Morgunblaðið - 22.03.2021, Side 21
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MARS 2021
✝
Guðrún Frey-
steinsdóttir
fæddist í Kenn-
araskólanum við
Laufásveg 2. ágúst
1932. Hún lést á
líknardeild Land-
spítalans í Kópa-
vogi 10. mars 2021.
Foreldrar hennar
voru Freysteinn
Gunnarsson, skóla-
stjóri Kennaraskól-
ans, f. 28.8. 1892, d. 27.6. 1976,
og Þorbjörg Sigmundsdóttir, f.
11.11. 1900, d. 1.12. 1976. Bróðir
Guðrúnar var Sigmundur verk-
fræðingur, f. 30.9. 1934, d. 15.7.
2016, eftirlifandi eiginkona
hans er Sigríður Jónsdóttir.
Guðrún giftist 28. mars 1959
Garðari Inga Jónssyni loft-
skeytamanni, f. 28.10. 1932. Þau
Ingunn kennari, f. 21.8. 1964. 4)
Rúna Björg kennari, f. 12.6.
1971, sambýlismaður hennar er
Sæmundur Oddsson, f. 7.4.
1969. 5) Steinunn umhverf-
isskipulagsfræðingur, f. 17.8.
1976, sambýlismaður hennar er
Ari Rafn Sigurðsson, f. 9.5.
1969. Börn þeirra eru Pia
María, f. 6.9. 2007 og Kár Rafn,
f. 29.1. 2010.
Guðrún og Garðar héldu
fyrst heimili á Hagamel 43 í
Reykjavík og síðan á Háaleit-
isbraut 32. Árið 1972 fluttu þau
til Lúxemborgar. Árið 1988
fluttu þau aftur heim og bjuggu
eftir það í húsinu sem þau
byggðu í Byggðarenda.
Guðrún lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum í Reykja-
vík 1953 og kennaraprófi 1955.
Hún kenndi einn vetur við Mela-
skólann, var um hríð bankarit-
ari í Landsbankanum en lengst
af var hún heimavinnandi hús-
móðir.
Útför Guðrúnar fer fram frá
Bústaðakirkju 22. mars 2021 kl.
13.
eignuðust fimm
dætur: 1) Ólöf
sagnfræðingur, f.
29.6. 1959. Dætur
hennar eru: a)
Katla Ísaksdóttir, f.
11.7. 1984, gift
Guðlaugi Háv-
arðarsyni, f. 4.6.
1981. Sonur þeirra
er Styrkár, f. 5.7.
2011. b) Guðrún
Heiður Ísaksdóttir,
f. 14.1. 1989, gift Sveini Steinari
Benediktssyni, f. 7.7. 1981. Dótt-
ir þeirra er Dýrfinna, f. 3.7.
2014. 2) Sigríður, starfsmaður
hjá Cargolux í Lúxemborg, f.
6.1. 1963, sambýlismaður henn-
ar er Romain Gales, f. 22.2.
1958. Sonur þeirra er Jón Pol, f.
24.2. 1995, sambýliskona hans
er Joëlle Donven f. 5.2. 1995. 3)
Guðrún Freysteinsdóttir
tengdamóðir mín er fallin frá.
Alltaf tók hún vel á móti mér með
bros á vör og sló á létta strengi.
Guðrún vildi hafa líf í kringum
sig, helst hafa fólkið sitt hjá sér
en hélt líka góðum tengslum við
vini sína. Alltaf var manni boðið
eitthvað í gogginn og oftar en
ekki var það eitthvað heimabak-
að. Hún var viljug að bjóða fólki
bæði í mat og kaffi. Lengi vel
mættu þau Guðrún, Garðar og
Inga í mat til okkar á mánudög-
um. Eftir matinn horfðum við á
fréttirnar og Kastljósið og sumir
fengu sér líka blund yfir sjón-
varpinu.
Á Byggðarenda tókum við
oftar en ekki í spil og þá varð
rommí fyrir valinu, keppnin var
hörð þótt sumir segðu að þeim
væri sama hver ynni. Henni
fannst líka gaman að leggja kap-
al. Hún var mikil handavinnu-
kona og var alltaf með eitthvað á
prjónunum. Hún tók handavinn-
una með sér hvert sem hún fór
og prjónaði í bílnum ef farið var
út úr bænum.
Við Rúna Björg ferðuðumst
töluvert með þeim hjónum Guð-
rúnu og Garðari, meðal annars til
Lúxemborgar. Þaðan átti Guð-
rún góðar minningar og var gam-
an að fá að heimsækja hennar
fornu slóðir með þeim Garðari.
