp við að ryðbæta minn fyrsta bíl, en sá var forláta Bronco-jeppi, árgerð 1966. Það reyndist talsvert verk, mun meira verk en mig grunaði og teygðist yfir marga daga. Þarna fékk ég mína fyrstu kennslu í málmsuðu, þá fyrstu af mörgum slíkum kennslustundum sem ég síðar fékk notið með þér. Þegar reyndi á var eins og beinskeytta yfirbragðið hyrfi og við tók skiln- ingur og þolinmæði frá hjartanu. Mér fannst ég ávallt sjá inn í hjarta þitt. Mér fannst ég ávallt finna hvað þú hugsaðir. Margar góðar stundir með þér eru greyptar í bernskuminningar mínar. Sumurin í hvalstöðinni, gamli hermannabeddinn í bragg- anum þar og góði maturinn. Sundferðirnar, heimsóknirnar, ferðalögin. Við áttum góðar stundir saman sem sköpuðu verðmætar minningar sem fylgja mér og lifa innra með mér þar til við sjáumst á ný. Elsku afi, takk fyrir allt. Þú býrð nú innra með mér og öllum sem þín nú sakna. Vertu sæll að sinni. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Snorri Júlíus Jónsson. Enginn er eilífur en þegar æskan er við völd þá er ei- lífðin sjálf fram undan. Hún bíður full af tæki- færum. En tíminn kann ráð til að slá á of mikla bjartsýni og tyfta þá sem götu hans ganga. Hann mælir án afláts af stiku hvers og eins og einn daginn er slóðin gengin. Við í T-bekknum 1964 sem ætluðum að fara í úti- legu aftur þegar við yrðum 20 ára stúdentar, en efndum ekki það heit, erum skyndilega orðin rígfullorðin þótt í brjóstinu slái hjartað enn af vana og heilinn haldi að við séum bara tvítug. Það hefur kvarnast úr hópnum, nú síðast flutti Örn Johnson til Örn Johnson ✝ Örn Johnson fæddist 28. september 1943. Hann varð bráð- kvaddur 21. febr- úar 2021. Útför Arnar var gerð 12. mars 2021. sumarlandsins. Undirrituð komst ekki í jarðarför þessa yndislega og ógleymanlega bekkjarfélaga og langar því að kveðja hann hér með nokkrum orð- um. T-bekkurinn var fyrsti stærðfræði- deildarbekkurinn í MR sem var til jafns skipaður stúlkum og piltum. Kannski efldi jöfn kynjaskiptingin svo vinabönd okkar að þau haldast traust fram á þennan dag. Í 57 ár höfum við hist nokkrum sinnum yfir árið, rifjað upp skemmtileg tilvik, hlegið að prakkarastrikum og vitleysis- gangi, kennurum og okkur sjálfum. Minnst hefur verið rætt um nútímann. Örn okkar var litrík og sterk persóna. Hann setti svip á um- hverfið hvar sem hann fór, æv- inlega glaður og reifur, jafnvel þegar hjartanu blæddi. Sagði alltaf allt ágætt, leit aldrei til baka en horfði alltaf fram á veginn; sá aðeins lausnir en ekki vandamál. Hann var hlýr og notalegur, hafði dásamlegan húmor, ekki síst fyrir sjálfum sér, var oft óvæginn við sig þegar hann sagði frá en lagði ekki öðrum illt. Örn var einna ötulastur í því að mæta á „hitt- ingana“ okkar. Varla hafði maður boðað samveru þegar svar kom frá honum: „Ég mæti.“ Og hann mætti svo sannarlega, var skemmtilegast- ur og fyndnastur en hann yf- irgaf líka samkvæmið áður en kæmi að trúnaðarstund, ef hún á annað borð kom til. Örn var lokaður maður, dul- ur, en hugsaði þeim mun fleira. Hann flíkaði ekki tilfinningum sínum, en úr fáum orðum mátti lesa velvilja hans til alls. Hann gat verið hrjúfur en það stóð ekki lengi; slíkt beindist ekki að neinum sérstökum, vitnaði aðeins um að eitthvað angraði hann. Hann var meistari í að hrista slíkt af sér. „Glaður og reifur skyli gumna hver“ o.s.frv. var sennilega brennt í hjarta hans. Það var mér þó ekki ljóst fyrr en eftir að skóla- árunum lauk og við kynntumst á öðrum vettvangi. Þá skildi ég hve íhugull þessi góði drengur var og viðkvæmur. Örn hafði örugglega bak við eyrað að öllu er afmörkuð stund og vildi því lifa lífinu til fulls, ekki líta til baka, heldur ævinlega fram, eins og hann sagði stundum. Sameiginlegur áhugi okkar á frímúraramálefnum og því sem reglur okkar standa fyrir stuðl- aði að nánari kynnum en einnig grúsk í fornsögum, ekki síst Ís- lendingasögum. Það er gaman að rýna í for- tíðina. Manneskjan er alltaf söm þótt tíðarandi og aðstæður móti hana og marki lífshlaup og athafnir. Ég minnist með mik- illi gleði ferðar á slóðir Sturl- ungu og umræðna um Lax- dælu. Orkneyjar fengu líka sinn skerf. Ég minnist líka ógleymanlegrar útilegu í Stóru- Bót þegar vinir okkar þar áttu afmæli og gengu í það heilaga. Góður drengur og heill er fallinn of snemma frá. T-bekk- ingar þakka honum allar ljúfar og góðar stundir, órofa tryggð og vináttu sem aldrei bar skugga á. Sonum hans og fjöl- skyldum þeirra, og öðrum að- standendum, eru sendar hug- heilar samúðarkveðjur. Minning Arnar lifir. Kristín Jónsdóttir. Hjartans þakkir til þeirra fjölmörgu sem sýndu okkur hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, ÁRNA MAGNÚSAR EMILSSONAR, fyrrum útibússtjóra, Arnarási 12D, Garðabæ. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á deild 11G á Landspítalanum fyrir einstaka umhyggju og alúð í hans garð. Þórunn B. Sigurðardóttir Orri Árnason Anna Rún Ingvarsdóttir Arna Árnadóttir Ágústa Rós Árnadóttir Svavar Jósefsson Úlfur, Victoria, Salka og Hrafn Styrkár

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.