Morgunblaðið - 22.03.2021, Side 13

Morgunblaðið - 22.03.2021, Side 13
12 FRÉTTIRViðskipti Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MARS 2021 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar anngjörnu verði og að ki förum við með bílinn n í endurskoðun, þér kostnaðarlausu. á s au þin að 22. mars 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 127.3 Sterlingspund 176.49 Kanadadalur 101.77 Dönsk króna 20.359 Norsk króna 14.841 Sænsk króna 14.88 Svissn. franki 136.84 Japanskt jen 1.1688 SDR 181.68 Evra 151.4 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 184.8703 Hrávöruverð Gull 1737.2 ($/únsa) Ál 2192.0 ($/tonn) LME Hráolía 62.99 ($/fatið) Brent « Íslenska hug- búnaðarfyrirtækið Crankwheel hefur gert samstarfs- samning við tækni- fyrirtækin Web- .com (Newfold Digital) og Ringo- ver um notkun á lausnum Crankw- heel. Web.com er bandarískt fyrirtæki með höfuðstöðvar sínar í Flórída og með meira en þrjár milljónir viðskiptavina á heimsvísu. Fé- lagið sérhafir sig í vefsíðuhönnun og sölu léna en þar starfa rösklega 4.000 manns og er veltan yfir milljarður dala árlega. Ringover er aftur á móti franskt fyrirtæki með höfuðstöðvar í París sem býður smáum og meðalstórum fyr- irtækjum upp á símalausn í skýinu og hugbúnað fyrir stjórnun viðskipta- tengsla. Viðskiptavinir Ringover eru rösklega 10.000 talsins. Í tilviki Web.com verður hugbúnaður Crankweel hluti af nýrri þjónustu fyrir fagfólk sem vill koma upp sinni eigin vefsíðu á netinu og tengjast þar við- skiptavinum. Með lausn Crankwheel geta notendur Web.com deilt með væntanlegum viðskiptavinum upplýs- ingum af eigin skjá og þannig kynnt betur vörur sínar og þjónustu. Í tilviki Roingover bætist hugbún- aður Crankwheel við verkfærakistu söluteyma svo þau geti auðveldar sýnt tilvonandi viðskiptavinum vörupplýs- ingar. Crankwheel er rösklega fimm ára gamalt sprotafyrirtæki en er nú þegar með greiðandi viðskiptavini í 59 lönd- um og í sex heimsálfum. Koma 99,9% af tekjum félagsins frá útlöndum. Stofnandi og framkvæmdastjóri Crankwheel er Jóhann „Jói“ Tómas Sigurðsson. ai@mbl.is Crankwheel hefur sam- starf við tæknirisa Jóhann Tómas Sigurðsson STUTT VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is „Ég er þess fullviss að það býr alveg jafn skapandi fólk á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu, en aftur á móti virðist vera mun erfiðara í dreifbýlinu að halda góðri hugmynd á floti nægilega lengi til að hún verði að veruleika.“ Þetta segir Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir framkvæmda- stjóri Eims sem er nýsköpunarverk- efni með áherslu á sjálfbærni og orku. Bakhjarlar Eims eru Lands- virkjun, Norðurorka, Orkuveita Húsavíkur og SSNE. Þær Sesselja og Svava Björk Ólafsdóttir, stofnandi RATA og Hacking Hekla, stýra lausnaverk- efninu Hacking Norðurland sem fer fram dagana 15. til 18. apríl. Er um að ræða nokkurs konar viðskipta- og nýsköpunarhugmyndakeppni og markmiðið að ýta við og efla fólk á Norðurlandi til að færa góðar hug- myndir yfir á næsta stig. Að viðburðinum standa, auk Eims og RATA, Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, Samtök sveitar- félaga á Norðurlandi vestra, Ný- sköpun í norðri, Hacking Hekla og Nordic Food and Tourism. Þema Hacking Norðurland er „matur, orka og vatn“ og áhersla lögð á að laða fram hugmyndir sem hafa tengingu við þemað með ein- hverjum hætti. Sesselja segir þetta þema hafa orðið fyrir valinu vegna þess lykilhlutverks sem matur orka og vatn gegna til að stuðla að sjálf- bærni. „Um allan heim er þörfin fyr- ir þetta þrennt í stöðugum vexti. Hér á Íslandi höfum við fengið mikið af þessu í vöggugjöf og þurfum að nýta orku-, matar- og vatnsauðlindir okk- ar sem best.