Morgunblaðið - 18.03.2021, Page 61

Morgunblaðið - 18.03.2021, Page 61
MENNING 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ sýnd með íslensKu og ensKu talı SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI. FRANCESMcDORMAND MYND EFTIR CHLOÉ ZHAO PEOPLE’S CHOICE AWARD TORONTO FILM FESTIVAL SIGURVERARI GOLDEN LION BEST FILM VENICE FILM FESTIVAL SIGURVERARI EVENING STANDARD THE GUARDIAN TOTAL FILM THE DAILY TELEGRAPH TIME OUT EMPIRE BESTA MYNDIN BESTALEIKONAN ÍAÐALHLUTERKI Frances McDormand BESTI LEIKSTJÓRI Chloé Zhao 6 ÓSKARS TILNEFNINGAR MEÐAL ANNARS ® 94% 72%95% F áar þeirra kvikmynda sem keppa nú um Óskarinn hafa ratað í íslensk kvik- myndahús til þessa (markaðsstaða streymisveitna og seinkun frumsýninga í Ameríku skýra það að einhverju leyti) og ekki laust við að komu Hirðingjalands hafi verið beðið með eilítilli eftir- væntingu. Stórleikkonan Frances McDorm- and fer með aðalhlutverk kvikmynd- arinnar, og er jafnframt framleið- andi, en hún keypti kvikmyndarétt- inn á samnefndri sannsögu sem verkið byggist á fyrir tæpum tíu ár- um. Líta mætti á Hirðingjaland sem þriðja innlegg leikkonunnar í dreif- býlisþríleik en hvað gæði varðar lendir myndin mitt á milli hinar hvimleiðu Þriggja auglýsingjaskilta utan Ebbing, Missouri (2017) og meistaraverksins Fargo (1996). Leikstjóri myndarinnar, Chloé Zhao (skrifar einnig handrit, klippir og framleiðir), er fyrst kvenna af asísk- um uppruna til að hljóta Óskars- verðlaunatilnefningu en hún vakti athygli fyrir Reiðmanninn (2017) og stefnir nú óðfluga á heimsyfirráð með ofurhetjumynd í Marvel-heimi. Hirðingjaland segir frá Fern, konu á sjötugsaldri, leikinni af McDormand. Eiginmaður hennar er nýlátinn en þau bjuggu saman í smá- bænum Empire í Nevadaríki. Bær- inn hefur að stórum hluta lagst í eyði eftir lokun verksmiðju sem knúði áfram atvinnulífið. Fern setur stefn- una á þjóðveginn og tekur upp lifn- aðarhætti nútímahirðingjans. „Án húss, ekki heimilis“ býr hún í bílnum sínum og ferðast vítt og breitt milli ríkja í vesturhluta Bandaríkjanna og tekur að sér ýmis árstíðabundin störf. Ferilskráin er nokkuð fjöl- breytileg en hún vinnur m.a. fyrir sér við færiband Amazon-risans yfir jólavertíðina, sem umsjónarmaður tjaldsvæðis í þjóðgarði á sumarmán- uðum og með spaðann á lofti við steikingargrill skyndibitastaðar. Á ferð Fern kynnist hún samfélagi flækingja og myndar tengsl. Engar kveðjur eru endanlegar, „sjáumst á vegum úti“. Drífandi söguflétta greinir frá samskiptum Fern við Dave (leikinn af David Strathairn) en þau kynnast á flandrinu. Sam- leikur þeirra McDormand og Strathairns er sterkur. Dave er á sama reki og Fern, með girnilegt grátt skegg og söguhetjan er honum greinilega hugleikin. Fýrinn hyggst festa rætur á ný og samband þeirra endurspeglar val fyrir aðalpersón- una – áframhaldandi flan eða aftur- hvarf til hefðbundnara lífs? Meginspurning frásagnarinnnar snýst um forsendur flökkulífsins – að hve miklu leyti er þetta eitthvað sem manneskja kýs? Rómantískri hug- mynd um amerískan anda ein- staklingsfrelsis og víðáttu er stefnt saman við blákaldan kapítalískan veruleika. Baksvið sögunnar er auð- vitað fjármálakreppa ársins 2008 og afleiðingar hennar á verkafólk en bágum aðstæðum vegna vanmáttugs heilbrigðis- og