Við fórum líka eftirminnilega
ferð í kringum landið og aðra til
Vestmannaeyja en þangað hafði
Guðrún aldrei komið áður. Guð-
rún vildi fara í Ribsafari en úr því
varð ekki því það vorum við sem
þorðum ekki en Guðrún var
hvergi bangin. Ef veðrið var gott
fórum við stundum í bíltúr í
Hverahlíð, sumarbústaðalandið
á Reykjum í Ölfusi þar sem faðir
hennar byggði bústað sem Guð-
rún dvaldi mikið í sem barn með
foreldrum sínum og seinna einn-
ig með sínum börnum. Þessi
staður var henni afar kær. Eftir
að bústaðurinn var rifinn útbjó
fjölskyldan litla laut með nestis-
borði og þar höfum við ósjaldan
gætt okkur á dýrindisnesti og
drukkið heitt súkkulaði með.
Ég minnist Guðrúnar af hlý-
hug og er þakklátur fyrir að hafa
kynnst henni. Margs er að minn-
ast og minningarnar lifa áfram.
Sæmundur.
Elsku amma, mér fannst best
að kúra hjá þér í sófanum og
spila við þig. Alltaf þegar ég kom
sagðir þú: „Neiiih, er þetta ekki
litli sólargeislinn minn?“ og
brostir þínu breiðasta brosi. Mér
fannst gott þegar þú last bókina
um Lalla músastrák fyrir mig.
Þú sýndir alltaf áhuga á öllu sem
ég gerði og þér fannst svo gaman
að heyra mig spila á fiðluna fyrir
þig. Þú gerðir alltaf allt fyrir mig
sama hvað það var.
Takk fyrir allar góðu stund-
irnar elsku amma mín.
Pia María ömmustelpa.
Ég man að þegar ég kom í
heimsókn sat amma oft í sófanum
að prjóna eða horfa á sjónvarpið.
Síðan leit hún upp og sagði: „Hæ
litli ljúfur.“ Stundum fórum við í
Hverahlíð saman og fengum okk-
ur eitthvað gott að borða. Mér
fannst alltaf gott að heimsækja
hana því mér fannst góður andi
svífa um í loftinu hjá henni.
Veistu ef þú vin átt
þann er þú vel trúir
og vilt þú af honum gott geta.
Geði skaltu við þann blanda
og gjöfum skipta,
fara að finna oft.
(Úr Hávamálum)
Kári Rafn.
Amma mín, Guðrún Frey-
steinsdóttir, er dáin. Hún hefur
alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá
mér. Hún passaði mig þegar ég
var lítil og ég man það enn svo
vel. Við sátum saman við
gluggann í borðstofunni og leit-
uðum að gulum strætó. Hún
sagði mér sögur um Bangsímon
og litla kettlinga og hún sagði,
eins og við okkur öll, barnabörnin
og barnabarnabörnin: „Hver er
sætust og bestust?“ Þegar hún
huggaði mig tók hún utan um mig
og sagði „litla ljúfan og stúfan og
stúfan og ljúfan.“ Þegar lífið lék
mig grátt á fullorðinsárunum tók
hún utan um mig og vaggaði mér
fram og aftur eins og þegar ég
var lítil. „Lífið er ekki alltaf sann-
gjarnt,“ sagði hún eitt sinn og
mér líður svolítið þannig núna
þótt ég viti líka hversu þreytt hún
amma var orðin og tilbúin að
kveðja. Hún var til fyrirmyndar í
öllu því sem hún tók sér fyrir
hendur. Hún var líka góð
langamma og dóttir mín, Dýr-
finna, fékk að kynnast því að eiga
hana sem ömmu. Við Sveinn,
maðurinn minn, giftum okkur í
garðinum hjá ömmu og afa á
Degi íslenskrar náttúru. Heimili
þeirra var okkur alltaf opið.
Amma var gullfalleg og glæsileg.