“ Hvetja frumkvöðla til dáða Hacking Norðurland hefst með vefstofu sem verður öllum opin. Þar flytur Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar- ráðherra, opnunarerindið og í fram- haldinu fjallar Sigurður H. Markús- son nýsköpunarstjóri Landsvirkj- unar um sjálfbæra matvælafram- leiðslu. Þá mun Ragnheiður Lilja Árnadóttir, framkvæmdastjóri raf- hlöðu-nýsköpunarfyrirtækisins Alor, ræða um nýsköpun í orkugeira og Fida Abu Libdeh tala um nýsköp- unarverkefni sem felst í því að nota hliðarafurðir jarðvarmavirkjunar til framleiðslu snyrtivara. Loks verða kynntar niðurstöður rannsóknar Wagenigen-háskóla í Hollandi og Earth 2.0 um forvitnilega nýja möguleika á notkun risagróðurhúsa á Íslandi. Að vefstofunni lokinni mun Hack- ing Norðurland ferðast á milli frum- kvöðlasetra á Noðurlandi. „Viðburð- urinn fer fram á netinu og getur því fólk verið heima hjá sér að vinna að hugmyndum sínum. Ég og Svava ásamt þessum frábæra hópi sem er að skipuleggja Hacking Norðurland munum ferðast um Norðurland þessa helgi og hvetjum við teymin sem búa nálægt þeim stöðum sem við höfum viðkomu á að koma og hitta okkur og vinna með okkur á staðnum þann dag. Þótt tæknin sé frábær er alltaf gaman að hittast augliti til aug- litis.“ Þriggja daga skorpa Dagskráin spannar heila helgi og á lokadeginum eiga teymin þess kost að kynna hugmyndir sínar að vöru eða þjónustu fyrir dómnefnd sér- fræðinga og verða veitt verðlaun fyr- ir bestu hugmyndirnar. Á fyrsta degi Hacking Norðurland verða stjórnendur verkefnisins í Frumkvöðlasetrinu á Hvamms- tanga. Næsta dag leggur verkefnið undir sig Menningarhúsið á Dalvík og helginni lýkur á Hótel Gíg á Húsavík sem um þessar mundir er verið að breyta í nýsköpunarsetur. Standa vonir til að endurtaka leik- inn í öðrum landshlutum og stefnan sett á Austurland með haustinu en Hacking Norðurland verður fylgt eftir með vinnusmiðju í þeim lands- fjórðungi í upphafi sumars. „Nálgunin er sú að leggja grunn- inn að sjálfbærum nýsköpunarsam- félögum á hverjum stað. Hún Svava mun taka það að sér að fá fólkið sem býr á hverjum stað með sér í lið og kenna því að halda lausnamót af svipuðum toga og hlúa að blómlegu nýsköpunarumhverfi,“ segir Sess- elja. „Á hverjum viðkomustað, og í gegnum vefinn, fáum við fólk síðan til að mynda teymi og veitum því síð- an innblástur og leiðsögn til að móta hugmyndir sínar betur og koma auga á ný tækifæri.“ Góðar hugmyndir þurfa endurgjöf og aðstoð Sesselja segir mikilvægt að virkja þann nýsköpunarkraft sem býr í íbú- um landsbyggðarinnar. „Til þess að hugmynd verði að veruleika þarf allt að smella saman. Mikilvægt er að staðbundin þekking sé til staðar svo nýsköpunin verði til í kringum þær auðlindir sem við höfum. Samstarf á landsbyggðinni er lykillinn til að ná því markmiði. Við þurfum að skapa stemmningu fyrir nýsköpun og vinna saman,“ segir hún og bendir á að lík- ast til felist rót vandans í þeim úr- ræðum sem standa frumkvöðlum til boða: „Ástæðan er líklega ekki hvað síst að í dreifbýli hefur fólk alla jafna ekki aðgang að jafngóðu stuðnings- neti og finna má í Reykjavík og ná- grannasveitarfélögum. Á höfuðborg- arsvæðinu eiga hugmyndaríkir einstaklingar hægt um vik að heim- sækja staði eins og nýsköpunarsetr- ið Grósku, hitta þar t.d. fólkið frá Icelandic Startups eða aðra sterka stuðningsaðila og fá endurgjöf og að- stoð við að móta hugmyndir sínar og fylgja þeim eftir,“ segir hún. „Ef stuðningsumhverfið er fyrir hendi er ekki aðeins verið að auðvelda frum- kvöðlum að gera góðar vöru- og við- skiptahugmyndir að veruleika held- ur líka skapa frjóan jarðveg sem fær fleira fólk til að láta á það reyna að upphugsa nýjungar og vinna þár áfram.“ Þátttaka í Hacking Norðurland er ókeypis og geta áhugasmir skráð sig til þátttöku á Facebook-síðu viðburð- arins sem finna má með einfaldri leit. Vilja virkja nýsköpunar- mátt landsbyggðarinnar Morgunblaðið/Sverrir Sprotar „Mikilvægt er að staðbundin þekking sé til staðar svo nýsköpunin verði til í kringum þær auðlindir sem við höfum,“ segir Sesselja. - Verkefnið Hacking Norðurland leitast við að efla samfélag frumkvöðla í dreifbýli Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir Svava Björk Ólafsdóttir Recep Tayyip Erdogan Tyrklands- forseti ákvað á laugarag að reka Na- cil Agbal úr starfi seðlabankastjóra. Agbal er þriðji maðurinn til að gegna embættinu á aðeins tveggja ára tímabili en erfiðlega hefur gengið að koma böndum á þróun peningamála í Tyrklandi og hefur líran veikst mikið gagnvart helstu gjaldmiðlum. Bara á síðasta ári lækkaði gengi lírunnar um 20% mælt í Bandaríkjadölum. Að sögn The Economist er áætlað að tyrkneski seðlabankinn hafi eytt um 130 milljarða dala virði af gjaldeyr- isforða sínum á sama tíma. Var almenn ánægja með skipun Agbals en hann markaði stefnu í átt að hefðbundnari peningastjórnun en fyrirrennari hans í starfi með hækk- un stýrivaxta, meira gagnsæi og fyr- irsjáanleika í ákvarðanatöku bankans og fyrir- mælum um að byrja að styrkja gjaldeyrisforða seðlabankans. Erdogan hefur hins vegar þrýst á seðlabankann að halda vöxtum lágum til að örva atvinnulíf landsins og skapa ný störf en sú peningastefna hefur leitt til verðbólgu og veikara gengis sem valdið hefur gremju hjá hluta kjós- enda. Þegar Agbal hóf störf fyrir fjórum mánuðum lofaði Erdogan að veita honum algjört sjálfstæði. Þó svo að tvö ár séu í næstu for- seta- og þingkosningar í Tyrklandi er orðrómur á kreiki um að Erdogan vilji halda skyndikosningar í þeirri von að styrkja stöðu sína enn frekar og kæmi sér þá illa fyrir forsetann ef atvinnustig er lágt en Erdogan hefur einkum sótt umboð sitt til fólks í lægri þrepum launastigans og til íhaldssamra múslima. Í könnun sem birt var í byrjun þessa mánaðar kom í ljós að fylgi AK Parti, þingflokks Erdogans, hefur minnkað úr 42% í 36% en fylgi samstarfsflokksins MHP minnkað úr 11% niður í 3%. Að sögn FT veldur það fjárfestum áhyggjum að lítið er vitað um skoð- anir nýja seðlabankastjórans, Sahap Kavcioglu, en hann er fyrrum þing- maður og kennir fjármál við Marm- araháskóla í Istanbúl. ai@mbl.is Seðlabankastjórinn rekinn - Von á sveiflum í gengi tyrknesku lírunnar - Orðrómur er á kreiki um að Erdogan hyggist boða til skyndikosninga Recep Tayyip Erdogan

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.