lífeyriskerfis eru stuttlega gerð skil í ummælum og aðstæðum persóna. Þó er ekki ein- blínt á félagsleg vandamál og raunar hefði mátt gefa af þeim ítarlegri mynd. Megináherslan er á ferðalag aðalpersónunnar en Fern er örlítið óræð og sérlunduð. Hún hleypir fólki ekki léttilega að sér en er forvitin þó. McDormand er þá gjarnan í hlut- verki hlustanda, er myndin safnar spakmælum samferðafólks hennar. Blönduð aðferð Zhao skeytir sam- an „raunverulegu“ fólki við leikara í skáldaðri framvindu sem er byggð á sannri sögu. Þetta þarf ekki að vera augljóst öllum þar sem myndin siglir undir flaggi leikins frásagnarforms en efnistökin eiga að veita áferð heimildaraunsæis. Flakkararnir koma fram undir eigin nafni sem eins konar skáldrænar útgáfur af sjálfum sér. Slík aðferðarfræði er auðvitað ekki ný af nálinni og má sjá mjög greinilega hliðstæðu við önd- vegisverk Agnesar Varda Handan við lög og menn (Sans toit ni loi, 1985). Líflíki Zhao lifnar þó aldrei við á álíka hátt og franska fyrir- myndin og er virðingarstaða McDor- mand sem leikkonu, og þær skorður sem það setur á sjónarhorn mynd- arinnar, greinarmunur þar á. Í mynd Varda var Sandrine Bonnaire á tán- ingsaldri og þar af leiðandi nýgræð- ingur sem skapar allt annað and- rúmsloft og valdajafnvægi milli aðalleikara og ófaglærðra aukaleik- ara en í tilfelli Hirðingjalands. Persónusafn myndarinnar er virkilega litríkt (flækingarnir Linda May, Swankie og búgívúgísöngvari stela senunni) en ögn greinilega reist sem stoðkerfi dramatískrar ferðar aðalpersónunnar. Þetta er sérstaklega áberandi í atriðunum með ungum hippastrák – en einnig í vistinni með fjölskyldu Daves. Sterkar senur með hirðingjahöfð- ingjanum Bob Wells virka líka ein- um of mikið eins og vitjun til vitrings sem miðar gangi mála að úrlausn. Frásagnarmynstrið er almennt nokkuð staðlað og endurtekur sig í nokkur skipti. Taktur klippinga er nokkuð snöggur en hver hluti mynd- arinnar endar jafnan á samtalssenu sem fær meira andrými. Við kafla- skilin taka við svipmyndir af hetj- unni innan um landslag vestursins og skrúfað er upp í píanódrifinni tón- list sem á að framkalla hughrif áhorfenda. Þrátt fyrir að myndin nái ekki há- leitum markmiðum sínum veitir hún innsýn í afkima amerískrar menn- ingar sem er almennt ekki einblínt á í meginstraumsmiðlum. Og margt er vel gert – til að mynda látlaus en glæsileg kvikmyndataka Joshua James Richards sem sýnir vestrið bæði í hversdagslegu og töfrandi ljósi. Gaman er að sjá vegamynd með fullorðinni kvenskyns söguhetju en greinin hefur einatt verið æsku- og karlmiðuð. Sem mynd sinnar teg- undar er Hirðingjaland yfir meðal- lagi. Heimili er ekki hús Yfir meðallagi „Gaman er að sjá vegamynd með fullorðinni kvenskyns söguhetju en greinin hefur einatt verið æsku- og karlmiðuð,“ skrifar rýnir um Nomadland og segir að sem kvikmynd sinnar tegundar sé hún yfir meðallagi. Hér má sjá Frances McDormand á gangi í einu atriða myndarinnar. Háskólabíó og Sambíóin Hirðingjaland/Nomadland bbbnn Leikstjórn, handrit og klipping: Chloé Zhao. Kvikmyndataka: Joshua James Richards. Aðalleikarar: Frances McDormand, David Strathairn, Linda May, Swankie. Bandaríkin og Þýskaland, 2020. 107 mín. GUNNAR RAGNARSSON KVIKMYNDIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.