Hún hafði góðan smekk og
byggði upp fallegt heimili með
afa, fullu af dætrum og málverk-
um og fallegum munum. Hún
hafði gott auga fyrir þannig lög-
uðu og við fórum stundum saman
á listsýningar. Hún mætti líka
alltaf á sýningarnar mínar og
skoðaði listaverkin hjá grasrótar-
senunni af áhuga. Hún var ung
kona á áhugaverðum tímum á Ís-
landi. Ísland var nýorðið sjálf-
stætt ríki og var að móta sig sem
slíkt. Einn hluti af því ferli var að
eignast listamenn; listmálara,
skáld og tónskáld til að fanga
þjóðarandann á striga eða í ljóði
til að undirstrika fyrir umheim-
inum: við erum þjóð. Þegar ég
hugsa til ömmu finnst mér eins
og öll ljóðin frá þessum tíma séu
um hana og að nú, þegar hún er
farin, hljóti allar bækurnar að
standa auðar í hillunni. Amma
skilur eftir tómarúm sem þarf að
venjast. Við áttum góða stund
saman síðast þegar við hittumst,
aðeins nokkrum dögum áður en
hún kvaddi. Amma hafði verið á
líknardeild Landspítalans í
Kópavogi síðustu vikurnar og þar
fór vel um hana. Við héldumst í
hendur og hlustuðum á Elly Vil-
hjálms, fengum okkur eplaköku
með rjóma og létum fara vel um
okkur. Ég er þakklát fyrir þessa
stund og ég verð ævinlega þakk-
lát fyrir að hafa átt Guðrúnu
Freysteinsdóttur sem ömmu. Ég
kveð hana með ljóði sem faðir
hennar skrifaði skömmu áður en
hann kvaddi þennan heim.
Sígur fögur sól í hafið
Sígur fögur sól í hafið,
sveipar myrkur hljóða strönd.
Auðn og skuggum allt er vafið,
óðar hyljast dagsins lönd.
Birta og hlýja er horfin skjótt.
Hljóð og þögul ríkir nótt.
Svo er lífið, líkt og dagur,
liðið fyrr en nokkur veit.
Hinsti geislinn gullinfagur
glitrar yfir foldar reit.
Eftir liðinn ljúfan dag
ljósið dvín við sólarlag.
Dimmt er yfir hér í heimi,
harmaskuggi daginn fól.
Samt ei dvínar guðs í geimi
geislaskin af lífsins sól.
Bak við dauðans dimma haf
degi nýjum ljómar af.
(Freysteinn Gunnarsson)
Guðrún Heiður Ísaksdóttir
Elsku amma mín, Guðrún
Freysteinsdóttir, er nú farin á vit
ævintýra. Ég þakka fyrir hversu
friðsæl hún var og að okkur Gulla
lánaðist að kveðja hana daginn
áður en hún fór.
Fyrstu árin mín bjuggu amma,
afi og þrjár móðursystra minna í
Lúxemborg. Ein af mínum fyrstu
minningum er þegar ég lagði
land undir fót fjögurra ára gömul
og heimsótti þau í „Bolandið“.
Minningin er góð. Ég átti afmæli
og fékk gjafir, en amma orðaði
það oft hversu mikið hún hafi vor-
kennt mér að vera fjarri mömmu
minni. Henni var annt um að nán-
ir væru saman. Sjálf vildi hún
alltaf hafa okkur hjá sér, stelp-
urnar og barnabörnin, og síðar
barnabarnabörnin tvö. Tengda-
börnin áttu líka sérstakan stað í
hjarta hennar.
Amma mín var án efa færari
en flestar húsmæður. Það átti
hún að þakka því hversu mikla
gleði hún upplifði við umönnun
dætra sinna og afkomenda, þeirri
natni sem hún sýndi við húsverk
og heimilishald, og ekki síst við
matseld. Heima hjá ömmu og afa
á Byggðarenda átti ég alltaf góða
máltíð vísa og desert að henni
lokinni. Það var huggun að koma
þangað á unglingsaldri og njóta
þess að borða góðan mat og spila
rommí við ömmu.
Þegar Gulli, maðurinn minn,
kom til sögunnar komum við oft á
Byggðarenda í fjölskylduboð og
áttum góðar stundir með ömmu,
afa og frænkum mínum. Þar ríkti
væntumþykja og gleði, og eftir-
minnilegt hversu bjart var yfir
okkur í borðstofunni og sparistof-
unni, prýddri dásamlegum út-
saumuðum púðum eftir hana
ömmu mína.
Amma var hógværust hann-
yrðakvenna og tók aldrei í mál að
vera hrósað fyrir verk sín. Á
kvöldin kom hún sér fyrir í sjón-
varpsherbergi þeirra hjóna og
prjónaði, saumaði út eða stoppaði
í sokka. Hún var iðin við lestur og
las bækur af skyldurækni, hvort
sem henni líkaði þær eður ei.
Eins sóttu þau afi leikhúsin og
fóru þangað snyrtileg til fara eins
og þau voru alltaf. Amma lét okk-
ur vita hvort henni hefði líkað
verkin eða ekki. Hún fylgdist
með bókmenntum og listum, sótti
sýningar sér til fræðslu og gam-
ans, og las blöðin daglega.
