Morgunblaðið - 18.03.2021, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 18.03.2021, Blaðsíða 57
DÆGRADVÖL 57 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2021 Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranesi | Sími 511 2022 | dyrabaer.is Úrval náttúrulegra bætiefna og fóðurs fyrir hunda og ketti. Nánar á dyrabaer.is HOLLUSTA OG HEILBRIGÐI FRÁ hann Íslandsmeistari í bréfskák árið 1978. Hann varð Norðurlands- meistari í skák og hraðskák árið 1975 og keppti einnig á Íslands- meistaramóti í landsliðsflokki sama ár. Hann var sæmdur alþjóðlegum meistaratitli af FIDE í bréfskák. „Ég fylgist enn með skákinni, hef gaman af því að skoða skákþrautir og svo dúlla ég mér við snóker.“ Fjölskylda Eiginkona Franks var Inga Ey- fjörð Sigurðardóttir, f. 2.8. 1936, d. 8.9. 2004. Þau bjuggu í Vogum á Vatnsleysuströnd þar sem Frank býr enn. Foreldrar Ingu voru Sig- urður Norðfjörð Jónatansson, 15.12. 1915, d. 7.2. 1939, og Sigríður Ingi- björg Ingimarsdóttir, f. 29.5. 1916, d. 23.4. 1976, en Inga ólst upp hjá ömmu sinni, Maríu Kristjánsdóttur, f. 8.8. 1887, d. 19.4. 1979. Börn Franks með fyrri eiginkonu sinni, Bryndísi Friðriksdóttur, f. 2.10. 1941, d. 4.11. 2013, listakonu, eru 1) Grétar Franksson, f. 6.4. 1960, vélfræðingur; 2) Guðrún Ásta Franks, f. 2.7 1961, viðurkenndur bókari, maki: Baldvin Loftsson; 3) Sara Helga H. Franks, f. 1.2. 1964, fjármálafulltrúi, maki: Einar G. Ólafson; 4) Sandra B. Franks, f. 17.3. 1966, formaður Sjúkraliða- félags Íslands, maki: Árni Björn Kristbjörnsson. Barnabörnin eru ellefu og barnabarnabörnin eru fjórtán. Systkini Franks eru Stígur Tily, f. 13.9. 1934, Sigurður Alfreð, f. 21.6. 1936, Harry Ágúst, f. 9.3. 1943, allir búsettir í Hafnarfirði; Benja- mín Hafsteinn, f. 21.3. 1947, Sólveig Guðfinna, f. 26.12. 1949, þau eru bú- sett í Danmörku, Hanne Rósa, f. 11.4. 1962, búsett í Suður-Karólínu. Foreldrar Franks voru hjónin Harrý Otto Ágúst Herlufsen, f. 18.8. 1913 í Esbjerg í Danmörku, d. 15.9. 2006, rakari og tónlistar- maður, og Auður Helga Stígsdóttir Herlufsen, f. 13.6. 1917 í Hafn- arfirði, d. 7.12. 2012, húsmóðir og verslunarkona. Þau bjuggu á Ísa- firði en lengst af í Tjæreborg í Dan- mörku. Frank Kristinn Herlufsen Hansine Herlufsen húsmóðir í Esbjerg Jens Peter Herlufsen vatnslitamálari í Esbjerg Harrý Otto Ágúst Herlufsen rakari og tónlistarmaður á Ísafirði og í Tjæreborg Sólveig Benjamínsdóttir húsfreyja á Halldórsstöðum á Vatnsleysuströnd og Sjónarhóli Eiríkur Jónsson sjómaður og bóndi á Halldórsstöðum, síðar á Sjónarhóli í Hafnarfirði Sigríður Eiríksdóttir Sæland ljósmóðir í Hafnarfirði Stígur Sæland lögregluþjónn í Hafnarfirði Vigdís Jónsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði Sveinn Auðunsson sjómaður, bæjarfulltrúi og verkalýðsleiðtogi í Hafnarfirði Úr frændgarði Franks Herlufsen Auður Helga Stígsdóttir Herlufsen húsmóðir og verslunarkona á Ísafirði og í Tjæreborg „LÁTUM ÞETTA GOTT HEITA Í DAG, STRÁKAR. ÞIÐ GETIÐ LEYST ÞETTA Á MORGUN.” „VEISTU HVERSU MARGIR VERÐA FYRIR ELDINGU ÁRLEGA?“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að elda fyrir fjölskylduna. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ENGINN ER FULLKOMINN HEFURÐU LEITAÐ ALLS STAÐAR? MANSTU EFTIR MÉR? JÁ! ÞÚ STRÍDDIR MÉR MISKUNNAR- LAUST ÞEGAR VIÐ VORUM BÖRN! Ó, ÞAÐ VAR BARA Á TÍMABILI ÞAR SEM ÉG HAGAÐI MÉR HEIMSKULEGA! ÞAÐ VÆRI ÞÁ HEIMSKULEG HEGÐUN HJÁ MÉR!ÞÚ GÆTIR FALLIÐ FYRIR MÉR Í DAG! Þórhildur Sigurðardóttir sendimér þessa vísu eftir ömmu sína, Þórhildi Sveinsdóttur skáld- konu, sem varð 112 ára á þriðjudag, 16. mars (fædd 1909). Hún var Hún- vetningur, systurdóttir Gísla Ólafs- sonar frá Eiríksstöðum í Svart- árdal. Við í Vísnahorni árnum henni heilla á þessum merkisdegi. Og hér kemur stakan, snjöll og sönn: Ef þig vélar váleg frétt vinsaðu úr af snilli. Sumt er logið, sumt er rétt og sumt er þar á milli. Ingólfur Ómar gaukaði að mér einni vísu þar sem nú er spáð vætu fram á sunnudag: Þokan hylur hæð og tind hrekur sólarglætu. Skúraþrungin skýjalind skvettir úr sér vætu. Magnús Halldórsson er á svip- uðum nótum og sagði á Boðnarmiði á þriðjudag: „Mígandi regn, annan daginn í röð“: Lóðrétt niður læðist regn, lækjar mótast farið. Svo vitanlega er vott í gegn, vesalings tíkarskarið. Guðný Jakobsdóttir yrkir og seg- ir að gaman væri að fá svör í bundnu máli: Hörmulegan heilsubrest hef ég sko í nefi! Vitið þið hvaða vín er best og vinnur strax á kvefi? Gunnar J. Straumland svarar: Ef þú hefur ónýtt nef ertu í miklum vanda. Þá allra bestu úrlausn hef, - að þú drekkir landa. Magnús Halldórsson skrifar: „Upp úr klukkan hálffimm í morg- un barst lögreglunni tilkynning um yfirstandandi innbrot í verslun. Viðskiptamaður hafði sofnað á sal- erni og var þá að brjótast út“: Á kamrinum var kyrrð og ró, kúnninn svaf þar feginn, á rismálstíma rumskar þó og reyndi útbrotsveginn. Eyjólfur Ó. Eyjólfsson af sama tilefni: Á salerni sofnar hann veikur og segir er vaknar hann keikur: Sjáiði hér það sést best á mér að svefninn er hægðaleikur. Margt ber fyrir augu. Anton Helgi Jónsson kveður: Uppá steini krummi klár krunkar en á meðan hímir útí hólma grár hegri. Ég gat séð’ann. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Sumt er logið, sumt er rétt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.