Þegar leið á ævikvöld ömmu
þótti mér vænt um hversu náin
tengsl hún átti við Piu Maríu
frænku mína sem verður fermd
nú í vor. Ég minntist þess oft að
hafa sjálf verið lítil ömmustelpa
og fann þá hve dýrmæt ævin er,
og hvernig hlutverk okkar breyt-
ast. Amma varð sýnilega glöð í
hjartanu þegar Pia birtist í dyra-
gættinni. Henni leyfðist að knúsa
ömmu sína og kyssa þrátt fyrir
faraldurinn. Ég er viss um að
þessi faðmlög voru ómetanleg
fyrir ömmu á þessu stigi lífs
hennar og fann oft hversu þakk-
lát ég var fyrir þessa litlu björtu
manneskju, og eins fyrir yngri
bróður hennar, hann Kára Rafn,
og fyrir Styrkár son minn og
Dýrfinnu systurdóttur mína.
Börnin áttu það til að spila á
hljóðfæri fyrir ömmu sína sem
henni þótti mjög vænt um.
Guðrún Freysteinsdóttir var
elskuverð og elskandi eiginkona,
móðir, amma og langamma,
tengdamamma og tengdaamma.
Verk hennar, brosmildi og hlýja
báru elsku hennar alltaf ótvírætt
vitni.
Ég dái þig að eilífu, amma!
Takk fyrir að sýna mér leyndar-
málið um húsverkin.
Þín Katla
Katla Ísaksdóttir
Ég minnist Guðrúnar Frey-
steinsdóttur, frænku minnar,
með hlýhug. Ég kallaði hana
Gunnu í Byggðaenda, þar sem
hún og Garðar hafa búið. Þegar
ég lít yfir farinn veg, koma marg-
ar skemmtilegar minningar upp.
Þegar ég var lítill var gaman að
hitta ykkur í bústaðnum og sund-
lauginni í Hveragerði. Ég man
þegar ég fór í „interrail-ferð“ um
Evrópu, fyrir margt löngu, þá var
upphafsstaður ferðarinnar hjá
ykkur í Luxembourg. Það var svo
fallegur staður sem þið bjugguð á
í Luxembourg, og var tekið á
móti manni eins og konungi. Guð-
rún, Þú kunnir að fagna lífinu.
Það sást á þeim fjölmörgu rausn-
arlegu jóla- og afmælisboðum,
sem þið hélduð í Byggðaenda, en
þar var maður alltaf aufúsugest-
ur. Þegar veislu var að ljúka var
iðulega spurt: Nonni viltu ekki
vera lengur? Eins hefur verið
gaman að hitta ykkur við jólatrjá-
atínslu í Kötlugili. Ég tók fljótt
eftir því að þú hafðir alltaf mikinn
áhuga á því hvað ég væri að gera,
og hvað ég hefði fyrir stafni.
Gunna, ég vona að hlýhugurinn
og kærleikurinn, sem ég upplifði
frá þér, muni fylgja mér áfram,
nú þegar þú ert gengin á vit for-
feðranna. Ég bið að heilsa afa
Freysteini og ömmu Þorbjörgu.
Ég held að þú megir vera mjög
stolt af þínu lífi og af börnunum
þínum og barnabörnum. Allt gott
fólk. Guð geymi þig Guðrún og
megir þú hvíla í friði. Guðrún,
takk fyrir mig! Þín verður sakn-
að. Með kærri kveðju,
Jón Sigmundsson (Nonni)
Guðrún
Freysteinsdóttir
„Hverra manna
ert þú?“ gall í Gerð-
ari Óla Þórðarsyni
þegar ég hitti hann
í fyrsta sinn á Þor-
láksmessu fyrir þremur árum.
Jú, það var hægt að rekja saman
ættir enda báðir ættaðir að vest-
an. Fundum okkar Gerðars bar
fyrst saman á heimili Gyðu dótt-
ur hans þar sem ég var farinn að
venja komur mínar. Þó að leiðir
okkar hafi ekki legið saman leng-
ur en þessi rúmu þrjú ár er mér
löngu ljóst að í Gerðari fór mikill
gæðamaður sem lét sér annt um
sitt fólk, gat verið bæði alvöru-
gefinn og gamansamur. Hann
var á seinni árum virkur í stjórn-
málasamtökum, hafði sínar skoð-
anir, var ófeiminn við að viðra
þær og var ekkert endilega að
Gerðar Óli
Þórðarson
✝
Gerðar Óli
Þórðarson
fæddist 20. apríl
1940. Hann lést 4.
mars 2021.
Útför hans fór
fram 16. mars 2021.
biðja mann um að
vera sammála sér.
Fráfall hans er
öllum aðstandend-
um mikill harmur.
Það er óhætt að
segja að Gerðar,
áttræður að aldri,
hafi leikið á als oddi
undanfarið. Hann
varð ekill eftir konu
sína Gyðríði fyrir
rúmum tveimur ár-
um en hafði eignast góðan félaga
í Þórunni Guðnadóttur sem var
tilbúin til að ferðast um landið í
húsbílnum með honum og njóta
lífsins. Það bókstaflega geislaði
af þeim. Það var því mikil harma-
fregn að heyra af áfallinu sem
dró hann til dauða og kom eins
og þruma úr heiðskíru lofti.
Elsku Gyða, Jónína, Magnús,
Lilja, Gunný, Þórunn og aðrir
aðstandendur, mínar innilegustu
samúðarkveðjur.
Gerðars verður sárt saknað en
minningin um góðan dreng mun
lifa.
Hallur Helgason.
Guðrún Helga
Sigurðardóttir vin-
kona mín verður
jörðuð í dag. Hún var hrifin frá
okkur langt fyrir aldur fram að-
eins 57 ára.
Allar minningarnar sem
hrannast upp sem perlur um
vinkonu mína eru svo skemmti-
legar og yndislegar. Þær munu
fylgja mér alla ævi. Vinkon-
uferðir, hittingar, brauðgerð og
alls konar í lífi og leik. Við erum
fæst búin að átta okkur á að hún
sé farin og það mun taka langan
tíma.
Guðrún Helga var blaðamað-
ur og ferðafrömuður ásamt svo
mörgu öðru. Skarpgreind,
snaggaraleg og alltaf til í að
standa upp og skreppa eitthvað
út í buskann á vit ævintýra.
Meir að segja til Berlínar með
mér á ITB Berlín og við bjugg-
um á gistiheimili á fimmtu hæð
með enga lyftu. Ódýrt og fínt
gistiheimili inni í miðju stripp-
búlluhverfi Berlínar. Var bara
eitt af ævintýrunum sem munu
alltaf lifa í hjartanu.
Hún gaf einnig út bókina
Traditional Icelandic Food sem
margir ferðamenn mínir keyptu
Guðrún Helga
Sigurðardóttir
✝
Guðrún Helga
Sigurðardóttir
fæddist 16. sept-
ember 1963. Hún
lést 20. febrúar
2021.
Útför Guðrúnar
Helgu fór fram 8.
mars 2021.
í minjagripaverslun
Þingvalla. Hún hló
mikið þegar hún
heyrði af vinsæld-
um bókarinnar hjá
körlum frá Indóne-
síu. Þeir hafa nefni-
lega fyrir áhugamál
að elda og eiginkon-
ur gera þeim mik-
inn greiða þegar
þeir fá að snerta
eitthvað í eldhús-
inu.
Guðrún Helga og maður
hennar Friðrik eiga ferðaþjón-
ustufyrirtæki sem þau stofnuðu
og var/er hágæðarekstur í ferða-
þjónustu. Sögurnar og minning-
arnar með Guðrúnu Helgu eru
svo ótrúlega margar sem maður
man. Hittingar á ferðamanna-
stöðunum. Gistingar á Akureyri,
Austfjörðum og víðar þar sem
við hittumst hvor með sinn hóp-
inn og áttum svo frístund um
kvöld til að eiga vinkonugæða-
stundir í spjallinu og gönguferð.
Gulli og perlum að safna sér,
sumir endalaust reyna,
vita ekki að vinátta er,
verðmætust eðalsteina.
Gull á ég ekki að gefa þér
og gimsteina ekki neina.
En viltu muna að vináttan
er verðmætust eðalsteina.
(Hjálmar Freysteinsson)
Hvíl í friði elsku vinkona.
Mín dýpsta samúð til eigin-
manns og fjölskyldu.
Þórey Anna Matthíasdóttir.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
JÓNA GUÐNÝ JÓNSDÓTTIR,
Álftamýri 26,
lést mánudaginn 15. mars á Landspítala
Fossvogi. Útför hennar fer fram frá
Kópavogskirkju miðvikudaginn 24. mars klukkan 15.
Í ljósi aðstæðna eru gestir beðnir um að hafa með sér á blaði
nafn, kennitölu og símanúmer. Útförinni verður streymt á
slóðinni: https://livestream.com/luxor/jona
Aðalheiður Benediktsdóttir Hörður Árnason
Jón Ágúst Benediktsson Jónína Sigurðardóttir
Guðrún Þóra Benediktsd. Hjörtur Erlendsson
Þórður Benediktsson Kristín Unnur Þórarinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn